Dagur - 16.03.1999, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999 - 23
LÍFIÐ í LANDINU
VEÐUR
Samtök bifreiðaeigenda í Evrópu hafa rekið áróður fyrir auknu umferðaröryggi með sérstakri áherslu á öryggi
þeirra sem eru í bílnum - all fast sem í bílnum er. Bílaframleiðendur leggja einnig sífellt meiri áherslu á öryggi og
er það orðinn stór þáttur í því að selja bíla. Þessi Ford Focus var sýndur á bílasýningunni í París í haust til að sýna
það svart á hvítu hvernig bíllinn kæmi út úr árekstrarprófi. - mynd: ohr.
Þetta erslagorð sem
samtök bifreiðaeig-
enda íEvrópusam-
bandsríkjunum hafa
auglýstað undanfómu
sem þátt í að auka um-
ferðaröryggi.
A hverju ári Iátast 45.000 börn, konur og karlar í
umferðarslysum á vegum Evrópusambandsríkj-
anna. 1,6 milljón manns slasast. Einn af hverj-
um áttatíu Evrópubúum deyr í slysi, að meðaltali
40 árum fyrr en gera má ráð fyrir að hann Iifði
annars samkvæmt almennum lífslíkum. Einn af
hverjum þremur fær meðferð á spítala einhvern
tíma á Iífsleiðinni vegna áverka sem hann hlýtur
á þjóðvegunum.
Persónulegar þjáning-
ar verða ekki metnar til
fjár en fjárhagslegur
kostnaður, sem felur í sér
kostnað vegna björgunar-
aðgerða, spítala og tap-
aðra tekna fyrir íjöl-
skyldu, er reiknaður sem
1.000.000 ECU fyrir
Festið börnin i hvert líf sem íapast, eða
barnabílstól. tæPar 80 milljónir ís-
--------- lenskra króna.
Ef allir þeir sem ferð-
BÍLAR
ast í bílum gerðu fáein
grundvallaratriði að reglu
mundi það draga verulega
úr dauðaslysum á vegum
Evrópu. Ef allir sem í
bílnum sitja, hvort heldur
það er bílstjórinn eða far-
þegar í fram- eða aftur-
sætum mundu spenna
bílbeltin alltaf þá mundi
það bjarga 7500 manns-
lífum á hverju ári.
Með átakinu sem er
undir yfirskriftinni „10
sekúndur .... sem geta
bjargað Iífi þínu,“ og
skipulagt er af samtökum
bifreiðaeigenda í Evrópu
er verið að ýta við bílstjór-
um í þeirri von að breyta
hegðun þeirra.
Skilaboðin eru einföld:
Gætið þess að börnin
séu örugglega fest í
barnasæti aftur í bílnum.
Festið iausan farangur
í farangursrými bílsins -
verði árekstur getur far-
angurinn breyst í ban-
vænar eldflaugar.
Setjið bílstjórasætið á
réttan stað og stillið höf-
uðpúðann til að koma í
veg fyrir hálsmeiðsli.
Spennið beltin alltaf.
Stillið sætið og
höfuðpúðann.
Notabeltin
„Sem at\innuökumaður huga ég mjög mikið að öryggi, ekki
aðeins á kappakstursbrautinni heldur einnig úti á vegum.
Ég mundi ekki láta mér detta í hug að hefja keppni án
þess að hafa fest öryggisbeltið tryggilega, eða að setja bílinn
minn í gang án þess að ganga áður úr skugga um að allir sem
eru með mér í bílnum séu tryggilega fastir.
Það þarf afar lítið til, nokkur handtök og fáeinar sekúndur
hugsunar og athafna til að tryggja mesta mögulega öryggi í
bílnum.
Ekki gleyma: Hugsaðu áður en þú keyrir," segir Michael
Schumacher, sem er með Ginu Mariu dóttur sinni á
myndinni hér til hliðar.
Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: olgeirhelgi@islandia.is
Veðrið í dag...
Austan gola eða kaldi og bjart veður norðantil, en vaxandi
austanátt með slyddu og síðan rigningu, íyrst sunnanlands
með morgninum. Allhvöss eða hvöss austanátt meó
suðurströndinni um tíma síðdegis. Hiti um eða rétt yfir
frostmarki sunnanlands, en vægt frost norðantil. Sunnan-
og vestanlands hlýnar þegar líður á daginn.
ffiti 4 til 3 stig
Blönduós Akureyri
Mén Þri Mlð Fim Fös Uu Sun Mén Þri Mið Flm Fös Uu
í í / í i v \ \ I l \ \ \ S. ^
Egilsstaðir Bolungarvík
wan Þri MIÖ rim Fös Lau Sun I Mén Þri Mlð Fim Fös Uu Sur
Y Sr Veðurspárit 15.03.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður
með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s.
k
Dæmi: » táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegum
í gærkvöld var snjókoma og skafrenningur á Vestfjörðimi,
Noröurlandi og Austurlandi. Mjög slæmt veður var á
Sandvíkurheiði, skafrenningur og verulega blint.
Breiðdalsheiði var aðcins fær jeppum og stærri hílum.
Annars voru allir helstu þjóðvegir landsins færir.