Dagur - 08.04.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGV R 8. APRÍL 1999 - 21
T>wptr_
LÍFIÐ í LANDINU
Rafsuða íFjölbrautaskóla?
Óvenjuleg hugmynd en ekki
Jráleit. KrakkamiríFjöl-
brautaskóla Garðabæjar
standa í röðum til að komast
í rafsuðu hjá vélsmiðjunni
Norma. Svo vinsælt erþað að
fara í eitthvað verklegt með-
fram bóklega náminu.
Þó að Gunnar Jónsson, 20 ára, sé á fé-
lagsfræðibraut ákvað hann að skella sér í
rafsuðuna til að læra handtökin, búa sér
til nytjahluti og redda sér síðustu þremur
einingunum í stúdentinn. A fimm dögum
Gunnar Jónsson, 20 ára, hefur búið til tvö borð,
kertastjaka og gítarstand. - myndir: teitur
Snorri Simsen, 18 ára, er nemandi á tölvulínu hagfræðibrautar og lítið verklegt tekið en
ákvað samt að skella sér í rafsuðuna.
Brj álaður biðlisti?
hefur Gunnar búið til tvö borð, kerta-
stjaka og gítarstand úr ferhyrndum plöt-
um sem þau hafa fengið í vélsmiðjunni.
„Mig vantar gítarstand undir gítarinn
minn og borð geta komið að góðum not-
um,“ segir hann.
Gunnar sýður saman plöturnar og
pússar að lokum. Ekki vill hann meina að
mikil hönnun sé að baki en er þó fljótur
að viðurkenna að „ímyndunaraflið fer
upp fyrir allt“ í þessari vinnu. „Maður
verður að nota ímyndunaraflið í þessu,“
ieggur hann áherslu á og kveðst ekki hafa
þurft að hugsa sig lengi um áður en hann
ákvað hvaða hluti hann ætlaði að
gera. „Eg byrjaði bara á einhverju
og svo varð þetta til. Mig vantaði
lítið borð en ég veit ekki alveg
hvað ég á að gera við hitt, skil það
eftir, gef mömmu það eða eitt-
hvað,“ segir hann.
Fór ábiðlistann
Snorri Simsen, 18 ára, er á tölvu-
línu á hagfræðibraut í Fjölbrautaskólan-
um. Rafsuðan hljómaði spennandi og
hann vantaði þijár einingar í myndlist.
Myndlistarkennarinn er „ekki það
skemmtilegur að maður færi aftur í tíma
hjá henni“ svo að hann álcvað að slá til
þegar hann sá auglýsingu um rafsuðunám-
skeiðið í skólanum og fór á biðlistann.
„Það var ekki brjálaður biðlisti en fólk,
sem hafði skráð sig i fyrravor, hafði for-
gang,“ segir hann. Alls eru það tíu krakkar
sem hafa eytt \riku í Norma að „gera eitt-
hvað annað en maður gerir venjulega í
skólanum. Snorri segir að mjög lítið sé um
verklegt nám í
skólanum,
eiginlega bara
myndlist, fata-
saumur og
trésmíði.
Hann hefur
þó ekki tekið
neitt verklegt
annað en
rafsuðuna enn
sem komið er
og er nokkuð
hrifinn en vill
ekki rafsjóða
alla daga.
„Vinur
minn er í iðn-
skólanum að
læra að verða
vélsmiður.
Hann er að
spá í að kaupa
sér rafsuðu-
tæki og ég get
örugglega
fengið að fara
í þau,“ segir
hann um nyt-
semina af
náminu. Hann
hampar borði
sem hann hefur vetið að rafsjóða og ætlar
að setja upp í herberginu sínu og svo hef-
ur hann gert festingu „fyrir allt mögulegt".
-GHS
Borð virðist vinsælt verkefni i rafsuð-
unni en þó hefur einn nemandinn gert
forláta kertastjaka.
Um erfðabreytt matvæli
SVOJVfl
ER LIFID
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
:ða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
í fréttum fyrir
nokkru var sagt frá
því að evrópskir
stórmarkaðir ætl-
uðu að sniðganga
erfðabreyttar mat-
vörur. Erfðabreyt-
ingar á tómötum
eru mjög vinsælar.
Þá hefur mönnum
jafnvel dottið í hug
að búa til ferkant-
aða tómata, og
gantast þannig
með duttlunga
náttúrunar sem
ákvað að tómatar ættu að vera hnöttóttir. Einnig hafa vísinda-
menn unnið að því að gera vöruna geymsluþolnari, þannig að
auðveldara verði að flytja hana á milli staða og hún haldist
lengur fersk.
I Bandaríkjum Norður-Ameríku hafa framleiðendur skor-
dýraeiturs tekið uppá því að greiða fyrir rannsóknir með það
fyrir augum að matvæli þoli þannig meira eitur. Það er vitað að
skordýr eru mjög fljót að aðlaga sig að breyttum aðstæðum, því
má spyrja hvort verið sé með þessu að framleiða ofurskordýr,
og þar með sé verið að skapa vítahring sem ekki verði séð fram
úr.
Darwin setti fram kenningar sínar um náttúruval sem
miðaði að því að þeir hæfustu lifðu af. Því má spyrja hvaða af-
leiðingar það hefur fyrir úrval náttúrunnar þegar farið er að
hræra í erfðaefninu og hafa sumir nefnt þessar matvörur
Frankeinstein matinn.
Það eru ekki einunings rök sem mæla gegn erfðabreyting-
um, heldur eru líka rök með slíkum aðgerðum. Sumir segja að
erfðabreytingar kynnu að auka framleiðsluna og gera hana
ódýrari og svo framvegis. Þannig gætu erfðabreytingar reddað
hungruðum heimi.
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, seg-
ir það vera lágmarkskröfu að neytendur fái að vita af því að
þeir séu að borða erfðabreytt matvæli. „Við viljum að fyrst
verði sannað vísindalega að þetta geti hvorki haft slæm áhrif á
heilsu neytenda né heldur umhverfið áður en vörurnar eru
settar á markað.“
Jóhannes bendir á að fyrir nokkru hafi komið upp úr dúrn-
um að heilaskemmdir í músum megi rekja til erfðabreyttra
kartaflna. Það sé því eðlilegt og sjálfsagt að hvorki neytendur
né umhverfið séu gerð að tilraunadýrum.
HVAfl ER Á SEYDI?
LÆRIÐ SKYNDIHJÁLP
Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands gengst fyrir tveimur námskeið-
um í almennri skyndihjálp. Fyrra námskeiðið hefst mánudaginn 12.
apríl ld. 19 og stendur til 23. apríl. Námskeiðin teljast 16 kennslu-
stundir. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri. Meðal þess sem
kennt verður á námskeiðinu er blástursmeðferðin, endurlífgun með
hjartahnoði, hjálp við bruna, beinbrotum og blæðingum úr sárum.
Einnig verður fjallað um heimaslys. Að námskeiðinu loknu fá nem-
endur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum skólum. Þeir sem
hafa áhuga geta skráð sig í síma 568-8188.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Hvað er að gerast í íslenskum nútíma-
bókmenntum?
Hollvinafélag heimspekideildar H.í.
gengst fyrir stuttu málþingi í dag kl. 17-
19 um spurninguna „Hvað er að gerast í
íslenskum nútímabókmenntum?" Mál-
þingið fer fram á Kaffi Reykjavík við Vest-
urgötu. Frummælendur verða Dagný
Kristjánsdóttir, dósent og Guðmundur
Andri Thorsson, rithöfundur. Umræðum
stjórnar Pétur Már Olafsson, útgáfu-
stjóri. Ollum er heimill ókeypis aðgangur.
Foreldrahúsið
I dag verður opnað Foreldrahús að Von-
arstræti 4b, Rvk. Það er rekið af Vímu-
lausri æsku og Foreldrahópnum. Marg-
vísleg þjónusta verður þar í boði m.a.:
fjölskylduráðgjöf, viðtöl, sjálfshjálpar-
hópar, námskeið um forvarnir, o.fl. For-
eldrahúsið verður opið virka daga frá kl.
9-17, síminn er 511-6060 og 511-6161.
Upplestur í Gerðasafni
Ritlistarhópur Kópavogs hittist í Gerða-
safni í dag kl. 17.00 og munu níu kven-
skáld lesa úr verkum sfnum: Anna S.
Björnsdóttir, Guðríður Lillý Guðbjöms-
dóttir, Guðrún Guðlaugsdóttir, Helga K.
Einarsdóttir, Kristjana E. Guðmunds-
dóttir, Sigríður Helga Sverrisdóttir, Sig-
ríður Vilhjálmsdóttir, Sigrún Guðmunds-
dóttir og Sigrún Oddsdóttir. Aðgangur er
ókeypis.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Bridds í dag kl. 13.00. Bingó í kvöld kl.
19.45. Betri vinningar, allir velkomnir.
Kaffistofan er opin frá kl. 9.00 til 13.00
alla virka daga.
Félag kennara á eftirlaunum
1 dag hittist bókmenntahópurinn kl.
14.00 og kórinn kl. 16.00 í Kennarahús-
inu við Laufásveg.
LANDIÐ
Vortónleikar-Húsavík-Breiðumýri
Rökkurkórinn Skagafirði heldur Vortón-
leika sína í Húsavíkurkirkju laugardag-
inn 10. apríl kl. 16.00 og í Breiðumýri
sama dag kl. 21.00. Lagaval er að venju
fjölbreytt og skemmtilegt eftir bæði inn-
lenda og erlenda höfunda. Með kórnum
er einsöngur, tvísöngur og kvennasöng-
hópur. Stjórnandi er Sveinn Árnason og
undirleikari Pál Szabo. Þingeyingar
syngjum inn vorið með Rökkurkórnum á
laugardaginn.
Háskólinn í Skövde
Kynning verður á tölvudeild Hásólans í
Skövde í Svíþjóð í Menntaskólanum á
Akureyri föstudaginn 9. apríl kl. 15.30-
16.30 og í Fjölbrautarskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróld laugardaginn 10.
apríl kl. 10.30-11.30. Á þessum vetri
hafa um 30 íslendingar verið við nám í
Skövde í tölvu- og tæknigreinum. Um-
sóknarfrestur til náms í Skövde rennur út
15. maí n.k. fyrir íslenska umsækjendur
ef notað er sérstakt umsóknareyðublað.