Dagur - 09.04.1999, Qupperneq 2
18-FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
rú^tr
LÍFIÐ t LANDINU
ÞAB ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlar þú að
gera?
„Lesa Meistarann
Margarita," segir
Aðalheiður Borg-
þórsdóttir.
Skíði o g bók um skrattaim
„Eg ætla að reyna að komast á skíði upp á
Fjarðarheiði með fjölskyldunni og slappa síð-
an eitthvað af,“ segir Aðalheiður Borgþórs-
dóttir, söngkona og ferðamálafulltrúi á Seyð-
isfirði. „Eg býst reyndar við að skíðafærið sé
ekki jafn gott núna og það var um páskana,
enda hefur hlánað hér mikið síðustu daga. Þá
er Iíka hægt að bregða sér í gönguferðir hér í
bænum eða leika sér í íþróttahúsinu. Nú og
síðan ætla ég að lesa bókina Meistarann
Margarita eftir Mikael Búlgakoff. Fræg bók
sem fjallar um skrattann sjálfan.11
„Á skiði í Hlíðarfjall,“
segir Jón Björnsson.
Á ráðstefnu 1 Hveragerði
„Eg ætla í Hveragerði um helgina þar sem ég
verð á 10 ára afmælisráðstefnu hjá Tölvumið-
stöð sparisjóðanna, þar sem víð munum fara
yfir ýmis mál er varða upplýsingatækni.
Svona ráðstefnur eru alltaf fróðlegar og
skemmtilegar og gaman verður að hitta
kollegana," segir Jón Björnsson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Norðlendinga á Akureyri.
„Aftur norður fer ég síðan síðdegis á sunnu-
daginn og þá ætla ég að eyða einhverjum tíma
með fjölskyldunni. Það væri til dæmis gaman
að bregða sér á skíði í Hlíðarijalli, ekki síst ef
veðrið um helgina yrði jafn gott og það var
um páskana.“
„Baráttan hefst afal-
vöru, “ segir Jóhanna
Sigurðardóttir.
íslandsfundur og trimin
„Kosningabarátta Samfylkingarinnar hefst af
alvöru á laugardag en þá verðum við með
fund í Háskólabíöi, sem ég kalla Islandsfund.
Bæði verður þetta pólítík og skemmtun fyrir
alla fjölskylduna. Eftir fundinn munum við
frambjóðendur af öllu landinu koma saman
og stilla saman strengi okkar,“ sejgir Jóhanna
Sigurðardóttir, alþingismaður. „Á sunnudag
er ég fulltrúi Samfylkingarinnar í þætti Sjón-
varpsins, þar sem rætt er við frambjóðendur í
Reykjavíkurkjördæmi. Eftir þáttinn ætla ég að
vona að ég geti komist í trimm, sem er bráð-
nauðsynlegt, og á eftir verið með fjjölskyld-
• ((
unni.
✓
Hver man ekki eftir unga, reffiiega manninum, sem stýrði Reykjavíkurborg fyrir
um aldarfjórðungi. Vonarpeningur íslenskra stjórnmála, allt þar til vinstri flokk-
arnir sigruðu óvænt í borginni 1978. Fljótlega eftir það settist borgarstjórinn
fyrrverandi á þing og var þar í áraraðir, eða þar tii hann fór í Seðlabankann. Þar
telur hann peninga, spilar á píanó og segir til um hvernig íslendingar hafi það í
hagfætinum. Birgir ísleifur er okkar maður.
■ LÍF OG LIST
Drekar og
smáfuglar
„Eg er sér-
staklega
hrifinn af
krimmum
og líka
heillaður af íslenskum bók-
menntum og reyni að fylgjast
vel með þeim, ekki síst yngri
höfundum," segir Þorsteinn G.
Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri íþrótta fyrir alla. „Nú er
ég að ljúka við bókina Dreka
og smáfugla, sem er síðasta
bókin í þriggja binda skáldverki
Olafs Jóhanns Sigurðssonar en
hinar bækurnar eru Gagnvirki
og Seiður og hélog. Þar fjallar
Olafur um Pál Jónssson blaðamann og frá mót-
un og stjórnmálum í Reykjavík á árunum fyrir
og í kringum strfð og eru sögurnar að sumu Ieyti
sambærilegar Atómstöðinni. AHt er á iði og sag-
an spennandi."
Gítarmógúll og mandólln-
snHlingur
„Undir geislanum er ég með
plötu sem félagarnir Jerry
Garcia, gítarmógúll, og
mandólínsnillingurinn David
Grissan gerðu saman. Garcia var aðalsprautan í
sveitinni Greatful Deat, sem var húshljómsveit í
Los Angeles á sýrutfmabilinu í kringum 1968.
En síðan fóru þessir félagar að gera saman plöt-
ur sem voru af ýmsum toga og sú sem ég er nú
að hlusta á er skemmtilega djössuð. En annars
gerðu þeir félagar margskonar plötur saman, til
dæmis með barnalögum og þjóðarlagaballöð-
um.“
Ameríka á líðandi stund
„Við feðgamir, sem erum báðir
taekwondo-menn, skemmtum
okkur vel við að horfa á mynd-
ina Rush hour, þar sem sá frægi
austurlenski bardagamógúll,
Jaclde Chan, fer á kostum. Áður hefur hann
leikið í austurlenskum myndum og varla er það
bein til skrokki Chan, sem hann hefur ekki
brotið við kvikmyndaleik sinn. Rush hour er
fyrsta myndin sem hann gerir í Bandaríkjunum
og því um margt ólík hinum fyrri.“
■ fra degi til dags
Leiðir verða langþurfa menn.
- Islenskt máltæki
Þetta gerðist 9. apríl
• 1942 réðst þýski herinn inn í Dan-
mörku og Noreg.
• 1963 samþykkti Bandaríkjaþing að gera
Winston Churchill að heiðursborgara
Bandarfkjanna.
• 1968 var Martin Luther King jarðsettur
íAtlantaborg í Bandaríkjunum.
•1981 hófst stutt gos í Heklu.
•1991 var lýst yfir sjálfstæði Georgíu,
sem þá var eitt lýðvelda Sovétríkjanna.
• 1992 var Manuel Noriega dæmdur sek-
ur fyrir kókaínsmygl og peningaþvætti,
og var það í fyrsta sinn sem bandarísk-
ur dómstóll dæmir í máli fyrrverandi
þjóðhöfðingja annars ríkis.
Þau fæddust 9. apríl
• 1802 fæddist finnski þjóðsagnafræð-
ingurinn Elias Lönnrot.
• 1857 fæddist Ólöf Sigurðardóttir skáld
frá Hlöðum.
• 1865 fæddist prússneski hershöfðing-
inn Erich Ludendorff.
• 1893 fæddist bandaríska kvikmynda-
stjarnan Mary Pickford.
• 1898 fæddist bandaríski söngvarinn
Paul Robeson.
• 1918 fæddist danski arkitektinn Jorn
Utzon, sem m.a. teiknaði óperhúsið í
Sidney í Ástralíu.
• 1928 fæddist bandaríski stærðfræðing-
urinn og gamanvísnasöngvarinn Tom
Lehrer.
• 1933 fæddist franski leikarinn Jean-
Paul Belmondo.
Vísa dagsins
Þessi vísa er eftir Ólínu Andrésdóttur:
Ætli jní sért eins og ég, ef ylinn finnur,
þá er grátið, þakkað, hlegið,
þá verður dapra hjartað fegið.
Franska Ijóðskáldið Charles
Baudelaire fæddist 9. apríl 1821.
Hann var þekktur fyrir Ijóðabókina
Les Fleurs du mal sem kom út árið
1857. Nokkur Ijóð úr henni voru
felld út í síðari útgáfum þar sem
Baudelaire hafði verið sóttur til
saka fyrir ósiðsemi vegna þeirra.
Nokkur ljóða hans hafa verið þýdd á
íslensku. Charles Baudelaire bjó í
Belgíu árið 1867, þegar hann Iam-
aðist skyndilega og var fluttur með
hraði til Parísar þar sem hann and-
aðist 31. ágúst það ár.
LæknisfræðHega
orðalagið!
Maður nokkur kom til læknis og sagði
farir sínar ekki sléttar, hann væri orðinn
svo slappur að hann gæti nánast aldrei
tekið til hendinni heima hjá sér og varla
einu sinni sinnt þeim heimilisstörfum,
sem áður voru í hans verkahring. Konan
hans væri orðin afar þreytt á þessu og nú
verði að fá læknisfræðilegan úrskurð í
málinu.
Eftir ítarlega skoðun sagði maðurinn:
„Jæja, læknir. Láttu mig nú hafa það
óþvegið á skiljanlegri íslensku."
„Ja,“ segir læknirinn, „ef ég á að vera
hreinskilinn þá er þetta bara leti og aum-
ingjaskapur í þér, og ekkert annað.“
„Allt í Iagi,“ sagði þá maðurinn, „en
láttu mig nú heyra læknisfræðilega orða-
lagið svo ég geti sagt konunni minni
það.“