Dagur - 28.04.1999, Qupperneq 4

Dagur - 28.04.1999, Qupperneq 4
4- ÞMIÐVIKUDAGUR 28. APRÍI. 1999 FRÉTTIR Xyagjiur INNLENT Velta Samskipa tvöfaldaðist Rekstur Samskipa skilaoi tæplega 154 milljóna króna hagnaði á síð- asta ári og er það ein besta afkoma félagsins frá upphafi. Arið áður nam hagnaðurinn um 120 milljónum króna. Veita Samskipa var tvöfalt meiri árið 1998 en árið á undan, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá íyrirtækinu. Rekstrartekjur samstæðunnar voru rúmir 12 milljarðar í fyrra en um 6,3 árið 1997. Tekjurnar jukust því um rúmlega 88% og skýrist það fyrsta og fremst af sameiningu Samskipa og þýska flutningafyrirtækisins Bischoff Group. Tap var af rekstri þýska fyrirtækisins í fyrra og má rekja það að mestu Ieyti til efnahagsþrenginga í Rússlandi. Harpa framkvæmda- stjóri Listahátíðar Harpa Björnsdóttir hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Listahátíðarinnar í Reykjavík. Framkvæmdastjórn Listahátíðar auglýsti starfið 1. apríl og bárust 20 umsóknir. Fyr- ir helgi var ákveðið að ráða Hörpu en hún hefur m.a. borið höfuðábyrgð á menning- arnóttum Reykjavíkur undanfarin 2 ár. Hlutverk framkvæmdastjóra Listahátíðar er að sinna daglegum rekstri, bera ábyrgð á íjáreiðum og bókhaldi, annast samninga- gerð og fleira. Listræn stefnumörkun er hinsvegar í höndum framkvæmdastjór- arinnar. Auglýst eftir tónlist Kvikmyndafélag íslands auglýsir eftir tónlist í kvikmyndina „Oskabörn þjóðarinnar'. Ahugasamir tónlistarmenn eru beðnir að senda inn prufuspólur til Kára Þórs í Hljómalind fyr- ir 15. maí næstkomandi. I fréttatilkynningu frá Kvikmyndafélaginu segir að tekið sé við öll- um stefnum og straumum í tónlist en fyrirhugað er að gefa tónlist- ina úr kvikmyndinni út á geisladiski á þjóðahátíðardaginn í ár. Harpa Björnsdóttir, nýráðin framkvæmda- stjóri Listahátíðar. Úthlutað ur Sagnfræðisjóði Nýlega var úthlutað úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þorsteinssonar og að þessu sinni hlutu tveir fræðimenn 150 þúsund krónur hvor. Það voru Halldór Bjarnason cand. mag. til að vinna doktorsritgerð við há- skólann í Glasgow um utanríkisverslun Islands og efnahagsþróun 1870-1913 og Ragheiður Kristjánsdóttir M. Phil til að vinna doktors- ritgerð við Háskóla Islands um þjóðernisstefnu íslenskra kommún- ista og sósíalista 1917-1958. Björg fékk styrk úr söng- menntasjóði Marinós Nýlega var úthlutað úr söngmenntasjóði Marinós Péturssonar og að þessu sinni var það Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona sem hlaut styrkinn. Styrkurinn sem veittur er árlega er að fjárhæð 500 þúsund og veittur til þess að styrkja efnilega söngvara til framhaldsnáms er- lendis. Björg Þórhallsdóttir stundaði söngmán við Tónlistarskólann á Ak- ureyri 1991-1996 og en áður hafði hún starfað sem hjúkrunarfræð- ingur. Hún sneri sér alfarið að söngnum eftir námið á Akureyri og lýkur námi við Konunglega tónlistarskólann í Manchester á Englandi í sumar. Selvogsgata og Krísuvík Ferðafélag Islands hefur gefið út ritið Selvogsgötu og Krisuvíkurleið- ir eftír Olaf Þorvaldsson. I frétt frá félaginu segir að útgáfan sé liður aukinni áherslu þess á fornar þjóðleiðir en gönguferðir um slíkar íeiðir eigi vaxandi vinsældum að fagna. Selvogsgata er ein af þekktari þjóðleiðum á Suðvesturlandi en í dag fyrst og fremst gengin til skemmtunar enda liggur hún um íjölbreytt og fallegt landslag. í ritinu rifjar Olafur upp sögu þessara leiðar en innig er þar að finna gott kort. Greinar Olafs birtust áður í árbók Hins íslenska fomleifafélags en nú endurbirtar með leyfi afkomenda hans. Fi'æðimaimsíbúð í KaupmannahöHi ráðstafað Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús lóns Sigurðssonar í ICaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlut- að íbúðinni frá 1. september til 31. águst á næsta ári. Nefndinni bárust 18 umsóknir og fá-7 fræðimenn afnot af íbúð- tnni. Það er Clarence E. Glad til að rannsaka gögn um klassíska nenntun á Islandi frá miðri 19. öld, Inga Huld Hákonardóttir til að tanna trú kvenna á íslandi á 19. öld; Iíristján Arnason til að rann- saka verk Sörens Kirkegaards; Leó Kristjánsson til að rannsaka út- : lutning íslenskra silfurbergskristaila og verslun með þá; Baldur Haf- stað til að rannsaka hetjusögur og hetjuljóð; Bjarni Bragi Jónsson til tið kanna sögu dansk-íslenskra peníngamyndunar og lánastarfsemi og Jón Hjaltason til að kanna gögn um danska kaupmenn sem versl- uðu áAkureyri. Fyrirtækið sem byggði þetta stórhýsi í miðbæ Hafnafjarðar varð gjaldþrota, en bærinn þarf samkvæmt dómi hæstaréttar að greiða þrotabúinu amk 3 milljónir króna. Ólöglegri greiðslu Hafnarfjarðar rift HaÍTiafj arðarbær þarf að greiða þrotabúi Miðbæjar Hafnafjarð- ar 3 milljóiiir auk vaxta samkvæmt dómi Hæstaréttar. Hafnarfjarðarbær hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi Miðbæjar Hafnarljarðar ehf. um þrjár milljónir króna auk vaxta, með því að rift var greiðslu úr fyrirtækinu til bæjarins áður en það fór í þrot. Miðbær Hafnarfjarðar ehf., sem stóð fýrir smíði stórhýsis, gerði samning við bæinn um kaup á hluta fasteignarinnar og skyldi kaupverð greitt með yfir- töku veðskulda og peninga- greiðslu, sem greiða átti eftir framvindu verksins. I samningn- um áskildi bærinn sér rétt til að Ijúka sjálft verkinu ef fyrirtækið kæmist í greiðsluþrot eða gæti ekki Iokið því á umsömdum tíma, á síðari hluta ársins 1995. I febr- úar 1996 gerði bærinn sam- komulag við fyrirtækið um að bærinn tæki að sér að ljúka fram- kvæmdum og skyldi fyrirtækið jafnframt greiða bænum 11 milljónir króna, þar af 2,8 millj- ónir með fimm skuldabréfum tryggðum með veðrétti í ákveðn- um eignarhlutum fasteignarinn- ar. Nokkrum dögum síðar seldi fyrirtækið Turninum ehf. um- rædda eignarhluta og skyldi Turninn greiða hluta kaupverðs með yfirtöku greiðslu áhvílandi veðskulda við bæinn, samtals að Ijárhæð 2,9 milljónir. Síðar á sama ári var bú Miðbæjar Hafn- aríjarðar ehf. tekið til gjaldþrota- skipta. Hæstiréttur taldi að við afhendingu skuldabréfanna hafi bænum engann veginn dulist að fyrirtækið var ógjaldfært og léti með þessum gerðum sínum af hendi verðmæti sem væru með þeim síðustu sem félagið réði yfir. Var ráðstöfuninni því rift. - FÞG. Reglur ráðherra voru ólögmætar HæstiréttiLr segir að reglur sem umhverfis- ráðherra setti um tak- mörkun á iiiiifliiiii ingi vetnisklórflúor- kolefna hafiverið ólöglegar. Auglýsingar um takmörkun á innflutningi á vetnisklórflúor- kolefni, sem Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra setti 1995-96, voru samkvæmt dómi Hæstaréttar ólöglegar, að því Ieyti að þær bundu leyfisveit- ingar á slíkum efnum við fyrir- tæki sem fluttu þau inn á árinu 1989. Ríkið hefur verið dæmt til að greiða fyrirtækinu Vörukaup 300 þúsund lcróna bætur vegna þessa, attk 600 þúsund króna málskostnaðar. Vörukaup hóf í byrjun árs 1995 innflutning á vetnisklórflú- orkolefni til notkunar í kæli- og Ríkið þarfað greiða fyrirtæki bæt- ur vegna reglna sem Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra setti og hæstiréttur telur hafa verið ólögmætar. frystitækjum, en þá gilti um inn- flutning efnisins reglugerð frá 1994 um varnir gegn mengun af völdum ósoneyðandi efna. Sam- kvæmt auglýsingum ráðherra vegna áranna 1995 og 1996 skyldi við úthlutun innflutnings- heimilda miðað við innflutning viðkomandi fyrirtækis á árinu 1989, en á því ári hafði Vöru- kaup ekki haft neinn innflutning efnisins með höndum. Vörukaup sótti um leyfi til innflutnings efnisins vegna ársins 1995 og enn á ný vegna áranna 1996 og 1997 en var synjað um þær inn- flutningsheimildir, sem félagið fór fram á. Hæstiréttur íaldi að gildandi lög fælu í sér nægilega heimild fyrir ráðherra til að takmarka innflutning á vetnisldórflúor- kolefni með reglugerð. Þá var ekki talið að ráðherra hefði fram- selt Hollustuvernd ríkisins vald umlram það, sem heimilt var, þegar hann fól stofnuninni að framkvæma innflutningstak- markanirnar. Hins vegar hefði HoIIustuvernd borið að gæta réttra Iaga og þóttu lög eða al- þjóðasamningar ekki hafa veitt heimild til þess að gera greinar- mun á einstökum innflytjendum eftir því efnismagni, sem þeir höfðu flutt inn á árinu 1989. Akvarðanir HoIIustuverndar, sem byggðu á auglýsingum um- hverfisráðherra, voru því dæmd- ar ólögmætar. -FÞG Önothæf aðferðafræði Aðalfundur Sldpstjóra- og stýri- mannafélagsins Öldunnar telur að sú aðferðafræði sem notuð hefur verið við verðlagningu á ferskum físld sé ónothæf. Þess í stað verður frjálst uppboðskerfí að komast á við sölu á fisld. Varaö viö kvótalbraski I ályktun fundarins var m.a. fagnað samþykkt þingsályktunar um að hvalveiðar skuli hefjast sem íýrst. Fundurinn harmar þó að þetta skref hafi ekki verið stig- ið til fulls með því að hetja hval- veiðar strax. Lýst er yfir von- brigðum með þríhliða Smugu- samning vegna þess hvað rýr hann sé, enda í engu samræmi við „sanngjarnan" rétt lands- manna til veiða í Barentshafi. Varað er við braski á kvóta í fram- haldi af samningnum. Fundur- inn lýsir jafnframt yfir vanþókn- un sinni á þeim réttindaskerðing- um sem Alþingí samþylckti með lögum um Lífeyrissjóð sjómanna. Þess í stað skuldar Alþingi sjó- mönnum ijármögnun á 60 ára reglunni sem rekja má til sam- þykktar þingsins frá 1981 og hef- ur íþyngt Lífeyrissjóðnum síðan þá. Þá mótmælir fundurinn harðlega öllum áformum um skerðingu eða niðurfellingu sjó- mannaafsláttar. -GRH

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.