Dagur - 09.04.1999, Qupperneq 7

Dagur - 09.04.1999, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 - 23 ItfÖL f|©r Bílar & list Sara Vilbergsdóttir opnar á morgun málverkasýningu í sýningarsaln- um að Vegamótastíg 4 í Reykjavík, sem sameinar hin eðlisólíku fyrir- bæri bíla og list. Þar sýnir Sara akrýlmálverk, sem hún hefur verið að vinna frá þvt á síðasta ári. Sýningin verður opin virka daga kl. 10-18, laugardaga 10-16 og sunnudaga 13-16 til 29. apríl. Kosningaskrifstofa Samfylkingar Samfylkingin á Norðurlandi eystra opnar kosningaskrifstofu sína á Akureyri á sunnudaginn klukkan 15.00 að Skipagötu 18, annarri hæð. Við opnunina verða frambjóðendur kynntir og ávörp flutt, auk þess sem skemmtiatriði verða á dag- skránni. Kosningaskrifstofan verðuropin klukkan 15-18 alla daga, jafnt virka daga sem um helgar. Þar verður jafnan heitt á könn- unni og allir hjartanlega velkomnir. Jón Daníelsson hefur verið ráðinn kosningastjóri í kjördæminu. Hart í bak á Reydar- firði Leikfélag Reyðarfjarð- ar frumsýnir á morg- un leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í Félagsheimilinu Fé- lagslundi, Leikmynd er eftir Óttar Guð- mundsson en leikstjóri er Jón Júlíusson. Með tvö helstu hlutverkin í leiknum fara Helgi Seljan og Þorbjörg Beck. Á myndinni, sem tekin er á æfingu verksins, eru Helgi Seljan, Elísa Davíðsdóttir og Þóra Atladóttir. Formaður leikfélagsins er Jóhann Sæberg Helgason. LANDIÐ Tónleikar á Austurlandi Óperustúdto Austurlands Hyggst leggja í söngferðalag um Austurland. Fyrstu tónleikarnir verða á Höfn í Hornafirði í kvöld í Hafnarkirkju kl. 20.00. Á morgun í Djúpavogskirkju kl. 14.00 og í Stöðvarfjarðarkirkju kl. 18.00. Á sunnudaginn í Valhöll á Eskifirði kl. 14.00 og að lokum í Egilsstaðakirkju kl. 18.00. Leikfélag Reyðaríjarðar Frumsýnt verður á morgun laugardag, leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobs- son í Félagsheimilinu Félagslundi. Það eru félagar í leikfélagi Reyðarfjarðar sem sjá um leikinn en leikstjóri er Jón Júlíusson. Fljótagangan á laugardaginn Lengsta skíðaganga á lslandi Fljóta- gangan, fer fram í grennd við félags- heimilið Ketilsás í Fljótum á laugar- daginn og hefst kl. 11.00. Þetta er önnur Fljótagangan sem farin er, en stefnt er að því að gera þetta að árleg- um viðburði. Keppt verður í 50 km, 25 km og 10 km og einnig boðið uppá 5 km skemmtigöngu. Fólk er hvatt til að taka sér heilsubótargöngu í Fljótunum á laugardaginn og er vonast eftir góðri þátttöku. Allar nánari upplýsingar og skráningu er hægt að fá í símum 467- 1030 Trausti og 453-5757 Þórhallur. Fortíð og nútíð Sýningin sfning á sama sjónarhorninu í fortíð og nútíð stendur yfir í Byggða- safni Árnesinga. Þetta eru valin mál- verk (bæjarmyndir) eftir Matthías Sig- fússon, Iistmálara sem málaði á mis- munandi tímum í gegnum tíðina. Sýn- ingin er opin til 16. maí á laugardög- um og sunnudögum í Húsinu á Eyrar- bakka frá kl. 14-17. Opnun í Ljósmyndakompunni Kompan opnar aftur eftir vetrardval- ann á sunnudaginn kl. 15.00 með sýn- ingu á Ijósmyndum eftir Kristján Pétur Sigurðsson, norðanpilt með meiru og eru myndirnar einmitt af þeim guttum og aðdáendum þeirra. Sýningin verður opin næstu vikur frá kl. 14-17 þriðju- daga til laugardaga. Píanótónleikar Daníels Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir tónleikum Daníels Þorsteinssonar, pt- anóleikara sem haldnir verða í Safnað- arheimili Akureyrarkirkju sunnudaginn 11. apríl kl. 20.30. Daníel er mjög virkur í tónlistarlífinu og hefur haldið fjölmarga tónleikar bæði hér heima og erlendis. Vinarbæj arblás tur Laugardaginn 10. apríl koma góðir gestir frá vinabæ Akureyrar, Hafnar- firði, í heimsókn. Eru þar á ferðinni tvær lúðrasveitir, Lúðrasveit Hafnar- fjarðar og Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, undir stjórn Stefáns Omars Jakobssonar. Gestgjafar þeirra eru Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Atla Guðlaugssonar og Jóns Halldórs Finnssonar og Eldri blásarasveit Tón- listarskólans á Akurcyri undir stjórn- Sveins Sigurbjörnssonar. Sveitirnar halda tónleika í Glerárkirkju á laugar- dag kl. 15.00. Á efnisskránni er fjöl- breytt efnisval íyrir lúðrasveitir, m.a. einleiksverk, marsar og ættjarðarlög. Aðgangur er ókeypis. Heimir á Dalvík og Akureyri Tónleikar Karlakórsins Heimis verða haldnir t Dalvtkurkirkju laugardaginn 10. apríl kl. 16.00 og aftur sama dag t Glerárkirkju á Akureyri kl. 20.30. Söngstjóri er Stefán R. Gíslason. Ein- söngvarar með kómum eru: Einar Hall- dórsson, Óskar Pétursson, Pétur Péturs- son og Sigfús Pétursson. Ljúfa Anna Hún Anna lætur sig ekki vanta í göngugötuna á Akureyri í dag frekar en aðra föstudaga, nema auðvitað föstu- daginn langa. Gengt Bókvali í dag kl. 16.30 verður dansað af líf og sál, komdu bara til að sjá. Atvinna-umhverfi-byggð Vinstrihreyfingin - grænt framboð heldur ráðstefnu um atvinnuumhverf- is- og byggðamál á veitingahúsinu við Pollinn á Akureyri laugardaginn 10. apríl. Ráðstefnan hefst kl. 13.00 með setningarræðu Valgerðar Jónsdóttur sem skipar 4. sæti U-listans í Norður- landskjördæmi eystra. Framsögumenn verða Stefán Olafsson, prófessor, Bjarki Jóhannesson, forstöðumaður Þróunarsviðs Byggðastofnunar, Þor- steinn Gunnarsson, háskólarektor, Berglind Hallgrímsdóttir, forstöðumað- ur Atvinnumálaskrifstofu Akureyrar- bæjar, Árni Bragason, forstöðumaður Náttúruverndar ríkisins og Steingrím- ur J. Sigfússon, alþingismaður. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Námskeið HI á Akureyri Endurmenntunarstofnun HI heldur námskeið á Akureyri 9. og 10. apríl kl. 10.00-12.00 og 14.00-17.00. Þrek- og mjólkursýrumælingar. Framhaldsnám- skeið í lífeðlifræði áreynslu. Kennari er dr. Þórarinn Sveinsson, lektor. Starðfræðikeppni níundubekkinga Nú er komið að árlegri stærðfræði- keppni JC Akureyrar og Islandsbanka fýrir níundubekkinga á Eyjafjarðar- svæðinu. Keppnin fer fram í Gryfju VMA laugardaginn 10. apríl kl. 13.00. Að keppninni lokinni býðst keppend- um að njóta veitinga sem verða í boði Greifans og Olgerðar Egils. Vegleg peningaverðlaun eru í boði fyrir sigur- vegarana frá kr. 3.000 í kr. 15.000 sem eru íyrstu verðlaun auk vasareiknivéla. Að auki verður í íýrsta sinn dregið í happdrætti á meðal keppenda og eru verðlaunin kr. 5.000. Þá er bara að setja heilann í gang og byrja að reikna. Rauðu Ijaðrir Lionsmanna Lionsklúbbarnir í Eyjafirði hefja rauð- fjaðra-átakið á Norðurlandi með hollri hreyfingu á Iaugardaginn kemur. Boðið verður frítt í sund á Dalvík og á Akur- eyri, á skíði í Hliðarfjalli og á Bjargi verður kynning á Boccia frá kl. 9- 11.30. Allir velkomnir. Lionsfélagar munu á næstu dögum ganga í hús og afhenda upplýsingabækling (sem jafn- framt er happdrættismiði) ásamt Rauðu Qöðrinni inn á hvert heimili án þess að taka við peningum og til að minna á söfnunarátakið. Ferðafélag Akureyrar Skíðaferð í Baugasel í Barkárdal á laugardag. Brottför frá skrifstofu (fé- lagsins klukkan 9.00, auðveld ferð sem með öllu tekur um 5-6 klukkustundir. Laugardaginn 17. apríl verður farið í miðlungs erfiða skíðaferð á Vind- heimajökul. Helgina 24.-25. apríl: Kröflusvæðið við Mývatn. Farið verður í miðlungs erfiða skíðaferð í Gæsadal, ekið að Kröfluvirkjun, gengið f Gæsa- dal og gist þar í skála. Fyrirlestur í Deiglunni Pétur H. Ármannsson forstöðumaður arkitektadeildar Listasafns Reykjavíkur flytur fyrirlestur í Deiglunni laugardag- inn 10. apríl kl. 16.00. Fyrirlesturinn er um byggingarsögu 6. áratugarins og er í samhengi við sýninguna Draumur- inn um ný form sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri. Aðgangur er ókeypis. Málþing um Hornstrandir Isafjarðarbær hefur boðað til málþings um Hornstrandir í nútfð og framtíð föstudaginn 16. og laugardaginn 17. apríl nk. Málþingið er haldið í sam- vinnu við Náttúrustofu Vestfjarða, Ferðamálasamtök Vcstfjarða og At- vinnujtróunarfélag Vestfjarða hf. Markmið mál|úngsins er að ræða skipulag svæðisins og þá sérstaklega með tilliti til vaxandi ferðamcnnsku. Að mál|nnginu loknu verða erindi og umræður tckin saman og ])au gefin út. Upplýsingar og skráning verður hjá Náttúrustofu Vestfjarða í síma 456- 7005, fax 456-7351 og netfang nv@ishoIf.is. Askriftarsíminn er 8oo 7080 lÍHlWlBHII■Blffnmi Hvað er é seyði? Tónleikar, sýningar, fyrirlestrar o.s.frv... Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbrófi eða hringdu. ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100 Útvörður upplýsinga Tilboð HölÉL Kirkjubraut 11 Sími 431 4240 Akranesi Gtettttg fyiríir 8 l wmr nofttur, 3 béttn máltffc á a&etrtss FHtt I sund VINSTRIHREYFINGIN grænt framboð ATVINNA - UMHVERFI - BYGGÐ Ráðstefna á vegum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs veitingahúsinu Við Pollinn á Akureyri laugardaginn 10. apríl kl. 13-18 Dagskrá: 1. Setning. Valgerður Jónsdóttir garðyrkjutæknifræðlngur á Akureyri. 2. Orsakir og afleiðingar búferlaflutninga. Stefán Ólafsson lektor við félagsvísindadeild Háskóla íslands. 3. Breyttir atvinnuhættir og byggðaþróun. Bjarki Jóhannes- son forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar á Sauðárkróki. 4. Menntun og byggðaþróun. Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans áAkureyri. Kaffihlé 5. Staða og möguleikar Akureyrar. Berglind Hallgrímsdóttir forstöðumaður Atvinnumálaskrifstofu Akureyrarbæjar. 6. Byggð og umhverfi. Árni Bragason forstöðumaður Náttúruverndar ríkisins. 7. Byggðaþróun og stjórnmál. Steingrimur J. Sigfússon alþingismaður. 8. Umræður og fyrirspurnir. 9. Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjórar verða Þuríður Backman hjúkrunarfræð- ingur á Egilsstöðum og Jón Bjarnason skólastjóri Bænda- skólans á Hólum. Allir velkomnir - aðgangur ókeypis

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.