Dagur - 28.04.1999, Page 13
MIDVIKUDAGUR 28. APRÍL 1999 - 13
ÍÞRÓTTIR
Stj arnan vann
meistaratitiliim
Stjaman tryggdi sér í
fyrrakvöld íslands-
meistaratitilinn í
handknattleik kvenna
er þær unnu FH-inga
með níu marka mun í
þriðja leik úrslitaein-
vígis liðanna.
Það stefndi í hörkuspennandi Ieik
milli Stjörnunnar og FH í Asgarði
í fyrrakvöld, þegar liðin léku
þriðja leikinn í úrslitaeinvíginu
um Islandsmeistaratitilinn í
handknattleik kvenna. Fyrir leik-
inn var Stjarnan komin með aðra
höndina á Islandsbikarinn, eftir
mikinn baráttusigur í Hafnarfirði,
þar sem FH-ingar Ieiddu með tólf
marka mun í hálfleik 18-6. En
það ótrúlega gerðist, Stjörnunni
tókst að jafna leikinn og knýja
fram framlengingu, sem reyndar
urðu tvær, því eftir þá fyrri var
enn jafnt. í þeirri seinni náði
Stjarnan svo að sigla framúr og
sigraði með aðeins eins marks
mun 30-31. Þar með var staðan í
einvíginu 2-0 íýrir Stjörnuna eftir
eins marks sigur, 20-19, í fyrsta
leiknum í Garðabæ og staðan því
óneitanlega hagstæð fyrir þriðja
leikinn í Garðabænum.
Góð byrjun FH
Með þessa skelfilegu útreið á bak-
inu mætti hið unga og efnilega
FH-Iið svo til leiks í Garðabænum
og virtist til alls líklegt eftir góða
byijun í Ieiknum. Þær náðu strax
forystunni og héldu henni framan
af, þar til Stjarnan náði undirtök-
unum er líða tók á hálfleikinn og
var staðan 14-12 í hálfleik fyrir
heimamenn.
íslandsmeistarar Stjörnunnar
héldu uppteknum hætti í seinni
hálfleiknum og bættu strax við
tveimur mörkum. Þær juku síðan
stöðugt við muninn á meðan FH-
liðinu tókst aðeins að skora þrjú
mörk og var munurinn lengst af
fimm mörk. Þegar um tólf mínút-
ur voru eftir af leiknum var eins
og allur kraftur væri úr FH-liðinu
og Stjarnan gekk á lagið og skor-
aði nú næstu sjö mörkin. Þær
léku við hvern sinn fingur með
Ingu Björgvinsdóttur í broddi
fylkingar, sem skoraði alls níu
mörk í leiknum með sínum frægu
dúndurskotum.
Þrátt fyrir mótlætið gáfust FH-
stelpurnar aldrei upp og áttu
ágæta innkomu í leikinn á
lokamínútunum. En munurinn
var of mikill og með ellefu mörk í
forskot gat Stjarnan Ieyft sér að
slaka á í lokin, enda sigurinn fyrir
löngu í höfn og íokatölur 34-25.
Sterk liðsheild
Liðsheild Stjörnunnar var rnjög
öflug og eftir að vörnin small
saman í seinni hálfleik komu
ungu stelpurnar í liðinu til skjal-
anna á rneðan stórskyttan Ragn-
heiður Stephensen var teldn úr
umferð. Eins og áður sagði var
það Inga Björgvinsdóttir sem þar
fór fremst i flokki, en þar er á
ferðinni mikil skytta sem á örugg-
lega eftir að Iáta mildð að sér
kveða í framtíðinni. Auk hennar
áttu þær Inga Fríða Tryggvadóttir,
sem skoraði sex mörk og Anna
Blöndal, sem skoraði fjögur, mjög
góðan leik. Ekki má gleyma Mar-
gréti Theodórsdóttur, sem er kjöl-
festan í vörninni ásamt Ingu
Fríðu, en Margrét hefur vaxið
með hveijum leik og segja þeir
sem lengi hafa fylgst með boltan-
um að hún hafi sjaldan verið
betri, enda á besta aldri. Nína
Björnsdóttir, sýndi líka skemmti-
Iega takta, en hún skoraði þijú
mörk með skemmtilegum tilþrif-
um. Að haki sterkri vörn Stjörn-
unnar stóð svo Lijana Sadzon,
sem á köflum varði mjög vel, en
hún lokaði hreinlega á FH-Iiðið
um tíma í seinni hálfleiknum.
Ungt og efnilegt Uð FH-inga
Hjá liði FH-inga sem áttu mjög
erfitt uppdráttar í þessum leik eft-
ir dramatfkina í öðrum Ieiknum,
bar mest á Dagnýju Skúladóttur,
sem skoraði sex mörk í leiknum.
Annars var liðið nokkuð jafnt og
oft brá fyrir skemmtilegum
leikköflum hjá liðinu. Þær sýndu
að þær geta spilað mjög sterkan
varnarleik og Jolanta Slapikiene í
markinu er mjög öflugur mark-
vörður. Stelpurnar eru flestar
mjög ungar, en eiga svo sannar-
Iega framtiðina fyrir sér. Sumir
segja að þarna fari eitt efnilegasta
félagslið sem lengi hefur sést í
kvennaboltanum, sem eigi eftir að
Iáta mikið að sér kveða á nýrri öld.
Þær spila hraðan og skemmtileg-
an bolta, öðruvísi en önnur lið og
mikil barátta er í liðinu. Þær eru
reynslunni ríkari og framtíðin er
þeirra.
Stjarnan erbest
Stjarnan sýndi það óneitanlega í
úrslitakeppninni að þar fer besta
handknattleikslið landsins í
Icvennaboltanum. Þær unnu alla
sína leiki í keppninni og tr)'ggðu
sér með glæsibrag Qórða Islands-
meistaratitilinn, sem þær unnu
fyrst árið 1991. Síðan urðu þær
aftur meistarar árið 1995 og síð-
ast í fyira, þegar þær unnu alla
þrjá titlana. Auk fjögurra íslands-
meistaratitla hefur liðið sjö sinn-
um orðið deildarmeistari síðan
1992 og nú sjötta árið í röð. Liðið
hefur einnig þrisvar sinnuin orðið
bikarmeistari, fyrst árið 1989 og
síðan 1996 og 1998. Það er því
ekki hægt að segja annað en ár-
angur liðsins hafi verið mjög
glæsilegur og tíundi áratugurinn
er sannarlega áratugur Stjörn-
unnar.
Arangur Stjörnuimar í vetur
A nýliðnu keppnstímabili lék
Stjarnan alls 26 leiki í deild, bikar
og í úrslitakeppninni. Þar af unnu
þær 21 leik, gerðu eitt jafntefli og
töpuðu fjórum. Af 21 sigurleik
unnu þær 14 í deildarkeppninni
og síðan alla sjö leikina í úrslita-
keppninni.
1 deildarkeppninni töpuðu þær
fyrsta Ieiknum gegn Haukum og
unnu síðan fimm næstu áður en
þær gerðu jafntefli við FH í sjö-
undu umferðinni. Síðan komu
níu sigurleikir í röð, áður en liðið
tapaði tveimur síðustu leikjunum
gegn Víkingi og Fram. Stjarnan
varð fyrir því áfalli að missa fyrir-
liða sinn Herdísi Sigurbergsdótt-
ur í meiðsl þegar fimm umferðir
voru eftir af deildarkeppninni og
lék hún eftir það ekkert meira
með Iiðinu. Hennar var sárt sakn-
að í næstu leikjum, en eftir síð-
ustu leikina í deildarkeppninni
lagaðist leikur Stjörnunnar aftur
til muna, sem skilaði þeim tap-
lausum í gegnum keppnina.
I bikarkeppninni féll Stjarnan
strax úr keppni í fyrstu umferð, er
þær töpuðu gegn Haukum með
níu marka mun 16-25.
Deildarkeppnitt:
Haukar - Stjarnan 22-20
Stjarnan - IR 37-20
KA - Stjarnan 17-24
Stjarnan - Valur 30-27
ÍBV - Stjarnan 27-28
Grótta/KR - Stjarnan 24-25
Stjarnan - FH 22-22
Víkingur - Stjarnan 24-34
Stjarnan - Fram 29-2)
Stjarnan - Haukar 25-18
Stjarnan - KA 32-11
IR - Stjarnan 24-39
Valur - Stjarnan 24-28
Stjarnan - ÍBV 30-18
Stjarnan - Grótta/KR 24-22
FH - Stjarnan 21-33
Stjarnan - Víkingur 22-23
Fram - Stjarnan 32-29
Úrslitakeppnin
8-iiða úrslit:
Stjarnan - Grótta/KR 24-22
Grótta/KR - Stjarnan 17-24
4-liða úrslit:
Stjarnan - Valur 18-17
Valur - Stjarnan 20-24
Úrslitaeinvígið:
Stjarnan - FH 20-19
FH - Stjarnan 30-31
Stjarnan - FH 33-25
lavita:
É BELLAi
n m bio
* RÁÐHÚSTORGI
liilip
■mbbbhhí
□□|OOCBY|
OIGITAL
SALURA
SÍMI 461 4666
Tkx
SALURB
í hjarta
borgariimar
er svln með
stórt hjarta
Sýnd
kl. 17
Saga um ásl
týnda og fundna.
Sýnd kl. 17 og i9
Sýnd
kl. <8.40
FOR-
SÝNING
POWER SYNING
Sýnd kl. 21
Synd
kl. 21
POWER
SÝNING
uda
Sýnd
kl. 11.30
Sýnd kl. 23
Simi 462 3500 ♦ Holabraut 12 * www.nett.ia/borgarbio
ijjm
m/mÆ 9 BJjJt 'Nt.
LA VITA E BELLA - LIEE IS
BEAUTIFUL: NU ER HUN K0MIN
AFTUR EFTIR PASKAFRIIÐ, 3
0SKARS-VERÐLAUN! BESTA
MYNDIN, BESTI LEIKARI i
KARLHLUTVERKI, BESTA
KVIKMYNDATÓNLISTIN (DRAMA)
FRABÆR GRINMYND UM FJ0L-
SKYLDU SEM DVELUR NEÐAN-
JARÐAR í SPRENGJUSKYLI I 35
AR VEGNA ÞESS AÐ ÞAU HAÍDA
AÐ KJARNORKUSPRENGJA HAFI
SPRUNGIÐ A YFIRBORÐI JARÐAR
Midvikud. kl. 23
Miðvikud. kl. 21.
OOLBY
DOLBY