Dagur - 28.04.1999, Blaðsíða 1
Fjórði hver segist
óttast misnotkim
Tdlf prósent ætla að
segja sig úr gagna-
grunni á heilbrigðis-
sviði og 25% telja
hættu á misnotkun,
samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Dags. Ingi-
hjörg og Kári ánægð,
en Mannvemd ekki.
Níundi hver landsmaður á kosn-
ingaaldri eða 11,6% hefur sagt sig
úr gagnagrunni á heilbrigðissviði
eða hyggst gera það og fjórði hver
eða 25,7% telur hættu á að upp-
lýsingar úr gagnagrunninum verði
misnotaðar. Þetta eru meginnið-
urstöður skoðanakönnunar sem
Markhús hefur gert fyrir Dag.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns á öllu landinu og var svar-
hlutfallið 77%. Spurt var annars
vegar: „Hefur þú í hyggju að segja
þig úr gagnagrunni á heilbrigðis-
sviði?" Af heildinni var hlutfall óá-
kveðinna og þeirra sem neituðu
að svara spurningunni 21,4%. Af
þeim sem tóku afstöðu svöruðu
11,6% því til að þeir ætluðu að
segja sig úr gagnagrunninum, en
88,4% svöruðu þessu neitandi.
Enginn munur var
á afstöðunni eftir
kyni svarenda.
Hins vegar var
spurt: „Telur þú
hættu á að upplýs-
ingar f gagnagrunn-
inum kunni að
verða misnotaðar?“
Hlutfall óákveðinna
og þeirra sem neit-
uðu að svara spurn-
ingunni var hér
19,3%. Af þeim sem
tóku afstöðu töldu
25,7% þessa hættu
vera fyrir hendi, en
74,3% að svo væri
ekki. Karlar óttast
misnotkun í mark-
tækt meira mæli en _____________
konur.
Kári og ráðherra ánægð
Kári Stefánsson, forstjóri Is-
lenskrar erfðagreiningar, segir að
sér finnist þessar tölur Iíta vel út.
„11,6% brottfall væri ekki hættu-
legt fyrir virkni gagnagrunnsins,
Kári Stefánsson: „Okkar hlut-
verk er að vinna traust þess-
ara 25,7% sem ganga um
með í maganum svolítinn
ótta um að þessar upplýsing-
ar kynnu að verða mis-
notaðar."
en ég vonast hins vegar til þess að
fá tækifæri til að vinna yfir tölu-
verðan hluta af þessum 11,6% og
vonast til að okkur
auðnist að vinna
yfir hina óákveðnu,
þegar okkur gefst
tækifæri til að
kynna þetta á efnis-
legum grundvelli.
Þegar kemur að
spurningunni um
25,7% sem óttast
misnotkun, þá er
það okkar hlutverk
núna að kynna þær
aðferðir sem við
viljum nota til að
vernda persónuupp-
lýsingar og koma í
veg fyrir misnotkun.
Okkar hlutverk er
að vinna traust
þessara 25,7% sem
ganga um með í
maganum svolítinn ótta um að
þessar upplýsingar kynnu að
verða misnotaðar. Það er spenn-
andi verkefni og ég hlakka til að
fá að takast á við það,“ segir Kári.
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra er einnig ánægð
með niðurstöðuna. „Gagna-
grunnslögin njóta samkvæmt nið-
urstöðunni yfirgnæfandi stuðn-
ings meðal þjóðarinnar og það er
í rauninni ánægjulegt hversu
margir hafa í hyggju að leggja sitt
að mörkum í þessu sambandi.
Það er skoðun mín að stuðningur-
inn við Iögin eigi enn eftir að
aukast, þegar fólk áttar sig á því
hve tryggilegar öryggisráðstafan-
irnar eru. Að mínum dómi er mis-
notkun útilokuð, enda hef ég alla
tíð sagt að persónuverndin yrði að
vera tryggð og það er hún,“ segir
Ingibjörg.
Pétur Hauksson, varaformaður
Mannverndar, segir að af þessum
tölum megi ráða að fólk hafi ekki
staðist þá mikla upplýsingaher-
ferð sem í gangi hefur verið af
hálfu talsmanna gagnagrunnsins
og látið sannfærast, enda mikið í
lagt. „Mér finnst þetta vera eins
og búast mætti við undir þessum
kringumstæðum. Þetta eru ekki
tölur sem ég vildi sjá, en eru þó
ekki lágar. Ef Ijórði hver maður
reiknar með misnotkun þá er það
há tala og 11-12% úrsagnir er
ekkert til að vera óánægður með,“
segir Pétur. — FÞG
Hætta við að
hækka gjöldin
Jakob Björnsson, oddviti fram-
sóknarmanna á Akureyri, segir það
varnarsigur að skólanefnd Akur-
eyrarbæjar hafi ákveðið að falla ffá
þeirri miklu hækkun sem boðuð
hafði verið í sumarvistun barna í
1.-4. bekk grunnskóla. Skólanefnd
hefur ákveðið að draga hluta
hækkunarinnar til baka. I stað
þess að foreldrar greiði 245 krón-
ur fyrir klukkustundina greiði þeir
150 krónur, en eigi að síður er um
töluverða hækkun að ræða frá í
fyrra eða um 30%.
Mikil óánægja greip um sig hjá
foreldrum með fyrirhugaða hækk-
un skólanefndar eins og Dagur
hefur ítrekað greint ffá. Þá risu
framsóknarmenn upp á sfðasta
bæjarstjórnarfundi og mótmæltu
harðlega hækkuninni. Síðast en
ekki síst mótmælti fulltrúaráð for-
eldra í grunnskólum Akureyrar
hækkuninni harðlega og sagði í
ályktun: „Fjöldi barna á aldrinum
7-10 ára kemur til með að ganga
sjálfala í sumar." - BÞ
Miðað við veðurblíðuna á Akureyri undanfarna daga leikur varla nokkur vafi á að sumarið er komið. Hitastig fer
hækkandi og um leið og snjórinn og ísinn taka að víkja flykkist mannfólkið út í góða veðrið og beint I ísbúðirnar.
Þessir þrír gæddu sér á Brynjuís í góðviðrinu í gær. - mynd: brink
Lögreglan á Akureyri segir að hluti
foreldra barna í Síðuskóla hafi ætl-
að að kaupa áfengi handa börnum
sínum í tilefni loka samræmdu
prófanna.
Loggan hafði
afskipti af
foreldrum
Hluti foreldra barna í Síðuskóla
á Akureyri hugðist kaupa áfengi
fyrir krakkana sem þeir ætluðu
að nota til að fagna próflokum
samræmdu prófanna í gær. Þetta
segir Olafur Asgeirsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn á Akureyri.
„Við vissum í gær að krakkarn-
ir í Síðuskóla voru búnir að leigja
sér sal og einhverjir foreldrar
ætluðu nú að hjálpa þeim að út-
vega áfengi. Við gengum í það
strax að leysa þetta og gerðum
fólki grein fyrir ábyrgð sinni.
Þetta eru nú bara börn sem
heyra sannarlega undir foreldra
sína,“ segir Olafur Asgeirsson.
Að öðru leyti segir Olafur að
engin hefð sé fyrir ólátum á Ak-
ureyri eftir lok samræmdu próf-
anna. Hann lýsir ánægju með
óvissuferðir og fleira en segir
menn bjóða hættunni heim á
höfuðborgarsvæðinu: „Þetta hef-
ur verið vandamál í Reykjavík og
auglýst vel upp þannig að allir
krakkar sem eitthvert fútt er í,
fara niður á Hallærisplan. Það er
búið að segja þeim að þar verði
allt Ijörið," segir Ólafur. — BÞ
Fleiri
flóttameim
Ákveðið var á fundi ríkisstjórnar-
innar í gærmorgun að taka á
móti 50 flóttamönnum á næst-
unni. Einnig verður tekið á móti
nokkrum ættingjum þeirra
flóttamanna sem þegar eru
komnir hingað til Iands frá
Kosovo. Flóttamennirnir fá
húsaskjól í Alþýðuskólanum á
Eiðum til að byrja með, auk þess
sem Fjarðabyggð ætlar að taka á
móti um 30 flóttamönnum til
frambúðar.