Dagur - 27.04.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 27.04.1999, Blaðsíða 9
8- ÞRIDJVDAGUR 27. APRÍL 1999 rO^ftr ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 - 9 FRÉTTASKÝRING L u Slegist um uppljótarniíuiniim Kosningabaráttan í Austurlandskj ördæmi er nokkuð frábrugðin því sem er í öðrum landsbyggðarkjör- dæmum að því að leyti að öll framboð, að Vinstri hreyfingunni - grænu framboði und- anskildu, virðast vera sammála um að reisa eigi raforkuver í fjórð- ungnum og í fram- haldi af því álverk- smiðju á Reyðarfirði. Einna mest fólksfækkun á land- inu hefur átt sér stað í Austur- landskjördæmi á undanförnum misserum, en þar búa í dag um 13 þúsund manns. Það er því nauðsynlegra en í mörgum öðr- um kjördæmum að snúa þeirri óheillaþróun við og það gerist ekki nema að sköpuð séu ný og öflug atvinnutækifæri. Kosningabaráttan í Austur- landskjördæmi er nokkuð frá- brugðin því sem er í öðrum lands- byggðarkjördæmum að því að Ieyti að öll framboð, að Vinstri hreyfingunni - grænu framboði undanskildu, virðast vera sam- mála um að reisa eigi raforkuver í Ijórðungnum og i framhaldi af því álverksmiðju á Reyðarfirði. I tengslum við það hafa svo sumir frambjóðendur í alvöru bent á nauðsyn þess að ríkið hafi frum- kvæði að því að flytja opinber störf út á land, og þar hafa höfuð- stöðvar Rafmagnsveitna ríkisins helst verið nefndar. Afstaða VG til stóriðju kann að valda þeim erfiðleikum í kjördæminu. Samgöngumál ofarlega á blaði Vegna þessarar samstöðu um það að álver skuli rísa hefur kosninga- baráttan lítið snúist um stóriðj- una, heldur hafa mál sem ágrein- ingur er um haft forgang. Byggðamál hafa því verið í um- ræðunni eins og í öðrum lands- byggðarkjördæmum og rætt hefur verið um að styrkja Atvinnuþró- unarfélag Austurlands og eins hafa samgöngumál fengið tölu- verðan tíma, enda er vegakerfið á Austfjörðum óvíða í eins miklum lamasessi og eins erfitt um sam- göngur við aðra Iandshluta eins og að austan. Helst að Vestfirð- ingar geti „státað" af jafn lélegu vegakerfi. Nýir menn á þing Tveir alþingismenn Austfirðinga eru ekki í framboði nú. Hjörleifur Guttormsson frá Neskaupstað, sem setið hefur á þingi fyrir Al- þýðubandalagið, en skipar nú 3. sæti á lista Vinstri - hreyfingar- innar, græns framboðs í Reykja- vík, og Egill Jónsson á SeljavöII- um, sem leitt hefur framboðslista Sjálfstæðismanna. Ný andlit munu því örugglega birtast í haust í sölum Alþingis fyrir Aust- firðinga. En verða aðrar breyting- ar á þingmannahópnum? Framsóknarflokkurinn er sem fyrr sterkur fyrir austan og líkur á að hann haldi sínum tveimur þingmönnum, Halldóri Asgríms- syni utanríkisráðherra og Jóni Kristjánssyni. Ymsir halda því fram að Halldór hafi Iítið sinnt kjördæminu enda í annasömu starfi og það kunni að bitna á Framsókna núna. Það skyldi hins vegar enginn vanmeta Halldór Asgrímsson þó ekkert prófkjör hafi farið fram um skipan fram- boðslista Framsóknarflokksins, en við þá skipan mála sættu margir austfirskir framsóknar- menn sig ekki , a.m.k. ekki fram- an af. Halldór á gríðarlega mikið persónulegt fylgi á Austurlandi og á hann er hlustað, ekki síst í sjáv- arútvegsmálum, þar sem hann er talinn tala af mikilli þekkingu enda af útgerðarmönnum kom- inn. Fyrsta konan sem leiðir Sjálf- stæðislista Sjálfstæðisflokkur fær einn mann, Arnbjörgu Sveinsdóttur frá Seyðisfirði, sem er fyrsta kon- an til að leiða framboðslista til al- þingiskosninga hjá Sjálfstæðis- flokknum og Samfylkingin fær einn mann, Einar Má Sigurðar- son forstöðumann Skólaþjónustu Austurlands, sem lengi hefur mátt bíða í skugganum af Hjör- leifi Guttormssyni ogjafnvel neit- að að sitja á framboðslista sem Hjörleifur hefur leitt. Ekki er talið líklegt að Húmanistaflokk- urinn, Fijálslyndi flokkurinn eða Vinstri hreyfíngin - grænt fram- boð nái inn manni. En hver hreppir uppbótarþing- manninn? Sjálfstæðismenn eru taldir í augnablikinu hafa meiri möguleika á að hreppa hann en Samfylkingin og þá mun Albert Eymundsson, skólastjóri á Hornafirði og einn mesti knatt- spyrnuforkólfur þeirra Hornfirð- inga, setjast á þing. Enginn skyldi þó vanmeta möguleika Samfylk- ingarinnar og að 2. maður á þeirra lista, sr. Gunnlaugur Stef- ánsson, prestur í Heydöium f Breiðdal, hreppi sætið og gerist á ný þingmaður, en hann sat á Al- þingi á 8. áratugnum. Sr. Gunn- laugur var nærri því að ná þing- sæti við síðustu þingkosningar fyrir Alþýðuflokkinn og fella Arn- björgu Sveinsdóttur, sem þá skip- aði 2. sæti á Iista sjálfstæðis- manna. Ymsir velta því fyrir sér hvert fylgi Hjörleifs Guttorms- sonar muni fara nú þegar hann er farinn og kominn í framboð í Reykjavík. Ekki eru allir hans fyrrum samstarfsmenn í Alþýðu- bandalaginu íyrir austan hrifnir af því hversu opinskátt hann talar gegn stóriðju í kjördæminu, og því kann það fylgi að fara að tölu- verðu leyti yfir á Samfylkinguna og tryggja kosningu Gunnlaugs Stefánssonar. Aðrir benda á að persónulegt fylgi Hjörleifs Gutt- ormssonar hafí mjög farið þverr- andi á síðustu misserum og því sé um færri atkvæði að slást en margur heldur. Það kann því að velta á tiltölulega fáum atkvæð- um hvort það verður skólastjór- inn á Hornafirði fyrir Sjálfstæðis- flokkinn eða presturinn á Breið- dal fyrir Samfylkinguna, sem verði 5. þingmaður Austfirðinga. Sjálfbær þróim í sjávarútvegi Þuríður Backman er í efsta sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs á Austurlandi. Hún segir að Austfírðingar hljóti að leggja megináherslu á al- menna uppbyggingu á Iands- byggðinni og snúa við þeirri þró- un sem hefur verið í gangi, stöðva fólksflóttann og hetja uppbygg- ingu. Þar komi til almennar að- gerðir til þess að gera stöðu landsbyggðarinnar sem jafnasta stöðu suðvesturhornsins „Leið- rétta þarf þann Ijárhagslega mis- mun sem er milli landsbyggðar- innar og höfuðborgarsvæðisins þannig að fólk eigi val út frá grunni þar sem fjárhagurinn skiptir ekki höfuðmáli. Við viljum gjörbreyta sjávarútvegsstefnunni og auka hlut smábáta í kerfinu og tryggja þeim veiðar á grunnslóð og færa sjávarútveginn að sjálf- bærri þróun. Umhverfismál brenna mjög á Austfirðingum og þar á ég við þá ákvörðun sveitar- stjórna á Austurlandi að óska eft- ir stórri álbræðslu á Reyðarfirði og leyfa Fljótsdalsvirkjun, sem er mjög viðkvæm. Engínn vilji virð- ist vera til þess að fara með þetta í umhverfismat vegna þess að þetta er ekki hagkvæmur kostur. Við viljum virkja en ekki fara þær leiðir sem búið er að binda sig í. Það má ekki gleyma því að ut- anríkismálin eru ekkert bundin æðri stofnunum stjórmálaflokka, heldur snerta þau alla lands- menn, ekki síst þegar við erum orðin þátttakendur í striði. Eg er sannfærð um að Vinstri- hreyfíngin er flokkur framtíðar- innar og ég tel að ég eigi mögu- leika á að ná kosningu. Eg tel að það hafi ekki allir tjáð sig rétt í skoðanakönnunum hvar þeir ætli að setja krossinn 8. maí, eða hreinlega þegi um það,“ segir Þuríður Backman. Byggðaþróim að fnunkvæði heimamanna Kosningabaráttan snýst um byggðaþróunina en stefnunni sem snýr að hinum dreifðu byggðum verður að gjörbreyta. Samfylkingin á Austurlandi legg- ur megináherslu á þetta. Við segj- um að við viljum skapa byggða- stefnu sem á að tryggja jöfnuð og réttlæti en fólksflóttinn héðan er geigvænlegur, segir Einar Már Sigurðarson, fyrsti maður á lista Samfylkingarinnar. „Ríkisstjórnin hefur sett Islandsmet hvað það varðar. Það þarf að ná takti við heimafólk og ná takti við frum- kvæði þess. Jöfnun lífskjara felst m.a. í því að jafna húshitunar- kostnaðinn en hann er víða mjög hár enda hér óvíða um hitaveitu að ræða heldur um rafhitun að ræða. Eg óttast að víða sé hrein- lega stutt í vonleysi hjá fólki en víða eru sóknarfærin og eitt af þeim er stóriðja á Reyðarfirði. Það vekur athygli hversu litla áherslu framsóknarmenn leggja á byggðamál, en það þarf ekki að koma á óvart miðað við árangur þeirra á því sviði. Við Austfirðing- ar þurfum að nýta okkur hina nýju tækni sem felst í fjarkennslu og við höfum náð góðum árangri með Fræðsluneti Austurlands. Það er gott dæmi um skjótan ár- angur þegar frumkvæði heima- manna hefur ráðið ferðinni en þingmennirnir hér ætluðust til að skipuð yrði nefnd af hálfu menntamálaráðherra. Ef sú leið hefði verið farin hefði málinu ekkert þokað. Við fáum einn kjördæmakjör- inn þingmann, sjálfstæðismenn einn og Framsókn tvo. Eg tel að við eigum mjög góða möguleika að ná uppbótarþingmanninum en til þess þurfum við að verða stærri en Sjálfstæðisflokkurinn,11 segir Einar Már Sigurðarson. Afiiáni fátæktar mál málaiiiia Bíbí Ólafsdóttir, efsti maður á lista Húmanistaflokksins, segir að á Austurlandi, eins og annars staðar á landinu, hugsi húmanist- ar fyrst og fremst um afnám fá- tæktar. Það eru ekki fréttir að á Islandi búa 30 þúsund manns undir fátæktarmörkum - 5. rík- asta þjóð í heimi. „Við leggjum fram raunhæfar tillögur til að Ieysa þetta mál með því að hækka skattleysismörk í 100 þúsund krónur og hækka elli- og örorku- bætur í 90 þúsund krónur. Lífeyr- issjóðina þarf að gera að rennslis- sjóði í þeim tilgangi. Tilvist margra sjávarþorpa á Austurlandi er í hættu vegna þess að fiskimið- in eru komin á fárra manna hendur og því geðþróttaákvörðun hvar fiskinum er landað. Okkur fínnst að virkjunar- og stóriðju- mál hér sé hálfgerð snudda sem verið sé að stinga upp í fólk. Það kæmi sér betur fyrir þá sem bygg- ja þessi sveitarfélög að Iækka raf- orkuverð til húshitunar. Ég vona að fólk hafi kjark til þess að takast á við breytingar í landinu okkar og þar með hugs- anahætti þjóðarsálarinnar. Þá verða kosningaúrslitin óvænt," segir Bíbí Ólafsdóttir. Næstu jarðgöng niilli Fáskrúðsfjarðar og Reyðar- fjarðar Arnbjörg Sveinsdóttir þingmaður, efsti maður á lista sjálfstæðis- manna, telur að kosningabaráttan snúist um fyrst og fremst um byggðamál, hún sé bæði varnar- og sóknarbarátta, og Sjálfstæðis- menn leggi á það áherslu að þegar hafi verið gripið til aðgerða í tengslum við þingsályktun ríkis- stjórnarinnar um byggðamál. „Sjálfstæðisflokkur og Framsókn- arflokkur hér eru hlynntir því að virkjað verði norðan Vatnajökuls og orkan verði nýtt til stóriðju á Reyðarfirði. Mér virðist að Vinstri grænir séu einir á móti því en sú sérkennilega staða er uppi hjá Samfylkingunni að þeir eru fylgj- andi þessu en eru þar með í and- stöðu við stefnu talsmanna hreyf- ingarinnar. Menntamál brenna nokkuð á fólki, en kostnaður við að senda börn í framhaldsskóla eru mjög mikill en við því hefur verið brugðist m.a. með fjar- kennslu. Ég tel víst að við sjálf- stæðismenn náum einum kjör- dæmakjörnum manni, fram- sóknarmenn tveimur og Samfylk- ingin fái einn. Slagurinn stendur fyrst og fremst um það hver hrepp- ir uppbótarþingsætið, og ég er sæmilega bjartsýn um að við fáum þann mann, því mörgum finnst að Samfylkingin, sem einnig á mögu- leika, sé ekki mjög trúverðug en auðvitað ræðst þetta einnig af því hvemig flokknum gengur á lands- vísu,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir. KvótakerHð höfuðóvinur byggðanna í landinu Guðmundur Wium Stefánsson, efsti maður á lista Frjálslynda flokksins, segir að kosningar snú- ist að hans mati um tvennt sem sé mjög sterklega samofið, annars vegar kvótakerfið og fiskveiði- stjórnunin og hins vegar byggða- þróunin, og það verði ekki sundur- slitið. „Höfuðóvinur byggðanna í landinu er kvótakerfíð vegna þess að það er búið að gelda undir- stöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, engin endurnýjun getur átt sér stað og búið er að færa þessar at- vinnugreinar á það stig að fínna þarf fordæmi í verslunareinangr- uninni sem aflögð var fyrir nokkrum öldum. I landbúnaðin- um er allt niðursúrrað og tekjur bænda komnar niður úr öllu valdi og þeim haldið í klafa kvóta. Þeir sem eru bændur af guðs náð eiga að fá að njóta þess. Ég held að Sjálfstæðisflokkur- inn tapi verulega á Austljörðum en ég hef meiri áhyggjur af því að Framsóknarflokkurinn haldi sínu, því þar er getulaust lið. Samfylk- ingin kann að ná manni en síðan erum við í óvissu, en fylgi okkar fer stöðugt vaxandi og kannski verðum við það óvænta sem upp úr kjörkössunum kemur,“ segir Guðmundur Wium Stefánsson. Samkomulag um að næstu jarðgöng verði á Austurlandi Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð- herra, leiðir lista Framsóknar- flokksins á Austurlandi. Hann seg- ir fólksfækkunina vera efsta í huga fólks. Auka þurfi fjölbreytni í at- vinnulífínu þannig að fólk eigi fleiri valkosti og það sé úrslitaat- riði hvað varðar það að snúa óhag- stæðri íbúaþróun við. Horft sé mjög sterkt til uppbyggingar stór- iðju og atvinnu sem tengist henni og einnig uppbygging margvíslegs þekkingar- og upplýsingaiðnaðar sem ekki síst tengist öflugum menntastofnunum á landsbyggð- inni. Einnig séu möguleikar á að hluti af starfsemi Islenskrar erfða- greiningar verði úti á landi. „Það er sérkennilegt að hlusta á mál- flutning Samfylkingarinnar því frambjóðendur hennar tala með allt öðrum hætti úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er allt að snúast í höndunum á þeim og koma í bakið á frambjóðendum úti á landi. Samgöngumál brenna mjög á fólki hér og hafa alltaf gert. Vegir eru hér víða slæmir og þó margt hafí verið lagfært er margt eftir og umræðan um jarðgöng er mjög ofarlega á baugi. Það þarf að ná sátt um það hvort næsta verk- efni er hér, fyrir norðan eða á sunnanverðum Vestfjörðum. Það lá fyrir samkomulag um að næst yrði ráðist í jarðgangagerð á Aust- urlandi, og ég tel að það sam- komulag eigi að virða til þjónustu við það fólk sem býr við sam- gönguleysi. Okkur vantaði um 100 atkvæði síðast til að ná inn 3. manninum og við eigum möguleika á því nú. Sjálfstæðisflokkurinn fengi þá einn en óvfst er með uppbótar- manninn. Þetta er nýtt land hér. Við höfum til þessa verið helst að kljást við Alþýðubandalagið en helstu málsvarar þess eru horfnir af vettvangi og fátt tekið við,“ seg- ir Halldór Asgrímsson. 4 Hvemigfara þitig- kosningamar í Aust- urlandskjördæmi ? Kristján Þórarinsson Eiðtati: ,/Etli Fram- sóknar- flokkur og Sjálfstæðis- flokkur fái ekki tvo þingmenn hver Iisti og baráttan um fimmta manninn standi milli Samfylk- ingar og Vinstri hreyfingar - græns framboðs. En það verður eflaust mjótt á mununum." „Framsókn- arflokkur- inn er sterkur og því gæti ég trúað að hann fengi þrjá þing- menn. Hin- ir tveir fara til sjáifstæðismanna. Því fær Samfylking, græna framboðið og aðrir engan þingmenn að þessu sinni.“ Karl Davíðsson EgilsstSðian: Sjöfn Aðalsteinsdóttir Bakkafirðh „Ég hef ekkert vit á pólitík og hef ekki hugmynd um hvernig þetta fer allt saman. En ég læt mig ekki vanta á kjörstað. Það verða ein- hverjar breytingar í þessum kosningum og það fer nýtt fólk á þing fyrir Austfirðinga." Heiðar Sigurðsson Homafitði: „Ég hef ekkert pælt í því enda er pólitíska umræðan lítil í kring- um mig. Eg get því ómögulega spáð ein- hverju um það. Ég held að þú verðir að tala við einhveija spek- inga um þetta.“ Ágústa Þorkelsdóttir Refstað á VopmfitðU „Ætli Fram- sókn haldi ekki nokk- uð sínum hlut og Sjálfstæðis- flokkur mun einnig halda sín- um hlut. Síðan mundi ég halda það að Samfylkingin mundi ná fímmta manninum. En þessi kosninga- barátta er öll fremur bragðdauf og skrýtið að það skuli ekkert breytast við alla þá vinnu sem lögð hefur verið í að kljúfa og sameina flokka.“ Framsóknarflokkur 1. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra Höfn 2. Jón Kristjánsson, alþingismaður Egilsstöðum 3. Jónas Hallgrimsson, framkvæmdastjóri Seyðisfirði 4. Sigrún Júlía Geirsdóttir, bankamaður Norðfirði 5. Vigdís Sveinbjörnsdóttir, kennari Egilsstöðum Frjálslyndi flokkurmn 1. Guðmundur W. Stefánsson, bóndi Vopnafírði 2. Egill Guðlaugsson, útvegsbóndi Fellabæ 3. Stella Steinþórsdóttir, verkakona Neskaupstað 4. Högni Skaftason, skipstjóri 5. Sigurlaug Stefánsdóttir, bóndi Húmanistaflokkuriim 1. Bíbí Ólafsdóttir, skrifstofumaður Reyðarfirði 2. Methúsalem Þórisson, ráðgjafi 3. Ámi Ingólfsson, myndlistarmaður 3. Sigurður Þór Sveinsson, nemi 5. Bjarni Hákonarson, tölvunarfræðingur Samíylkiug 1. Einar Már Sigurðarson, forstöðumaður Neskaupstað 2. Gunnlaugur Stefánsson, prestur Heydölum 3. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, form. verkalýðsfél. Jökuls Höfn 4. Siguijón Bjarnason, bókari Egilsstöðum 5. Guðný Björg Hauksdóttir, stjórnmálafræðingur Reyðarfirði. Sjálfstæðisflokkur 1. Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður Seyðisfirði 2. Albert Ejmundsson, skólastjóri Höfn 3. Ólafur Áki Ragnarsson, sveitastjóri Djúpavogi 4. Aðalsteinn Jónsson, bóndi Egilsstöðum 5. Jens Garðar Helgason, nemi Eskifírði Vinstri hreyftngm - grænt framboð 1. Þurfður Backman, hjúkrunarfræðingur Egilsstöðum 2. Gunnar Ólafsson, jarðfræðingur Neskaupstað 3. Gunnar Pálsson, bóndi Vopnafirði 4. Karólína Einarsdóttir, nemi Neskaupstað 5. Skarphéðinn Þórisson, líffræðingur Fellabæ Úrslit 1995 Alþýðuflokkur 7,4% Alþýðubandalagið 16,1% Framsóknarflokkur 46,9% 1 mann 2 menn Þjóðvaki 4,7% Sjálfstæðisflokkur 2 menn 22,5% Kvennalisti 2,4% Auglýsing um framlagningu kjör- skrár og kjörstaði í Reykjavík vegna alþingiskosninga 8. maí nk. Kjörstaðir við alþingiskosningar í Reykjavík verða þessir: Árbæjarskóli Breiðagerðisskóli Hagaskóli íþróttamiðstöðin Austurbergi (þróttamiðstöðin Grafarvogi Kjarvalsstaðir Laugardagshöll Ölduselsskóli Félagsheimilið Fólkvangur Kjörfundur hefst laugardaginn 8. maí 1999 kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. Nánari skipting kjörstaða í kjördeildir verður auglýst í dagblöðum á kjördag og/eða daginn fyrir kjördag. Kjörskrá vegna alþingiskosninga mun liggja frammi í Ráðhúsi Reykjavíkur frá og með 28. apríl 1999. Athygli er vakin á því að Reykvíkingar, sem lögheimili eiga á Kjalarnesi, eiga kosningarétt í Reykjaneskjördæmi og mun kjörskrá vegna Kjalarness einnig liggja frammi í Ráðhúsi Reykjavíkur frá sama tima. Á kjörskrá eru þeir sem skráðir voru með lögheimili í Reykjavík sam- kvæmt íbúaskrá þjóðskrár þann 17. apríl 1999 auk íslenskra ríkis- borgara, sem búsettir eru erlendis, og uppfylla skilyrði 2. mgr. 1. gr., sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 80/1987 um kosningar til Alþingis, sbr. einnig lög nr. 85/1946. Kjósendur eru hvattir til þess að athuga hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni. Athugasemdum við kjörskrá skal beina til Borgarráðs Reykjavíkur. Reykjavík, 23. apríl 1999 Borgarstjórinn í Reykjavík

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.