Dagur - 25.06.1999, Síða 5

Dagur - 25.06.1999, Síða 5
f£€í í/ftf .?£ iVú'ó'/' A' YiVÍ'.í - f1 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 - S Fimin fengu reyk- eitrun s»5<rí' FRÉTTIR Raimsóknir efldar á í slensku kj öti Fréttir afbakteríum í norsku kjöti hafa vakiö upp kröfur um frekari rann- sóknir á íslensku kjöti. Halldór Runólfsson yfirdýralæknir telur að fuU ástæða sé til að rannsaka nánar hvort bakteríur í ís- lensku kjöti hafi myndað mótstöðu gegn fúkalyfjum. Sláandi fréttir frá Noregi um mikið magn af bakteríum sem myndað hafa mótstöðu gegn fúkalyfjum í kjúklinga- og svína- kjöti, valda því að Halldór Run- ólfsson yfirdýralæknir telur brýnt að efla rannsóknir á ís- lensku kjöti. Hann segist ætla að beita sér fyrir skoðun á þessu, en fram til þessa hafi menn talið að mjög vel sé staðið að þessum málum hér. „Við höfum það forskot að hafa aldrei leyft notkun á fúka- lyfjum í fóðri og þar af leiðandi teljum við að vandamálið sé ekki til staðar. Hins vegar hefur þetta ekki verið rannsakað nóg í kjöti,“ segir Halldór. Fúkalyf hafa ekki fundist í íslensku kjöti en litlar rannsóknir farið fram á bakteríu- greiningu með tilliti til ónæmis. „Það er því full ástæða til að skoða þetta hjá okkur líka. Ég mun beita mér fyrir rannsókn á þessu sviði,“ segir Halldór. ESB-krísa Islendingar hafa nokkra sérstöðu hvað varðar bann við fúkalyljum í fóðri ásamt Svíum. Svíar bönn- uðu fúkalyf árið 1986 og hafa haldið sig við það. Að sögn yfir- dýralæknis hafa þeir þó átt í erf- iðleikum með að viðhalda bann- inu vegna ESB-aðildarinnar. „Okkar innflutningur á fóðri hef- ur að mestu leyti verið frá Sví- þjóð en þessi niðurstaða frá Nor- egi kemur á óvart þar sem þeir leyfa ekki notkun fúkalyfja. Þeir hafa reyndar ekki bannað það heldur, en það á eftir að rann- saka betur hvað veldur þessu,“ segir Halldór. Niðurstöðurnar frá Noregi eru vondar fréttir fyrir norskan land- búnað og markaðslegur álits- hnekkir. Norðmenn hafa auglýst vörur sínar alþjóðlega sem „Gott frá Noregi“ og vísað til hreinleika og hámarksgæða. Fjögur ár eru Iiðin frá því að Norðmenn bönn- uðu fúkalyf í alifuglum en niður- stöðurnar nú sýna að viðnáms- færar bakteríur fundust einnig í 31% alls rannsakaðs svínakjöts samkvæmt norsku rannsókninni. - BÞ Starfsmenn á Vélaverkstæði Jósafats Hinrikssonar í Súðar- vogi í Reykjavík lögðu sig í hættu og unnu þrekvirki þegar upp kom eldur í búningsher- bergi starfsmanna og vinnugallageymslu verkstæðis- ins skömmu eftir hádegið í gær. Tilkynning um eldinn barst til slökkviliðsins ldukkan rúmlega hálftvö og hafði slökkviliðið ráð- ið niðurlögum eldsins fimmtán mínútum síðar. Mikinn reyk lagði út um glugga og dyr þegar slökkviliðið kom á staðinn. Tuttugu starfsmenn voru við vinnu á verkstæðinu og tókst þeim að halda eldinum í skelj- um og koma þannig í veg fyrir að illa færi en munu hafa lagt sig í óþarflega mikla hættu við slökkvistarfið að mati slökkvi- Iiðsins. Fimm starfsmenn voru fluttir á slysadeild með reykeitr- un og minni háttar brunasár. Eldurinn mun hafa kviknað þeg- ar neisti fór úr logsuðutæki í olíuhreinsi sem notaður var til gólfhreinsunar. Tjónið mun vera óverulegt en á hæðinni fyrir ofan er sjóminjasafns Jósafats Hinrikssonar og slapp það við skemmdir. Litlu mátti þó muna að verr færi. „Sigur herstöðv- arandstæðinga“ Eftir mótmælin í Hljómskálagarðinn skunduðu menn upp að bandaríska sendiráðinu við Laufásveg og var þar dreginn svartur fáni að húni á fiaggstöng sendi- ráðsins og rauð dula yfir skjaldarmerkið. Friðþór Eydal segir þyrl uleu diiigim a hafa dottið upp fyrir vegna breyttrar atburðarás- ar æfingarinnar og tengjast á engan hátt mótmælum herstöðv- arandstæðinga. Andstæðingar gegn heræfingum hafa lýst yfir sigri fólksins þegar kom í Ijós að ekkert yrði af lend- ingu herþyrlu í Hljómskálagarð- inum eins og til stóð á miðviku- dagskvöldið. Þeir litu á áætlanir um lendinguna sem gróflega ögrun við Islendinga og hafa þeir sent bréf til borgarstjóra Reykja- víkur þar sem m.a. er hvatt til friðlýsingar Reykjavíkurborgar. Einar Olafsson, bókavörður og herstöðvarandstæðingur, segir að borgarstjórí hafi ekki enn svarað bréfinu. Hvað varðar uppákom- una í Hljómskálagarðinum sagði Einar að ekkert hefði verið ákveðið hvað mótmælendurnir hefðu gert hefði þyrlan komið en hins vegar hefðu menn væntan- lega ekki verið mjög samvinnu- þýðir ef til kastanna hefði komið. Friðþór Eydal hjá upplýsinga- skrifstofu Varnarliðsins segir að þyrlulendingin f Hljómskálagarð- inum hafi dottið úr áætluninni vegna þess að atburðarásin á æf- ingunni hafi ekki gefið tilefni til hennar á þessum tíma. Eggjakast nieinlausara Friðþór segir að það sé af og frá að lendingin hafi dottið upp fyrir vegna mótmæl- anna í garðinum og kallar það hreinan og bein- an kjánaskáp að lýsa yfir einhverj- um sigri fólksins af því tilefni. Að sögn Friðþórs er ólíklegt að verði af þyrlulendingu í Hljómskálagarð- inum úr því sem komið er. Eftir mótmælin í Hljómskálagarð- inn skunduðu menn upp að bandaríska sendiráðinu við Lauf- ásveg og var þar dreginn svartur fáni að húni á flaggstöng sendi- ráðsins og rauð dula )dir skjaldar- merkið. Einnig var rauðlitaðri súrmjólk hellt yfir bíla sendiráðs- ins og eggjum kastað í bygging- una. Þrír voru handteknir og færðir til yfirheyrslu. Um lætin fyrir utan bandaríska sendiráðið sagði Einar að eggjakast væri al- mennt mun meinlausara en það sem Bandaríkjamenn eru vanir að kasta á fólk. - ÁÁ Banaslys 1 Eyjaflrði Banaslys varð í Eyjafjarðarsveit laust eftir miðnætti í fyrrinótt þegar Subarufólksbíll fór út af veginum skammt frá bænum Torfufelli og valt. Sjö ungmenni á aldrinum 17-19 ára voru í bif- reiðinni og lést 19 ára dönsk stúlka. Læknir úrskurðaði hana látna við komu á slysstað, en áður höfðu ungmennin reynt lífgunartilraunir. Aðrir í bílnum sluppu með skrámur og lost. Þeim var veitt áfallahjálp. Malarvegur er þar sem bíllinn fór út af, en ekki er ljóst hvað olli óhappinu. Fimm Islendingar voru í bílnum og tveir Danir. Okumaður var 17 ára og hafði nýlokið bílprófi. Hann var í belti, en vafi leikur á annarri belta- notkun. Látna stúlkan var far- þegi í framsæti. Hún var frá Randers og var stödd hérlendis vegna vinabæjarsamskipta við Akureyrarkaupstað. - BÞ Greiða helming sektar Tveggja ára málaferlum, svokölluðu Sigurðarmáli, hefur verið Iokið með sátt. Otgerð og skipstjóri munu greiða helming af kröfum norska ríkisins og er málinu þar með lokið. Málið snýst um að skipstjórinn á Sigurði VE var sakaður um að hafa ekki tilkynnt sig inn í lögsögu Jan Mayen þegar skipið hélt þangað til síldveiða og tók norska strand- gæslan skipið þann 6. júní 1997 og færði til hafnar í Bodö. Málið hef- ur verið fyrir norskum dómstólum í tvö ár. Mat útgerðarinnar var að málaferlunum yrði best lokið sem fyrst og var það gert með greiðslu tveggja milljóna króna í sekt en f því felst þó ekki að sögn útgerðar- innar nein viðurkenning á sekt skipstjóra og útgerðar. Fimm fá handritsstyrki Kvikmyndasjóður Islands úthlutaði í gær fimm framhaldsstyrkjum til handritsgerðar. Um er að ræða annan áfanga í handritaþróun sjóðsins árið 1999, sem hófst með styrkjum til tíu kvikmynda- handrita í janúar sl. Nú hefur þátttakendum verið fækkað um helming og hljóta fimm þeirra fram- haldsstyrki, hver að Ijárhæð 300 þúsund krónur. Verkefninu lýkur svo með því að tveir hljóta loka- styrki í haust. Styrkþegarnir eru Erlendur Sveins- son fyrir Vorar skuldir, Halldór E. Laxness fyrir Vefarann mikla frá Kasmír, Hallgrímur Helgason fyrir Ég á eftir að kyssa 37 stelpur áður en ég finn þá einu réttu, 111- ugi Jökulsson og Baldur Hrafnkell Jónsson fyrir Silfurkrossinn og Ioks Einar Már Guðmundsson og Páll Steingrímsson fyrir Brimblóð. Vinstri grænir á samráðsfundi Vinstrihreyfingin - grænt framboð ætlar að halda samráðsfund að Hvanneyri í Borgarfirði um helgina. Helsta viðfangsefnið er undir- búningur landsfundar í haust, skipulag flokksstarfs og umræður um stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Fundurinn hefst síðdegis í dag og stendur til hádegis á morgun, laugardag. Til hans eru boðaðir aðal- og varamenn í stjórn flokksins, þingmenn og formenn kjördæmisfé- laga. HLutafjárauknmg í Baugi Á hluthafafundi í Baugi hf. í gær var samþykkt að auka hlutafé félags- ins um 82,5 milljónir kr. að nafnvirði. Samhliða féllu hluthafar frá forkaupsrétti að þessum hlutabréfum. I greinargerð kom fram að ástæður þess að óskað er eftir hluta- Ijáraukningunni eru fyrst og fremst þær að Baugur keypti nýlega Vöruveltuna hf. sem hefur rekið 10-11 verslanirnar. Kaupverð þeirra var um 1.480 milljónir en í samningum er gert ráð fyrir að hluti þess verði greiddur með hlutabréfum í Baugi Hallgrímur Helga- son er meðal styrkþega.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.