Dagur - 08.04.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 08.04.1999, Blaðsíða 4
20-FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 LÍFIÐ í LANDINU „Fyrir mörgum áratug- um uppgötvaði Vest- ræn samvinna að Norður Atlantshafs- sáttmálinn er varnar- sáttmáli og NorðurAtl- antshafsbandalagið er varnarbandalag. Svo oft hefur góð vísan verið kveðin að góði dátinn NATÓ er löngu farinn að trúa því sjálfur að hann sé best geymdur í vörninni og jafnvel fyrir aftan markið." Góði dátinn Sveik fær uppreisn æru Ekki fer sögum af öðrum eins vígamanni og góða dát- anum Sveik, sem á sínum tíma rambaði um keisara- dæmið Austurríki og Ung- verjaland undir heraga. Að vísu bitnaði aginn illa á góða dátanum sjálfum sem var margt betur gefið en ganga í takt og fyrir bragðið var herþjónusta dátans með öðru sniði en betri styrjaldir gera ráð fyrir. Enda var dát- inn sjálfur nú einu sinni persóna í sögubók. Pistilhöfundur átti því síst von á því að góði dátinn Sveik gengi í endurnýjun lífdaga sinna nú mörgum árum eftir að öll helstu stríð eru jrnist unnin með sigri eða varnar- sigri og þar með talin bæði heit stríð og kaldir sigrar. Tölvuleikir hafa leyst bæjónett- ur af hólmi og bakverðir útheija. Endurborinn og góður dátinn er nú grár fyrir járnum á ferð um sömu blaðsíður og fé- lagi Sveik þrammaði um sjálfur á sínum tíma svartur af prentsvertu. Og í tilbót er dátinn ekki einn á ferð eins og hvert annað týnt bókamerki heldur fer hann hópum sam- an undir höfundarnafninu NATO. Vöm er besta sóknin Fyrir mörgum áratugum uppgötvaði Vestræn samvinna að Norður Atlantshafs-sáttmálinn er varnarsáttmáli og Norður Atlantshafs- bandalagið er varnarbandalag. Svo oft hefur góð vísan verið kveðin að góði dátinn NATO er löngu farinn að trúa því sjálfur að hann sé best geymdur í vörninni og jafnvel fyrir aftan markið. Fyrir bragðið hafa útherjar NATO lagt takkaskóna á hilluna fyrir löngu og tekið fram inniskóna í hálfleik. Að minnsta kosti eru sóknarfæri góðu dátanna í Júgóslavíu að breytast úr tækifærum í glötuð tækifæri. Enda er spakmælið um að vörn sé besta sóknin áfram í fullu gildi í Brussel. Eða hvað? Pistilhöfundur hélt að verkefni góða dát- ans NATÓ væri að draga sverð úr slíðrum og bjarga stríðsbörðu fólki í Kosovo frá hörm- ungum og dauða. Stilla til friðar svo alþýða manna geti freistað þess að eija sinn reit í friði við guð og menn. Fólk á flótta megi snúa aftur heim og leggja sitt af mörkum til að grafa landið úr rústum. Standa vörð um líf manna og eigur þangað til ólguna lægir og hatrið sljákkar. Það hélt pistilhöfundur enda er hann ennþá grænn á bakvið eyrun. En þar með er ekki öll sagan sögð: Græjumar hans NATÓ Árum saman hefur góði dátinn NATÓ fetað í fótspor nafna sfns og fallið í allar djúpar keldur í keisaradæminu Austurríki og Ung- veijaland. Látið níðinga Balkanskagans teyma sig á asnaeyrum um skínandi fundar- sali á meðan börnin gráta foreldra sína á heljarslóð. Neyðaróp fólksins ná ekki eyrum heímsins fyrir skarkala á pressufundum. í stað þess að bregða brandi til bjargar fólkinu í Kosovo sest góði dátinn NATÓ nið- ur við tölvuna sína og dundar við skotmörk í Júgóslavíu sem koma hörmungum fólksins ekki við. Prófar alla fínu skotbakkana í nýja vídeóleiknum sínum í beinni útsendingu á öldum ljósvakans um heimsbyggðina. Veru- leikinn lætur hljóður undan síga fyrir sýnd- arveruleikanum og dregur sig brátt í hlé. Alfa, Roger og Bravo hljóma miklu mun bet- ur en Mayday og SOS. í hugbúnaði tölvuleiksins er mannslífið ekki lengur metið eftir þjáningum lifandi fólks á vígaslóð og bráðum bana heldur út- lögðum kostnaði við að þjálfa nýja flug- menn. Balkanstríðið snýst ekki um deyjandi fólk og þjóðir heldur um góða dátann NATÓ og nýju græjurnar hans. Góði dátinn Sveik hefur loks fengið upp- reisn æru en brátt verður of seint að gráta Baldur úr helju. UMBUÐA- LAUST -------- ■menningar] LÍFID Haraldur IngóHsson Málverk Matthiasar Sig- fússonar í Byggða- safni Ár- nesinga stendur nú yfir sýning á mál- verkum son. Sýningin ber heitið „Sýn- ing á sama sjónarhorninu í fortíð og nútíð“. I tilkynningu frá safninu segir meðal ann- ars að líklega hafi fáir gert hinn bjarta himin, íslenska sveitabæinn, túnin og fjöllin f kring jafn ódauðleg og vinsæl eins og listamaðurinn Matthí- as Sigfússon. Listamaður sem aldrei var viðurkenndur af akademíunni í íslenskum sjónlistum. Á sýningunni í Byggðasafni Árnesinga f Húsinu á Eyrar- bakka eru valin verk sem kalla má bæjarmyndir Matthíasar en hann var oft fenginn til að mála myndir af sveitabænum, ýmist þeim gamla niðurrifna eftir gömlum ljósmyndum eða þá frá staðnum. Eftir Matthí- as liggur mikill fjöldi verka, altaristöflur og eftirlíkingar af frægum málverkum. Matthías Sigfússon fæddist 1904 að bænum Egilsstaða- koti í Villingaholtshreppi. Hann lést 1984. Hann var að mestu sjálfmenntaður í listum, utan þess að veturna 1934-36 sat hann á skólabekk hjá Jó- hanni Briem og Tryggva Magnússyni. Matthías tók þátt í mörgum samsýningum hér heima og erlendis og fékk við- urkenningu fyrir litanotkun. Sýningin verður opin til 16. maí og er safnið opið á Iaug- ardögum og sunnudögum ld. 14-17. Á öðrum tímum er hægt að skoða safnið eftir samkomulagi við safnvörð, sem er í síma 483 1504. Þá má einnig finna nánari upp- lýsingar um safnið á Netinu. Slóðin er: www.south.is/husid/ V_______________________/ Rósrauð hainingja? Það er svo ótrúlega skondið hvemig sami innihaldslausi draumurinn um frægð og frama gengur aftur og aftur hjá ungu fólki, körlum og konum, ár eftir ár og áratug eftir áratug. Grunn- urinn er náttúrulega draumur- inn um frægð og frama í útlönd- um, að baða sig í peningum og kastljósi fjölmiðlanna og verða jafn frægur og fræga fólldð sjálft og helst frægari. Sóknin er eftir ferðalögum til útlanda, að búa erlendis, lifa þar og starfa án fyr- irhafnar... Hvað svo sem það kann að innibera, tæpast tóma rósrauða ham- ingju, að minnsta kosti ekki allan tím- ann. Ýmsar misfellur Stelpudraumurinn er starf fyrirsæt- unnar og dæmin um uppfyllingu þess draums virðast óteljandi því að vissu- lega má nefna nöfn „súpermódela" eins og til dæmis Andreu Brabin því til sönnunar þó að ekki sé ég viss um að María Guðmundsdóttir, fyrirsæta í Frakklandi og Ameríku og út um allan heim hverrar ævisögu Ingólfur Margeirsson skrifaði fyrir nokkrum árum sé sannfærð um að lífið hafi verið einn alls- herjar rósrauður draumur, það er eins og mig minni að í bók- ínni hafi komið fram ýmsar mis- fellur. En hvað um það. Draumurinn um frægð og frama er Iíka til hjá strákunum og það er draumur- inn um að komast í atvinnu- mennsku í fótbolta/handbolta í útlöndum. Sá draumur er heldur á .uppleið en hitt. Allir strákar vilja æfa fótbolta og stefna að atvinnu- mennsku, gera Ieikinn að atvinnu sinni. Munurinn á þeim og steipunum er helst sá að stelpurnar hafa alist upp við það að hugsa um útlit sitt, neita sér um mat og fara á göngunám- skeið, en ekki þurft að útheila blóði eða tárum við það. Strákarnir hafa hins vegar sparkað bolta árum saman, svitnað og djöflast, allt til þess að uppfylla drauminn. MEIUIMII\IGAR VAKTIN Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar Fótboltastrákar ættu ef til vill að fá sem skyldulesningu lesefni fegurðardrottningar og fyrirsætu... Gætu eftil vill lært eitthvað á því, að minnsta kosti hvað varðar drauma og veruleika? Svo einMt I öllu þessu draumaflóði gleymist raun- veruleikinn, sú staðreynd að draumar eru aldrei rósrauðir, alltaf þarf að beijast fyrir öllu í lífinu. Undirrituð er mikil efa- semdarmanneskja þegar draumar eru annars vegar. I atvinnumennskunni gild- ir harkan sex, í fyrirsætubransanum gild- ir harkan sex, svo einfalt er það. Þess vegna eru skilaboðin þessi: Bókin um hana Maríu (eða annað álíka námsefni) ætti kannski að verða skyldulesning í öll- um fyrirsætuskólum og fótboltafélögum - hugmynd fyiir skólastjórana og fót- boltaformenn að athuga því að rósrauðir draumar eru varasamir. ghs@ff.is

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.