Dagur - 08.04.1999, Page 1
1
7 •
íslensku rætumar sterkar
Tværfjarskyldarfrænkur
gerðu heimildamynd um
fremur raunaleg afdrifsam-
eiginlegs fojföður erfiuttist
til Kanada 1883. Myndin
verður væntanlega sýnd í
Ríkissjónvarpinu á þessu ári.
Síðar í þessum mánuði verður frumsýnd í
Kanada heimildamyndin „SAGA OF
HOPE - An Icelandic Odyssey". Myndina
gerðu þær frænkur, leikstjórinn Asthildur
Kjartansdóttir (Palli var einn í heiminum,
Draumur um draum) og hin kanadíska
Juliann Blackmore. Juliann er flugfreyja
og flýgur oft til Islands með Canada 3000
flugfélaginu. Þegar Juliann komst svo að
því fyrir fimm árum að hún væri af ís-
Ienskum ættum voru hæg heimatökin.
Hún nýtti sér Islandsferðirnar og fór að
hafa uppi á íslenskum ættingjum sínum.
Var hún þá m.a. kynnt fyrir Asthildi og fór
svo vel á með frænkunum að þær ákváðu
að reyna að vinna saman að mynd um
vestur-íslenska rithöfundinn Laura Good-
man Salversson. Ekki tókst að fjármagna
þá hugmynd en eftir að Juliann hafði kíkt
á fjármögnunarráðstefnuna Hot Dogs í
Toronto og rekist þar á framleiðanda 26
þátta seríu um kanadíska innflytjendur
fæddist sú hugmynd að gera mynd um
sameiginlegan forföður frænknanna.
Ógæfuinaður
„Við fundum mann sem heitir Sigursteinn
Friðbjörnsson og er langafi Juliann og
frændi minn,“ segir Asthildur. Sigursteinn
þessi fór árið 1883 frá Tjörnesi í N-Þing-
eyjarsýslu til Kanada og settist að í Lundar
Manitoba. Með lítið annað en nafnið og
eina mynd af Sigursteini í farteskinu hófu
þær leitina. Þær komust þó fljótlega á slóð
Sigursteins, fundu ýmis gögn og sendibréf,
„Tergesen kemur út með það í huga að opna búð og er miklu ákveðnari, fer
strax að safna peningum og vinna fyrir versluninni. Þeir Sigursteinn og pabbi
hans fengu land á mjög vondu svæði og kunnu ekkert að róthreinsa og hög-
gva niður tré. Þetta hefur meira og minna verið óheppni, ólíkar aðstæður og
þekkingarleysi, “ segir Ásthildur um ástæður þess að landarnir tveir mættu svo
ólíkum örlögum í Kanada. Myndin verður sýnd í 26 þátta seríu, „Scattering of
seeds", sem fjallar um hin mörgu þjóðarbrot Kanada.
eyri til Kanada sama ár og Sigursteinn „en
hann „meikaði" það. Hann varð verslunar-
eigandi í Gimli og verslunin er ennþá í
eigu fjölskyldunnar," segir Asthildur. Það
var auðvelt að hafa uppi á afkomendum
Hans Péturs, þar sem sú ætt hefur verið
mjög „stabiT', segir Asthildur, auk þess
sem þær fengu talsverða aðstoð hjá barna-
barni og alnafna Hans Péturs, sem mun
vera mikill ættfræðispekúlant. Afkomend-
ur Sigursteins voru hins vegar tvístraðir og
enginn þeirra vissi nákvæmlega hvernig
hefði farið fyrir ættföðurnum. „Elsta dótt-
ir Sigursteins eignaðist 8 börn og varð að
gefa þau öll frá sér. Við vorum að hitta
barnabörn þessara barna og í myndinni
söfnum við saman öllum þessum ættingj-
um í svona íslenskan „picnic" og þá kem-
ur náttúrulega í ljós hvað ræturnar eru
sterkar í fólkinu. Það var virkilega áber-
andi hvað þessi íslenski arfur er ríkjandi
og hvað fólk hefur mikinn áhuga á hon-
um.“ LÓA
tóku viðtöl við afkomendur og smám sam-
an varð myndin af lífi Sigursteins heilleg.
„Það kemur í Ijós að þessi maður átti í raun
og veru alveg hræðilega ævi og viðburðar-
ríka,“ segir Asthildur. Sigursteinn fór upp-
haflega út með föður sínum og baslaði
með honum fyrstu 3-4 árin. „Sjálfur nam
hann svo tvisvar land og missti þau bæði,
gerðist alkóhólisti, lenti inni á geðveikra-
hæli og var í raun og veru mikill ógæfu-
maður. Sigursteinn fékk land í fenjalandi
þar sem allt flæddi á vorin, eins og Böðvar
[Guðmundsson] Iýsir í bókunum sfnum.
Þetta var honum mjög erfitt, Islendingar
voru ekkert vanir því að nema land á þenn-
an hátt, að höggva
niður tré og rót-
hreinsa."
Auðvelt að rekja-
Tergesen-ættina
„Við fylgjum honum
eftir f þessari mynd
en við tökum líka
annan sem fór sama
ár,“ segir Asthildur,
en sá var jafnaldri
Sigursteins, hét Ásthildur ásamt Juliann frænku sinni meðan á vinnslu myndarinnar
Hans Pétur Tergesen stóð. Með þeim eru hljóðmaðurinn Marvin og tökumaðurinn Steve.
og hélt upp frá Akur-
HljomTTutningstæki
Magnari: 2 x 100W RMS • Útvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing
RDS • Þriggja diska spilari • Hátalarar þrískiptir: 100W - 17 sm bassi
Power Bass ______
Magnari: 2 x 100W RMS • Útvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing
RDS • Þriggja diska spilari • Hátalarar þrískiptir: 100W -16 sm bassi
Power Bass
3 ára ábyrgð
begar hljómtaekL sklpta máLL