Dagur - 27.04.1999, Blaðsíða 6

Dagur - 27.04.1999, Blaðsíða 6
V 6 - ÞRÍÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: elías snæland jónsson Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Sfmar: 460 6ioo OG boo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.800 kr. á mánuði Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Slmar auglýsingadeildar: CREYKJAVÍK)563-1615 Amundi Ámundason (AKUREYRD460-6191 G. Ómar Pétursson 0G 460-6192 Gréta Bjornsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyri) 551 6270 (reykjavík) NATO á tímamótuin í fyrsta lagi Það fór lítið fyrir fagnaðarlátum á afmælisfundi leiðtoga NATO-ríkjanna nítján í Washington. Harmleikurinn í Kosovo og átökin við Slobodan Milosevic skyggðu á fimmtíu ára af- mæli bandalagsins. Lögð var áhersla á að ná samstöðu um næstu skref í stríðinu við serbnesk stjórnvöld og móta fram- tíðarstefnu í málefnum Balkanskagans, meðal annars með við- ræðum við forystumenn þeirra þjóða sem liggja að Serbíu um hvað eigi að taka við eftir að stríðsátökum linnir. Ekki er ann- að að sjá en að náðst hafí víðtækt samkomulag um að knýja fram lausn sem tryggi að flóttafólkið frá Kosovo fái að snúa heim undir vernd alþjóðlegra friðargæslusveita. í öðru lagi Öllum er ljóst að mikið er í húfi fyrir Atlantshafsbandalagið. Það hefur í fyrsta sinn í fimmtíu ára sögu sinni lagt út í styrj- öld til að tryggja Ijölmennu þjóðarbroti frelsi og mannréttindi í heimabyggð sinni. Ef bandalaginu tekst ekki að ná fram þessu grundvallarmarkmiði - og um leið að gera öllum ljóst að harðstjórn, ofsóknir og ofbeldi af því tagi sem Milosevic hefur stundað árum saman í löndum fyrrum Júgóslavíu verður ekki þoluð í Evrópu framtíðarinnar - er vandséð að bandalagið eigi framtíð fyrir sér. Trúverðugleiki þess er beint tengdur því að yfirlýstum markmiðum verði náð í Kosovo. í þriðjalagi Niðurstaða átakanna á Balkanskaga mun því hafa mikil áhrif á framtíðarþróun mála í Evrópu og reyndar víðar. Ef aðgerðir bandalagsins bera þann árangur að Kosovo-Albanar geta flutt aftur til heimkynna sinna, hefur bandalagið sannað mátt sinn í verki og gefið harðstjórum rauða spjaldið. Slíkri niðurstöðu yrðu vestræn ríki að fylgja eftir með stórfelldri aðstoð við efna- hagslega uppbyggingu ekki aðeins í Kosovo heldur einnig í öll- um þeim nágrannaríkjum sem orðið hafa fyrir miklum búsiQ- um vegna stríðsins. Það er hins vegar enn mikilli óvissu háð hvort slíkur árangur næst og þar með friður á Balkanskaga. Elias Snæland Jónsson Byggðavandinn leystur Garra sýnist að Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri sé á góðri Ieið með að leysa byggðavanda landsmanna og það sennilega án þess að vita það sjálf. Það hefur komið fram í viðtölum við hana að það kosti höfuðborgina engan smáskilding að taka við öllu því fólki sem streymir frá Iandsbyggðinni til Reykjavíkur en Garri er samt á því að Ingi- björg hafi dottið niðrá lausn- ina af tilviljun. En hver er þá Iausnin? Jú kennarar í Reykjavík eru óánægðir með kjör sín og hóta að flytja unnvörpum út á land. Borgar- stjórinn hefur til þess staðið fast í ístaðið og neitað að láta þá fá sömu hækkun og kennarar í hinum ýmsu krummaskuðum hafa fengið. Það er löngu þekkt staðreynd að illa hef- ur gengið að fá kenn- ara til starfa úti á landi og hafa bæjarfélög þar mörg hver gripið til þess ráðs að lofa þeim gulli og grænum skógum ef þeir láti svo lítið að kenna landsbyggðarskrílnum að draga til stafs. Sumstaðar hefur verið frítt húsnæði í boði eða staðaruppbót og nú síðast hefur uppgötvast að kennarar hér og þar hafa samviskusam- lega unnið vinnu sem ekki hafði verið greitt fyrir. Það hefur verið leiðrétt en nú heimta kennarar í höfuðborg- inni samskonar leiðréttingu. Vítahringiir Sveitarstjórnarmenn úti landi hafa bent á að verði látið undan kröfum reykvískra kennara neyðist þeir til þess að hækka laun sinna kennara enn og aftur til þess að halda þeim á staðnum. Þá sé viðbúið að kennarar i Reykjavík heimti sitt og svo koll af kolli. Garra sýnist að þarna geti erfíður vítahringur verið í uppsiglingu nema borgarstjórinn standi fast á sínu. Haft var eftir kennurum í DV í gær að margir kennara í Reykjavík hugsi sér til hreyf- ings og stefni út á land. Jafn- framt kom fram að enn hefði enginn sótt um lausar kenn- arastöður á Hólma- vík en það er auðvit- að bara tímaspurs- mál hvenær þær fyll- ast. Sama gildir auð- vitað um aðra staði úti á Iandi þar sem leiðbeinendur hafa verið fjölmennir í kennslu og það oft á tíðum fólk sem er litlu menntaðra en krakkaskríllinn sem það kennir, ef marka má forystu kennara. Nú blasir hins vegar við að kennarar í Reykjavík sem eru að sjálfsögðu rjómi stéttarinn- ar muni flykkjast út á Iand þar sem í boði eru himinhá laun. Og á eftir koma foreldrar sem ekki geta hugsað sér að hafa börnin sín í einhverjum skíta- skóla í Reykjavík með sárafáa menntaða kennara. í þessu er sem sagt lausnin á byggða- vandanum fólgin og Garri von- ar að borgarstjórinn í Reykja- vík geri sér grein fyrir hvað hann er með í höndum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. JÓHANNES SIGURJÓNS SON skrifar Gullbarkinn Kristján Jóhanns- son syngur um helgina á Akur- eyri og Egilsstöðum með Karla- kór Akureyrar-Geysi og er auð- vitað stórviðburður í menningar- lífinu. Það er alveg óhætt að spá því að húsfyllir verður og komast færri að en vilja, eins og ávallt þegar Kristján stingur niður fæti á heimaslóðum og hefur upp raust sína. Ohemju vinsældir Kristjáns byggjast reyndar ekki alfarið á því að hann er frábær söngvari og mikill listamaður, fyrir utan náttúrlega að vera allra manna skemmtilegastur. Þannig er ljóst að erlendur söngvari með sömu Iistrænu getu og Kristján myndi ekki draga að sama áhorf- endafjölda á tónleika á Islandi og Kristján gerir. Nei, höfuðástæð- an er sú að Kristján er Islending- ^ ur sem er á heimsmælikvarða í sinni grein og það skiptir okkur meginmáli. Það má segja það sama um t l Litlir rísar á heims- mælikvarda Kristján og sagt var um Napóle- on heitinn: Hann er ekki hár en hann er stór. íslendingar eru ekki margir en við viljum vera miklir. Kristján Jóhannsson er því í raun táknmynd um drauma og þrár íslensku þjóðar- innar. An höfðatölu Islendingar hafa átt fólk á heimsmælikvarða í ýmsum greinum og ekki alltaf metið að verðleik- um, fyrr en staðfesting kemur að utan á stöðu þessa fólks. Leifur Ei- ríksson, Snorri, Halldór Laxness, Björk, Guð- bergur, Ásgeir Sigur- vinsson, Gunnar Huse- by, svo dæmi séu tekin. Þetta fólk og fleiri sem hafa skipað sér í fremstu röð í heiminum á sín- um sviðum, hafa haft gríðarleg áhrif á sjálfsvitund þjóðarinnar og jafnvel sjálfstæði hennar ef grannt er skoðað. Fólk sem með frammistöðu sinni staðfestir að við eru menn á meðal manna og jafningjar stórþjóðanna án tillits til höfðatölu. Og kannski liggur þarna skýringin á vel- þóknun okkar á Is- lenskri erfðagreiningu og stuðingur við mið- lægan gagnagrunn. Við höfum sem sé grun um að Kári Stefánsson sé hugsanlega maður á heimsmælikvarða í sinni grein og að hann sé að gera eitthvað sem skiptir veröldina miklu máli, ekki aðeins okkur Islendinga. Frímanns eöa Thatcher? Við höfum átt fólk í fremstu röð í heiminum á sviði menningar, lista, vísinda og fþrótta. Og þeg- ar íslendingur hefur einu sinni skarað fram úr í einhveri grein, þá vitum við að það er hægt að gera aftur. Eina sviðið sem við erum í vafa um að við eigum jafnoka fremstu manna annarra þjóða, er pólitíkin. Þar skortir okkur raunhæfan samanburð. Við höfum ekki hugmynd um hvort við eigum bestu eða Iéleg- ustu stjórnmálamenn í heimi og þessvegna kjósum við að sprok- setja þá og úthúða þeim við hvert tækifæri, eins og við gerðum við Björk og Sykurmolana á sínum tíma. Við þurfum því að leita leiða til að fá erlendan gæðastimpil á ís- Ienska pólitíkusa þannig að við förum að meta þá að verðleikum. En þarf kannski ekki til. Eða hvort kysum við Davíð eða Jeltsín? Halldór Ásgríms eða Clinton? Steingrím J. eða Milosevic? Margréti Frímanns eða Margréti Thatcher? Ha? Kristján er íslend- ingur á heims- mælikvarða. rO^ur snurtoi svauraið Snúast alþingiskosning- arað þessu sinni um mennfrekaren málefni? Krisíín Ástgeirsdóttir þingmaðurutan flokka og á útleið. „Enn er ekki hægt að segja að verið sé að kjósa um ákveðin mál, engin ákveðin málefni skera sig úr. Sama gildir um einstaklinga, ekki er verið að kjósa milli Davíðs, Halldórs, Steingríms eða Margrétar svo nöfn séu nefnd. Mér fínnst að stjórnmálaflokkunum hafi hverj- um um sig ekki tekist að kynna sig sem valkost sem greini sig skýrt frá öðrum. Þar af leiðandi snúast þessar kosningar fyrst og fremst um það hvort núverandi ríkisstjórn heldur velli.“ Benedikt Davíðsson form. Landssamkands eldri borgara. „Eg vona að minnsta kosti að þær snúist um málefni. Það er auðvitað mikið mannval hvar- vetna þannig að ef framboðin hafa myndað sér góða stefnu geta þau auðvitað öll fengið góða menn til framkvæma hana. Vita- skuld er alltaf misjafnt hvernig menn setja sín mál fram, sumir setja þau þannig fram að vel nær til fólks en heilt yfir held ég áð ekki sé hægt að draga þá ályktun að flokkarnir setji ekki verkefni og málefni í forgrunninn." Amar Páll Hauksson forstöðum. Ríkisútvarpsins áAk. „Við getum sagt að þessi stóru kosningamál séu ekki endi- lega til staðar að þessu sinni, en vissulega snúast þessar kosning- ar um málefni einsog alltaf. Vissulega skiptir þó máli hverjir eru í framboði og upp að vissu marki snúast kosningar líka um menn. Þeir kosningafundir sem haldnir hafa verið eru ekki ris- miklir sem kemur til af því að ágreiningur milli framboða er ekki ýkja mikill almennt talað.“ Jón Sigurðsson Jtamkvstj. Vinnumálasambandsins. „Ef ég reyni að gera mér í hug- arlund hvernig hinn „almenni kjósandi" metur þetta þá held ég að það sé sín ögnin af hverju. Menn taka afstöðu að einhverju Ieyti miðað við einhver málefni, persónulega valin, og að ein- hverju leyti fara þeir eftir þeim einstaldingum sem eru í fram- boði á hverjum stað. Ég efast ekki um að vani úr fyrri kosning- um og áhrif fjölskyldu og kunn- ingja hafa líka mikil áhrif. Mjög margir kjósa neikvætt; þeir velja þann sem finnst illskástur af vondum, það er að segja velja einn til að forðast hina og draga úr áhrifum þeirra."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.