Dagur - 09.04.1999, Side 9
h' Ö S T V D A G U R 9. APRÍL 19 9 9 - 25
LÍFIÐ t LANDINU
Leikkona án metnaðar
1939. Hanagrunaði
þó ekki hversufljótt sú
ósk myndi rætast.
Hún hét réttu nafni Katharine
Gibbs en þegar hún giftist í
fyrsta sinn tók hún upp nafn
eiginmanns síns og hét upp frá
því Kay Francis. Eiginmaðurinn
var iðjuleysingi og drykkjumaður
sem barði hana og hún yfirgaf
hann eftir tveggja ára hjóna-
band. Stuttu eftir skilnaðinn
kynntist hún enn einum iðju-
Ieysingjanum og þegar hún hélt
sig vera barnshafandi giftust
þau. Tveimur dögum eftir
hjónavígsluna uppgötvaði hún
að barn var ekki á leiðinni. Eig-
inmaðurinn sótti þá um skilnað.
Kay var þegar á þessum árum
afkastamikil drykkjukona sem
hafði þann sið að fá sér gin
morgunverð og stundaði villt
samkvæmislíf langt fram á næt-
ur. Þessir lífshættir höfðu engin
áhrif á útlit hennar. Hún var
stórglæsileg kona sem vakti at-
hygli hvert sem hún fór. Hún
starfaði sem ritari en sneri sér
að leiklist, einfaldlega vegna
þess að það starf var betur borg-
að. Hún lék í fyrstu kvikmynd
sinni árið 1929. Um svipað leyti
giftist hún í þriðja sinn en það
hjónaband var skammvinnt, líkt
og þau fyrri.
Drottning kvennamynda
Arið 1933 var Francis orðin
drottning kvennamyndanna.
Sjálf leit hún á kvikmyndaferil-
inn sem tækifæri til að græða
peninga. Hún hafði lítinn Iist-
rænan metnað og ætlaði sér að
spara og fjárfesta þar til hún
gæti dregið sig í hlé frá kvik-
myndaleik. Hún þótti fremur
nísk en hafði ákafa ánægju af að
ferðast og lagði harðar að sér við
að reyna að kría út frí en að
tryggja sér boðleg kvikmynda-
hlutverk.
Kay Francis Iék í sextíu og átta
myndum á sautján
árum. Árið 1936 var
hún hæst launaða leik-
kona hjá Warner
Brothers. Sama ár var
hún fyrsta Ieikkonan til
að hreppa titilinn best
ldædda kona Bandaríkj-
anna. En henni hund-
leiddist að fara í búðir og
í hárgreiðslu. „Hún eydd
minni tíma, peningum,
orku og hugsun í klæða-
burð sinni en nokkur önn-
ur stórstjarna," sagði einn
af búningahönnuðum
Hollywood. Sjálf sagði
hún: „Eg geri ekkert sér-
stakt til að halda mér í
formi. Eg fer ekki í megr-
un. Eg á engin fegrunarráð.
Eg þvæ andlit mitt með
sápu og vatni.“
Vinir hennar lýstu henni
sem hlýrri, jarðbundinni
persónu sem hafði góða kímni-
gáfu. Hún gaf sig hins vegar að
fáum og samstarfsmönnum
•þennar ífannst mörgum að hún
Eg var bara á eftir peningunum, “ sagði Kay Francis, sem um tíma var ein
skærasta stjarnan í Hollywood.
væri bæði köld og fjarlæg. Hún
var ósamvinnuþýð við blaða-
menn og vildi lifa einkalífi sínu í
friði. Henni
eiginmanni sínum árið 1931.
Hún drakk mikið á hjóna-
bandsárum þeirra og hæddi eig-
inmann sinn sífellt fyrir að
vera gyðingur. Eftir fjögurra
ára hjónband fékk hann
nóg af svívirðingum hennar
og yfirgaf hana.
ek ki
eimi stosta m'“'
Huston íAlways m My Heart---
tókst svo vel að vernda
einkalíf sitt að blaðamenn voru
aldrei alveg vissir um hversu oft
hún hefði verið gift.
Hún ’giftist' fjórðíi' og síðasta
„Eg vil verða feit“
Þegar vinsældir hennar
fóru þverrandi gerði hún
ekkert til að auka þásr. „Eg
get ekki beðið eftir því að
yfirgefa Hollywood,:' sagði
hún. „Það er svo margt
sem ég vil gera. Eg vil
lesa Hemingway í stað
þess að lesa handrit. Eg
vil verða feit. Eg vil ekki
gera neitt. Eg vil sitja
bakgarðinum mínum
ruggustól og þurfa ekki
einu sinni að hugsa.“
Kvikmyndahlutverkin
urðu Ioks svo ómerkileg
að hún kvartaði við yfir-
menn sína sem hlustuðu
á hana. Hún veiktist og
kvikmyndafélagið sagði upp
samningi sínum \dð hana. Þá
kom henni til tímabundinnar
bjargar vinkona hennar Carole
„Égget ekki beðið eftir
því aðfolla í
gleymsku, “ sagði leik-
konan Kæy Francis við
blaðamann árið
Lombard sem krafðist þess að
Francis fengi hlutverk á móti sér
í myndinni In Name Only. Það
var síðasta góða hlutverkið
hennar í kvikmynd. Eftir það
snerist líf Francis um svefnpill-
ur, drykkjutúra og át. En sást þó
nokkrum sinnum á sviði. Hún
hafði ekkert samband við fyrrum
Hollywood vini, veitti ekki \dðtöl
og neitaði að láta mynda sig.
Hún var þó ekki alveg ein því
hún bjó í tíu ár með leikstjóran-
um og handritahöfundinum
Dennis Allen. Hún veiktist og
Ijarlægja varð lunga og nýra og
hún gat ekki Iengur unnið. Þeg-
ar hún tók enn að herða drykkj-
una lauk sambandi hennar við
Allen. Hún var orðin skugginn
af sjálfri sér og eyddi dögunum í
að sauma eða prjóna eða spila
póker við þá fáu vini sem eftir
voru.
Arið 1966 greindist hún með
brjóstakrabbamein sem dró
hana til dauða á tveimur árum.
Hún skildi eftir sig miklar fjár-
fúlgur sem hún arfleiddi
blindrasamtök að. Enginn hafði
vitað af áhuga hennar á þeim
samtökum en í erfiðaskránni gaf
hún þá skýringu að hún gæti
ekki hugsað sér verri örlög en að
missa sjónina. I erfðaskránni
kom einnig fram að hún vildi
enga útför, einungis líkbrennslu
og eftir það bað hún um að ösk-
unni yrði dreift einhvers staðar
svo „engin merki tilveru minnar
verði eftir á þessari jörð.“
Nokkrum árum fyrir dauða
sinn ræddi hún um feril sinn við
Bette Davis, sagði kvikmyndafé-
lag sitt hafa komið illa fram við
sig og kastað sér á dyr þegar það
taldi hana ekki lengur vera að
neinu gagni. Da\ds spurði hana
af hverju hún hefði ekki barist
harðar fyrir því að fá góð hlut-
verk. „Vegna þess að mér var
skítsama," sagði Francis, „ég var
bara á eftir peningunum.“
Kay var fyrsta Hollywood leikkonan sem valin var best klædda kona Banda-
ríkjanna.