Dagur - 11.05.1999, Blaðsíða 4
4 - ÞRIÐJUDA G UR 11. MAÍ 1999
AKUREYRI - NORÐURLAND
Sverrir Bi ömsson
yfirge
„Samningurinn við Aftureldingu var nánast kominn í tand, en si/o þegar ég fór að meta stöðuna almennilega þá
komst ég að því að ég hefði eiginlega ekkert þar að gera, “ segir Sverrir Björnsson.
Sverrir Björns-
son er einn
þeirra Ieik-
manna sem
handknatt-
leikslið KA þarf
að sjá á eftir til
höfuðborgar-
svæðisins fyrir
komandi tíma-
bil. Sverrir hefur
verið lengi í eldlínunni hjá KA, en
hann kom upp úr yngri flokkum
félagsins. Nýverið var hann valinn
í landslið Islands og Ijóst er að
hann á framtíðina fyrir sér í hand-
knattleik, þar sem hann er aðeins
á tuttagasta og öðru aldursári. En
fyrir þremur árum virtist ferli
Sverris vera Iokið.
„Eg Ienti undir lyftara og læknar
tjáðu mér það fljótlega að ég ætti
ekki að gera mér neinar miklar
vonir um að spila aftur. En ef
maður heldur vel á sinum málum
og hefur trú á að maður komist
aftur á völlinn er allt mögulegt,"
sagði Sverrir. Þrátt fyrir þetta erf-
iða tímabil, þar sem ekki var Ijóst
hvort að Sverrir myndi spila hand-
knattleik aftur, er hann kominn í
fremstu röð í íþrótt sinni og eins
og áður sagði farinn að banka á
dyr landsliðsins.
Á leiðinni til HK
Þegar ljóst var að Sverrir væri á
leiðinni suður til náms, voru
mörg lið sem sýndu honum
áhuga, þar á meðal voru lið eins
og FH, Fram og Afturelding.
„Samningurinn við Aftureldingu
var nánast kominn í land, en svo
þegar ég fór að meta stöðuna al-
mennilega þá komst ég að því að
ég hefði eiginlega ekkert þar að
gera. Þeir eru þarna með tvo
mjög sterka leikmenn í minni
stöðu og mér fannst það of mikið
af hinu góða.“
Að lokum tók Sverrir ákvörðun
um að Ieika með HK á næsta
tímabili. „Ég tel það vera mjög
fysilegan kost að spila með HK.
Sigurður Sveinsson er ein ástæð-
an fyrir þessari ákvörðun, þar
sem það myndast alltaf skemmti-
Iegur mórall í kringum hann.
Auk þess er liðið mjög ungt með
baráttuglaða einstaklinga innan-
borðs, og góður andi ríkir hjá lið-
inu. Einnig er á leiðinni örvhent-
ur Tékki sem mun styrkja liðið til
muna.“
Þrátt fyrir að spennandi tími sé
framundan yfirgefur Sverrir Ak-
ureyri með trega í huga. „Það er
alltaf þroskandi að takast á við
nýjar aðstæður og nýtt umhverfi
en þrátt fyrir það er alls ekki auð-
velt að fara frá Akureyri. Hér er
maður búin að byggja upp mik-
inn vinskap og stjórn deildarinn-
ar er til dæmis búin að standa
með mér eins og klettur í gegn-
um allt. Maður stendur í þakkar-
skuld við marga aðila hjá KA,
sem ekki er hægt að telja upp
hér, en þeir vita hverjir þeir eru.“
Þýskaland heillar
Þegar Sverrir er spurður um
framtíðina berst atvinnumennsk-
an strax í tal. Samt sem áður
gengur námið fyrir. „Stefnan
núna er náttúrulega að klára
skólann hérna heima. Það er
hins vegar alltaf draumur að
komast út í atvinnumennskuna
og geta fengið tækifæri þar.
Þýskaland heillar alltaf, en ann-
ars er allt jafn spennandi í þessu
sambandi. Ef maður nær að
halda heilsunni í lagi er einnig
stefnan að tryggja sig í landslið-
inu, en það kostar mikla sam-
keppni og vinnu. Það eru til
dæmis margir ungir og efnilegir
leikmenn að koma upp en maður
verður bara að vera betri en þeir."
Þjálfarar
viitfri
KA og Þór hafa ráðið þjálfara
yngri flokka fyrir sumarið.
Björn Björnsson þjálfar 6., 5. og
4. fl. stúlkna en þessir þjálfa
drengina:
7. fl. Slobodan Milic og
Dean Martin
6. fl. Hlynur Jóhannsson
5. fl Jóhann Steinarsson
4. og 3. fl. Jón Pétur
Róbertsson
2. fl Nói Björnsson
Hjá Þór er talsvert annað fyr-
irkomulag á þjálfun yngri flokk-
anna, en þar var ráðinn hópur
þjálfara fyrir alla flokka. Hver
flokkur hefur hins vegar ábyrgð-
armann og þeir eru þessir:
7. fl dr. Jónas Sigursteinsson
og Páll Gíslason
6. fl.dr. Jóhannes Karl
Sigursteinsson
5. fl dr. Páll Gíslason
4. og 3. fl. dr. Magnús Þór
Jónsson
6. og 5. fl. kv. Jónas Sigur-
steinsson
4. fl. kv. Jóhannes Karl Sigur-
steinsson og Orri Hjaltalfn
Þór hefur einnig ráðið aðstoð-
arþjálfara fyrir alla flokka, en
það er Sigurður Freyr Sigurðs-
son. Ekki hefur enn verið ráð-
inn þjálfari fyrir 3. fl. kv. -AÞM
Búnaðar-
bankamótið
Norðurlandsmóti Búnaðarbank-
ans var fram haldið í vikunni og
eru línur talsvert farnar að skýr-
ast. Sigurvegar riðlanna tveggja
mætast svo í úrslitaleik, en ekki
er víst hvenær eða hvar hann fer
fram. Tveir leikdagar koma til
greina, miðvikudagurinn 12.
maí kl. 20 og fimmtudagurinn
13. maf kl. 14, en það ræðst af
því hvaða lið komast í úrslita-
leikinn, hvar og hvenær hann
fer fram. Eftirfarandi eru úrslit
vikunnar:
A-riðilI:
Dalvík - Þór 0-2
Tindastóll - Hvöt 6-1
Magni - Dalvík 0-2
Hvöt - Þór 0-3
Tindastóll - Magni B-riðiII: 1-1
KS - Nökkvi 2-1
Völsungur - Neisti 1-1
KA - Neisti 2-2
Nökkvi - Völsungur 0-2
Völsungur - KS 2-4 -AÞM
Leiftur í uiidaii
úrslit
Knattspyrnulið Leifturs frá
Ólafsfirði mætir Fylki í undan-
úrslitum deildarbikarsins í kvöld
á Fylkisvelli. Leiftursmenn hafa
aldrei komist svo langt í keppn-
inni en eins og frægt er orðið,
unnu þeir frækinn sigur á liði
KR í áttaliðúrslitum.
Þorsteinn Þorvaldsson, for-
maður knattspyrnudeildar Leift-
ur, sagði leikinn leggjast vel í
sína menn. „Leikurinn verður
langt frá því að vera auðveldur
þar sem við höfum alltaf átt í
erfiðleikum með lið Fylkis, þótt
að við séum í efstu deild en þeir
í fyrstu. Þeir eru með öflugt lið,
sem erfitt verður að leggja að
velli Leikurinn leggst samt sem
áður vel í okkur og eins og alltaf
stefnum við á sigur.“-AÞM
„Góð og miMl-
væg reynsla“
Atli Sveiirn Þórarins-
son í æfingaferð til
Örgryte. Tímabilið
hjá KA í sumar í fyr-
irrúmi.
Atli Sveinn Þórarinsson, knatt-
spyrnumaðurinn ungi og efni-
legi í KA, dvaldi nýverið hjá
sænska liðinu Örgryte í Svíþjóð.
Um var að ræða æfingaferð, svo
KA-menn þurfa ekki að sjá eftir
Atla, í það minnsta að sinni, en
hann hefur verið mjög mikil-
vægur hlekkur í Iiði KA undan-
farið.
„Ferðin var fyrst og fremst æf-
ingaferð og var mjög góð sem
slík. Ég æfði þarna sjö sinnum á
átta dögum, bæði með aðallið-
inu og unglingaliðinu," sagði
Atli. „Þetta var fyrst og fremst
mjög góð og mikilvæg reynsla og
það var mjög gaman að sjá
hvernig alvöru fótbolti var spil-
aður í atvinnumannadeild.
Harkan og hraðinn var allt ann-
ar, til dæmis lögðu allir sig
hundrað prósent fram á öllum
æfingum, ólíkt því sem vill oft
verða hér heima. Menn verða
virkilega að berjast fyrir sæti
sínu.“
Ekki er víst að Atli muni fara
aftur út til Örgryte, en forráða-
menn félagsins munu fylgjast
grannt með leiktíðinni hér
beima, þar sem KA stefnir á að
endurheimta sæti sitt í efstu
Ég æfði þarna sjö sinnum á átta
dögum, bæði með aðalliðinu og
unglingaliðinu, “ sagði Atli.
deild. „Ég mun fyrst og fremst
einbeita mér að deildinni hér
heima í sumar, en í framtíðinni
stefni ég, líkt og örugglega allir
ungir knattspyrnumenn, á at-
vinnumennsku," sagði Atli að
lokum. AÞM
Anðri Pór
Magnússon
skrifar