Dagur - 09.04.1999, Page 5
FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 - 21
LEIKHÚS KVIKMYNDIR Líf^
TÓNLIST SKEMMTANIR fjor
Hjartasögur af hálendinu
Allpersónuleg hálendisdagskrá
verður í Listaklúbbi Leikhús-
kjallarans á mánudagskvöld-
ið...
Kolbrún Halldórsdóttir,
náttúruunnandi og
frambjóðandi Vinstri-
græna í Reykjavík,
skipuleggur náttúru-
verndardagskrána Þar
sem hjartað slær! sem
hefur undirtitilinn
hjartasögur af hálend-
inu er verður í Lista-
klúbbi Leikhúskjallar-
ans kl. 20.30 á mánu-
dagskvöldið. Þetta mun
vera Iokahnykkurinn í
vetrarstarfi þeirra lista-
manna sem hafa verið
að mótmæla fyrirhug-
uðum virkjunarfram-
kvæmdum á hálendi Is-
Iands. „Þetta er sami
kjarni og hefur staðið
fyrir ættjarðarljóðalestri
fyrir framan alþingis-
húsið alla fimmtudaga
meðan þingið hefur set-
ið til að minna þing-
menn á að við erum að
fylgjast með því hvernig
þeir afgreiða málefni
sem tengjast hálend-
inu,“ sagði Kolbrún í
stuttu spjalli við blaðið.
Trúlofaðist Vatnajökli
Uppistaðan í dagskránni eru sögur fjögurra
listamanna af sambandi þeirra við hálendið,
Elfsabetar Jökulsdóttur skálds, Hörpu Arnar-
dóttur leikkonu, Haralds Jónssonar mynd-
listarmanns og Andra Snæs Magnasonar
skálds. Fregnir herma að þar muni Harpa
m.a. segja frá ástríðufullu ástarsambandi
sínu við Vatnajökul en hún mun hafa trú-
lofast Vatnajökli með pompi og pragt hér um
árið. Þótti henni ekki verra að skömmu síðar
lét jökullinn ánægju sfna með trúlofunina í
Ijós með því að gjósa. Þá mun Andri Snær
ætla að standa fyrir slides-myndasýningu frá
því þegar amma hans og afi fóru í brúð-
kaupsferð upp á hálendið. Meiru vildi Kol-
brún ekki ljóstra upp um efni dagskrárinnar,
einungis að þarna yrðu afar persónulegar
frásagnir af ástar- og tilfinningasambandi
fólks við hálendi Islands.
Um 250 ömefni umlir vatn
Auk áðurnefndra listamanna birtist á mánu-
dagskvöldið hópur myndlistarkvenna sem
kallar sig, þegar berjast þarf fyrir verndun
náttúrunnar, Fjallkonur. Þær hafa safnað
saman um 250 örnefnum sem vitað er um á
því svæði norðan Vatnajökuls sem fyrirhugað
hefur verið að leggja undir virkjanir. Alda
Sigurðardóttir, ein
af Fjallkonunum,
segir að ef áform
stjórnvalda um stór-
virkjanir norðan
Vatnajökuls ná fram
að ganga munu
staðirnir að baki ör-
nefnunum 250
„breytast og skerðast
eða hverfa undir
vatn. Þá eru ekki
nefndir þeir staðir
sem munu breytast
vegna jarðefnaflutn-
inga, línulagna,
stöðvarhúsa, vega og
annarra mannvirkja.
Þó að menn vilji
gera lítið úr þessum
áformum núna þá er
a.m.k. Fljótsdals-
virkjun ennþá yfir-
vofandi og það er
ógrynni af örnefnum
sem tengjast þeirri
virkjun."
A mánudagskvöld-
ið ætla Fjallkonurn-
ar að dreifa örnefn-
um til fólks svo hver
og einn geti tekið að
sér viðkomandi stað.
„Það er oft talað um miðhálendið sem eyði-
mörk en þegar maður sér nöfnin þá finnur
maður hvað það er mikil menning tengd
þeim. Þetta er ekki eyðimörk,“ sagði Alda að
Iokum.
Miðaverð er 800 kr. LÓA
Slæðufoss, Tofrafoss, Trönusel, Kerling, Loðinshöfði, Goðavað, Ófærusel og Hjartarhylur eru meðal þeirra
staða sem fara undir vatn eða breytast ef fyrirætlanir „Finns Ingólfssonar og kó um stórvirkjanir á miðhá-
lendi íslands ná fram að ganga, “ segir Kolbrún Halldórsdóttir.
„Norðanpiltar44
Kristján Pétur
Sigurðsson
opnar sýningu
á ljósmyndum
í Ljósmynda-
kompunni
Listagili á Ak-
ureyri sunnu-
daginn 11.
apríl klukkan
15.00.
Kompan er
nú að rísa úr
vetrardvala
og er sýning
Kristjáns sú
fyrsta á
þeim vett-
vangi þetta árið.
Kristján Pétur mun að ýmsu
öðru kunnur en ljósmyndun en
það rímar alveg við stefnu Ljós-
myndakompunnar, sem er með-
al annars að sýna ljósmyndir eft-
ir listamenn, sem eru ekki endi-
lega Ijósmyndarar.
Ljósmyndun hefur löngum
verið áhugamál ICristjáns, en
hann er latur ljósmyndari. Dug-
legir myndarar taka að minnsta
Knstján Pétur Sigurðsson.
kosti 100
myndir á
viku en
Kristján
segist ná
þeim árangri
á nokkrum
árum. Því er
sýningin,
sem ber yfir-
skriftina
„Norðanpilt-
ar“ og sýnir
portrait af
piltum þeirrar
ástsælu
hljómsveitar
og nokkrum
öðrum aðdá-
endum, að sögn Kristjáns Péturs
ekki afrakstur þrotlausrar og
markvissrar vinnu, heldur dund,
föndur og ánægjulegt fikt.
Við opnunina á sunnudag
verða flutt nokkur lög og ljóð úr
smiðju Norðanpilta. Sýningin
verður síðan opin næstu vikur
þriðjudaga til laugardaga klukk-
an 14-17.
Píanótónleíkar
Daníel Þorsteinsson píanóleikari
leikur á tónleikum Tónlistarfé-
lags Akureyrar í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju á sunnudags-
kvöld klukkan 20.30. Á tónleik-
unum flytur Daníel tvö verk eft-
ir Johann Sebastian Bach,
Franska svítu nr. 6 í E-dúr og
tvær prelúdíur og fúgur úr Das
Wohltemperierte Klavier II.
Einnig leikur hann tvær sónötur
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Daníel er meðlimur í CAPUT
hópnum og hefur stundað tón-
listarnám á Islandi og í Amster-
dam. Hann hefur tekið virkan
þátt í tónlistarlífi og haldið tón-
íeika bæði heima og erlendis,
gert upptökur fyrir útvarp og út-
gáfur. Daníel er kennari við
Tónlistarskólann á Akureyri og
Háskólann á Akureyri.
IIM HELGINA
PúshMn-dagar
íMÍR
í tilefni af þvf að 200 ár verða
liðin frá fæðingu rússneska
skáldsins Alexanders S. Pús-
hkins þann 26. maí verður
kynning á verkum þessa höf-
uðskálds Rússa hjá MIR í
þessum og næsta mánuði.
Púshkin-dagarnir hefjast
formlega á morgun kl. 15
þegar opnuð verður sýning á
myndum, bókum og fleiru
sem tengist ævi skáldsins og
störfum. Einnig flytur Árni
Bergmann fyrirlestur um
Púshkin og kl. 17 verður sýnd
gamla kvikmyndin “Aleko“
en þar birtist ópera sem
Rachmaninov byggði á kvæð-
inu Sígaunar eftir Púshkin.
(Myndin er með enskum
texta.)
Áttu stuttmynd?
Hafir þú gengið með hug-
mynd að stuttmynd í kollin-
um mánuðum, ef ekki árum,
saman væri ráð að bretta upp
ermar og fara að skipuleggja
handrit og tökur um helgina.
Kvikmyndafélag Islands er
nefnilega að auglýsa eftir
stuttmyndum í keppni sem
haldin er í tengslum við
Stuttmyndadagana í Reykja-
vík, sem standa munu yfir
25.-27. maí. Allir mega taka
þátt í keppninni en æskileg
lengd mynda er 3-20 mínútur
og er skilafrestur til 17. maí
næstkomandi. Valdar verða 5
bestu stuttmyndirnar og fá
þrjár þær bestu vegleg verð-
íaun frá Reykjavíkurborg. Tek-
ið verður á móti myndum alla
virka daga milli kl. 10 til 17
hjá Kvikmyndasjóði Islands,
sem er staðsettur á Hallveigar-
stöðum að Túngötu 14 f
Reykjavík. (Ekki má laumast
inn, henda myndinni inn á
borðið og rjúka út í feimni
sinni því fylla þarf út sérstakt
eyðublað með hverri mynd).
Endurfundir eldri
skáta
I vetur hefur verið tekin upp
sú nýbreytni að hafa léttan
hádegisverð íyrir eldri skáta í
Skátahúsinu við Snorrabraut.
Tilgangurinn með fundunum
er að riQa upp gamlar minn-
ingar, spjalla saman, njóta
endurfunda og binda ný vin-
áttubönd. Til eldri skáta telj-
ast allir sem eru ekki lengur í
beinu skátastarfi. Aldur er
afstæður í skátastarfi. Allir
eldri skátar eru hvattir til
þess að mæta og njóta Ijúfra
stunda með skátasystkinum.
Næsti fundur verður mánu-
daginn 12. apríl frá kl. 11.30-
13.30.
J