Dagur - 24.04.1999, Síða 12
28 - LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999
Maturinn hennar mömmu frh.
/ Kvennafræðaranum eftir Elínu Briem sem kom út árið 1889 eru ýmsar
uppskriftir sem eru fullnothæfar og eflaust notaðar enn á ýmsum heimilum
þar sem uppskriftabókin hennar mömmu (ömmu/langömmuj er megin-
heimildin. Þar er meðal annars uppskrift að lifrarpylsu, sjá bls. 27.
Villibráðin
„Upp úr 1980 fór matarmenn-
ingin að breytast mjög hratt og
með auknum ferðalögum og
bættri prenttækni varð grund-
völlur fyrir útgáfu alls kyns mat-
reiðslubóka frá framandi matar-
slóðum. I nýjum íslenskum mat-
reiðslubókum er oft notað „gam-
alt“ hráefni eins og svartfugl og
lambakjöt, en kryddun og eldun
hefði þótt furðuleg fyrir hálfri
öld eða svo,“ segir Hildur og
bendir m.a. á bókina Villibráð
og veisluföng úr náttúru Is-
lands - Að hætti keppnisliðs
íslenskra matreiðslumeistara
(1991) en þar birtist m.a. þessi
uppskrift Sverris Þórs Halldórs-
sonar:
Steiktar svartfugls-
bringur í rifs-
berjasósu
Fyrir íjóra
bringur af 4 svartfuglum
2 msk. maísolía
salt og pipar
Sósa:
4 cl portvín
1,5 dl svartfuglssósa
2 dl ijómi
3 tsk. rifsbeijahlaup
2 msk. rifsber, frosin
salt og pipar
Úrbeinið bringur og Ijarlægið
himnur. Hitið olíuna á pönnu,
steikið bringurnar við góðan hita
í 4 mfnútur hvorum megin og
kryddið með salti og pipar. Takið
þær af pönnunni og haldið þeim
heitum. Hellið portvíninu á
pönnuna og leysið upp steikar-
skófina. Bætið síðan svartfugls-
sósunni við ásamt ijómanum og
sjóðið þetta saman í 2 mínútur.
Setjið síðan rifsbeijahlaup og
rifsber út í, og látið það sjóða
með í 1 mínútu. Bragðið á sós-
unni og kryddið með salti og
pipar eins og þurfa þykir. Hellið
sósunni á diskana og setjið
bringurnar ofan á, annaðhvort
heilar eða skornar á ská í falleg-
ar sneiðar.
Pastað...
Á síðustu 1 -2 áratugum hafa
pasta- og grænmetisréttir farið
að sjást æ oftar á veitingahúsum
og heima hjá mömmu og pabba.
Árið 1992 kom út matreiðslu-
bókin Hundrað góðar pastasósur
sem er víða til á íslenskum
heimilum en þar er m.a. þessi
uppskrift að Spaghetti með
tómatsósu:
500 gr tagliatelle
eða spaghettí
2 msk. ólífuolía
1 meðalstór laukur
2 hvítlauksrif
2 dósir ítalskir tómatar,
400 g hvor
1 sykurmoli
salt, svartur pipar úr kvörn
60 gr nýrifinn parmaostur
Hitið olíuna og mýkið í henni
saxaðan lauk og hvítlauk. Bætið
við tómötum ásamt safa og sykri
og salti og pipar að vild. Látið
þetta sjóða loklaust við góðan
hita í um 20 mín og hrærið í
öðru hverju. Á ítalska vísu á síð-
an að gera mauk úr sósunni í
handkvörn með miðlungsgrófri
skífu. Einnig má setja hana í
hnífakvörn (mixer). Sjóðið
pastað samkvæmt Ieiðbeiningu á
pakkanum. Látið renna af past-
anu. Setjið saman við það helm-
inginn af ostinum og blandið
vel. Hellið síðan sósunni út á.
Blandið þessu vandlega saman,
bætið við afganginum af ostin-
um og berið réttinn strax fram.
Grillið
Þá eru það hinir sívinsælu grill-
réttir en nú er sú tíð einmitt að
renna upp þegar finna má
grillilminn leggjast yfir heilu
íbúðahverfin í vikulok. Árið
1995 kom út bókinn Grillréttir
sem Björg Sigurðardóttir og
Hörður Héðinsson ritstýrðu en
þar á m.a. finna eftirfarandi
uppskrift:
Lamhafilé með
bðkuðum hvítlauk
800 g lambafilé
pipar
salt
1 -2 heilir hvítlaukar
Sósa:
200 gr sýrður rjómi
1 dl graslaukur (1 knippi)
3-4 marin hvítlauksrif
Kryddið kjötið með pipar. Glóðið
á opnu grilli. Kryddið að lokum
með salti. Skerið ofan af heilum
hvítlauk og setjið hann á álpapp-
ír. Kryddið. með salti. Pakkið
honum inn og glóðið í tíu mín-
útur eða þar til hann verður
mjúkur. Kreistið hvítlaukinn yfir
kjötið.
Sósa: Hrærið saman sýrðan
rjóma, saxaðan graslauk og hvít-
Iauk. Berið ffam með salati og
bökuðum kartöflum. Uppskrift-
in er fyrir fjóra.
HYDRO
Sláturfélag Suðurlands hefur hafið innflutning á tilbúnum áburði frá Norsk Hydro, staersta
áburðarframleiðanda heims. Áburðurinn er afhentur í stórsekkjum frá Grundartanga og
Þorlákshöfn. Flutningsstyrkur er 500 kr. á tonn í Vestur-Skaftafellssýslu, Dalasýslu, Snæfelis-
og Hnappadalssýslu og Vestur-Húnavatnssýslu. Staðgreiðsluafsláttur er 3% í apríl og 2% í maí.
Tryggðu góða sprettu með góðum óburði, túnin græða á því.
Nánari upplýsingar og móttaka pantana hjá SS, Fosshálsi I, Reykjavík
í síma 575 6000, netfangi birna@ss.is og fax 575 6090.
Tegund N PzOs KzO Ca S Mg B Verð kr./tonn án vsk. Verð kr./tonn með vsk.
Hydro 5 15 15 15 3,3 20.697 25.768
Hydro 7 21 8 12 1,8 2,7 1,2 0,02 19.592 24.392
Hydro 8 17 10 16 2,3 2,2 1,2 0,02 19.124 23.809
Hydro 9 27 6 6 1,2 19.650 24.464
Takmarkað magn