Dagur - 06.05.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 06.05.1999, Blaðsíða 1
Harðar deilur um leikskólaliða Hiti í leikskólakenn- uruni. Skiptar skoð- anir iuii tillögu stjómar um menutun leikskólaliða. Ávísun á atvinnuleysi. Ríkið sparar. Töluverður hiti er meðal leik- skólakennara vegna tillögu Fé- lags íslenskra Ieikskólakennara að félagið beiti sér fyrir því að skipulagt verði hagnýtt háskóla- nám fyrir ófaglærðra starfsmenn leikskóla. Þetta yrði tveggja ára nám með starfi og án stúdents- prófs í stað hefðbundins þriggja ára háskólanáms. Þessir starfs- menn, eða leikskólaliðar, eiga að fá réttindi til að starfa í Ieikskól- um undir stjórn leikskólakenn- ara og yrðu félagsmenn í félagi þeirra. Markmiðið sé að minnka þann gríðarlega skort sem er á leikskólakennurum og álag á þeim sem fyrir eru. A öllu land- inu er talið að það vanti um 2000 leikskólakennara. Ávísun á atvinnuleysi Tillagan hefur valdið miklu róti hjá leikskólakennurum. Innan þeirra raða velta menn því m.a. fyrir sér hvort tilkoma leikskóla- liða muni Ieiða til atvinnuleysis meðal leikskólakennara og þá einkum á Ak- ureyri. Þá sé líka ástæða til að spá í það hvort það kunni að hafa einhverjar af- leiðingar fyrir framlög ríkis- ins til mennt- unar Ieik- skólakennara þegar menntun leikskólaliða kostar kannski 67% af því sem kostar að mennta leikskólakenn- ara. Með því að opna lögin um leikskólakennara sé áleitið hvort ekki sé verið að færa stjórnvöld- um upp í hendurnar stjórntæki til að dreifa leikskólakennurum á milli staða. Þröstur Brynjarsson, varafor- maður Félags íslenskra leik- Hart er nú deilt um nýja starfsstétt leikskólalida. skólakennara, segir að mjög skiptar skoðanir séu um þessa tillögu innan félagsins. Hann telur líklegt að þetta verði hita- mál á 11. fulltrúaráðsþingi fé- lagsins í lok næstu viku. Hann minnir á að fulltrúaráðsþingið sé æðsta vald fé- lagsins og engin hætta á öðru en að félagsmenn muni hlíta lýð- ræðislegum meirihluta við afgreiðslu til- lögunnar án nokkurs eftir- mála. Jóhanna Ein- arsdóttir, skor- arstjóri leik- skólakennaraskorar í Kennara- háskóla Islands, KHI, segir að bæjarfélög hafi verið að velta því fyrir sér hvort KHI og Háskólinn á Akureyri gætu tekið starfsfólk leikskóla í nám, sem sé búið að vinna þar lengi. Hún áréttar hinsvegar að KHI þurfi að fá meira fé til Ieikskólaskorar. I því sambandi bendir hún á að skól- inn geti ekki tekið við nema hluta af þeim sem sækja um Ieik- skólakennaranám í KHI. Fjarlægt markmið I greinargerð með tillögunni kemur fram að í árslok 1997 hafi aðeins 35% starfsmanna leik- skóla verið með leikskóla- kennaramenntun. Þetta hlutfall hefur síðan farið lækkandi síð- ustu ár samfara mikilli uppbygg- ingu leikskóla. Þá hefur einnig reynst erfiðara að ráða ófaglært fólk og margir stoppa stutt með batnandi efnahag. Þetta hefur skapað gífurlega mikið álag i leikskólum og þær raddir verða sífellt háværari að til einhverra ráða verði að grípa. I því sam- bandi hefur verið bent á að men- nta aðstoðarfólk, sem hefur að einhverjum ástæðum ekki að- stöðu til að fara í þriggja ára fræðilegt háskólanám. Ekki sé lengur hægt að einblína á að all- ir sem starfa í Ieikskólum hafi menntun leikskólakennara. Það sé of Ijarlægt markmið. Af þeim sökum þurfi að bregðast við og leita strax annarra leiða. - GRH Sjálfstæðis- mciin styrkjast Niðurstöður úr nýrri raðkönnun Gallups voru kynntar í Ríkisút- varpinu í gærkvöld en þær eru helstar að Sjálfstæðisflokkurinn styrkir stöðu sína en Vinstri- hreyfingin - grænt framboð dalar frá fyrri könnun. Sjálfstæðis- flokkurinn mældist í gær með 43,2%, Frjálsyndir mjakast upp með 3,4%, Framsókn dalar og fær 18%, Samfylkingin mælist með 27,3% og VG-framboðið fær 7,9%. Húmanistar fá 0,2% en önnur framboð mældust ekki. Einnig var spurt um áhuga fólks á stjórnmálum. 40% sögð- ust hafa lítinn áhuga en mark- tækur munur var á kynjunum. Karlar eru áhugasamari en kon- ur og ber mest á pólitískum áhuga meðal karla í VG-fram- boðinu og Frjálslynda flokknum. I úrtaki Gallups voru þúsund manns. Hlutfall óákveðinna var 16,5%. - BÞ % Forseti kvaddur Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, lætur sem kunnugt er af þingmennsku eftir þetta kjörtímabil. í gær héldu starfsmenn Alþingis honum kveðjuhóf og hér má sjá Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóra Alþingis, kveðja Óiaf. Arna Ýrr Sigurðardóttir segir óheppilegt að námið falli niður. Enginn Snm- arháskóli Ekkert verður af starfrækslu Sumarháskólans á Akureyri í ár vegna tímabundinna skipulags- breytinga og óvissu með Ijárveit- ingu. Arna Yrr Sigurðardóttir hefur stýrt Sumarháskólanum undanfarið og segir hún óheppi- legt að námið falli niður eitt ár. Hins vegar sé stefnt að mark- vissara starfi frá og með næsta sumri sem vonandi verði til að efla skólann og laða fleiri nem- endur að. „Framtíð Sumarháskólans tengist stefnumótun Akureyrar- bæjar í atvinnumálum og það liggur enn ekkert fyrir um þá vinnu þannig að við tókum þá ákvörðun að gera hlé í ár, en vinna enn betur að undirbún- ingi fyrir næsta sumar. Skólinn er ennþá við lýði sem slíkur, en það verður engin formleg starf- semi í sumar,“ segir Arna Yrr. Aðspurð hvort óvissa með fjár- veitingar sé þá ekki í raun meg- inástæðan fyrir ákvörðuninni, játar Arna Yrr að svo sé. Hins vegar sé ekki beinlínis hægt að segja að Akureyrarbær hafi ekki viljað styrkja starfið í sumar heldur hafi stefnumótunarvinn- an einfaldlega dregist of lengi. Skólinn muni því einbeita sér að öðrum verkefnum í sumar og uppbygging endurmenntunar- starfsemi sé þar efst á baugi. Óheppilegt Arna Yrr segir að skólinn hafi verið kominn vel inn í vitund al- mennings og það sé óheppilegt að starfið falíi niður. „Það er ekki hægt að reka svona starf- semi þegar biðin eftir Ijárveit- ingum nær langt fram á vor. Við hefðum getað gert það, en starf- ið hefði ekki orðið nægilega markvisst." Sumarháskólinn tók til starfa árið 1997 og hefur námsefnið mikið til tengst listum, menn- ingu og námi fyrir útlendinga. Að hluta til hefur verið um sam- starf að ræða við Listasumar á Akureyri. Vel á annað hundrað manns sóttu Sumarháskólann í fyrra. - bþ Helga Braga og Steinn Ármann í Deiglunni í kvöld, ki 20:30. Lífsgleói og létt stemmning! fstrihreyfingin - grænt rramboð StóLpi - unga fólkið í Samfylkingunni Samfylkingin (Z'99

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.