Dagur - 09.04.1999, Page 11

Dagur - 09.04.1999, Page 11
FÖSTVDAGUR 9. APRÍL 1999 - 11 ERLENDAR FRETTIR Loftárásir NATO hafa valdid serbneska hernum miklu tjóni. Er Milosevic að ná inarkmi ðum sínum? Serbar segja skæru- liða vera sigraða og ekkert því til fyrir- stöðu að flóttamenn snúi aftur. Bandarísku hermennirnir þrír, sem Serbar handtóku fyrir páska, áttu að koma til Kýpur f gær- kvöld að því er bandarísk her- málayfirvöld sögðu. Kýpverski stjórnmálamaðurinn Spiros Kyprianou, sem er vel kunnugur ráðamönnum í Júgóslavíu, hefur haft milligöngu um að hermenn- imir yrðu látnir lausir. Slobodan Milosevic, forseti Júgóslavíu, hefur sýnt nokkurn sáttavilja síðustu daga, boðið ein- hliða vopnahlé og tekið þátt í samningaviðræðum með Rúss- um, þótt Vesturveldin hafi túlkað þessa viðleitni sem tilraun Milos- evic til að koma sér undan því að hlíta þeim skilyrðum sem honum hafa verið sett. Flestum virðist þeim sem Milosevic sé eingöngu að reyna að kljúfa samstöðu inn- an NATO með því að sýna sátta- vilja. Þegar Milosevic lýsti yfir ein- hliða vopnahléi í Kosovo á þriðjudag, sögðu yfirmenn í bandaríska varnarmálaráðuneyt- inu að það væri líklega merki um að búið væri að „hrista“ heldur betur upp í honum. Honum væri greinilega brugðið og væri með þessu að reyna að komast hjá frekari eyðileggingu af völdum Atlantshafsbandalagsins. Milan Bozic, ráðherra í ríkis- stjórn Júgóslavíu, gaf hins vegar nokkuð aðra mynd af stöðunni og sagði að Serbar væru að bjóða einhliða vopnahlé „vegna þess að við teljum að hryðjuverkamenn- irnir, sem notuðu sprengjuárásir NATO til þess beita land okkar þrýstingi, hafi nú í raun verið upprættir." Engin merki sáust þess reynd- ar að staðið hafi verið við yfirlýs- inguna um einhliða vopnahlé, því vopnaðar sveitir Serba hafa haldið áfram hernaði sínum í héraðinu. Margt bendir þó til þess að Milosevic ætli að reyna að ná fram samkomulagi um sjálfstjórn handa Kosovo á líkum nótum og Rambouillet-samkomulagið, en þó án þess að hersveitir NATO gegni eftirlitshlutverki. Hugsan- Iega gæti hann þó sætt sig við al- þjóðlegar eftirlitssveitir undir stjórn Sameinuðu þjóðanna, ef Atlantshafsbandalagið kæmi þar hvergi nærri. Fáir tóku reyndar eftir því að í ályktun serbneska þingsins frá því skömmu áður en loftárásirnar hófust,, þar sem Rambouillet-samkomulaginu var eindregið hafnað, var boðið upp á þennan möguleika. Franska fréttastofan AFP hef- ur það hins vegar eftir heimildar- mönnum í Tirana, höfuðborg Albaníu, að þótt Frelsisher Kosovo (KLA) hafi mátt sæta þungum áföllum sé hann ekki gjörsigraður heldur hafi Iiðs- menn hans dregið sig í hlé til að safna kröftum. Visa Reka, tals- maður KLA í Tirana ber sig að minnsta kosti vel og segir skammt að bíða þess að árásir Atlantshafsbandalagsins hafi Ieikið Serba illa og aðeins sé tímaspursmál hvenær hershöfð- ingjar Milosevic neyði hann til þess að hætta frekari baráttu. „En við verðum þá enn á svæð- inu,“ segir Visa Reka. Dugnaður kíuverskra njósnara meiri en fullyrt var BANDARÍKIN - Bandaríska dagblaðið NewYorkTimes skýrði frá því f gær að snemma árs 1996 hafi Bandaríkin fengið upplýsingar um það, frá njósnurum sínum í Kína, að starfsmenn kínversku leyniþjón- ustunnar væru að státa sig af því að hafa komist yfir bandarísk kjarn- orkuleyndarmál, sem þegar hafi verið notuð til þess að betrumbæta kínverskar vetnissprengjur. Þessi frásögn kemur þvert ofan í fullyrð- ingar bandarískra stjórnvalda undanfarið um að kínverskar kjarn- orkunjósnir í Bandaríkjunum hefðu einungis átt sér stað áður en BiII Clinton settist í forsetastól Bandaríkjanna. Ummæli Gusmaos könnuð INDÓNDESÍA - Muladi, dóms- málaráðherra Indónesíu, lét í gær helja rannsókn á ummælum Xan- ana Gusmao, leiðtoga aðskilnaðar- sinna á Austur-Tímor sem nú situr í stofufangelsi í Indónesíu. Gusmao hvatti á mánudag Austur- Tímora tii þess að grípa til vopna til að verjast vopnuðum hópum sem njóta stuðnings indónesíska hersins, en þessir hópar hafa farið um með ofbeldi í Austur-Tímor og eru m.a. sakaðir um að hafa myrt 25 manns á þriðjudaginn var. Muladi sagði nauðsynlegt að kanna það hvort rétt væri eftir Gusmao haft, og ef svo væri ekki þyrfti hann að leiðrétta það opin- berlega. FGabein tG sölu á ný NAMIBÍA - í Windhuk, höfuðborg Namibíu, verður í dag haldið uppboð á fílabeini og er það í fyrsta sinn frá því alþjóðlegu banni við viðskiptum með fílabein var aflétt að hluta til. Einungsi Japanir hafa heimild til að kaupa fílabein. Bann við sölu fílabeins var lagt á árið 1989, en sumarið 1997 ákvað 10. alþjóðlega dýnærndarráðstefnan að í Namibíu, Botsvana og Simbabve væri heimilt að efna til sölu á fílabeini undir ströngu eftirliti og þá eingöngu til Japans. Forsætisráðherra Kína hjá Clinton BANDARÍKIN - Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, tók í gær á móti Zhu Rongji, forsætisráðherra Kína, f Hvíta húsinu. Clinton sagði við það tækifæri mikilvægt að ríkin tvö héldu áfram að þróa með sér upp- byggileg samskipti, en þar þyrfti að byggja á takmörkun gereyðingar- vopna, stöðugleika í Asíu og Kyrrahafssvæðinu, frjálsum viðskiptum, umhverfisvernd og virðingu fyrir mannréttindum. Jörg Haider kosinn forsætisráðherra AUSTURRÍKI - Austurríski stjórnmálamaðurinn Jörg Haider, sem þótt hefur öfgasinnaður hægri-þjóðernissinni, var í gær kosinn for- sætisráðherra í sambandslandinu Kárnten í Austurríki. Þing sam- bandslandsins kaus hann strax í fyrstu umferð með aðeins 16 at- kvæðum Frjálslynda flokksins (FPÖ), sem er flokkur Haiders, og óbeinum stuðningi íhaldsflokksins (ÖVP), sem greiddi ekki atkvæði. Flokkur Haiders vann verulegan sigur í þingkosningum sambands- landsins í síðasta mánuði. S3.5amskipti er heildarlausn í skjalastjúrnun ag verkefna- stýringu íyrir fyrirtæki ag stafnanir. S3.Samskipti gefur víötækt yfirlit yfir alla vibskiptavini, tengiliði og samskipta- ferli. I einum gagnagrunni er haldið utan um öll mál, verkefni og samskipti sem fyrirtækið á við viöskiptavini sína. Skráð Premium Partner Dreiíingaraðili Lotus Notas á fslandi eru samtöl, mál og verkefni með ákveðnum lakadagsetningum og ábyrgðaraðilum og öll samskipti s.s. bréf, símbréf og tölvupóstur eru send f gegnum S3.Samskipti sem vistar þessi gögn og tryggir starfsfólki aðgang að nýjustu upplýsingum á hverjum tíma. Skaftahiið 24 • Sími 569 77D0 http ://www.nyher ji.is NÝHERJI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.