Dagur - 11.05.1999, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 - 3
AKUREYRI NORÐURLAND
Hér má sjá eigendur nýja gámafyrirtækisins þá Hreiöar Gíslason, Gunnar Malmquist, Kristján Berg Árnason og
Kristján Júlíusson.
Kenni á ^>OJS
Tímar eftir
samkomulagi
Ingvar Björnsson
ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri
Sími 899 9800 Heimasími 462 5692
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri, s: 462 6900
Samkeppni á sorp-
gámamarkaómmi
Samkeppni er orðin í losun og
leigu sorpgáma á Eyjafjarðar-
svæðinu, en nýlega tók til starfa
fyrirtækið Gámaþjónustan á Ak-
ureyri sem er í eigu Kristjáns
Bergs Arnasonar, Gunnars
Malmquist, Kristjáns Júlíussonar
og Hreiðars Gíslasonar. Um
nokkurra ára skeið hefur Gám-
þjónusta Norðurlands nánast
verið einráð á markaðnum.
Auk gámaþjónustunnar býður
Gámaþjónustan á Akureyri
einnig margar stærðir af plast-
körum á hjólum sem eru þægileg
til notkunar innanhúss sem og
sorptunnur. Samið hefur verið
við Dalvíkurbyggð um sorplosun.
Hreiðar Gíslason segir að nægur
markaður sé fyrir tvö fyrirtæki á
Eyjafjarðarsvæðinu og því horfi
eigendur með bjartsýni til fram-
tíðarinnar. - GG
Veik von um
Sumarháskóla
Bæjarstjóri ræðir við
Háskólann vegna lok-
iiriar Sumarháskól-
ans. Einhver mis-
skilningur á ferðinni?
Valgerður Hrólfsdóttir, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks á Akureyri,
spurðist á síðasta bæjarráðsfundi
fyrir um starfsemi Sumarháskól-
ans „vegna frétta í Degi" eins og
segir í bókun bæjarráðs. Valgerð-
ur las þar um hlé á störfum Sum-
arháskólans í ár en hún er ekki
sátt við þá ákvörðun og hefur
veika von um að einhver starf-
semi geti orðið á vegum skólans í
sumar. Forstöðumaður skólans
staðhæfði hins vegar í Degi að
ljóst væri að engin starfsemi yrði
næsta sumar, m.a. vegna skipu-
lagsbreytinga og fjárvöntunar.
„Eg er mjög ánægð með störf
Sumarskólans og þess vegna
Valgerður Hrólfsdóttir, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks: Það voru fleiri
en ég sem komu af fjöllum.
vakti þessi frétt furðu mína. Ég
vildi fá skýringu á því af hverju
skólinn starfar ekki í sumar og
það voru fleiri en ég sem komu af
fjöllum eftir að hafa lesið þessa
frétt. Atvinnumálanefnd Akur-
eyrarbæjar hefur styrkt sumarhá-
skólann en starfsemin hefur ekki
eingöngu verið á vegum Akureyr-
arbæjar. Bæjarstjóra var falið að
skoða þetta mál,“ segir Valgerð-
ur.
Valgerður segir það vekja furðu
að þessar fregnir berist fyrst
núna í maí. Menn hefðu betur
áttað sig fyrr, þ.e.a.s. strax þegar
fjárhagsáætlun var gerð. „Ef
ákveðin forvinna hefur verið
unnin, væri mjög æskilegt að
einhver starfsemi yrði í sumar
þótt hún yrði e.t.v. ekki jafnmikil
og í fyrra. Ég vonast til þess að
svo fari en ég geri mér fulla grein
fyrir því að fólkið í háskólanum
hristir þetta ekki fram úr
erminni. Það er einhver mis-
skilningur á ferðinni og ég vil
fyrst og fremst vera vakandi yfir
stöðunni. Vonandi verða viðræð-
ur bæjarstjóra við Háskólann til
þess að eitthvert starf verði unn-
ið í sumar,“ segir Valgerður. - BÞ
Hagnaður hjá Kaupfélagi V- Hún.
Kaupfélag Húnvetn-
inga og Sölufélag
Anstur-Himvetninga
rekin med tölnverði
tapi. Ýtir undir áform
inii sameiningu af-
urðadeUda SAH, KÞ
og KEA og jafnvel
verslana félaganna.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga á
Hvammstanga var rekið með 8
milljóna króna hagnaði á árinu
1998. Söluhagnaður eigna nam
17 milljónum króna svo tap varð
af reglulegri starfsemi. Skuldir
KVH lækkuðu um 17 milljónir
króna milli áranna 1998 og 1997
en samdráttur var í sölu um 30%.
Sláturhús og kjötvinnsla KVH
var selt á árinu til Norðvestur-
bandalagsins, sem er sameign
nokkurra kaupfélaga, þ.ám.
KVH, og þar er að finna að hluta
til ástæðu samdráttar í sölu.
Minnkun í sölu verslunardeilda
stafar að mestu af minni áburð-
arsölu og að gasolíusala tilheyrir
umboðssölu. Heildarsala mjólk-
ursamlagsins hækkaði hins vegar
um nær 10%. .,
Kaupfélag Húnvetninga á
Blönduósi var rekið með 13
milljóna króna tapi en Sölufélag
Austur-Húnvetninga með 26
milljóna króna tapi. Skýringa á
tapi KH má að hluta til leita til
mjög hárra afskrifta en rekstur
sláturhúss SAH er mjög erfiður,
eins og margra fleiri sláturhúsa
víða um land. Þessi rekstrarnið-
urstaða ýtir væntanlega undir
áform um að sameina afurða-
deildir SAH, Kaupfélags Þingey-
inga og Kaupfélags Eyfirðinga.
Einnig gæti það leitt til samein-
ingar um verslunarrekstur, en
rekstur verslana KEA og KÞ var
.sameinaður 1. maí sl. - GG
UPPB0Ð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, Ak-
ureyri, sem hér segir á eftirfarandi
eignum:
Bárugata 4, Dalvík, þingl. eig. Guð-
rún Snorradóttir og Halldór Reim-
arsson, gerðarbeiðendur íbúða-
lánasjóður og Sýslumaðurinn á Ak-
ureyri, föstudaginn 14. maí 1999 kl.
10:00.______________________
Berghóll 2, 010101, íb á 1. hæð,
Glæsibæjarhrepp, þingl. eig. Davíð
Gíslason, gerðarbeiðandi íbúða-
lánasjóður, föstudaginn 14. maí
1999 kl. 10:00.
Frostagata 3B, B og C hl. 3 sper-
rub., Akureyri ásamt vélum, tækj-
um og iðnaðaráh., þingl. eig. Bila-
réttingar og málun ehf, gerðarbeið-
endur Akureyrarkaupstaður og Fjár-
festingarbanki atvinnul hf, föstudag-
inn 14. maí 1999 kl. 10:00.
Geislagata 10, ib 010201, Akureyri,
þingl. eig. Geislagata ehf, gerðar-
beiðandi Sýslumaðurinn áAkureyri,
föstudaginn 14. maí 1999 kl. 10:00.
Helgamagrastræti 12, 02 íb á 2
hæð, Akureyri, þingl. eig. Halldóra
Kristjánsdóttir og Flosi Jónsson,
gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður,
föstudaginn 14. maí 1999 kl. 10:00.
Litla-Eyrarland, landspila undir
sumarbústað, eignarhluti, Eyjafjarð-
arsveit, þingl. eig. Gylfi Aðalsteins-
son, gerðarbeiðandi Tollstjóraskrif-
stofa, föstudaginn 14. maí 1999 kl.
10:00.
Lækjargata 18, Akureyri, þingl. eig.
Jóhann Grétar Jóhannesson, gerð-
arbeiðandi íbúðalánasjóður, föstu-
daginn 14. maí 1999 kl. 10:00.
Munkaþverárstræti 11, Akureyri,
þingl. eig. María Ingunn Tryggva-
dóttir, gerðarbeiðandi Akureyrar-
kaupstaður, föstudaginn 14. maí
1999 kl. 10:00.
Skógarhólar 24, Dalvík, þingl. eig.
Guðbjartur Ellert Jónsson, gerðar-
beiðandi íbúðalánasjóður, föstu-
daginn 14. maí 1999 kl. 10:00.
Svarfaðarbraut 32, Dalvík, þingl.
eig. Vignir Þór Hallgrímsson, gerð-
arbeiðendur Dalvíkurkaupstaður,
íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður
Norðurlands, föstudaginn 14. maí
1999 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
10. maí 1999.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
Með hverjum notuðu
bíl á sumartilboði .
fylgir geislaspilari,-*
á notuðum bílum
mcð alvöru afslætti
A Þú kemur og serriur
Opið virka daga kl. 9-18 og laugar&aga kl.
BIL'AHUSIÐ
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bilheima) Sævarhöföa 2 -112 Reykjavik
Símar: 525 8096 * 525 8020 • Símbréf 587 7605 • Tölvupóstur gusi@ih.is