Dagur - 27.04.1999, Side 3

Dagur - 27.04.1999, Side 3
ÞRIÐJUD AGU R 27. APRÍL 1999 - 3 rD^tr. FRÉTTIR Skítkast frá formanni VR Marjí'rét og Ingibjörg á öndverðum meiði Össur Skarphéðins- son viU að skoðað verði að sækja um að- ild að Evrópusam- handinu en Margrét Frímannsdóttir segir það ekki á dagskrá næstu 4 árin. „Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra er að sjálfsögðu frjálst að hafa hvaða skoðanir sem er á öllum málum, en stefna Samfylkingarinnar varðandi Evr- ópusambandið er afar skýr. Það er ekki áformað að sækja um að- ild að sambandinu á næsta kjör- tímabili enda hefur engin breyt- ing orðið á varðandi auðlinda- stefnu Evrópusambandsins. Það er verið að endurskoða sjávarút- vegsstefnu þess en henni á ekki að ljúka fyrr en eftir tvö eða þrjú ár. Fyrr en henni er lokið og ef engin breyting verður á sjávarút- vegsstefnunni eigum við ekkert erindi þarna inn,“ segir Margrét Frímannsdóttir, talsmaður Sam- Margrét Frímannsdóttir: Ekki áformað að sækja um aðild að sambandinu á næsta kjörtímabili. fylkingarinnar, um þá skoðun Ingibjargar Sólrúnar í viðtali við blað ungs fólks í Samfylkingunni að Islendingar eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Margrét segir að það þurfi rót- tæk breyting að eiga sér stað gagnvart yfirráðum yfir auðlind- um til þess að við Islendingar eigum erindi í sambandið. Hún segir hins vegar að halda þurfi Ingibjörg Só/rún Gísladóttir: Eigum að sækja um aðild. uppi opinni og lýðræðislegri um- ræðu og fræðslu um stöðu okkar meðal þjóðanna. „Síðan taka menn ákvarðanir á hverjum tíma í takt við hagsmuni þjóðarinnar. Við í Samfylking- unni teljum að hagsmunum þjóðarinnar sé ekki best borgið inni í Evrópusambandinu eins og staðan er í dag,“ segir Margrét Frímannsdóttir. Sanunála Lngibjðrgu „Það er stefna Samfylkingarinn- ar að sækja ekki um aðild að Evr- ópusambandinu næstu fjögur árin. Eg er hins vegar alveg sam- mála Ingibjörgu Sólrúnu um að við eigum að gefa því alvarlegan gaum að sækja um aðild. Ég tel að við eigum að freista þess að ná hagstæðum samningum við Evrópusambandið. Þetta eigum við að gera í framtíðinni en ég hef engar ákveðnar skoðanir á því hvenær nákvæmlega það verður gert,“ segir Össur Skarp- héðinsson, en bendir á að hann sé í minni hluta hvað þetta varð- ar í Samfylkingunni. Össur segir að þær fréttir sem bárust frá Brussel með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar, þess eðlis að íslendingar væru ekld seldir undir hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ef þeir gengju í Evrópusambandið, hafi að sín- um dómi verið miklar fréttir, sem komu honum minna á óvart en þær virtust koma sjálfstæðis- mönnum og framsóknarmönn- um. - S.DÓR Sú einkennilega staða er komin upp hjá flug- freyjum á Is- landi að þær úti- Ioka ekki inn- göngu í Rafiðn- aðarsamband Is- lands. „Flug- freyjur hafa ver- ið mjög ósáttar við stöðu mála innan vébanda ASI og hæst stendur ágreiningur við VR um veru flugfreyja hjá Atlanta í VR. Við höfum engin viðhlítandi svör fengið við þessari óánægju heldur hreinlega skítkast frá for- manni VR,“ segir Anna Dóra Guðmundsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Islands. Hún segir að í ljósi atburða hjá RSÍ hafi farið fram óform- legur fundur milli flugfreyja og RSI án þess að ákvörðun hafi verið tekin. Er sú staða sem sagt hugsanleg að flugfreyjur gangi í samband rafiðnaðarmanna? „Já, það má alveg hugsa sér það ef hlutirnir breytast ekki allmikið innan ASI,“ segir Anna Dóra. Stjórnarfundur flugfreyjufé- Iagsins verður 3. maí nk. og þá verða væntanlega einhverjar ákvarðanir teknar um framhald- ið. Hún segir að ef flugfreyjur hjá Atlanta verði áfram innan VR sjái flugfreyjur sér ekki fært að starfa áfram innan ASI. - BÞ Verðstríö í sjófLutnmguni Atlantsskip hefur ákveðið að hella sér afkrafti í samkeppni við Eimskip og Sam- skip í gámaflutningum. Atlautsskip býöur mim lægra verð á gámaflutnmgiun en Eimskip og Samskip. Ótrygg viðskipti vegna vörumeðferðar og siglingaáætlunar, segir framkvæmda- stjóri flutningasviðs Eimskips. íslenska sjóflutningafyrirtækið Atlantsskip hefur ákveðið að fara út í verðstríð í gámaflutningum milli íslands og Bandaríkjanna og ætlar að bjóða allt að 67% lægri verð á sjófragt frá Banda- ríkjunum og heim. Þessi ákvörð- un er tekin í kjölfar þess að Atl- antsskip sendi kæru á Eimskip og Samskip til bandaríska dóms- málaráðuneytisins vegna meintra ólögmætra viðskiptahátta í tengslum við varnarliðsflutninga. Atlantsskip býður flutning á 20 feta gámi á 1.600 dollara og á 40 feta gámi fyrir 1.900 dollara og fullyrðir að þetta sé 40 til 67% lægra verð en keppinautarnir bjóða samkvæmt verðskrá. Að sögn Stefáns Kærnested, fram- kvæmdastjóra Atlantsskips, hefur tilkoma fyrirtækisins gjörbreytt markaðnum í sjóflutningum milli Bandaríkjanna og Islands og stefnir Atlantsskip að því að ná 45% hlutdeild á þessum markaði. „Við ákváðum að fara í verð- stríð til að auka markaðshlut- deild okkar. Við erum með 1.400 gámaeiningar aukalega á ári sem við ætlum með þessu að selja og ef við náum helmingnum af því er takmarki okkar náð,“ segir Stefán. Samstarfið samþykkt af yfir- völdum Atlantsskip sendi nýverið kæru til bandaríska dómsmálaráðuneytis- ins og saka þar Eimskip og Sam- skip um ólöglega viðskiptahætti og ólögmætt samráð, en þar er vísað til samstarfssamnings fyrir- tækjanna. Stefán segir að þessi fyrirtæki geti átt yfir höfði sér hundruð milljóna króna sektir verði þau fundin sek um hringa- myndun. Eimskipafélagið hefur reynt að ná varnarliðsflutningun- um til sín með kærum í Banda- ríkjunum og féll dómur í undir- rétti Eimskip í vil, en þeim dómi hefur verið áfrýjað. Þórður Sverrisson, fram- kvæmdastjóri flutningasHðs Eim- skips, segir ekkert nýtt við svo- kallað verðstríð Atlantsskips. „Þeir hafa verið að bjóða svona verð frá því þeir hófu flutninga á síðasta hausti, en undirtektir við- skiptavina hafa verið Iitlar, enda þjónusta þeirra ótrygg þar sem Atlantsskip hefur átt í erfiðleik- um með vörumeðferð og siglinga- áætlun sína,“ segir Þórður. Um ásökun Atlantsskips til bandaríska dómsmálaráðuneytis- ins segir Þórður að þeir í Eimskip hafi ekki séð skjölin, en segir að dómsmálaráðuneytinu vestan- hafs berist árlega þúsundir ásak- ana af þessu tagi, sem ráðuneytið meti síðan hvort tilefni er til frek- ari skoðunar á einstökum málum. „Sá samningur milli Eimskips og Samskips, sem Atlantsskip er að byggja þessa ásökun á, er á skrá hjá bandarískum stjórnvöldum og hefur verið samþykktur af Feder- al Maritime Commission, sem eru þau yfirvöld í Bandaríkjunum sem fýlgjast með svona hlutum. Samstarf á borð við samstarf okk- ar Samskips í þessum flutningum eru mjög algengt í skiparekstri og gefa á engan hátt tilefni til ásak- ana af þessu tagi,“ segir Þórður. - FÞG Góðæri við sjávarsíðima Heildarverðmæti fiskaflans í janúar sl. var um 3.655 milljónir króna. Það er umtalsverð aukning frá janúar í fyrra þegar heildarverðmætið nam 2.240 milljónum króna, samkvæmt Hagstofu Islands. Verðmæti botnfiskaflans á fyrsta mánuði ársins nam 2.878 milljón- um króna á móti 1.774 milljónum í janúar 1998. Sem dæmi þá jókst verðmæti þorskafla úr 1.065 milljónum í 1.820 milljónir. Þá jókst verðmæti loðnuaflans úr 90 milljónum króna í janúar 1998 í 363 milljónir króna í sl. janúarmánuði. Sömuleiðis varð aukning í verð- mæti síldarafla, eða úr 73 milljónum í janúar 1998 í 209 milljónir króna í sama mánuði í ár. Hins vegar dróst verðmæti í skel- og krabbaafla saman um þriðjung, sem skýrist aðallega af minnkandi rækjuafla. - grh Samræmdu prófiuium að ljuka Þúsundir unglinga um allt land taka sitt síðasta samræmda próf í dag og kveðja síðan grunnskólann. Enskan er loka- prófið en í gær var það stærðfræðin. Margir skólar standa fyrir skemmtunum af einhverju tagi í tilefni dagsins og beina lögregla og æskulýðsforkólfar því til foreldra að hvetja unglingana til þess að taka þátt í þeim, en undanfarin ár hefur borið nokkuð á ölvun 10. bekk- inga í lok samræmdu prófanna. Prófönnum 10. bekkinga lýkur í dag. Orðabókin á geisladiski Mál og menning stefnir að endurskoðaðri útgáfu Islenskrar orðabók- ar á geisladiski auk þess sem verkið kemur út á bók, en í framtíðinni verða orðabækur almennt gefnar út í tvennu formi - á bók og með rafrænum hætti. Þetta kom fram á ráðstefnu sem Hagþenkir - félag höfunda fræðirita og kennslugagna - efndi til í Þjóðarbókhlöðunni á Degi bókarinnar og um fimmtíu höfundar, þýðendur og orðabókasér- fræðingar sóttu. Nýjar, auknar og endurbættar útgáfur íslensku samheitaorðabók- arinnar og Islenskrar orðabókar handa skólum og almenningi Hrðast efst á óskalista þeirra sem starfa á ritvellinum hér á landi þegar rætt er um hjálpargögn. Á ráðstefnunni var mikill áhugi á því að tölvu- tæknin yrði nýtt sem best til að svara þörfum fyrir góð gagna- og orðasöfn. Hröð uppbygging orðasafna í rafrænu formi fer fram á veg- um orðabanka Islenskrar málstöðvar og Orðabóþar Háskólans. Enn fremur er hafin á vegum Námsflokka Reykjavíkur samning orðsafns í rafrænu formi þannig að þar verður að finna þýðingu á íslenskum orðum yfir á mörg tungumál.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.