Dagur - 11.05.1999, Side 1
Fraiiisúkiiarílokkur
tapar forystu sinni í
báðum kjördæmunum
á Norðurlandi, síiiimi
sterkustu vígjum til
þessa. Þar nær Sjálf-
stæðisfiokkur forystu
og VG kemur maimi
að. Þokkalegt gengi
Samfylkiugar.
Framsóknarmenn á Norðurlandi
eru tæpast með hýrri há eftir
kosningar sl. laugardag, en í
báðum kjördæmunum nyrðra
tapaði flokkurinn þeirri forystu í
stjórnmálum sem hann hefur
haft lengi. Bæði á Norðurlandi
vestra og eystra náði Sjálfstæðis-
flokkurinn forystu og fékk kjör-
inn 1. þingmanrt kjördæmanna
beggja, en Framsóknarflokkur-
inn tapaði í þeim báðum manni
yfir til Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs.
Flokkurinn stendur
fyrir stöðugleika
A Norðurlandi eystra fékk Sjálf-
stæðisflokkur 29,9% greiddra at-
kvæða og tvo menn kjörna,
Framsóknarflokkur 29,2% og
einn mann, Vinstrirhreyfingin -
grænt framboð 22,0% og tvo
menn, Samfylkingin 16,8% og
einn mann kjörinn, Fijálslyndi
flokkurinn 1,9% og Húmanistar
0,3%. „Ég fann að staða Sjálf-
stæðisflokksins í kjördæminu
var traust. Flokkurinn stendur
fyrir stöðugleika og Iífskjör í
landinu hafa batnað mikið síð-
ustu ár. Þá hefur flokkurinn
einnig lagt áherslu á uppbygg-
ingu samgangna í kjördæminu
sem og mál Háskólans á Akur-
eyri ,“ segir Halldór Blöndal,
sem náði því að verða 1. þing-
maður Norðurlands eystra, en til
þessa hefur kjördæmið verið eitt
sterkasta vígi Framsóknarflokks-
ins.
Um stjórnarsamstarf kvaðst
Halldór hafa hug á áframhald-
andi samvinnu við Framsókn
enda hefði slíkt stjórnarsamstarf
á nýafstöðunu kjörtímabili lukk-
ast vel. „Ég svara aldrei svona
spurningum," sagði Halldór, að-
spurður um hvort hann herði til-
kall til ráðherraembættis.
Hann sveiflaði til sin fylgi
„Skýringarnar á góðu fylgi okkar
eru meðal annars frábær
frammistaða Steingríms J. Sig-
fússonar í sjónvarpsþáttum þar
sem hann sveiflaði til sín fylgi.
Með derhúfu og sigurmerki. Halldór Blöndal gat ekki veriö annað en ánægður þegar hann fagnaði kosningasigri
Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi eystra. Það var þó ekki fyrr en langt var liðið á nótt sem endanleg úrslit lágu
fyrir og þá brostu Halldór og Kristrún Eymundsdóttir framan I myndavél Ijósmyndara Dags. mynd: -sbs.
En einnig vil ég nefna markvissa
vinnu okkar sem stóð frá því um
áramót,“ sagði Árni Steinar Jó-
hannsson, umhverfisstjóri Akur-
eyrarbæjar, 2. maður á lista VG
sem náði kjöri sem uppbótar-
maður. Hann kvaðst þegar hann
fór út í baráttuna tæpast hafa
gert sér vonir um að ná sæti á Al-
þingi, en þegar líða tók á barátt-
una hefði hann gert sér grein
fyrir því að allt gæti gerst. A Al-
þingi kveðst Arni ætla að leggja
sérstaka áherslu á landsbyggðar-
og umhverfismál, auk ýmissa
velferðarmála.
„Skýringin á slöku gengí okkar
er auðvitað sú að við vorum að
kljást við sigurvegara kosning-
anna, Steingrím J. Sigfússon,"
segir Valgerður Sverrisdóttir, leið-
togi Framsóknarflokksins á Noð-
urlandi eystra. Hún segir kosn-
ingabaráttuna hafa verið harða,
en minnir á að ekki hefði þurft
nema um 50 atkvæði til viðbótar,
þannig að Daníel Amason, 2.
maður á lista, hefði náð inn sem
uppbótarmaður. „Ég lít svo á að
ekki verði hægt að mynda ríkis-
stjórn í landinu nema með þát-
ttöku Framsóknarflokks," segir
Valgerður og telur eðlilegt að
byija á því að ræða áframhaldandi
samstarf við Sjálfstæðisflokk og
gangi það ekki upp sé næst á dag-
skrá að ræða myndun vinstri
stjórnar, þar sem Framsóknar-
flokkurinn yrði forystuafl. „Eðli-
lega geri ég kröfu um ráðherra-
embætti,“ segir Valgerður, að-
spurð um þá hlið mála.
Félagar fagna. Þeir Steingrímur J. Sigfússon og Árni Steinar Jóhannsson
voru hæstánægðir með úrslit kosninganna, enda náðu þeir báðir sæti á
Alþingi fyrir I/G á Norðurlandi eystra.
„í lífsins táradal." Þeim Valgerði Sverrisdóttur og Elsu B. Friðfinnsdóttur var
hreint ekki skemmt þegar þær fylgust með kosningatölum af Norðurlandi
eystra, þar sem Framsóknarflokkurinn galt afhroð og tapaði einum manni.
Foröast ekki ábyrgðina
„Það góða fylgi sem við fengum
þakka ég skynsemi kjósenda, sem
tóku eftir okkar hógværa mál-
flutningi í baráttunni," sagði
Hjálmar Jónsson, oddviti Sjálf-
stæðismanna á Norðurlandi
vestra. Hann sagði að hart hefði
verið sótt að Sjálfstæðisflokknum
í kjördæminu og nefhdi þar fram-
boð Fijálslynda flokksins þar sem
varaþingmaður sjálfstæðismanna,
Sigfús Jónsson, var í forystu. „Ég
geri ekki kröfur um ráðherraemb-
ætti, en forðast ekki ábyrgð sem
slíku fylgir,“ sagði Hjálmar.
A Norðurlandi vestra fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn 31,9% greiddra
atkvæða og tvo menn kjörna,
Framsóknarflokkur 30,3% og
einn mann, Fijálslyndi flokkurinn
3,3%, Húmanistar 0,2%, Sam-
fylkingin 24,8% og einn mann og
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
einn mann, Jón Bjamason, skóla-
stjóra Bændaskólans á Hólum í
Hjaltadal.
Gjöldtun fyrir
stj ómarsamstarflð
„Með þessum úrslitum erum við
framsóknarmenn að gjalda fyrir
stjórnarsamstarfið og ég lít á úr-
slitin sem ákveðin skilaboð frá
kjósendum í þá veru,“ segir Arni
Gunnarsson, 2. maður á lista
Framsóknarflokksins, sem vant-
aði um 100 atkvæði til að ná
sæti á þingi. „Ljósu punktarnir
eru þó þeir að á Norðurlandi
vestra er Framsóknarflokkurinn
í prósentuvís áfram næst stærsti
flokkurinn, kemur næst á eftir
kjördæmi formanns okkar. Þá
má segja að það fylgi sem við
fengum hér en nýttist okkur ekki
hafi orðið til að Hjálmar Arna-
son hélt, með uppbótafylgi af
Norðurlandi vestra, sæti sínu
sem þingmaður Beyknesinga. Ég
vænti þess að hann verði góður
fulltrúi okkar á þingi."
„Ég er hæfilega ánægður með
úrslitin. Undir lok baráttunnar
þóttist ég þó sjá að Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi meira fylgi en
Framsóknarflokkurinn sem myndi
þá tapa öðrum manni sínum.
Þetta gekk allt eftir og VG kom
manni að, þó sárgrætilega lítið
vantaði uppá að 2. maður á lista
Samfylkingarinnar hér, Anna
Kristín Gunnarsdóttir, kæmist að
sem uppbótarmaður," segir Krist-
ján Möller, nýkjörinn þingmaður
Samfylkingarinnar á Norðurlandi
vestra, sem kveðst á Alþingi eink-
um ætla að beita sér að byggða-
málum. „Það ræðst af því hvaða
skilaboð Framsóknarflokkurinn
les út úr niðurstöðum kosning-
anna hvemig ríkisstjóm verður
mynduð, ef flokkurinn les þá
nokkuð," segir Kristján ennfrem-
ur. -SBS.
j