Dagur - 16.03.1999, Page 2
18 — ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999
LÍFIÐ í LANDINU
.D^ííI"
SMATT OG STORT
UMSJON:
SIGURDOR
SIGURDÓRSSON
Jóhanna
Sigurðardóttir.
Eggert Haukdal.
GULLKORN
Hrein mey
I snörpum umræðum á Alþingi um skýrslu for-
sætisráðherra um stöðu, aðbúnað og kjör ör-
yrkja í síðustu viku tók Jóhanna Sigurðardóttir
skýrsluna og hreinlega tætti hana niður mál-
efnalega. Siv Friðleifsdóttir sagði í sinni ræðu
að Jóhanna Sigurðardóttir hefði verið félags-
málaráðherra í 7 ár og því gæti hún ekki Iátið
eins og „hrein mey“ í þessum málum. Um
þetta var nokkuð rætt í þinghúsinu. Okkur
Hjálmari Jónssyni kom saman um að þetta
verðskuldaði vísu og settum þetta saman:
Þingmenn æstir óhu í hlað
og andann á lofti tóku.
Hver er það sem ætlar að
afmeyja hana Jóku.
Bllkkaði Steina stuð
Eggert Haukdal bóndi á Bergþórshvoli og fyrr-
verandi alþingismaður, var með sérstakt fram-
boð til Alþingis fyrir fjórum árum og hafði Iisti
hans bókstafinn S. Nú hefur samfylkingin
fengið þessum listabókstaf úthlutað. Eggert
segir í Sunnlenska fréttablaðinu að hann hefði
ekkert þurft að gefa þennan listabókstaf eftir.
„Það er tekinn af manni listabókstafurinn.
Fyrst hringdi Svavar Gestsson, svo Margrét
Frímannsdóttir og loks Jakob Frímann Magn-
ússon öll þessara erinda. Svo hlýtur forsætis-
ráðherraefni þeirra að hafa blikkað Steina stuð
(Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra) því allt
í einu var samfylkingin komin með þennan
bókstaf. Það var því gengið fram hjá mínum
rétti og okkar sem stóðum að Suðurlandslist-
anum,“ segir Eggert Haukdal.
Hestaleigan
„Því er nú þannig
háttað að þessir
fulltrúar þjóðar-
innar á þingi fara
með afkomu okk-
ar og örlög. Kirkju
Krists er ekkert
mannlegt óvið-
komandi og að því
gefnu tel ég að
raddir þessara
fulltrúa eigi full
erindi inn í kirkj-
una.“
Séra Onundur Björns-
son aðspurður um
ástæður þess að hann
fékk þingmenn Suður-
lands til að predika í
kirkju sinni.
Víða um Iand eru reknar hestaleigur fyrir
ferðamenn, bæði stórar og smáar. Það gerðist
á einni slíkri að maður úr Reykjavík vildi taka
hest á leigu og Ieist hestaleigumanninum ekki
meira en svo á Reykvíkinginn sem væntanlega
knapa. Hann lét þó undan en bað Reykvíking-
inn að greiða hestaleiguna fyrirfram. Sá reidd-
ist þessu og spurði hvort hann héldi að hann
myndi ekki skila hestinum aftur. „Jú áreiðan-
Iega,“ svaraði hestaleigumaðurinn, „en hitt
gæti komið fyrir að hesturinn skilaði þér ekki
aftur.“
Aldur og sannsögli
Dómari kallaði miðaldra konu fyrir rétt sem
vitni og sagði: „Fyrst ætla ég að spyija þig um
aldur og síðan ætla ég að áminna þig um
sannsögli."
Þroskaferli ungl-
ingsáranna, sem
mörgum reynast
erfið,“ segir sr.
Halldór Reynisson,
prestur í Neskirkju í
Reykjavík.
Brugðist við
neikvæðri gerjun
„Tilgangurinn með þessum sam-
ræðukvöldum hér í Vesturbæn-
um er að við reyna að skilja betur
hvað er á seyði í lífi unglinganna,
þá meðal annars með óróann í
Hagaskóla á fyrstu dögum þessa
árs í huga. A samræðukvöldun-
um fáum við fagfólk til að ræða
þau atriði þar sem mest á reynir
meðan krakkarnir ganga í gegn-
um þroskaferli unglingsáranna,
sem mörgum reynast erfið,“ segir
sr. Halldór Reynisson, prestur í
Neskirkju í Reykjavík.
Óróleiki og neikvæö gerjun
Nokkur félagasamtök í Vestur-
bænum í Reykjavík standa um
þessar mundir fyrir samræðu-
kvöldum, þar sem ýmis mál er
brenna á unglingum eru tekin
fyrir og bera þau yfirskriftina SAM-vera í Vest-
urbænum. Fundir eru haldnir í Hagaskóla og
fyrsta fundinn sóttu hartnær 300 manns, en þar
voru samskipti unglinga og foreldra sérstaklega í
brennidepli. Næsti fundur verður þann 25.
mars og þar mun Einar Gylfi Jónsson sálfræð-
ingur mæta og ræða fíkniefnamál, ofbeldi og
ýmsar slíkar hættur. Þriðji og síðasti fundurinn
verður 8. apríl en þar mun Sóley Bender hjúkr-
unarfræðingur ræða kynferðismál og siðferði
kynlífs.
„Ég held að staða unglingamála sé svo sem
ekki verri eða betri hér í Vesturbænum en hvar
annarsstaðar, þó Hagaskólamálin hafi komið
upp. Hinsvegar verðum við vör við óróleika og
Félagasamtök og
kirkjan í vesturbæ
Reykjavíkur standa
nú að umræðufund-
um um málefni ung-
linga, sem berayfir-
skriftina SAM-vera í
Vesturbænum.
neikvæða geijun meðal unglinga
og við henni þarf að bregðast,"
segir Halldór Reynisson, sem
segir að vímuefnaneysla í dag sé
komin niður í yngri hópa en áður
hafi sést, jafnvel niður í ferming-
arárganginn. - „Reykjavík er
vægðarlausari borg en áður var.
Eg sé mun á borgarlífinu í þá átt
frá því ég fluttist aftur í hæinn
fyrir Ijórum árum, eftir að hafa
verið í níu ár prestur út á landi,
að ég tali ekki um breytinguna
sem orðið hefur á samfélaginu
hér í borginni ef litið er enn
lengra aftur í tímann."
SPJALL
Margfalt fleirl tækifæri
Að SAM-veru í Vesturbænum
standa Hagaskóli, Foreldrafélag
Hagaskóla, félagsmiðstöðin
Frostaskjól, Dómkirkjan, KR, Skátafélagið Æg-
isbúar og Neskirkja. Halldór Reynisson segir að
kristnir söfnuðir komi margir að málum sem
þessum og fjölmargir einstaldingar í vanda
staddir, til dæmis vegna vímuefnaneyslu, leiti til
sóknarpresta sinna, sem reyni að greiða götu
þeirra skjólstæðinga sinna sem kostur sé. „Ég vil
vekja athygli á þeirri staðreynd að unglingar í
dag hafa margfalt fleiri tækifæri en til dæmis ég
hafði þegar ég var á þeirra aldri fyrir þrjátíu
árum. En að sama skapi er Iíka miklu auðveld-
ara að misstíga sig og verða hættum að bráð.
Þar þurfum við fullorðna fólkið að hjálpa unga
fólkinu," segir sr. Halldór Reynisson. -SBS.
FRA DEGI TIL DAGS
„Hver dáð sem maðurinn drýgir er
draumur um konuást.“ Stefán frá Hvítadal
Þaufæddust 16.mars
• 1913 fæddist Nína Tryggvadóttir list-
málari.
• 1917 fæddist Andrés Björnsson út-
varpsstjóri
• 1927 fæddist sovéski geimfarinn Vla-
dimir Mikhaílovitsj Komarov.
• 1940 fæddist ítalski kvikmyndaleik-
stjórinn Bernardo Bertolucci.
• 1970 fæddist Páll Óskar Hjálmtýsson
tónlistarmaður.
Þetta gerðist 16. mars
• 1968 myrtu bandarískir hermenn nokk-
ur hundruð manns (karla, konur og
börn) í þorpinu My Lai í Víetnam.
• 1978 var ítalska stjórnmálamanninum
Aldo Moro rænt af skæruliðahreyfingu
sem nefndist Rauðu herdeildirnar.
• 1980 hófst fjórða hrina Kröfluelda.
• 1983 voru undirritaðir samningar um
kaup Reykjavíkurborgar á Viðey.
• 1986 flutti Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti ræðu þar sem hann hvatti þingið
til að samþykkja Qárstuðning handa
Contra-skæruliðum í Níkaragúa.
Merkisdaguriim 16. mars
í dag er Gvendardagur. Guðmundur góði
Arason Hólabiskup lést á þessum degi
árið 1237. Mikil helgi var á Guðmundi í
Katólskum sið og eimdi lengi eftir af
dýrkun hans, einkum á Vestfjörðum. Þar
eru heimildir um tilhald á messudegi
Guðmundar frá á 20. öld. Sunnanlands
var gert ráð fyrir veðrabrigðum til hins
verra þennan dag, eða daginn eftir, og
jafnvel talið ills viti ef það brást.
Vísan
Vísu dagsins orti Páll Ólafsson um unga
stúlku:
Ekki tala málið margt
má við svanna ungan,
þá er eins og stálið stælt
strax í henni tungan.
Fyrir réttum 210 árum, þann 16.
mars árið 1789, fæddist í Erlangen í
Þýskalandi stærðfræðingur að nafrji
Georg Simon Ohm. Hannn uppgötv-
aði lögmálið, sem við hann er kennt,
og segir að straumur um rafrás sé í
réttu hlutfalli við rafspennuna en í
öfugu hlutfalli við viðnám rásarinn-
ar. Uppgötvun hans var tekið heldur
fálega í fyrstu en hafði mikil áhrif á
rafmagnsfræði. Mælieiningin yfir
viðnám gegn rafstraumi var síðar
nefnd í höfuðið honum. Ohm Iést
árið 1854.
Siggi lærir að keyra
Siggi var nýkominn með bílpróf. Fjölskyld-
an fjölmennti að fjölskyldubílnum fyrir
utan heimilið og settist inn. Siggi ætlaði
að fara með foreldra sína í fyrstu ökuferð-
ina og sýna þeim hvað hann var nú góður
ökumaður þrátt fyrir ungan aldur. Jónas
settist í aftursætið beint fyrir aftan Sigga
litla.
„Ég er viss um að þú situr þarna til að fá
öðruvísi útsýni úr bílnum en þú ert vanur,
pabbi minn, frekar en að sitja í framsætinu
eins og þú ert búinn að gera allan tímann
á meðan ég var í æfinga-akstri,“ sagði glað-
ur unglingurinn við föður sinn. „Ne-hei!“
sagði Jónas, faðir hans. „Ég ætla að sitja
hérna og sparka aftaná sætið á meðan þú
ert að keyra, nákvæmlega eins og þú ert
búinn að gera síðastliðin sautján ár!“
'Hfit I'
íKrrri
Íí