Dagur - 27.04.1999, Page 4

Dagur - 27.04.1999, Page 4
- ÞRÍDJUbA G UR 27~ APRÍL'1999 FRÉTTIR I^fíir Pissað í Austurstræti Ekki var fjölmennt í miðbænum aðfaranótt laugardags og ekki varð að hafa afskipti af börnum vegna aldurs þeirra ef undan er skilinn einn piltur sem strokið hafði af unglingaheimili að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar í Það er bannað að pissa á al- Reykjavík. Til átaka kom milli mannfæri. manna í Hafnarstræti síðla nætur og þegar lögreglumenn voru að handtaka brotamann var veist að þeim. Tveir menn voru handteknir vegna ósæmilegrar hegðunar sem þeir sýndu í Austurstræti að kvöldi laugardags. Höfðu þeir girt niður um sig brækur sinar og kastað af sér vatni. Piltanir sem báðir eru 22 ára voru fluttir á lögreglustöð til skýrslutöku. Búsetuúrræðum fyrir fatlaða sem hið opinbera kostar að meira eða minna leyti hefur síðan 1991 fjölgað úr 565 upp í rúmlega 910. mynd: pjetur. Beit lögregliunann Fjölmennara var á miðborgarsvæðinu aðfaranótt sunnudags eins og gjarnan vill vera. Stúlka var handtekin eftir að hafa valdið skemmd- um á bifreið. Hún reyndist óviðræðuhæf vegna ölvunar en tókst samt að bíta Iögreglumann við handtökuna. Tveir menn voru handteknir eftir að lögreglumenn sem voru að vinna á eftirlitsmyndavélum veittu athygli slagsmálum í Austurstræti. Þar sást meðal annars að einn málsaðila hafði brugðið upp hnífi. Ekki urðu alvarlegir áverkar í átökunum en telja má Ijóst að í þessu tilviki hafi öryggismyndvél- arnar komið að góðum notum og hugsanlega komið í veg fyrir alvar- lega áverka. Sprakk á strætó Ökumaður sem grunaður er um ölvun ók bifeið sinni á tvo kyrr- stæða bíla á Flókagötu að morgni föstudags. Ökumaður var stöðvaður og síð- an grunaður um ölvun við akstur eftir að hafa yfirgefið árekstrarstað á föstudagskvöld. Maðurinn hafði reynt að Iaga ákomu á hifreið sinni en ekki haft erindi sem erfiði. Engir farþegar voru í Strætis- vagni þegar eitt afturhjóla hans virðist hafa sprungið þar sem vagninn var kyrrstæður við biðskýli á laugardaginn. Nokkrar skemmdir urðu á vagninum. Prjónaði yfir sig Ökumaður bifhjóls slasaðist þegar hann féll af bifhjóli sínu á Sæ- braut við Holtaveg á laugardag. Svo virðist sem ökumaðurinn hafi tekið fuil hraustlega af stað með þeim afleiðingum að hjólið pijónaði ýfir sig og ökumaðurinn féll af baki. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Ökumaður missti vald á ökutæki sínu Hringbrautinni á laugar- dagskvöld með þeim afleiðingum að hann olli gróðurskemmdum á hringtorginu. Talið er að hann hafl ekki haft í heiðri gildandi reglur um hámarkshraða. Ekið var á 4 ára barn á Grettisgötu að kvöldi sunnudags. Barnið fékk áverka á fæti og var flutt á slysadeild af foreldrum. Ökumaður ók brott af vettvangi. Illa fengin greiðslukort Maður var handtekinn í miðbænum á laugardagskvöld eftir að ætluð fíkniefni höfðu fundist á honum. Hann var fluttur á lögreglustöð. Tveir menn voru handteknir á föstudaginn eftir að hafa reynt að aota illa fengin greiðslukort. I fyrstu sögðust mennirnir hafa fundið kortin á götunni framan við verslunina sem þeir voru handteknir í en m frásögn hefur síðan tekið nokkrum breytingum. Brotist var inní íbúðarhús í Stekkjarhverfi í Breiðholti um helgina og þaðan stolið skartgripum og öðrum verðmætum. Svo virðist sem innbrotið hafi verið um miðjan dag á laugardag. Fylgst með samræmdu prófunum Lögreglan vill ítreka við foreldra þeirra barna sem eru að ljúka sam- 'æmdum prófum að hvetja ungmennin til að taka þátt í þeim dags- erðum sem skólayfirvöld standa fyrir. Því miður hefur alltaf nokkuð /erið um ölvun ungmenna á þessum tímamótun þrátt fyrir að mörg ír séu þar til þau hafi náð tilskyldum aldri til neyslu áfengis. Þrátt ýrir þá staðreynd eru því miður til uppalendur sem bregðast illa \ið jiegar lögreglumenn neyðast.til að hafa afskipti af ungmennunum v'egna áfengisneyslu þeirra. Lögreglan ásamt ýmsum öðrum félaga- samtökum og borgaryfirvöldum munu lýlgjast með ástandinu og bregðast við með tilheyrandi hætti. Ólögleg fjársöfnim Lögreglumenn stöðvuðu fjársöfnun sem stóð yfir á laugardaginn á Laugaveginum. Málsaðilar höfðu ekki aflað tilskilinna leyfa fyrir söfnuninni og þvf gert að hætta henni þegar í stað. Að kvöldi sunnudags höfðu lögreglumenn afskipti af tveimur mönnum sem voru að skjóta á skotmörk með loftriffli á svölum íbúð- ar í Grafarvogi. Lagt var hald á skotvopnið. Eitt afturhjól strætisvagns sprakk þegar hann stóð kyrrstæður við biðskýli á laugardaginn. Vistrými fatladra stórauidst frá 1991 Búseta fatlaðs fólks hefur tekið gífuileg- uiii breytingum á þessum áratug og rekstrarkostnaður stofnana hækkað um Vj að rauugildi. Búsetuúrræðum fyrir fatlaða sem hið opinbera kostar að meira eða minna leyti hefur síðan 1991 fjölgað úr 565 upp í rúmlega 910 eða næstum % á síðustu átta árum. Samkvæmt nýlegri skýrslu um stöðu og aðbúnað öryrkja hafa stjórnvöld fylgt fast eftir þeirri stefnu sinni að fjölga rým- um í sambýlum og félagslegum íbúðum en draga úr stofnanavist- un. Og kostnaðurinn við rekstur stofnana fatlaðra hefur hækkað að sama skapi - úr tæpum 1,8 milljörðum í rúma 2,9 milljarða, í báðum tilvikum mælt á verðlagi þessa árs, sem þýðir 64% raun- hækkun á tímabilinu. Nær þrefalt feiri í íbúðum Félagslegar íbúðir fatlaðra eru nú rúmlega sexfalt fleiri en fyrir átta árum og hefur Ijölgað úr 45 en upp í 285 íbúðir nú. Fjöldi rýma á sambýlum hefur næstum tvöfaldast á sama tíma, úr 220 upp í 430. A hinn bóginn hefur fötluðum á vistheimilum fækkað úr kringum 300 niður í 200 á tímabilinu. Fatlaðir sem búa á sambýlum eða sjálfstætt í sér- stökum íbúðum fyrir fatlaða eru því 450 fleiri um þessar mundir en í byrjun áratugarins en 100 færri dvelja á stofnunum. Marjjir íbúðareigendur Hversu margir örorkulífeyrisþeg- ar eru á leigumarkaði gátu skýrsluhöfundar ekki svarað sök- um upplýsingaskorts. Aftur á móti finna þeir í skattskýrslum að rúmlega 40% einhleypra ör- yrkja búa í eigin íbúðum borið saman við 54% annarra ein- hleypra á aldrinum 26-65 ára. Og rúmlega 90% þeirra hjóna þar sem aðeins annað er öryrki búa í eigin íbúð sem er nánast sama hlutfall og meðal annarra hjóna á þessum aldri. Þetta er m.a. athyglivert í ljósi þess að um 30% tekjumunur var á þess- um hjónahópum árið 1997. Af hjónum sem bæði eru öryrkjar eru á hinn bóginn bara 73% í hópi íbúðareigenda, sem er þó merkilega hátt hlutfall þegar til þess er Iitið að þau hafa jafnaðar- lega helmingi lægri tekjur en heilbrigð hjón. :Fatlaðir foreldrar eða ekki Fasteignir öryrkja eru samt held- ur (11-13%) verðminni en ann- arra og þeir skulda líka minna. Undantekningin eru einstæðir foreldrar. Öryrkjar í þeirra hópf eiga álíka dýrar íbúðir og skulda álíka mikið og þeit sem heil- brigðir eru. Enda virðast öryrkjar í þessum hópi líka hafa sömu meðaltekjur og aðrir einstæðir foreldrar, öfugt við aðra öryrkja- hópa, sem hafa miklu lægri tekj- ur en þeir sem heilbrigðir eru. HEl Bylting á svlði genarannsókna Kári Stefánsson, forstjóri íslenskra erfðagreiningar, fylgist með þegar Ingi- björg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, setur nýja búnaðinn í gang. mynd: teitur. íslensk erfðagreining hefur tekid í notkun nýjan tækja- og hng- bunað, sem sagður er gerbreyta aðstöðu fyr- irtækisins til krabba- meinsrannsókna. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- isráðherra, gangsetti á föstudag nýjan tækja- hugbúnað á rann- sóknarstofu Islenskrar erfða- greiningar, sem kallaður er GeneChip og þróaður var af bandaríska fyrirtækinu Affy- metrix. Fyrirtækin tvö hafa jafn- framt hafið samstarf um að þróa fullkomna tækni til meingegna- leitar að því er segir í fréttatil- kynningu frá lslenskri erfða- greiningu. GeneChip tæknin er sögð bylt- ing á sviði rannsókna sem miða að því að Iesa arfgerðir manna og greina tjáningu gegna á hraðvirk- an hátt, segir í tilkynningunni. Tæknin byggist á því að tugþús- undum erfðaefnisbúta er komið fyrir á örsmárri kísilflögu. í einni tilraun sem tekur 2 daga getur búnaðurinn greint tjáningu 40 þúsund gegna í frumu- og veQa- sýnum. Genechip tækjabúnaðurinn verður íslenskri erfðagreiningu afar mikilvægur f rannsóknum á krabbameinum og eins er hann sagður ómetanlegur í rannsókn- um á þroskunarferli fruma, sér- hæfingu þeirra og svörun við vaxtarþáttum, hormónum og vefjasýnum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.