Dagur - 28.04.1999, Page 12

Dagur - 28.04.1999, Page 12
12 - MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1999 VEDUR L ÍÞRÓTTIR L. Veðrið í dag... Vestlæg eða breytileg átt, gola eða kaldi. Skýjað sunnantil og dálitil súld með suðurströndinni, en skýjað með köflum eða léttskýjað norðantil. Hiti 4 til 10 stig. Blönduós Akureyri p mm fC) mm § — - • / \ ErBS -10 5- -5 | 0- -0 -5- 1 - T" 't"-----1---- i i-----1-------------r° —mmn-----—™-r—---------—i-------------Ho M Mlð Fim Fös Lau Mán Þ(1 Mlö Rm Fös Uu Mán J . j •s«S)y/ J Egilsstaðir Bolungarvík fC) mm ,„rc) mm Ji - - ~ - B -10 -5 5- 0- 1 ■■ Þri Mið Flm Fös Lau M n »1 Mið Fim Fðs Lau Má Reykjavík Kirkjubæjarklaustur fC) mm ,„CC) mm Ji - a i ■ 8 b - -10 -5 5- 0- 1 1 - Þri Mið Fim Fðs Uu Sun M án ri Mið Fim Fðs Uu sún Má y-—/ j V / J ; Y"^ J%'-1'*‘"*.* \ j^/ Stykkishólmur Stórhöfði rcj mn r15 -Ot -10 j 5-1 q mm ■ - - _ 1 „ -5 0- -0 1 -5- B 1 ■ —1 rm Pn Miö Fim Fös Lau Bun Mán Þrl Mið Flm Fös Lau Sun Mái j j j | *,/./ j Y Sd!ofa Veðurspárit 27.04.1999 Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. Þríhyrningur táknar 25 m/s. er Dæmi: '» táknar norðvestanátt, 7.5 m/s. Færð á vegiim í gærkvöld var greiðfært um helstu þjóðvegi landsins. Vegna aurbleytu er öxulþungi takmarkaður víða á vegum og er þaó kynnt með merkjum við viðkomandi vegi. SEXTÍU OG SEX NORÐU! Glerárgötu 32 Akureyri Alex Ferguson er sigursælasti stjórinn í enska boltanum á síðasta áratug aldarinnar. Ætluðu að reka Alex Ferguson Minn „HM-bikar“ Frakkinn David Ginola segir það mikinn heiður íyrir sig að hafa verið kosinn Ieikmaður ársins í Englandi, eftir að eigin landar hafi horft fram hjá hæfileikum hans síðustu árin. Þar á Ginola við að hann hafi ekki komið til greina í franska landsliðshópinn á HM á sl. sumri. „Þetta er minn HM-bikar,“ sagði Ginola í samtali við frönsk blöð eftir að hafa tekið við viðurkenningunni frá samtök- um enskra atvinnuknattspyrnu- manna. Ginola hefur að undanförnu ekki átt upp á pallborðið hjá frönsku landsliðsþjálfurunum og hefur lengi þurft að gjalda fyrir mistökin sem hann gerði í leik gegn Búlgaríu, sem urðu til að Frakkland komst ekki í úrslita- keppni HM 1994. Hann hlaut ekki náð fyrir augum Aime Jacquet, landsliðsþjálfara, eins og reyndar Eric Cantona og missti þar af leiðandi af mesta sigri franska landsliðsins til þessa. „Að komast ekki í franska landsliðið fyrir HM, voru mestu vonbrigði mín á ferlinum og ég á ekki von á að þar verði nein breyt- ing á. I staðinn verð ég að einbeita mér að því að vinna titla með Tottenham og þar mun ég leggja mig allan ffam,“ sagði Ginola. Van der Sar til United? Þær fréttir bárust frá höfuðstöðv- um Manchester United að þreif- ingar væru í gangi um kaup á hol- Ienska landsliðsmarkverðinum Edwin Van der Sar frá Ajax. Van der Sar staðfesti í samtali við hollenska íjölmiðla að viðræð- ur væru í gangi og að forráða- menn United hefðu haft sam- band við sig í síðustu viku. „Þeir vildu vita hug minn og hvort ég hefði áhuga á að ganga til liðs við félagið. Og auðvitað þarf ég að hafa áhuga,“ sagði Van der Sar. Að sögn forráðamanna United hafa enn engar ákvarðanir verið teknar, en Van der Sar mun þessa stundina vera efstur á óskalista félagsins. Hann hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á að ganga til liðs við United, en þar er fyrir góður vinur hans og fyrrum félagi hjá Ajax, Japp Stam. Ronaldo htítar að fara frá Inter Brasilíski knattspyrnusnillingur- inn Ronaldo hefur hótað að yfir- gefa ítalska knattspyrnuliðið Inter eftir að æstir aðdáendur liðsins gerðu aðsúg að bíl hans þegar hann yfirgaf leikvang félagsins um helgina. Inter sem var spáð sigri í ítölsku úrvalsdeildinni í upphafi leiktíðar, hefur ekki átt góðu gengi að fagna í vetur og vermir nú níunda sæti deildarinnar. Æstir áhangendur liðins kenna um sífelldum meiðslum Ronaldos og Iélegum móral innan liðsins. Tapið gegn Udinese um síðustu helgi fyllti síðan mælinn og Iétu áhangendur liðsins þá reiði sína bitna á bifreið Ronaldos. Ronaldo sagði í viðtali við fjöl- miðla að sér þætti þetta mjög Ieið- inlegt. „Svo virðist sem stuðnings- menn Iiðsins séu búnir að gleyma að ég skoraði 34 mörk fyrir Inter á síðustu leiktíð. Ég er ekki að biðja um neitt þakldæti, en mér finnst ég eigi skilið einhvern skilning á þeim sálrænu vanda- málum sem hafa háð mér síðustu níu mánuðina,“ sagði Ronaldo. Sú var tídin að stjóm Mandiester United hugleiddi í alvöru að reka Alex Ferguson. Nú hýður húu honum hálfau milljarð í árs- lauu haldi liaim áfram með liðið, sem hann hefur gert að besta liði Englands á tíuuda ára- tugnum. Það hefur ekki alltaf gengið jafn glatt hjá Alex Ferguson, eftir að hann tók við knattspyrnustjórn- inni á Old Trafford, eins og þessa dagana. Ferguson er sigursælasti stjórinn í enska boltanum á síð- asta áratug aldarinnar og er að komast á stall með landa sínum, Bill Shankley og Bob Paisley sem reistu Liverpool úr rústunum í byrjun sjöunda áratugarins. Þess- ir þrír knattspyrnustjórar eru meðal þeirra sigursælustu í Evr- ópu og takist Ferguson að vinna þrennuna stóru og landa fyrsta Evrópubikarnum á Old Trafford eftir þijátíu ára bið má mikið vera ef hann stendur ekki fremstur meðal jafningjanna. Það er því ótrúlegt að í byrjun árs 1990 hafði stjórn Manchester United tekið þá ákvörðun að reka Alex Ferguson ef honum tækist ekki leiða liðið til sigurs gegn Nottingham Forest í þriðju um- ferð ensku bikarkeppninnar, þann 7. janúar. Það var Mark Robins sem Ieysti snöruna af hálsi Skotans með sigurmarkinu á hundblautum og þungum City Ground vellinum. í fimmtánda sætinu Reiði stjórnarmanna þessa fyrr- um stórveldis var réttlætt með því að liðið var aðeins í fimmtánda sæti fyrstu deildarinnar, eins og efsta deildin hét þá og hafði mátt þola þá niðurlægingu að tapa 5-1 fyrir nágrönnum sínum í Manchester City, sem nú Ieikur í annarri deild. Liðið hafði einnig tapað fyrir Tottenham í deildar- bikarnum og þetta var staða sem stjórnarmenn á Old Trafford gátu ekki sætt sig við. Manchester United hafði fallið í aðra deild nokkrum árum áður en unnið sig upp með stæl árið eftir. Allt var gert til að liðið risi sem fyrst úr öskustónni og toppknattspyrnu- stjórar, Tommy Docherty og Ron Atckinson, voru meðal þeirra sem rcMidu að rétta Manchesterskút- una við. Allt kom fyrir ekki því meistaratitillinn lét ekki sjá sig í bikarsafninu. Þeir voru báðir reknir. Sömu örlög biðu Alex Ferguson. Skotinn hógværi hafði byggt skoska Iiðið Aberdeen, nán- ast úr engu, og gert það að stór- liði í Evrópu þegar hann var feng- inn til Old Trafford. En enginn lifir á fomri frægð í herbúðum Manchester United og því heimt- aði stjórnin að Ferguson léti verk- in tala. Fimm hundruð og fimmtiii milljtíiiir Nú er öldin önnur hjá Alex Fergu- son. Engum dettur í hug að reka hann heldur reynir stjórnin að halda dauðahaldi í þennan mess- ías, sem þeir fengu sendan frá Skotlandi fyrir þrettán árum. Til að tryggja sér áframhaldandi starfskrafta hans hefur Manchester United boðið Fergu- son 550 milljónir í árslaun. Þar með verður Alex Ferguson hæst- Iaunaði knattspyrnustjóri Eng- lands. Gangi allt upp hjá honum skrifar hann merkilegasta kaflann í sögu evrópskrar knattspyrnu til þessa. Að vinna enska meist- aratitlinn, enska bikarinn og kiára dæmið í Barcelona í næsta mán- uði með sigri á Bayern Munchen í Meistaradeildinni er nokkuð sem ekki hefur áður tekist og óvíst að nokkur komist jafn ná- Iægt þessu drauma takmarki og Ferguson nú. Bob Paisley stóð í þessum sporum með Liverpool árið 1977 en náði „aðeins“ að vinna enska meistaratitilinn og Evrópukeppni meistaraliða eins og meistaradeildin hét þá. Manchester United kom í veg fyr- ir að Paisley, fyrstur manna, kæmi höndum á þrennuna eftirsóttu með 2-1 sigri í frábærum úrslita- Ieik á Wembley. Það er kaldhæðni örlaganna að Liverpool hefur tækifæri til að hcr i,*n' frá 1977, nái liðið að eyðileggja meistaravonir Manchester United þegar liðið heimsækir An- field Road þann 5. maí næstkom- andi. - GÞÖ Árangur Fergusons ineð United 1990 Bikarmeistarar. 1991 Evrópumeistarar bikarhafa. Sigurvegarar „Super Cup“, gegn Rauðu Stjörnunni, Evrópumeisturum meist- araliða. 1992 Deildarbikarmeistarar. 1993 Englandsmeistarar. 1994 Englandsmeistarar. 1996 Englandsmeistarar. Bikarmeistarar. 1997 Englandsmeistarar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.