Dagur - 11.05.1999, Qupperneq 2

Dagur - 11.05.1999, Qupperneq 2
2 — ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 19 9 9 D^ur AKUREYRI NORÐURLAND i. Súpaí brauði Bærinn ræðir við áhuga- hóp vegna listahátíóar Eigendur telja að þeir séu með heimilis- vænna hakarí, m.a. með því að vera með uppskriftir frá full- orðnum konum, jafn- vel ðmmu gömlu. Bakaríið við brúna, heitir nýtt bakarí sem opnað hefur verið á Akureyri, en það er staðsett á at- hafnasvæði fyrrum Iðnaðardeild- ar SIS, skammt frá einni af brúnum yfir Glerá. Þetta er handverksbakarí sem ekki selur sína framleiðslu til matvöru- verslana, heldur aðeins í sinni eigin verslun. I versluninni er einnig veitingastaður, Brúar- kaffi, þar sem hægt er að fá sérmalað kaffi ásamt meðlæti og í hádeginu verður auk þess hægt að fá súpu í brauði. „Við erum að reyna að fara inn á það að vera með heimilisvænna bakarí, m.a. með því að vera með uppskriftir frá fullorðnum kon- um, jafnvel ömmu gömlu, og ég vona að það muni falla vel í Bakaríið við brúna er handverks- bakarí sem ekki selur sína fram- leiðslu til matvöruverslana, heidur aðeins í sinni eigin verslun. í versl- uninni er einnig veitingastaður, Brúarkaffi, þar sem hægt er að fá sérmalað kaffi ásamt meðlæti og í hádeginu verður auk þess hægt að fá súpu í brauði. kramið hjá viðskiptavinum okk- ar,“ segir Andrés Magnússon, einn eigenda Bakarísins við brúna, en hann starfaði áður hjá Brauðgerð KEA, sem seld hefur verið til Brauðgerðar Kr. Jóns- sonar. Aðrir eigendur eru Sigurð- ur Ingvi Hrafnsson, sem einnig starfar við bakaríið, og Sigurður Sigurðsson og Jörundur Trausta- son. Handverksbakarí er bakarí þar sem það tekur allt að sólarhring að laga sum brauðin í stað tveggja til þriggja tíma þar sem notuð eru ýmiss aukaefni, eins og stundum gerist í þeim bakarí- um þar sem um fjöldafram- leiðslu er að ræða, þ.e. ferska vöru án aukaefna. Aukaefnin valda því hins vegar að þau brauð mygla mun síðar. GG Þvottahúsið Glæsir Skógarhlíð 43, 601 Akureyri fyrir ofan Byggingavörudeild KEA Tökum alhliða þvott ____ allt fró útsaumuðum dúkum tv og gardínum til vinnu- og 461-1735 og 461-1386 skíðagalla Opið frá 12-18 virka daga Sœkjum - sendum Trésmiðir, trésmiðir Trésmiðir óskast til starfa á Keflavíkurflugvelli og nágrenni. Mikil vinna, góðir tekjumöguleikar og frí gisting. Upplýsingar veittar í símum: 420-4213, 899-6891, 420-4233, 893-5607. íslenskir aðalverktakar hf. Endurfundir Holtabúa Þeir sem bjuggu og áttu heima í Stangarholti, Stórholti Meðalholti, Einholti, Þverholti, Skipholti, Nóatúni og á Háteigsvegi á árunuml940 - 1970 ætla að hittast og rifja upp gömlu góðu kynnin. Staður og stund: Versalir (áður Gullhamrar), Iðnaðarmannafélagshúsinu, Hallveigarstíg 1, laugardaginn 15. maí nk. kl. 21-03. Til skemmtunar: Við sjálf og frjáls dagskrá í höndum Holíakrakkanna. Landsfrægir söngvarar úr Holtunum stíga á stokk o. fl. Snillingarnir leika fyrir dansi. Veislustjóri: Pórður Sigurgeirsson. Miðaverð: Sama og var fyrir tveim árum, kr. 1.500. Miðasala hefst fimmtudaginn29. apríl í TVé-List, Engjateigi 17. Opið á venjulegum verslunartíma. Einnig verður miðasala við innganginn þann 15. maí. Hittumst öll 15. maí og endurlifum æskubrekin og kvöldið fyrir tveimur árum. Undirbúningsnefndin. Margt óljóst varðandi ósk Pálma Gunn og fé- laga imi emkarétt á Listahátíð á Akureyri árið 2000. Skoðað verður á uæstuuui hvað felst í ósk félag- auna. Formaður menningarmálanefnd- ar Akureyrarbæjar og fræðslu- stjóri bæjarins hafa ákveðið að ræða við áhugamenn um árlega Listahátíð á Akureyri frá og með árinu 2000. Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður er einn áhuga- manna um öfluga listahátíð á Ak- ureyri. Hann ásamt tveimur öðr- um hafa bréflega falast eftir „andlegum stuðningi" bæjarins við hugmyndina. Þeir hyggjast reka hátíðina sem sjálfstætt fyrir- tæki og vilja einkaleyfi á heitinu „Listahátíð á Akureyri". Þröstur Ásmundsson, formað- ur menningarmálanefndar, segir Þröstur Ásmundsson, formaður menningarmálanefndar Akureyrar- bæjar, spyr hvort bærinn geti dreift mórölskum stuðningi sínum við listalífið. að vert sé að kynna sér nánar hugmyndir áhugahópsins en margt sé ennþá óljóst. „Ut af fyr- ir sig finnst mér framtakssemin fínt mál, en þarna er talað um einkaleyfi og við þurfum að skoða hvað það þýðir. Ef þessir menn ætla sjálfir að standa fyrir einhverjum uppákomum á eigin reikning, er ekkert nema gott um það að segja,“ segir Þröstur. Þröstur telur allt eins grund- völl fyrir því að fá fremsta lista- fólk heimsins til Akureyrar eins og til Reykjavíkur en það verði þó að gerast á réttum árstíma. Hann bendir einnig á að skoða verði þessa hugmynd í samhengi við Listasumar á Akureyri og hug- myndir um Listahátíð Islands, sem rætt hefur verið um að hefj- ist árið 2001. „Ef þeir hafa metn- aðarfyllri hugmyndir en komið hafa fram á Listasumri hér, þarf að kíkja betur á það. Það þarf einnig að skoða beiðni þeirra um móralskan stuðning. Er hægt að dreifa slíkum stuðningi eða er hægt að veita öllum hann? Þess- um spurningum munum við leit- ast við að svara á næstunni," seg- ir Þröstur. - BÞ Nýr náttúrufræði- salur á Akureyri Mun stórefla ferða- þjónustu á Akureyri að mati forstöðu- mairns. Bæriim biiiim að veita íjárveitiiigar- samþykki en ákvörð- unar ríkisins er beðið. Jón Gunnar Ottósson, forstöðu- maður Náttúrugripasafns Is- lands, átti í gær fund með bæjar- stjóranum á Akureyri vegna stofnunar og rekstrar nýs sýning- arsalar á Akureyri. Núverandi salarkynni í Hafnarstræti 81 hafa hvergi verið fullnægjandi fyrir sýningaraðstöðu, en óljóst er ná- kvæmlega hvenær nýr salur verð- ur tekinn í notkun. Hann verður staðsettur í verslunar- og skrif- stofuhúsnæðinu Krónunni í hjarta bæjarins. „Þetta mál er búið að vera lengi á teikniborðinu og það má segja að nú hilli undir málalok. Samningaviðræður hafa farið fram milli bæjarins og ríkisins Jón Gunnar Ottósson, forstöðu- maður Náttúrugripasafns íslands, segir brýnt að fá nýjan sýningarsal á Akureyri. um uppbyggingu salarins og rekstur. Bæjarráð er búið að samþykkja ákveðna tilhögun en boltinn er hjá Guðmundi Bjarna- syni ráðherra. Hann er ekki bú- inn að taka ákvörðun fyrir hönd ríkisins," segir Jón Gunnar. Jón Gunnar segir brýnt að fá nýjan sýningarsal á Akureyri. Þegar samningar hafi verið gerð- ir á sínum tíma um yfirtöku Náttúrufræðistofnunar Islands á Náttúrufræðistofnun Norður- lands og flutningi veiðistjóra norður, hafi verið áskilið að Nátt- úrugripasafnið yrði fært, stækk- að og eflt. „Það hefur í raun aldrei verið Iokið við þennan hluta pakkans." Eflir ferðaþjónustu Ef allt gengur að óskum verður opnun salarins að veruleika næsta ár. Salurinn er 335 fer- metrar og Jón Gunnar segir um- skiptin gríðarleg frá því sem nú er. „Við erum að tala um nútíma- legt safn sem myndi ekki aðeins höfða til ferðamanna heldur skólanna og fleiri aðila einnig. Hugmyndin er að byggja upp sýningu á náttúrufari norður- slóðar og hún tengist flutningi á alþjóðlegum skrifstofum til Akur- eyrar. Eg er ekki í vafa að þessi skref myndu verulega efla ferða- þjónustuna í bænum,“ segir Jón Gunnar. - BÞ SKOÐANIR BRYNJÓLFS Fyrstur með uppgötvun Á leið minni um verslun Hag- kaups hitti ég fyrir mann sem tjáði mér að hann hefði gert upp- götvun fyrstur manna og virtist hann einmitt mjög ánægður með að hafa verið fyrstur í því. Mað- urinn heitir Jón Guðlaugsson, Ianghlaupari á áttræðis aldri og vanur að reyna að vera fyrstur. Uppgötvun hans var sú „að mað- urinn væri fullþroska api“. Margt í fréttum af hegðun mannsins styður þessa kenningu Jóns þó ýmislegt jákvætt í hegðun hans hreki hana líka. Jón kvaðst hafa hlaupið úr Lækjargiii á Akureyri að Bægisá á Þelamörk og til baka. Vegalengdin er fjörutíu kílómetrar. Hundur sem var í Iausagöngu í Gilinu hændist að Jóni og elti hann alla þessa leið. Hann sagðist hafa haldið um tíma að hundurinn ætlaði eldd að hafa það en hann skilaði sér heim eins og Jón. Ekki geta verið mildar æðastíflur í þeim félög- um.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.