Dagur - 25.06.1999, Qupperneq 1
Þórariim á Mð
í forstjórastól
Þórariun V. Þórarins-
son, stjómarformaður
Landssímans, er
sterklega nefndur sem
nýr forstjóri fyrirtæk-
isins í stað Guðmund-
ar Bjömssonar, sem
þegar hefur látið af
störfum.
Samkvæmt heimildum Dags
verður það fljótlega tilkynnt að
Þórarinn, sem jafnframt er fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands Islands, VSI, setjist í
stól forstjóra Landssímans, Guð-
mundar Björnssonar, sem látið
hefur af störfum. Jafnvel hefur
verið talað um að þetta gerist
strax eftir helgi. Þórarinn hvorki
játaði þessu né neitaði þegar
Dagur hafði samband við hann í
gær.
„Það er verið að vinna að end-
urskipulagningu á skipuriti
Landssímans. Það verður lagt
fyrir stjórnarfund á morgun (í
dag). Verið er að breyta skipurit-
inu til nútímahorfs, dreifa valdi
og skipuleggja fyrirtækið þannig
að það geti betur þjónað sínum
viðskíptavinum. Því fylgja breyt-
ingar og fyrir
þeim verður gerð
grein þegar
ákvarðanir verða
teknar," sagði
Þórarinn.
Hvað veit ég?
Þegar gengið var
á hann sagðist
hann ekki hafa
hugmynd um
hvað framtíðin
bæri í skauti sér.
Það væri fráleitt
að hann gæti
neitað því að
hann yrði næsti
forstjóri. „Það
getur vel verið
að ég verði einhvern tímann for-
stjóri Landssímans. Hvað veit ég
um það? Eg gæti líka orðið ein-
hvern tímann lögreglustjóri, eða
þá forstjóri Samkeppnisstofnun-
ar. Hvað veit ég um það?“
Kemur ekki á óvart
Orðrómur hefur verið um þetta
nokkuð Iengi, eða frá því að það
lá fyrir að Þórar-
inn V. hætti
brátt sem fram-
kvæmdastjóri
VSI með sam-
runa VSI og
Vinnumálasam-
bandsins í ný
samtök atvinnu-
lífsins í haust.
Að mörgu Ieyti
koma þessi tíð-
indi heldur ekki
á óvart þar sem
Þórarinn hefur
sem stjórnarfor-
maður Lands-
símans gengið
fremstur Lands-
símamanna í
gagnrýni á álit samkeppnisráðs,
samanber bréf hans til Finns
Ingólfssonar á dögunum. Þórar-
inn þykir einnig hafa á síðustu
tveimur árum sett sig vel inn í
mál Landssímans sem fyrsti
stjórnarformaður fyrirtækisins
eftir hlutafélagavæðingu.
Frekari breytinga að vænta
Heimildir Dags herma að frekari
breytinga sé að vænta á yfirstjórn
Landssímans samkvæmt þessu
nýja skipuriti. Að margra áliti
innan stjórnar Landssímans er
Guðmundur ekki talinn heppi-
legur áfram sem forstjóri þrátt
fyrir góð störf hjá fyrirtækinu til
fjölda ára. Þörf sé á ferskari og
harðari stjórnanda nú þegar
Landssíminn er að sigla inn í
frekari samkeppni á nýrri öld.
Mikil reynsla Þórarins af vinnu-
markaðnum og kjarasamninga-
gerð er einnig sögð koma honum
vel sem forstjóri Landssímans.
Ráðning nýs forstjóra þarf að
fara fyrir stjórn Landssímans,
sem kemur saman til fundar í
dag. Auk þessa máls liggur einn-
ig fyrir að fjalla um álit sam-
keppnisráðs. — BJB
Almerktur
strætó
Á leið 140 hjá Almenningsvögn-
um milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur ekur nú fyrsti stræt-
isvagninn sem merktur er í bak
og fyrir með nýrri tegund merk-
inga. Notuð er sérstök glæra á
hliðar, hliðarglugga og bakglugga
og sjá farþegar í vagninum út en
ekki sést inn um gluggana. Is-
lenska auglýsingastofan hannaði
útlit vagnsins en Merking sá um
prentun og álímingu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagvögnum, undirverktaka Al-
menningsvagna, hefur þessi
strætisvagn vakið mikla athygli
gangandi og akandi vegfaranda
og stundum legið við árekstrum.
Sumir farþeganna hafa veigrað
sér við að stíga inn í vagninn af
ótta við að sjá ekkert út úr hon-
um á Ieiðinni. — bjb
Vel merktur er vagninn sem ekur leið 140, Hafnarfjörður-Reykjavík. - mynd: jak
ÞJÓÐKIRKJAN
Merki þjóðkirkjunnar.
Jafnréttis-
brotí
idrkjimni
Samkvæmt niðurstöðum jafn-
réttisnefndar þjóðkirkjunnar á
vali prests í Grenjaðarstaðar-
prestakalli í Þingeyjarsýslu bend-
ir flest til þess að jafnréttislög og
jafnréttisáætlun þjóðkirkjunnar
hafi verið brotin. Nefndin komst
að þeirri niðurstöðu að kvenkyns
umsækjandi hefði verið hæfari
bæði að reynslu og menntun en
karlkyns umsækjandi sem fékk
starfið. Arnfríður Guðmunds-
dóttir formaður jafnréttisnefndar
þjóðkirkjunnar segir að núna sé
boltinn hjá kvenkyns umsækj-
andanum og frumkvæðið að að-
gerðum þurfí að koma frá hon-
um.
Tveix möguleikar
„Nefndin hefur bent aðilanum á
tvö möguleika, annars vegar
senda málið til úrskurðarnefndar
þjóðkirkjunnar og hins vegar
leita út fyrir kirkjuna og senda
málið til kærunefndar jafnréttis-
mála. I Grenjaðarstaðarmálinu
eru einnig brotin þau ákvæði
jafnréttisáætlunar kirkjunnar um
að valnefndirnar skuli innihalda
kynjahlutföllin einn á móti þrem-
ur eða tveir á móti fimm en í val-
nefndinni í Grenjaðarstaðarmál-
inu voru aðeins ein kona og sex
karlmenn," segir Arnfríður. Hún
segir að víða sé pottur brotinn í
jafnréttismálum þjóðkirkjunnar
og staðan mætti vera betri. „Hins
vegar er jafnréttisáætlun þjóð-
kirkjunnar stórt skref upp á við,“
segir Arnfríður. Jafnréttisáætlun
þjóðkirkjunnar var fyrst sam-
þykkt á kirkjuþingi í október síð-
astliðnum og tók hún gildi 1. jan-
úar á þessu ári. Jafnréttisnefnd
þjóðkirkjunnar er annars vegar
ráðgefandi fyrir biskup og hins
vegar ráðgefandi fyrir hvern þann
sem telur á sér brotið varðandi
jafnrétti kynjanna í þjóðkirkj-
unni. Grenjaðarstaðarmálið er
hið fyrsta sem vísað er til jafn-
réttisnefndarinnar. - ÁÁ
Nútíma innheimtui M * í t* 1 1 ^ ^ 1
jrl iðferðir! tfjhéf Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR V£/]) SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI - SÍMI 462 3524 A\ 1 I
inlnun jwstítia s: 561- 6101
woRuiwax aner
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100