Dagur - 16.03.1999, Qupperneq 3
ÞRIDJUDAGUR 16. MARS 1999 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Einhver innri kraftur
Rífandi
stemmning
einkenndi
stökkmót-
ið, sem
haldið varí
íþróttahöllinni áAkur-
eyri á sunnudags-
kvöld. Metin féllu og
sigurbros sáust á vör.
Og áhorfendurvoru
fjölmargirá öllum
aldri.
í hæstu hædum. Jón Arnar Magnús-
son plummaði sig vel í stangarstökki
og sveifyfir rána sem var í 5,20 metra
hæð. Bekkir íþróttahallarinnar voru
þéttskipaðir og áhorfendur veittu
keppendum mikilsverðan stuðning.
mynd: brink
karla og í síðastnefndu greininni
gerðust ævintýrin. Þá tókst
Húnvetningnum ljóshærða, Ein-
ari Karli Hjartarsyni, sem keppir
undir merkjum ÍR, að tvíbæta
Islandsmet sitt á fáeinum mín-
útum. Metið var 2,16 m. og
fyrst reyndi Einar við hæðina
2,17 m. Ahorfendur klöppuðu
og Einar vildi meira klapp svo
þeir sem í salnum voru gáfu í
með lófataki sín. Ein, tveir,
einn, tveir. Einar náði íslands-
meti í annarri atrennu. Það
gengur betur næst, segir mál-
tækið og Iét Einar hækka rána
upp í 2,20 m. Áhorfendur Iétu
ekki sitt eftir liggja og klöppuðu.
I fyrstu atrennu sveif hann yfir
og fagnaðarlátunum í Höllinni
ætlaði seint að linna. Aðeins af-
reksmenn tvíbæta met sfn svona
sama kvöldið.
„Hér var góð æfing að sldla
sér og ég taldi að ég gæti náð því
„Ég man hvað mér þótti sem lítilli stelpu gaman að fá eiginhandaráritanir og því finnst mér sjálfri ekki nema sjálfsagt nú að árita fyrír þá sem vilja, “ sagði Vaia
Flosadóttir, hér umkringd áhorfendum.
að stökkva 2,20. Þegar ég kom
til þessa móts var eitthvað slen
yfir mér, en svo merkilegt sem
það nú er nær maður oft best-
um árangri þá. Þá gefst manni
einhver innri kraftur," segir Ein-
ar Karl Hjartarson, sem segir
það ekki fjarlægt markmið í sín-
um huga að bæta Islandsmetið
meira á þessu ári. Að stökkva
2,25 m. sé næsta markmið.
Ég er orðin þreytt
Eftirvænting áhorfenda var hvað
mest gagnvart stangarstökk-
skeppni kvenna. Vala Flosadóttir
og Þórey Edda Elísdóttir eru
átrúnaðargoð og það sést vel á
Völuklippingunni og eins því
hve margir vilja eiginhandarárit-
un hennar. Vala er að því Ieyti
einsog poppstjarna - og að Iíkja
stökkmótinu við popptónleika er
að því leyti ekki út úr kortinu.
Omæld hrifning ríkir gagnvart
goðunum, þó gengi þeirra og
dagsform sé með ýmsu móti. -
Þanng náði Þórey Edda Elís-
dóttir aðeins að stökkva 3,80
metra en þær Vala Flosadóttir
og Zsuzsa Szabó náðu báðar
sama árangri, það er að sveifla
sér með stönginni yfir rána, sem
var í hæðinni 4,20 m.
„Eg hefði vissulega viljað ná
betri árangri, enda þó 4,20 m.
sé heldur ekki svo afleitur ár-
angur. En nú er komið undir lok
Iangrar keppnislotu og ég er orð-
in þreytt. Það hafa verið mót í
Frakklandi, Englandi, Þýska-
landi, Belgíu, Japan og nú á Ak-
ureyri og nú er eitt eftir enn,
mót sem verður í Laugardals-
höllinni á þriðjudagskvöld. Þar
ætla ég að reyna að gera mitt
besta, einsog ég geri ævinlega,"
sagði Vala og brosti.
Fann hér mildnn stuðning
„Eg fann hér mikinn stuðning
frá áhorfendum," segir Vala
Flosadóttir. Það eru ábyggilega
orð að sönnu því stemmningin í
íþróttahölllinni var einstæð.
íþróttaunnendur skemmtu sér
hið besta á einstöku móti og
keppendur sýndu hvað í þeim
býr. Enn eru sagðar sögur af af-
rekum lítillar þjóðar norður í
höfum.
„Nei, ég er ekkert þreytt í úln-
liðnum. Eg man hvað mér þótti
sem lítilli stelpu gaman að fá
eiginhandaráritanir og því finnst
mér sjálfri ekki nema sjálfsagt
nú að árita fyrir þá sem vilja,“
sagði stangastökkvarinnn Vala
Flosadóttir, þar sem hún stóð í
miðjum skara aðdáenda sinna
að Ioknu stökkmóti Ungmenna-
félagsins Reynis á Árskógs-
strönd, sem haldið var í Iþrótta-
höllinni á Akureyri síðastliðið
sunnudagskvöld. Rífandi
stemmning einkenndi mótið og
var það fjölsótt, bæði af kepp-
endum og áhorfendum.
Sunnudagaskólinn
Ef til vill var stemmningin sem
ríkjandi var á mótinu líkust því
sem gerist á popptónleikum.
Áhorfendur, sem voru á öllum
aldri, stöppuðu, kölluðu og
klöppuðu. Þetta voru krakkar,
pabbar, mömmur, afar og ömm-
ur einsog segir í auglýsingum
presta um sunnudagaskóla og á
sinn hátt var mót þetta líka
sunnudagaskóli í því að sjá
hvernig hið unga afreksfólk Is-
lendinga í íþróttum hefur já-
kvæð áhrif á mannlífið og bætir
það á ýmsa Iund.
Keppendur sögðu
að móti loknu að
hin góða stemmning
meðal áhorfenda
hefði sannarlega
haft sitt að segja.
Einar Karl Hjartar-
son sagði að það
hefði haft mikla þýð-
ingu fyrir sig og
hjálpað sér að tvíbæta
Islandsmet sitt í há-
stökki. „Áhorfendur
hér eru móttækilegir,"
sagði Einar Karl.
Beit á jaxlinn
o g bðlvaði í bljóði
Stökkmótið fór fram í
tvennu lagi og fyrst var
keppt samtímis í stang-
arstökki karla og há-
stökki og langstökki
kvenna. Það var ekki síst stang-
arstökkið sem fólk sýndi áhuga,
en þar áttust þrjár kempur við.
Jón Arnar Magnússon, Pólverj-
inn Sebastian Chmara og Eist-
lendingurinn Erki Nool. Þeir
kappar komust seint í gang í
stangarstökkinu, þurftu nokkrar
atrennur við hveija hæð en í
byijun var hún 4,80 m. Svo
jókst mönnum kraftur, kjark og
Áhorfendur voru a
á öllum aldri og fylgdust með
afáhuga. Sumir grípu fyrir augun af
spennmgi-
þor.
- Nool lenti þó í vandræðum
þegar hann sveif yfir hæðina
5,20 m, en lenti utan dýnu og
niðri á gólfi. Áhorfendur setti
hljóða, en brátt steig þó Nool
upp eftir byltuna. Beit á jædinn,
bölvaði í hljóði og hætti ekki fyrr
en hann sveif yfir 5,30 m. og
náði bestum árangri manna í
þessari grein á mótinu.
í hástökki kvenna var Þórdis
Gísla-
dóttir sigurvegari kvöldsins en
hún stökk 1,73 metra og náði
bestum árangri þeirra Ijögurra
kvenna sem reyndu með sér í
þessari grein. I langstökki var
Guðný Eyþórsdóttir lukkunnar
pamfíll og stökk Iengst.
Eitthvað slen
Það var í síðari hluta mótsins
sem keppt var í stangarstökki
kvenna og lang- og hástökki
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar