Dagur - 04.05.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 04.05.1999, Blaðsíða 4
20- ÞRIÐJUDAGUR i. MAÍ 1999 Dagwr BRÉF TIL KOLLU „Framundan var gras- flötur. Þar fyrir neðan vatnið - Winnipegvatn. Sóiin speglaðist í dimmum vatnsfletin- um.“ Minningar frá Manitoba Elsku Kolla. Sumar í Manitoba. Sólin var brennandi heit. Ég sat í skugga trjánna. Helga frænka kom út úr húsinu með kökur og ávaxtasafa. í rósóttum sumarkjól. Há og tíguleg. Drengirnir horfðu á mig úr dyragættinni. Ennþá ögn feimnir. Ég var nýkomin. Föl og rengluleg. Með ótrúlega langan háls og stór augu. Unghngur í ókunnu landi. Óralangt að heiman. Komin til að vera allt sumarið. Framundan var grasflötur. Þar fyrir neð- an vatnið - Winnipegvatn. Sólin speglaðist í dimmum vatnsfletinum. Mér leið strax vel í þessu nýja umhverfl. Helga minnti á mömmu. Óttalaus í fram- komu. Hrein og bein. Með há kinnbein og móbrún augu. Þær voru bræðrabörn, hún og mamma. Við sátum oft í þessum garði. í skugga trjánna. Þar var lagt á borð aUa daga. Þar var lesið, spilað og hlegið. Þar var tekið á móti gestum. í þessum garði hitti ég Einar afabróður minn og dætur hans í fyrsta sinn. Einar var höfðinglegur maður. Háaldrað- ur, þegar hér var komið sögu. Búinn að vera í nýja landinu í hálfa öld. Mildilegur með stórar hendur. Alveg eins og afi heima. Sjómannshendur. Einar og kona hans, Sól- veig, áttu lítið kot við norðarnvert vatnið. Þau áttu hka bát. Seldu fisk í nágranna- byggðum. Aldrei nóg þó til að geta heimsótt gamla landið. Töluðu bæði aldamótaís- lenzku. Með kanadísku ívafi. Sólveig hafði aldrei lært ensku. Það fannst mér skrítið. En hún fór sjaldan af bæ. Til nýja landsins Þeir bræðumir höfðu verið mjög samrýndir í æsku. Fátækir bóndasynir úr Fljótshlíðinni. Attu ekki margra kosta völ í lífinu. Bjuggu í hjáleigu. Fóru á vertfð. Sinntu búskap þess á milli. Báðir kvæntir menn um aldamótin. Einar var yngri. Átti eina dóttur. Afi og amma áttu ómegð. Misstu tvö börn í barnaveiki. Árið 1907 brugðu þeir bræður búskap. Afi ákvað að freista gæfunnar í höfuðborg- inni. Setti hest undir heyvagninn og labbaði af stað yfir heiðina með börn og buru. Einar vildi út. Til vesturheims. Til nýja landsins. Þar spriklaði fiskur í hverjum læk. Landið var gjöfult. Þar biðu tækifærin. Auðvitað freistaði þetta afa. En börnin voru mörg. Farið kostaði mikla peninga. Hann varð eft- ir. Einar sigldi. Þeir sáust aldrei aftur. Verkamenn í vtngarði Einar og Sólveig eignuðust þijár dætur. Siggu - sem fæddist á Islandi - Helgu og síðan Völu. Þær bjuggu allar í Manitoba, en langt hver ffá annarri. Enda ólíkar sem dagur og nótt. Sigga var saumakona. Afskaplega kven- Ieg, með mjótt mitti og svart hár. Vann í stóru magasíni í Winnipeg. Ég heimsótti hana- þangað. Hún gaf mér fyrsta bijóstahaldarann. Mikið feimnismál. Vala var hláturmildust. Hún söng alla daga. Ljóshærð og bláeygð. Átti mann af þýzkum ættum. Þau áttu falleg böm. Ráku hótel af miklum rausnarskap í htlu þorpi vestur af Winnipeg. Helga mín var hjúkrunarkona. Enda með bein í nefinu, skýrmælt og staðföst. Ken, maður hennar var ljúflingur. Gerði að gamni sínu. Alltaf brosandi. Bættu hvort annað upp. Höfðu bæði gegnt herskyldu á stríðsárunum. Ken og Helga áttu tvo íjör- lega syni. Ég synti með þeim í vatninu. Aht var mér þetta ógleymanlegt fólk. Hefur lifað í minningunni öll þessi ár. Seinna þetta sumar dvaldist ég nokkra daga í kotinu hjá Einari og Sólveigu. Litla stofan var rammíslenzk. Jafnvel klukkan á veggnum hafði fylgt þeim aha þessa löngu leið. Á hverjum morgni ýtti hann bátnum úr vör. Fór aldrei langt. Ég vék ekki frá honum þessa daga. Skynjaði heimþrána. Skynjaði söknuðinn. Ef til vill beizkju. - Og þó. Hvað hafði lífið í nýja landinu fært honum? Winnipegvatn er grunnt. Þegar hvessir, verða öldurnar himinháar. Á veturna botn- frýs vatnið. Indíánarnir höfðu kennt honum fyrstu handtökin. Landið hér norður frá var harðbýlt. Erfitt til ræktunar. Lánið lék ekki við hann í landi tækifæranna. En hann gat ekki snúið heim aftur. Og hvað hafði ísland að bjóða honum? Afi komst á sjóinn um tíma. Löngum og löngum var hann atvinnulaus. Eignaðist aldrei neitt. Missti tvo syni í sjóinn. Hugsaði oft til bróður síns. í rauninni var h'f þeirra mjög svipað. Verkamenn í víngarði drottins. Þrátt fyrir langan aðskilnað voru þessir tveir menn ótrúlega lfldr. Æðruleysi var þeirra aðalsmerki. Heilt haf skildi á milli. En þeir voru saman í huganum. Hugsuðu hvor til annars á degi hverjum. Báru um- hyggju hvor fyrir öðrum. Elskuðust eins og bræður. Ég var sú taug, sem tengdi þessa tvo menn saman. Færði þá nær hvor öðrum. Ég kom heim um haustið. Dögum saman vék ég ekki frá afa. Hann þyrsti í fréttir af Ein- ari bróður. Ég sagði honum aftur og aftur sögur af Einari. Lýsti húsinu hans, bátnum hans, höndunum hans. Stundum fór afi að gráta. Ég skynjaði söknuðinn, eftirsjána. Af hverju skildust leiðir? Land tækifæranna! Hvar var það? Afi dó þetta sama haust, Kolla. P.S. í sumar sem leið kom ég aftur til Man- itoba. Þá rifjaðist þetta allt upp. Þau eru öll dáin nema Helga. Hún verður áttræð í næsta mánuði. Ég gerði mér ferð til að skoða húsið við vatnið. Það hafði stækkað í minningunni. Ég þekkti það ekki aftur. Búið að leggja járnbrautarteina yfír túnið. Eng- inn skuggi af trjánum lengur. Engin stelpa að hnoðast með tvo litla stráka í fanginu. Þín Bryndís ■menningar I LÍFIB Lóa Akfisardóttír Rent hefst í næstu viku Aðstandendur Rent eru að vísu búnir að vera frekar duglegir við að kynna þennan hugsanlega væntanlegan sumarsmell en þar sem þeir eru eflaust margir sem hlakka til að sjá þennan fyrsta söngleik sumarsins þá tilkynnist það hér með að tæpri viku eftir kosningar, eða föstudaginn 14. maí, verður bandaríski söngleik- urinn Rent frumsýndur í Loft- kastalanum. Eins og eigi er óal- gengt í heimi söngleikja þá bygg- ir Rent að nokkru leyti á öðru og eldra verki, eða óperunni La Boheme. Viðfangs- efnið er: ástin og lífsþorst- inn. Og hvers meira er hægt að kreíjast á yfirvofandi sum- arnáttum? Albúmin Bóka- safns- fræðingurinn Susan Tucker heldur fyrirlestur á morgun kl. 17 í Odda (stofa 101) á vegum Rannsóknastofu £ kvennafræð- um og ætlar að fjalla þar um Orð og myndir í úrklippubókum amerískra kvenna, þ.e. um varð- veislu minninga því eins og segir í tilkynningu frá rannsóknastof- unni þá eru það konur sem „hafa í gegnum tíðina haldið til haga og varðveitt persónulegar heimildir og Ijölskyldualbúm." Fyrirlesturinn er öllum opinn. Hæðnislegur barnaharm- leikur (!) Það er ekki alveg komið að sum- arffíum hjá Leikfélagi Reykjavík- ur því þar eru menn byijaðir að æfa leikritið Vorið vaknar eftir þýska leikskáldið Frank Wede- kind, Ieikrit sem höfundur kallar hæðnislegan barnaharmleik en þetta fullorðinsleikrit mun svo óvenjulega mannað að það fjall- ar nær eingöngu um unglinga. Það er Kristi'n Jóhannesdóttir sem leikstýrir. loa@IT.is s_______________________________) Brynhiidur Guðjóns- dóttir /eikur eitt aðal- hlutverkið í Rent. Hræsnarinn Blair íslenskir jafnaðarmenn hafa ekki þreyst á því að bera lof á vælukjóalegan forsætisráðherra Breta, Tony Blair, sem þeir telja sálufélaga sinn og mikinn leið- toga. Síðustu vikur hefur Blair verið óspar á að hampa sjáifum sér sem miklum réttlætissinna sem þoli ekki órétt og sé reiðu- búinn að leggja ýmislegt í söl- urnar til að hrinda einræðis- herrum úr valdastóli. Réttlætishjal Blairs er píp eitt. Ríkisstjórn hans hefur heimilað leyfi til vopnaútflutnings MENNINGAR VAKTIN Koibrún Bergþórsdóttír skrifar kreljast legur er vopnaútflutning- urinn orðinn að hann slær út verk forvera þeirra, íhaldsflokksins, í þeim efnum. Það er ekk- ert leyndarmál til hvers vopnin eru brúkuð. Indónesíski herinn notar þau til að murka lífið úr Austur-Tímorum, sem í langan tíma hafa háð hetjulega sjálfstæðisbar- áttu. Breska ríkisstjórnin neitar ekki aðeins að þess að Indónesar hverfi til indónesíska hersins, og svo ríf- með herdeildir sínar frá Austui Tímor heldur færir hún Indónesum vopn í hendur til að myrða sak- lausa borgara. Á sama tíma þykist hún sýna djörfung og dug í málefn- um Kosovo. Tony Blair kallar sig jafnaðar- mann og þykist maður með mönn- um meðal þeirra. Auðvitað er hann ekkert annað en enn einn hræsnis- fullur dugleysinginn í hópi þjóðar- leiðtoga heims. Það er vont fyrir jarðarbúa að eiga líf og limi undir verkum valdamanna af þesari teg- und, enda virðist þeim ganga bæri- lega að murka lífið úr meðbræðum sínum. „Tony Blair kallar sig jafnaðarmann og þykist maður með mönnum meðal þeirra. Auðvitað er hann ekkert annað en enn einn hræsnisfullur dugleysinginn íhópi þjóðar- leiðtoga heims."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.