Dagur - 28.04.1999, Side 6

Dagur - 28.04.1999, Side 6
6 - MÍÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1999 Thgftr ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVlK Símar: 460 6ioo OG soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: í.soo kr. á mánuði Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símar augiýsingadeiidar: (REYKjAVÍKj563-i6i5 Amundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson 0G 460-6192 Gréta Björnsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjavIk) Tíu dagar til stefnu í fyrsta lagi Tvær skoðanakannanir í röð hafa bent til þess að Samfylking- unni sé að fatast flugið í kosningabaráttunni. Samkvæmt könn- un sem DV birti fyrir viku hafði fylgi Samfylkingarinnar á landsvísu fallið niður í 24,1%- Könnun sem Félagsvísinda- stofnun gerði næstu daga þar á eftir og birt var í Morgunblað- inu í gær gaf Samfylkingunni 26,4%. Hér er um stórfellt fylg- ishrap að ræða á örskömmum tíma, því stutt er síðan kannan- ir mældu Samfylkinguna með 35-36 prósenta fylgi. í öðru lagi Síðustu kannanir staðfesta að Framsóknarflokknum hefur tek- ist sérlega vel að bæta sína stöðu. I kosningaslagnum hefur megináhersla verið lögð á formann flokksins, Halldór Asgríms- son, utanríkisráðherra. Hann hefur flutt þjóðinni í einföldu og auðskildu máli nokkur helstu stefnumál Framsóknarflokksins á komandi kjörtímabili. Ljóst er að Qölmargir kjósendur telja nauðsynlegt að Halldór Ásgrímsson verði mikill áhrifamaður í næstu ríkisstjórn. Fylgisaukning flokksins í skoðanakönnunum er staðfesting þess. í þriðja lagi Ekki hefur tekist að koma stefnumálum Samfylkingarinnar til kjósenda. Kosningabarátta hins nýja framboðs hefur að mestu gengið út á að fagna því að samstaða hafi náðst um að koma framboðinu á. Þá er lögð áhersla á það í sjónvarpsauglýsingum að í framboði fyrir Samfylkinguna sé barngott fólk. En kjósend- ur vilja meira. Þeir vilja fá að vita hvaða lausnir Samfylkingin býður uppá. Að hvaða leyti verður Iíf þeirra betra á næsta kjör- tímabili ef Samfylkingin kemst í ríkisstjórn? Það verður að gefa kjósendum hreinar línur, eins og Vinstrihreyfingin hefur gert fyrir sitt leyti - enda þegar búin að ná til sín rúmum helmingi þess fylgis sem gamla Alþýðubandalagið hafði. Samfylkingin hefur enn tíu daga til að rétta úr kútnum og tryggja sér 30-35 prósenta fylgi. Hvort það er nægur tími er alfarið í höndum for- ystumanna Samfylkingarinnar sjálfrar. Þeir eiga leik. Elias Snæland Jónsson Herská verka- lýöshreyfiiig Garri hefur átt í basli undan- farið við að átta sig á því um hvað hatrammar deilurnar í verkalýðshreyfingunni snúast í raun. Og heldur vandaðist málið þegar fréttir bárust af þvf að flugfreyjur hyggðust ganga í Rafiðnaðarsambandið á sama tíma og tónlistarmenn þverneituðu að vera í Verslun- armannafélagi Reykjavíkur. Garri hefur fylgst með gerð margra kjarasamninga gegn- um tíðina en að vísu oftast úr fjarlægð. Venj- an hefur verið sú að verkalýðs- foringjar hvessi sig aðeins og heimti veruleg- ar hækkanir, at- vinnurekendur reki upp mikið ramakvein yfir bágri stöðu fyr- irtækjanna og stuttu síðar hafa allir orðið vinir í karphúsinu. Ekki hefur verið annað að sjá en Grétar og Björn Grétar og Magnús og þeir allir strákarnir hafi átt ágæt samskipti við Þórarin V. og vini hans í VSI. Það er einna helst að sjó- mennirnir hafi verið með ein- hver læti og stórkallalegar yfir- lýsingar að sjómannasið um vinnuveitendur sína. Þær yfir- lýsingar eru hins vegar eins og hvert annað sunnudagaskóla- hjal í samanburði við svívirð- ingarnar sem heyrast þegar verkalýðsforkólfar deila inn- byrðis. Þá hvín nú aldeilis í tálknunum á þeim. Tittlingaskítur og skætingiir Osannindi, blekkingar, titt- lingaskítur, skætingur og skít- kast eru vopnin sem verkalýðs- foringjar grípa til þegar vega skal mann og annan í eigin liði, ef marka má yfirlýsingar þeirra sjálfra. Ekkert er til sparað og því kannski við því að búast að menn séu orðnir vígamóðir og til Iítilla átaka þegar kemur að samningum við vinnuveit- endur. Penar flug- freyjur láta ekki sitt eftir liggja og hóta nú að ganga í Rafiðnaðar- sambandið nema ASI skili flugfreyjum hjá Atlanta inn í Flugfreyjufé- Iagið í stað þess að halda þeim nauðugum í VR eins og Garra skilst að sé gert í dag. Garri hefur velt því fyrir hvað valdi því að slík heift grípi um sig þegar deilt er um skipulag og hver eigi að vera hvar innan verkalýðshreyfingarinnar. Það verður að viðurkennast að það hefur hvarflað að honum að verkalýðsforingjar óttist fátt meira en að missa félagsgjöld og þar með völdin og áhrifin sem peningum fylgja. En þar sem Garri er fallega innrættur maður berst hann gegn þeirri hugsun og reynir að finna ein- hverjar aðrar skýringar. Það hefur ekki tekist enn. GARRI Markaðssókn íþróttaima Fótboltadeild KR er endanlega komin út úr skápnum og villir ekki Iengur á sér heimildir. KR- sport er heiðarlegasta íþróttafé- lag landsins og er markaðssett eins og hvert annað hlutafélag. Atvinnumennirnir fá borgað samkvæmt samningum og ekki er verið að fela laun þeirra hjá öðrum atvinnurekendum eða plata peninga út úr borgarsjóði og Seltjarnarneshreppi út á þá höfuðlygi að boltakeppni hafi einhver heillavænleg uppeldis- gildi. Boltaleikir eru hér eins og annars staðar í veröldinni at- vinnuvegur og gróðafyrirtæki, sem ganga kaupum og sölum. Hið síðasta í markaðssókn KR- sports hf. var að kaupa þijú veit- ingahús í námunda við vallar- svæði sitt, sem á sínum tíma var gefið af sveitarfélaginu. Meðal eigna hlutafélagsins er nú meðal annars ein vinsælasta og best sótta bjórkrá landsins. Þar hafa KR-ingar lengi komið saman og fylgst með leikjum í sjónvörpum, léttir í lund yfir bjórkollum sín- um. Þarna er líka glaðst yfir sigr- um og hresst upp á daprar sálir þegar illa gengur á boltavöllum. Hlutafélagið hefur gert þarna góð kaup og ekki er að efa að stjórnin hefur gert vandaða markaðs- könnun og veit öðrum betur hve mikið KR- ingar og fylgismenn þamba af öli og öðrum veigum í kránni, sem tengist íþróttum öðr- um búllum betur. Þjónandi ríkisstarfsmenn Hlutafélagið KR-sport hefur gengið takkbærilega og færir nú út kvíarnar og á vonandi eftir að gera enn betur og íjárfesta í arð- bærum rekstri á fleiri sviðum. Ekki þarf það samt að kaupa Ríkisútvarpið því það þjónar boltakeppni af slíkri undirgefni og alúð að betur verður ekki gert. Ofurútvarpsstjórinn Ingólfur Hannesson veður yfir alla frétta- og dagskrárstjóra hvenær sem honum býður svo við að horfa, sem er oft, og borgar peninga- hákum keppnisíþrótta vænar fúlgur fyrir að fá að koma þeim á fram- færi. I útlöndum kaupa útvarps- og sjónvarps- risar hlutafélög bolta- leikjanna og hlutafélög boltaleikjanna kaupa sjónvarpsstöðvar. Þess- ar svikamyllur stjórna síðan öllu því mikla peningastreymi sem boltaleikir gefa af sér og til vara eiga hlutafélagahringarnir enn önnur fyrirtæki, sem tengjast boltaleikjum á einn hátt og ann- an. En hér geta boltahlutafélög sparað sér að Qárfesta í fjölmiðl- um, þar sem þau ráða þeim þeg- ar gegnum öfluga leppa sína. Keppni og svall Vonandi fara fleiri íþróttafélög á hlutabréfamarkað og létta því oki af sveitarsjóðum að halda þeim á floti. Veitingastarfsemi og bjórkráarekstur getur sem best orðið eins konar aukabúgrein, eins og KR hf. er nú að sanna. Boltaleikir og drykkjuskapur hef- ur löngum farið saman og fer vel á því að sama kompaní sjái bæði um keppnina og svallið. Steraát og önnur örvandi og hættuleg lyfjaneysla er líka fylgi- fiskur íþróttakappa og væri vel athugandi að íþróttafélögin komi sér upp innflutningsfyrirtækjum og apótekum til að versla með nauðsynjavörur atvinnuíþrótta. Steraát keppniskappa verður brátt löglegt, eins og bjórinn, og þá er eðlilegt að verðbréfahring- ar íþróttanna sleppi þeirri fjáröfl- unarleið ekki úr höndum sér. snnrtis svairaö Á að einskorða sölu á tó- baki við apótek og stór- hækka verð? (Þorgrímur Þráinsson, fram- kvæmdastjóri Tóbaksvarna- nefndar, varpaði þessari hug- mynd nýlega fram.) Ingi Guðjónsson framkvæmdastjóri Lyfíu. „Við í Lyfju höf- um lagt áherslu á að vera með breitt vöruúrval og ruddum brautina hvað það snertir, en ég get ekki séð það fyrir mér að við förum að selja tóbak. Samkvæmt reglu- gerðum er heldur ekki leyfilegt að selja tóbak í apótekum þannig að þetta myndi kosta ýmsar breytingar af hálfu yfirvalda. OIl viðleitni til draga úr reykingum er af hinu góða, hvort sem það yrði hækkað verð eða eitthvað annað. Þá nefni ég að hjá Lylju erum við að selja ýmis nikótínlyf sem aðstoða fólk við að hætta reykingum." Anna Geirsdóttír borgarfulltmi og heilsugæslulæknir í Grafarvogi. „Það er ég hrædd um að gangi aldrei upp, þetta myndi ýta undir smygl og ólög- lega starfsemi. Aðstæðurnar yrði þær sömu og á bannárunum hér á Iandi snemma á öldinni. En ég er mikið á móti á reyking- um og vildi helst að aldrei væri reykt í minni návist og því síður nærri börnum og unglingum, en ég veit þetta eru bornar vonir.“ Hrafn Jökulsson blaðamaður. „Hugmynd Þor- gríms Þráins- sonar um að færa tóbakssöl- una í apótekin sýnir glöggt að hann ætti frem- ur að halda áfram að skrifa bestu bækur ald- arinnar, en að bera svona rugl á borð. Ofstækið gegn reykinga- mönnum er löngu komið út í öfgar. Fulltíða fólki á að vera í sjálfsvald sett hvort það reykir eða ekki, forræðishyggja og okur- verð leysa engan vanda og reynd- ar má deila um hvort það sé for- svaranlegt að ríkið eyði stórfé í tilgangslítið Tóbaksvarnaráð." Einar Gunnar Sigurðsson handboltamaðurmeðAftureldingu. „Betra væri sjálfsagt að tób- ak væri selt á færri stöðum, til dæmis apótek- um, þar sem fylgnin eftir ald- ursmörkunum væri betri. Unglingar segja að- spurðir hvort þeir myndu kaupa tóbak væri það dýrara að þeir myndu ekki gera það. Því væri verðhækkun ágæt tilraun til að koma í veg fyrir neyslu þeirra á þessum skaðvaldi.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.