Dagur - 01.06.1999, Síða 9

Dagur - 01.06.1999, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999 - 9 8 - ÞRIDJUDAGUR 1 . JÚNÍ 19 99 FRÉTTASKÝRING „Það myndast einhver kaupæðisstemmning og fólk fer oftar en ekki afstað án þess að hafa raunveruiega efni á að fjárfesta í nýjum bílum. Neyslulán eru dýr lán þótt auðvelt sé að verða sér út um þau, “ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Forstöðmnaðirr ráð- gjafarstofu imi fjár- mál heimilaima gagn- rýnir reglur um bíla- lán. Margir skjólstæð- ingar fara illa út úr bj art sýniskaupum. Eldri bílar hríðfalla í verði. Fjórfaldur inn- flutningur frá 1994. „Bflaveislan" heldur áfram hjá innflytjendum. Rúmlega 6.300 nýir bílar voru seldir frá áramót- um til aprílloka, borið saman við tæplega 4.600 í fyrra. Þetta er næstum 40% fjölgun milli ára og 64% fjölgun miðað við janúar- apríl f góðærinu 1997. Haldi fjölgunin áfram á sama hraða það sem eftir er ársins má búast við að 23.000 nýir bílar bætist í flota landsmanna á þessu síðasta ári tuttugustu aldarinnar. Það gæti þýtt allt að 35 milljarða til bíla- kaupa á árinu, ef miðað væri við 1,5 milljóna meðalverð á bíl. Fróðlegt er Iíka að líta aðeins aftur fyrir góðærin, t.d. til ársins 1994. Innan við 6.300 bílar voru þá seldir á árinu öllu - þ.e. held- ur færrí heldur en nú á aðeins íjórum mánuðum. I ár gætu nýju bílarnir þannig orðið um fjórum sinnum fleiri en í kreppunni fyrir fimm árum. Ahrif þessa verða óneitanlega eignatap og afföll hjá eigendum notaðra bíla. Sumir ganga svo langt að segja að vonlítið sér orð- ið að selja bíla sem eru 5-6 ára eða eldri. Eina leiðin sé að láta gamla bílinn upp í nýjan, en því fylgja lántökur og hætta á að neytendur reisi sér hurðarás um öxl. Ofþensla getur fylgt í kjölfar- ið. Hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna segir Elín Sigrún Jónsdóttir forstöðumaður, að þar á bæ hafi menn ekki farið var- hluta af offjárfestingum í bílum og of þungri greiðslubyrði. „Vissulega er orðið mjög algengt að há bílalán séu hluti fjárhags- legra erfiðleika hjá því fólki sem hingað kemur. Við sjáum glögg- lega á síðari tímum að í langflest- um tilvikum eru bílalán inni í umsóknum fólks,“ segir Elín Sig- rún. Verður að skoða þennan markað Einhvern veginn verður að bregð- ast við að hennar mati. Hún bendir á að í fasteignaviðskiptum sé greiðslumatið uppi á borðinu í bankakerfinu en í bílaviðskiptum séu aðilar á eftir. „Þeir eru ekkert að horfa á raunverulegt greiðslu- mat heldur bara veðið í bílnum, en í mörgum tilfellum held ég að sú trygging sé ekki nægileg. Bíl- arnir fara á lægra verði og veð- hæfnin verður ekki næg. Svo má einnig benda á að foreldrar og fjölskyldur ganga mjög oft í ábyrgð fyrir ungt fólk sem kaupir bíla í dag. Það er ljóst að þau sjónarmið sem almennt gilda hjá bönkunum í dag eru ekki ríkjandi í þessum viðsldptum. Ábyrgðar- mönnum hefur fækkað í banka- kerfinu þannig að ég held að það þurfi virkilega að skoða þennan markað," segir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heim- ilanna. Hið besta mál Bílasalar segja á hinn bóginn að mikil endurnýjun og ynging flot- ans sé hið besta mál og Iöngu tímabær. „Ég get ekki tekið undir að það sé ekki hægt að selja not- aða bíla lengur. Hitt er annað að þessi gríðarlegi innflutningur veldur því að bílar sem ekki eru Iánshæfir, ‘94 bílar og eldri, eru farnir að þyngjast verulega. Þessa bíla höfum við kallað skólabíla en þeir eru bara að detta út af mark- aðnum og á leiðinni í endur- vinnsluna. Þetta er hins vegar bara eðlileg þróun og jákvæð,“ segir Jóhann Jóhannsson hjá bíla- sölunni Evrópu. Jóhann viðurkennir að hægt sé að tala um nokkurt eignatap hjá eigendum eldri bíla nú, miðað við ástandið eins og það var fyrr á tímum. Á móti komi verðlækkun á bílum í heild og hann bendir á að hægt sé að gera verulega góð kaup núna í 2ja til 4ra ára bílum. .Áíföllin eru meiri og eðlilegri. Við erum farin að nálgast það ástand sem er í nágrannalöndun- um. Sjóræningjana burt! Samkeppni bílasala hefur senni- lega aldrei verið harðari og spá manna er að þeim muni fækka frá því sem nú er. Segja má að 6- 10 bílasölur hafi yfirburði á höf- uðborgarsvæðinu en minni aðilar eru Ijölmargir. Aukin áhersla hef- ur verið lögð á auglýsingar í þessu sambandi og einnig má nefna söluþjónustu þar sem boðið er upp á þrif og fleira. „Fólk lætur ekki lengur bjóða sér drullu- skítuga bíla úti á plani og ég spái því að bílasölunum fækki en þær verði stærri og bjóði enn aukna þjónustu. Við bljótum að vona að „sjóræningjabissnessinn" hverfi úr faginu. Fólk verður að geta treyst að þessir hlutir séu í lagi,“ segir Jóhann. Bílakaup nútímans eru að lang- mestu leyti fjármögnuð með lán- um. Jóhann segir að um 75% við- skipta hjá Evrópu séu í gegnum fjármögnunarsjóði. Seljandinn fær alltaf sína staðgreiðslu þótt ekki komi hún endilega úr vasa kaupandans heldur fjármála- stofnunar. Umhverfisvæn bylting Bílasalar spá því að allt þetta ár verði mjög gott og jafnvel fram á næsta haust. Bílaflotinn hafi hins vegar verið orðinn allt of gamall. Þeir benda á að endurnýjunar- skeið hafi komið á Islandi á 8-10 ára fresti en telja von til þess eft- irleiðis að jöfnuður náist á mark- aði. „Menn horfa voðalega nei- kvæðum augum á allan þennan bílainnflutning en mér finnst miklu jákvæðara að eyða gjaldeyr- inum í nýja bíla en varahluti eða mengandi og eyðslufreka gamla bíla. Þetta er ekkert óeðlilegt ástand. Ef viðskiptaumhverfið er skoðað má frekar segja að það sé óeðlilegt ástand á fasteignamark- aðinum á höfuðborgarsvæðinu en í bílunum," segir Jóhann og vísar þá til þeirrar miklu hækkunar sem orðið hefur á íbúðarhúsnæði að undanförnu. Of miklax sveiflur Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri FÍB, segir ástandið að und- anförnu vera óheppilegt fyrir Iandsmenn. „Svona miklar sveifl- ur eru ekki jákvæðar. Við sáum gífurlega lægð fyrir örfáum árum og það hefur safnast upp þörf fyr- ir endurnýjun flotans. Sveiflan er hins vegar svo stór að við horfum fram á sölutregðu og verðfall á notaða markaðnum. Það virðist sem einhver óútskýrður innri hvati, einhver hulin hönd, leiði menn til viðskipta í stað þess að ígrunda stöðuna. Það eru mörg gylliboð á markaðnum, auðvelt að fá lánað fé til bifreiðakaupa og sumir virðast fjárfesta meira af vilja en mætti. Á hinn bóginn er umhverfislega og öryggislega gott að fá fleiri nýja bíla á markaðinn," segir Runólfur. Tvístig hjá hinu opinbera Runólfur telur mögulegt að draga úr þessum sveiflum. „Það sem hefur ruglað þennan markað er að aðkoma hins opinbera að þessum geira hefur verið með mjög mis- munandi hætti. Það vantar heild- arstefnu. Við verðum að reyna að forðast þessar miklu niðursveiflur og toppa. Það segir sig líka sjálft að svona ástand hlýtur að vera mjög erfitt fyrir þau fyrirtæki sem standa í bílainnflutningi. 50% sölumunur milli ára er ekkert smáræði,11 segir Runólfur og bendir því til staðfestingar á að nokkur fyrirtæki hafi dottið út af markaðnum í kjölfar uppsveifl- unnar árið 1988. Ekki alltaf fislétt Verð nýrra bifreiða er í nokkrum tilvikum lægra í dag en fyrir fimm árum. Hins vegar leggja lands- menn æ meira undir og margir virðast lifa í þeirri trú að krafa nú- tíma samfélags sé gljáfægður glæsijeppi. Runólfur segist hafa hitt mann nýverið sem var með 50.000 kr. fasta greiðslubyrði á mánuði af jeppanum sínum nýja og með öllum öðrum nauðsynleg- um afborgunum hefði manninum mátt vera ljóst að hann réði engan veginn við verkefnið. Maðurinn tók þátt í „fisléttri fjármögnun“. Þarf að auka fræðslu Runólfur tekur undir áhyggjur forstöðumanns Ráðgjafarstofu um Ijármál heimilanna og FIB vill stóraukna fræðslu til almennings. Margir virðist horfa framhjá aukakostnaðinum við rekstur bif- reiðar s.s. tryggingar og eldneytis- kostnað. „Það myndast einhver kaupæðisstemmning og fólk fer oftar en ekki af stað án þess að hafa raunverulega efni á að ijár- festa í nýjum bílum. Neyslulán eru dýr lán þótt auðvelt sé að verða sér út um þau,“ segir fram- kvæmdastjóri FIB. ERLENDAR FRÉTTIR Öcalan biðst afsökunar TYRKLAND - I gær hófust í Tyrklandi réttarhöldin yfir Abdullah Öcalan, leiðtoga aðskilnaðarbaráttu Kúrda, sem kærður er fyrir landráð og á yfir höfði sér dauðarefs- ingu. Öcalan virtist óstyrkur við réttar- höldin en sagðist ekki hafa mátt þola pynt- ingar í fangelsinu og ekki hafa verið beitt- ur þrýstingi, en rúmir þrír mánuðir eru frá því hann var handtekinn. Hann bað fjöl- skyldur þeirra, sem látið hafa lífið í stríð- inu milli samtaka sinna, PKK, og tyrk- neska hersins, afsökunar og sagðist deila með þeim þjáningum þeirra. Þá bauð hann tyrkneska ríkinu aðstoð sína við að vinna að friði. Um 30.000 manns hafa lát- ið lífið í baráttu PKK fyrir sjálfstæði Kúrda. Indverjar og Pakistanar ræðast við INDLAND - Indverska stjórnin féllst í gær á boð pakistanskra stjórn- valda um ríðræður til að Ieita lausnar á Kasmírdeilunni. Um Ieið höfnuðu Indverjar tilboði Sameinuðu þjóðanna um milligöngu í deil- unni. Jafnframt héldu átökin í Kasmír áfram í gær, og skiptust pakist- anski og indverski herinn á skotum auk þess sem Indverjar héldu áfram loftárásum á múslimska skæruliða. Tveir handteknir SVÍÞJÓÐ - Sænska lögreglan skaut í hádeginu í gær 25 ára mann, Jackie Arklöv, sem grunaður er um að hafa tekið þátt í bankaráni á föstudag þar sem tveir sænskir lögreglumenn voru skotnir til bana. Maðurinn særðist á lunga og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann liggur á gjörgæslu undir lögreglueftirliti. Annar maður var handtek- inn skömmu eftir ránið og morðin, en þriðja mannsins var enn leit- að í gær. Göngin verða stækkuð AUSTURRÍKI - Fjögurra manna var í gær enn saknað eftir eldsvoð- ann í Tauerngöngunum í austurrísku ölpunum. Björgunarfólk gat ekki farið inn í göngin til að leita vegna ótta við hrun. Leiðtogar allra stjórnmálaflokka í Austurríki lýstu því yfir í gær að byggja þyrfti önn- ur göng við hliðina á Tauerngöngunum, sem eru 6,4 km löng og einnig Katschberggöngunum sem liggja litlu sunnar, en þau eru 5,4 km löng. Rússneska ríkisstjómin fuilskipuð RUSSLAND - Sergei Stepasjín, hinn nýi forsætisráðnerra Rúss- lands, hefur nú lokið við að velja alla ráðherra í ríkisstjórn sína. Vikt- or Tsjernenkó verður einn tveggja aðstoðarforsætisráðherra og And- rei Sjapovaliants verður áfram efnahagsráðherra. LANDSPITALINN ..í þágu mannúðar og vísinda... Framleiðslustjóri Óskað er eftir að ráða framleiðslustjóra yfir framleiðslusal þvottahúss Ríkisspítala að Tunguhálsi 2. I þvottahúsi Ríkisspítala er þvegið og endurnýjað allt lín fyrir sjúkrahúsin í Reykjavík. Starfið felst í skipulagningu fram- leiðslu, starfsmannahaldi og daglegum störfum í þvottahúsinu. Mikil tækja- og tölvuvæðing stendur fyrir dyrum og uppbygg- ing tengd því. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun á sviði rekstar eða sambærilegt og reynslu af framleiðslustýringu, gæðamálum og áætlanagerð. Umsóknum skal skilað til Karólínu Guðmundsdóttur, tæknideild, Rauðarárstíg 31, sími 560-2315, fax 552-0285, e-mail karolina@rsp.is. Skilafrestur er til 15. júni 1999. Læknaritari óskast til afleysinga í sumar á geðdeild Landspítalans, göngu- deild 31-E. Um 100% starf er að ræða. Upplýsingar veita Hallbera Leifsdóttir, skrifstofustjóri og Sigurlaug Sigurðardóttir, læknafulltrúi, símar 560-1701/1710. Umsóknum skal skilað fyrir 14. júni n.k. til skrifstofu geðdeild- ar Landspítalans við Eiríksgötu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.