Dagur - 16.03.1999, Qupperneq 1
Þeirstofnuðu bílskúrsband
fyrír tæpum 30 árum og voru
á hátindiferilsins árið 1972
þegarhún hlaut nafnbótina
Unglingahljómsveit ársins -
ogeru enn að...
I kringum 1970 tóku nokkrir 11-12 ára
piltar sig saman og stofnuðu hljómsveit.
Enginn í hljómsveitinni átti né kunni á
hljóðfæri en tveimur árum síðar spilaði
hljómsveitin, og sló í gegn, um verslunar-
mannahelgi í Húsafelli árið 1972. Þar
tóku þeir þátt í árlegri hljómsveitakeppni
og var sveitin þeirra kjörin unglingahljóm-
sveit ársins. Rösklega 13 ára gamlir voru
meðlimir hljómsveitarinnar Skóhljóð sem
sagt á „hátindi frægðarinnar“ tilkynntu
þeir blaðamanni þegar þeir voru heimsótt-
ir í æfingaaðstöðu sína á Eiðistorgi í síð-
ustu viku.
Nafnið valið blindandi
Skóhljóð hljómar eilítið skringilegt hljóm-
sveitarnafn enda var það valið í snarhasti.
Þannig var að þegar strákarnir ætluðu að
skrá sig í hljómsveitakeppnina í Húsafelli
þurftu þeir að koma sér upp nafni með
nokkurra klukkustunda fyrirvara. Ragnar
fór þá í bókaskáp foreldra sinna, dró út
Ijóðabók eftir Orn Arnarson, opnaði hana
og setti puttann blindandi á eitt ljóðið -
sem hét Skóhljóð.
-En af hverju dkvúðuð þið að stofna
hljómsveit?
„Það kom bara ekkert annað til greina,“
svöruðu þeir. „Þetta var bara svo hrikalega
töff.“
Einokuðu Hagaskólaböllin
Strákarnir voru samtíða í Melaskóla og
síðar í Hagaskóla og eru allir fæddir á ár-
unum 1957-9. Ferillinn lá reyndar ekki
strax niður á við eftir Húsafell ‘72 því
sumarið á eftir bauð ein aðalhljómsveit
landsins á þeim tíma, Roof Tops, ungling-
unum í Skóhljóð að vera pásuhljómsveit.
Sumarið 1973 þeyttust Skóhljóðarar því
Hin 29 ára gamla hljómsveitin Skóhljóð, sem skipuð er félögum í Ungmennafélaginu Skóhljóð, spilar einkum rokk og blús með bítlaívafi. Albert
Pálsson [húsamálarij spilar á hljómborð, Ragnar Björnsson [rafeindavirki) syngur og spilar á banana, kassagítar og munnhörpu, Eiríkur Thorsteins-
son [kvikmyndagerðarmaðurj spilar á bassa, Ásgrímur Guðmundsson (bókhaldari) á gítar og Þórhallur Andrésson (verslunarlmaður) ber tromm-
urnar. Nokkrar mannabreytingar hafa orðið í hljómsveitinni í gegnum tíðina, m.a. eru tveir meðlimanna látnir, Ingvar Haukur Sigurðsson og Jónas
Björnsson. mynd: teitur.
um landið og spiluðu á sveitaböllum með
Roof Tops. A sama tíma hafði bandið náð
nánast einokunarstöðu á HagaskólaböII-
unum vegna þess að skólastjórnendur
höfðu ákveðið að banna aðkeyptar hljóm-
sveitir á gagnfræðaskólaböllum, vegna láta
sem þeim fylgdu. „Þannig að við sátum
bara að þessu.“
Eiginkomimar halda vart vatni
Eftir þessa snemmbúnu frægð lagðist
hljómsveitin í dvala, leiðir skildu eftir
gagnfræðaskóla og hefðbundið lífshlaup
tók við. Sveitin kom þó saman öðru hvoru
en vaknaði ekki almennilega til lífsins fyrr
en upp úr 1990. Sveitin fór að hittast aft-
ur regluiega og árið 1994 fengu þeir sitt
fyrsta alvöru „gigg“ síðan Roof Tops sællar
minningar. Skóhljóð var beðin um að spila
á 20 ára gagnfræðaafmæli ‘58 árgangsins í
Hagaskóla á Rauða ljóninu. (Það er
kannski óviðeigandi að taka það fram að
Ragnar söngvari í Skóhljóði sat víst í
skemmtinefndinni og misnotaði þannig
sín pólitísku völd...) Skóhljóði var vel tek-
ið á gagnfræðaafmælinu og síðan hafa
þeir verið fengnir til að spila við ýmis tæki-
færi - m.a. fertugsafmæli hvers annars...
Og því hefur Skóhljóð nú ákveðið að
taka spilamennskuna loks alvarlega. Var
fyrir nokkrum dögum að ganga frá kaup-
um á æfingahúsnæðinu á Eiðistorgi, sem
þeir hafa leigt til þessa. Eru búnir að
hljóðeinangra aðstöðuna svo rækilega að
þeir geta hæglega gengið þar af göflunum
án þess að barflugur Rauða ljónsins í
næsta sal heyri svo mikið sem gítarhljóm.
Þegar húsnæðið fékkst til leigu, þann 18.
desember 1996, var Ungmennafélagið
Skóhljóð stofnað og eru nú haldnir viku-
Iegir fundir í aðstöðunni á Eiðistorgi sem
gengur undir nafninu Karlaathvarfið með-
al eiginkvennanna.
„A fundum hjá Ungmennafélaginu er
pínulítið spilað, pínulítið kjaftað og drukk-
inn pínulítill bjór - svona til að halda
bragðlaukunum við,“ segja þeir ljómandi á
svip og kinka ákafir kolli þegar spurt er
hvort eiginkonurnar séu sáttar við Ung-
mennafélagsfundina. „Þeim er nefnilega
boðið reglulega til að hlusta á strákana,
þ.e. einu sinni á ári. Og alltaf vekjum við
þvílíka lukku hjá þessum kerlingum, þær
gráta hér og halda varla vatni. (hvíslaði þá
einn þeirra: Það má nú gefa svona 50% af-
slátt af þessu)...“ LÓA
C&ð[MnEGfi5
fl^nTOITT?T3jffaFn
ofiMfllT
'GEEðlGgCÍMMfi
ORMSSONHF
S(mi 533 2800
l augunoc,eyrun
Þriggja ára abyrgð
a ollum Pioneer hljomflutningstækjum
[minm • Geisláspilarii
aiWqtb is kantfcÍStatra
1900 - (ektiilifTnifalió i veröij.
nc •. r»rrj n j íí'i l >
i'j'í'i' I
,a)'i