Dagur - 06.05.1999, Qupperneq 4

Dagur - 06.05.1999, Qupperneq 4
4- FIM M TUDAGU R 6. MAÍ 1999 FRÉTTIR k A Ketilliúsi lokið í emiuti áfanga? Niðurstöður viðræðna fulltrúa Akureyrarbæjar og Gilfélagsins um framkvæmdir í Ketilhúsi eru þær að best sé að kanna vilja bæjaryfir- valda til að ljúka framkvæmdinni allri í einum áfanga. Til að þetta geti orðið verða bæjaryfirvöld að veita 11,6 milljónum króna á næsta ári til að fullklára húsið. Alls er kostnaður við framkvæmdir 21,6 milljónir króna. í kjölfarið á ákvörðunum bæjaryfirvalda um að veita fjármagni til framkvæmda við Ketilhúsið, óskaði Gilfélagið eftir viðræðum um framkvæmdir og ráðstöfun Ijárins. Skipaður var 4 manna vinnuhóp- ur þar sem Magnús Garðarsson og Ingólfur Armannsson störfuðu fyrir hönd bæjarins en Sigurður Jónsson og Þórgnýr Dýríjörð fyrir hönd Gilfélagsins. Hópurinn fór í saumana á kostnaðaráætlun og fyrri hugmyndum á áfangaskiptingu verksins. Fyrir þær 10 milljónir króna sem veitt var til verksins á þessu ári, varð vinnuhópnum ljóst að komast mætti vel áleiðis með aðra hæð hússins sem er aðalrými þess, en þegar hópurinn skoðaði hvernig fjár- munum yrði best varið, kom í Ijós að hagstæðara yrði að fara lengra í verkinu en Ijárveiting leyfði eða Ijúka húsinu öllu í einum áfanga eins og fyrr segir. Vinnuhópurinn mælir með því að framkvæmdatíminn hefjist í október á þessu ári en verklok yrðu í mars árið 2000. - BÞ Skrifstofur okkar verða lokaðar frá kl. 12 fimmtudaginn 6. maí vegna útfarar Rósu Dóru Helgadóttur. Fasteigna- og skipasala Norðurlands og Lögberg ehf. Arnarneshreppur Kjörfundur til alþingiskosninga laugardaginn 8. maí nk. verður haldinn að Freyjulundi og hefst kl. 12.00 og lýkur kl. 20.00. Kjörstjórn Fiskeldi Eyjafjarðar hf. Aðalfundur Fiskeldis Eyjafjarðar hf. verður haldinn föstudaginn 7. maí 1999 kl. 15:30 að Fosshótel KEA, Akureyri. Dagskrá fundarins samkvæmt samþykktum félagsins. Stjórnin. Kenni á Ford Focus Tímar eftir samkomulagi. Útvega námsgögn. ísson ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri Sími 899 9800 Heimasími 462 5692 i/(i Lenging fæðingarorlofsins er eitt afþví sem allir stjórnmálaflokkarnir telja að muni virka vel á atkvæðaveiðum fyrir kosningarnar. Fæðingarorlof vin- sæl „veiðifluga“ Stjðmmálaflokkamir lofa allir lengingu fæðingarorlofs á næsta kjörtímabili frá 9 og upp í 12 mán- uði. Þegar kosningastefnuskrár og kosningaloforð stjórnmálaflokk- anna eru skoðuð kemur i ljós að eitt eiga allir flokkarnir sameig- inlegt, en það er að Iengja og bæta fæðingarorlofið frá því sem nú er. Sömuleiðis að viðurkenna að karlmenn eru líka foreldri með því að leggja til að þeir eigi líka rétt á fæðingarorlofi. Fæðingarorlof er í dag 6 mán- uðir fyrir móður en aðeins tvær vikur fyrir föður. Það er Trygg- ingastofnun ríkisins sem greiðir fæðingarorlofið. Hjá nokkrum stéttarfélögum hefur þó verið samið um viðbótargreiðslur í kjarasamningum, sem atvinnu- rekendur greiða en það er mikill minnihluti starfandi fólks. Móðirin fær greiddan fæðing- arstyrk frá Tryggingastofnun sem nemur 32.000 kr. á mánuði og 40.260 kr. í fæðingardagpen- inga á mánuði, eða samtals 72.260 kr. á mánuði. Faðirinn fær greiddar 16.000 kr. fyrir þessar tvær vikur og fæðingar- dagpeninga upp á 20.130 kr. eða samtals 36.130 kr. á mánuði. Hver býður best? Og nú koma stjórnmálaflokkarn- ir til sögurnnar og segjast allir ætla að stórbæta fæðingarorlofið á næsta kjörtímabili. Samfylkingin leggur á það áherslu í sinni stefnu að bæta stöðu og kjör barnafólks frá því sem nú er. Hún leggur til að fæðingarorlof verði lengt um helming eða í 12 mánuði. For- eldrar megi skipta því á milli sín en þó að sjálfstæður réttur feðra til fæðingarorlofs verði 3 mán- uðir. Vinstri-grænir vilja líka lengja fæðingarorlof upp í 12 mánuði. Sömuleiðis að feðrum verði tryggður hluti af þessum 12 mán- uðum en að rétturinn falli niður ef faðirinn nýtir hann ekki. Þá Ieggur VG til að fæðingarorlofið verði tekið út úr tryggingakerfinu eins og það er nú og að stofnaður verði sérstakur sjóður, sem allir atvinnurekendur greiði í hluta af try'ggingagjaldi. Miðað verði við að greiðslur í sjóðinn verði 'með þeim hætti að sjóðurinn geti stað- ið undir eðlilegum launagreiðsl- um fólks í fæðingarorlofi. Sjálfstæðisflokkurinn býður næst best í fæðingarorlofsmálinu eða 10 mánaða fæðingarorlof á næsta kjörtímabili fyrir foreldra á vinnumarkaði. Sjálfstæðismenn vilja líka að hvoru foreldri um sig verði tryggður réttur til fullra launa í 3 mánuði í fæðingarorlofi. Framsóknarflokkurinn býður minnst í byrjun því hann vill lengja fæðingarorlof í áföngum og að í fyrsta áfanga verði það lengt í 9 mánuði og gert sveigj- anlegra en nú er, þannig að hægt sé að nýta það samhliða hluta- starfi. Sömuleiðis að réttur feðra verði aukinn en ekki tekið fram með hvaða hætti. Samkvæmt þessu ættu verð- andi foreldrar að geta litið björt- um augum til komandi kjörtíma- bils því einhverjir af þessu flokk- um munu stjórna landinu næstu 4 árin. -S.DÓR Tannlaus hælbltur Hörö viðbrögö for- manns VG-framboðs- ins viö pólitískri um fjöllun Stefáns Jóns í Degi. Stemgrímur býst við að veita verði Stefáni Jóni áfaUa- hjálp á kosninganótt. Steingrímur J. Sigfússon vandar Stefáni Jóni Hafstein ekki kveðj- urnar eftir skrif Stefáns í Degi í gær. „Mér hefur oft dottið í hug orðið hælbítur þegar ég hef orð- ið vitni að framgöngu Stefáns Jóns í kosningaharáttunni að undanförnu. I morgun áttaði ég mig á að komið væri nýtt afbrigði af þessu fyrirbæri, þ.e.a.s. tann- laus hælbítur. Orð Stefáns eru bæði marklaus og hitlaus og munu hafa þveröfug áhrif. Ég verð mjög var við að fólki ofbýð- ur þessi framganga hans og reyndar mætti nefna fleiri sem setja sig í þær stellingar að vera Steingrímur J. Sigfússon: Stefán Jón orðinn skítadreifari Samfylk- ingar númer 1. óháðir stjórnmálaskýrendur eða „intelligentar" en kunna svo lítt með þá stöðu að fara. Eg held að það sé ekkert annað framundan en að útvega blessuðum mann- inum áfallahjálp á kosninganótt- ina,“ segir Steingrímur. Skitadreifari Samfylkinjjar I Degi segir Stefán Jón að Stein- grímur hafi rekið spjót í hjarta Samfylkingar og segir um Kol- brúnu Halldórsdóttur, VG-fram- 'j/A fii.YídiWiíI íAl'rj boðinu: „Með því að þingeyskir sauðQárbændur kjósa Steingrím J. senda þeir Iistaspíru og gras- ætu á þing.“ Steingrímur segir: „Það er athyglisvert hlutverk sem Stefán Jón hefur valið sér að vera orðinn óumdeildur skíta- dreifari Samfylkingar númer 1. Ég kippi mér ekki mikið upp við það sem að mér snýr því ég veit að þessir tilburðir Stefáns Jóns, að þvinga íslenska kjósendur til að kjósa ekki eins og þeir vilja heldur hann sjálfur, munu ekki takast. Ég neita því þó ekki að það fauk í mig í morgun þegar ég sá þá hyldýpismannfyrirlitningu svo ekki sé sagt kvenfyrirlitn- ingu, sem lýsir sér í ummælum hans um Kolbrúnu. Ég vænti þess að einhvern tímann á lífs- Ieiðinni eigi Stefán eftir að þroskast þannig að hann hiðji bæði hana og lesendur Dags af- sökunar á ummælum af þessu tagi. Ég get ekki annað en vottað dagblaðinu Degi samúð mína fyrir að vera svo illa haldið að þurfa að hafa pistlahöfunda sem Stefán á sínum snærum." - bþ .i'ö ■ ■7 OÍK/ 'ifmiHitffÍr’,

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.