Dagur - 27.04.1999, Page 13

Dagur - 27.04.1999, Page 13
$Rf'i)ji)b'Á'GbR'2'7'."ÁÞh'iL"í'$99 - % Þeir Bergsveinn Bergsveinsson og Bjarki Sigurðsson höfðu ærna ástæðu til að fagna fyrsta íslandsmeistaratitli Aftureldingar. Þeir voru án efa bestu leikmenn liðsins í úrslitakeppninni. handboltavertíðarinnar. Jafat í hálfleik Það var ljóst í upphafi leiksins í Kaplakrika að bæði liðin voru komin til að sigra og skiptust þau á forystunni allan hálfleikinn. FH-ingar voru þó öllu ákveðnari í byrjun leiks og náðu í tvfgang tveggja marka forystu, 2-0 og 4-2. Lengra komust þeir ekki og Mos- fellingar jöfnuðu jafnóðum og snéru dæminu við í 4-6 með fjór- um mörkum í röð. Þá kom aftur góður kafli FH-inga sem náðu að jafna í 6-6 og komast svo yfir 9-8. Eftir það var jafnræði með liðun- um út hálfleikinn og staðan jöfn í hálfleik 12-12. Bergsveinn slökkti vonar- neista FH-inga FH-ingar mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og virtust vera að ná góðum tökum á leiknum. Stað- an var 16-15 þeim í hag og stefndi í hörkubaráttu. Þá gerðist það sem gerði gæfumuninn fyrir Aft- ureldingu. Vörnin small saman og Bergsveinn fór að verja eins og honum er einum lagið. Þeir náðu þar með yfirhöndinni í leiknum og gerðu út um hann á stuttum leikkafla, þegar þeir náðu fimm marka forskoti 19-24. FH-ingar tóku þá aftur við sér og með mik- illi baráttu tókst þeim að minnka muninn í tvö mörk, 22-24, og áttu góða möguleika á að jafna. Eins og svo oft áður var það gamli FH- ingurinn, Bergsveinn Bergsveins- son, sem var ofjarl þeirra, en hann sýndi frábæra markvörslu á örlagastundu. Hann varði þá m.a. vítakast Vals Arnarsonar á AftiLrelding tryggði sér uin helgina íslands meistaratitilinn í handknattleik karla, þegar þeir sigruðu FH- inga í fjórða leik lið- anna í úrslitaeinvíginn uin meistaratitilinn. Það var mikil spenna í Hafnarfirði fyrir fjórða Ieik Aftureldingar og FH um Islandsmeistaratitilinn í handknattleik karla, sem fram fór í Kaplakrika á sunnudagskvöldið. Staðan í einvíginu var 2-1 fyrir Aftureldingu og því Islandsbikar- inn aðeins í seilingarfjarlægð og góðir möguleikar á að tryggja Is- landsmeistaratitilinn og þar með þriðja stóra titilinn af þremur mögulegum í vetur. Góður árangiir FH-inga FH-ingar sem hafa komið mjög á óvart í úrslitakeppninni, eftir að hafa Ient í sjöunda sæti Nissandeiidarinnar, eygðu mögu- leika á að tryggja sér oddaleik í Mosfellsbæ og þar með hreinan úrslitaleik um meistaratitilinn. Pressan var því mikil á Ieikmönn- um liðsins, ekki síst vegna tap- leiksins gegn Aftureldingu í úrslit- um bikarkeppninnar fyrr f vetur og nú nálægðin við sjálfan Is- Iandsbikarinn, mestu sigurlaun lokamínútunum og slökkti þar með vonarneista FH-inga og Ioka- tölumar urðu 23-25. Frábært hjá Bergsveini Það er óhætt að segja að Berg- sveinn Bergsveinsson hafi verið maður leiksins, þar sem hann varði alls 21 skot. Hann var óneit- anlega sá leikmaður Aftureldingar sem öðrum fremur lagði grunn- inn að sigrinum gegn FH-ingum og einnig að góðum árangri í úr- slitakeppninni. Hann varði frá- bærlega alla keppnina, m.a. 21 vítakast og þar af 11 gegn FH-ing- um, sem er einstakur árangur. Auk Bjarka Sigurðssonar og Krist- jáns Arasonar, sem átti frábæra afturkomu í úrslitakeppninni, er hann án efa besti Ieikmaður keppninnar. MosfeUingar hestir Eins og áður sagði er lslands- meistaratitillinn þriðji titillinn sem Afturelding vinnur í vetur, en áður unnu þeir FH-inga í úrslit- um bikarkeppninnar og urðu einnig deildarmeistarar Nissan- deildarinnar. Þessi góði árangur er vel við hæfi á 90 ára afmælisári félagsins, sem aldrei hefur unnið titilinn áður. Það er engum blöð- um um það að fletta að Aftureld- ing hefur á að skipa besta félags- liði landsins, með úrvals leik- menn í öllum stöðum, sem hafa með frábærum árangri bætt við nýjum kafla í íslenska handknatt- Ieikssögu. Til hamingju. IÞROTTIR Fyrsti íslandsmeistara- titill Aftureldingar í höfn Vopnabúrið opnað upp á gátt Kanu og Anelka skoruðu báðir tvö mörk fyrir Arsenal í sigurleiknum gegn Middlesbrough á Riverside Stadium. Middlesbrough vamar- laust gegn stórskota- hríð Arsenal. Big Ron Atkinson kvaddi með trega og tánun. Annar sigur Liverpool í tíu leikjum. Everton nán- ast gulltryggt í úrvals- deildinni. Það var fátt um varnir á Riverside Stadium, heimavelli Middles- brough, þegar Arsenal gerði árás á hjálparvana gestgjafa sína. Eftir að Nicholas Anelka nældi í víta- spyrnu, fyrir Marc Overmars, á þriðju mínútu var vopnabúrið opnað upp á gátt. Áður en yfir Iauk höfðu meistararnir skorað sex sinnum. Maður leiksins var Nicholas Anelka sem nú vill ólm- ur komast frá Highbury. Auk þess að skora tvö mörk átti hann stór- leik og stóran þátt í öllum mörk- um Arsenal. Kanu skoraði tvö mörk og Vieira eitt fyrir meistar- ana. Með sigrinum settist Arsenal í toppsætið og lagaði markahlut- fall sitt verulega sem getur reynst dýrmætt á lokasprettinum. Heimamenn klóruðu í bakkann með marki frá Armstrong þrem mínútum fyrir leikslok. Manchester United náði aðeins 1-1 jafntefli í hörkuleik, gegn Leeds, á Elland Road. Jimy Floyd Hazelbanck skoraði fyrir heima- menn í fyrri hálfleik og Andy Cole jafnaði fyrir United í seinni hálf- leik. Sunnudagurinn var ekki dag- ur Dwight Yorke. Honum mis- tókst innbyrða sigurinn í dauða- færi á sfðustu sekúndum leiksins. Þar með fóru tvö dýrmæt stig í vaskinn. Chelsea kastaði endanlega frá sér möguleikanum á meistaratitl- inum með 0 - 0 jafnteflinu við Sheffield Wednesday á sunnudag- inn. Vialli verður því að láta sér nægja að horfa á Wenger og Ferguson Idjást um þessi eftirsótt- ustu verðlaun í enskri knatt- spyrnu. Rekuniun kastað á skógar- meimtna Það kom í hlut Aston Villa að moka endanlega yfir gröf Notting- ham Forest. Með 2-0 sigri sínum hvarf endanlega Ijóstýran, sem logað hefur yfir Forest alla þessa leiktíð. Draper og Barry skoruðu mörk Villa. „Big“ Ron Atkinson tókst ekki að blása Iífi í líkið. Það var með trega og tárum sem hann kvaddi úrvalsdeildina og enska fótboltann sem knattspyrnustjóri. Southampton missti af tveimur dýTmætum stigum með 0-0 jafn- teflinu við Derby á Pride Park. Dýrlingarnir eru nú með aðra löppina í fyrstu deildinni og mega ekki við að tapa fleiri stigum. Dómarinn, Peter Jones, var besti maður vallarins þegar Wimbledon og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli í Lundúnum. Alan Shearer skoraði fyrir gestina og John Hartson fyrir heimamenn. Leicester heldur sínu striki og nú var það Coventry sem mátti þola tap fyrir Arnari Gunnlaugs- syni, sem átti ágætan leik, og fé- lögum hans. Ian Marshall skoraði sigurmarkið og hefur fært liði sínu sex stig f vikunni. Loks sigur hjá Liverpool Liverpool hafði aðeins unnið einn af sfðustu níu leikjum sfnum þeg- ar liðið heimsótti nágrannana í Blackburn. Þar bættu þeir 3-1 sigri í fátæklegt safn sitt frá leik- tíðinni. Steve McManaman átti sinn skásta leik í vetur og skoraði fyrsta markið. Jamie Redknapp og Ovind Leonhardsen bættu við mörkum með 50 sekúndna milli- bili. Sigurinn var þó alls ekki eins öruggur og tölurnar gefa til kynna. Einbeitingarleysi heima- manna kostaði þá sigurinn og fall- draugurinn er að verða heimilis- fastur á Eawood Park. Takist Bri- an Kidd ekki að leiða sína menn til sigurs, gegn Charlton, f næsta leik er hann kominn í vond mál. Ibúar Bítlaborgarinnar höfðu ærna ástæðu til að kætast á laug- ardaginn. Everton nánasf gull- tryggði sæti sitt í úrvalsdeildinni með stórsigri, 4-1, á Charlton sem nú sleikir sár sín eftir ágæta rispu. Kevin Campell hefur reynst Everton sannkallaður bjargvætt- ur. Hann skoraði tvö marka heimamanna og hefur því skorað sex mörk í leikjunum þremur sem hann hefur leikið fyrir Everton. Don Hutchinson og Francis Jeffers skoruðu einnig fyrir Ev- erton en Graham Stewart skoraði mark gestanna úr Mtaspyrnu. - GÞÖ Staðan L U i T Mörk S Arsenal 34 19 12 3 54:15 69 Man. Utd. 33 19 11 3 73:33 68 Chelsea 34 17 14 3 49:26 65 Leeds 34 16 12 6 54:30 60 Aston Villa 35 15 10 10 47:39 55 West Ham 35 15 9 11 41:42 54 Middlesbr. 35 12 14 9 47:48 50 Derby 34 12 12 10 37:41 48 Liverpool 34 13 8 13 60:44 47 Tottenham 34 11 13 10 41:40 46 Leicester 34 11 13 10 36:41 46 Newcastle 35 11 11 13 46:50 44 Wimbledon 35 <0 12 13 39:56 42 Sheff. Wed. 35 il 7 17 39:40 40 Everton 3s = 0 10 15 35:42 40 Coventry .35 10 7 18 35:48 37 Charlton 35 7 H 17 37:52 32 Blackburn 34 7 11 16 36:49 32 Southampt. 35 8 8 19 31:63 32 Nott. For. 35 4 9 22 30:68 21

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.