Dagur - 24.04.1999, Blaðsíða 20

Dagur - 24.04.1999, Blaðsíða 20
1 36- LAUGARDAGVS 24. APRÍL 1999 RADAUGLYSINGAR i i í i \ \ l í ; L i I > I ATVINNA ...þar sem jökulinn ber við loft....... Skólastjórastaða! Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Grunnskólann á Hellissandi í Snæfellsbæ. Grunnskólinn á Hellissandi er einn af þremur grunnskólum í Snæfellsbæ, hinir eru Grunnskólinn í Ólafsvík og Lýsuhólsskóli. í skólanum eru 120 nemendur í 1 -10. bekk og starfsmenn skólans eru 26. Skólinn er einsetinn og starfræktur í vistlegu húsnæði. Skólastjóra mun standa húsnæði til boða. Nánari upplýsingar veitir Guðlaug, skólastjóri, í síma 436-6618 eða 4366996 og Kristinn, formaður skólanefndar, í síma 436-6900. Umsóknarfrestur er til 15. maí og skulu umsóknir vera merktar: Grunnskólinn á Hellissandi, b.t. Kristins Jónassonar, Snæfellsási 2, 360 Snæfellsbæ. Snæfellsbær er ungt sveitarfélag og óneitanlega er Snæfellsjökull helsta einkenni byggðarinnar. íbúafjöldi í Snæfellsbæ er 1721. Sveitarfélagið geymir óteljandi náttúruperlur til sjávar sem sveita. í vor verður hafist handa við að byggja nýtt stórglæsilegt íþróttahús sem verður tilbúið 1. ágúst 2000. Fyrir þá sem hafa áhuga að koma til okkar í Snæfellsbæ frá höfuðborgarsvæðinu, tekur það aðeins um rúma tvo tíma í akstri. í Snæfellsbæ býr kröftugt fólk, sem tilbúið er taka á móti nýrri öld. Leikskólakennarar og þroskaþjálfar Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit óskar að ráða leikskólakennara og þroskaþjálfa til starfa nú þegar eðafrá og með 1. sept. n.k. Skólinn er staðsettur í þéttbýliskjarna við Hrafnagils- skóla miðsvæðis í Eyjafjarðarsveit í 12 km. fjarlægð frá Akureyri. Milli skólanna er skipulagt samstarf og sam- gangur. Um er að ræða áhugavert starf í jákvæðu um- hverfi. Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofu Eyjafjarðar- sveitar, Syðra Laugalandi, 601 Akureyri, fyrir 10. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Anna Gunnbjörnsdóttir, leik- skólastjóri, í síma 463-1231 og 463-1160. Stærðfræði- og náttúru- fræðikennari óskast! Spennandi kennslugreinar: Stærðfræði, líffræði, efna- fræði, vistfræði o.fl. Ágæt aðstaða. Ódýrt íbúðarhús- næði í boði. Framhaldsskólinn í Skógum er einkaskóli, rekinn af sjálfseignarstofnun í eigu hérðasnefnda Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Við skólann verða þrjár námsleiðir: 2ja ára námsbraut í umhverfisfræðum og 1 - 2ja ára almennt nám. Áætlaður nemendafjöldi 1999- 2000 er 40-60 nemendur. Fjöldi fastráðinna kennara verður 6 auk stundakennara. Ráðningartími er frá 1. ágúst 1999. Skriflegar um- sóknir berist skólanum fyrir 11. maí nk. Nánari upplýsingar gefur skólameistari í síma 487- 8850 og 487-8861. Skólameistari. Leikskólastjóri Leikskólakennarar! Á Þórshöfn vantar okkur leikskólastjóra til starfa við leik- skólann Barnaból. Einnig leikskólakennara til starfa inn á deild. í leikskólanum eru 28 börn á aldrinum eins og hálfs til sex ára, í fjögurra, sex, átta og níu tíma vist. Til stendur að stækka leikskólann. Unnið er að auknu samstarfi við grunnskólann sem hefur það að markmiði að tengja sam- an þessi tvö skólastig. Góð kjör í boði. Allar frekari upplýsingar gefur sveitarstjóri, (sak J. Ólafs- son ísíma 468-1275 eða 468-1220 (hs. 468-1221). Á Þórshöfn búa tæplega 500 manns. Undirstaða atvinnulífsins er öflugur sjávarútvegur - veiðar og vinnsla - sem hefur verið í vexti undanfarin ár og skapað forsendur fyrir aukinni þjónustu sveitarfé- lagsins. Atvinnuástand er gott og því tiltölulega auðvelt um vinnu fyrir maka. Á staðnum er öll almenn þjónusta og í vetur var tekin í notkun glæsíleg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Samgöngur eru nokkuð góðar, m.a. er flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Umbrot - hönnun Vegna aukinna verkefna óskar Dagsprent hf. eftir starfskrafti í umbrot og hönnun. Unnið er með Quark Xpress, Freehand og Photoshop. Reynsla og kunnátta nauðsynleg. Góð vinnuaðstaða. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Vinsamleg sendið umsóknir í afgreiðslu Dags merkt „umbrot'99“ fyrir 5. maí n.k. Nánari upplýsingar fást hjá framkvæmdastjóra og/eða prentsmiðjustjóra í síma 800-7080. Heilbrigðistofnunin Sigiufirði H j ú kru na rf ræðingar Okkur vantar hjúkrunarfræðinga í fastar stöður og til sumarafleysinga. Hafið þið áhuga á fjölbreyttu starfi, sem fléttar saman á hæfilegan hátt hin ýmsu svið hjúkrunar s.s. bráða- hjúkrun, öldrunarhjúkrun, krabbameinshjúkrun, hjúkr- un hjartasjúklinga o.fl. Ef svo er hafið þá samband og/eða komið í heimsókn og kynnið ykkur aðstæður. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Heilbrigðis- stofnunarinnar Siglufirði, sími 467-2100, heimasími 467-1417. fea FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI H j ú kru na rfræðingar Hjúkrunardeildina í Seli vantar hjúkrunarfræðinga í fastar stöður og til afleysinga. Starfstími og starfshlutfall eftir samkomulagi. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu hjúkrunarforstjóra. Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri hjúkrunar, sími 463-0273. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. F U N D I R SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS THE NATIONAL LIFE-SAVING ASSOCIATION OF ICELAND VERNDARI/PATRON FORSETI ISLANDS/THE PRESIDENT OF ICELAND 28. landsþing Slysavarnafélags íslands Boðað er til 28. landsþings (aukalandsþing) Slysavarnafélags íslands, laugardaginn 29. maí n.k. kl. 13.00 í Borgartúni 6, Reykjavík. Dagskrá samkvæmt 10. grein laga félagsins. Stjórnin. Sýslumaðurinn á Akureyri Utankjörfundar- atkvæðagreiðsla Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingis- kosninga sem fram fara laugardaginn 8. maí 1999, er hafin. Kosið er frá kl. 09.00 til 21.00 á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, Akureyri, 3. hæð, frá mánudegi til föstudags og milli kl. 14.00 og 17.00 á laugardögum og sunnudögum. Á kjördag er opið frá kl. 10.00 til 21.00. Á skrifstofu embættisins í Ráðhúsinu á Dalvík er kosið milli kl. 09.00 og 15.00 frá mánudegi til föstudags. Kosið er hjá hreppstjórum í Grýtubakkahreppi, Gríms- ey og hjá settum hreppstjóra í Hrísey, Pétri Bolla Jó- hannessyni, eftir samkomulagi við þá. Sýslumaðurinn á Akureyri, 24. apríl 1999. Björn Jósef Arnviðarson. alfundur Verslunarmannafélags Suðurnesja verður haldinn að Vatnsnesvegi 14, Keflavík, þriðjudaginn 27. apríl kl. 20.00. DAGSKRÁ: Kosinn fundarstjóri. Kosinn ritari. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. Reikningar félagsins. Lýst stjórnarkjöri. Önnur mál. Stjórn Verslunarmannalélags Suðurnesja wwwvisir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.