Dagur - 25.06.1999, Blaðsíða 6
6 -FÖSTUDAGVR 25 . JÚNÍ 199 9
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Sfmar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Netfang auglýsingadeildar:
Símar auglýs/ngadeildar:
Símbréf auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. A MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
omar@dagur.is
CREYKJAVIK)563-1615 Ámundi Ámundason
CAKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
460 6161
460 6171CAKUREYRI) 551 6270 CREYKJAVÍK)
Aftur til íbrtíðar?
í fyrsta lagi
Á einni viku hefur lögreglan í Reykjavík tvisvar sinnum hand-
tekið mótmælendur og flutt þá á lögreglustöð til skýrslutöku
og yfirheyrslu. Þetta hefur ekki gerst í allmörg ár. I fyrra skipt-
ið, á 17. júní, var um fráleita aðgerð að ræða, en í seinna
skiptið, í fyrrakvöld, var um eðlilega aðgerð að ræða. Friðsam-
leg mótmælastaða með borða, þar sem mannfjöldi er saman
kominn á Austurvelli er sjálfsagt mál. Að handtaka menn fyrir
slíkt ber vott um dómgreindarleysi og ofríki. Þegar mótmæl-
endur hins vegar eru farnir að sletta súrmjólk og eggjum á bíla
og sendiráð er ekki nema eðlilegt að gripið sé í taumana.
í öðru lagi
Herstöðvarandstæðingar og vinstri - grænir hrósuðu sigri í gær
eftir að hætt var við þann hluta heræfingarinnar Norður - Vík-
ings, sem fram átti að fara í Hljómskálagarðinum og við
bandaríska sendiráðið í fyrrakvöld. Hins vegar er óvíst hvort
mótmælastaða og viðvera í Hljómskálagarðinum muni auka
hróður þessara samtaka meðal þorra þjóðarinnar. Allra síst eft-
ir súrmjólkur - og eggjakast anarkista við sendiráðið - en ljóst
má vera að þessi anarkíska eggjarhæra mun með réttu eða
röngu lengi loða við þá vinstri - grænu foringja, Steingrím J.
og Ogmund Jónasson, í hugum fólks.
í þriója lagi
Sannleikurinn er sá að heiftin gegn hernúm og NATO er póli-
tísk tímaskekkja enda hefði mátt ætla að myndirnar af mót-
mælendum í Hljómskálagarðinum væru 30 ára gamlar - nán-
ast sömu slagorð á spjöldunum og meira að segja gamla frið-
armerkið komið á loft! Með forustu sinni í þessu máli eru
vinstri - grænir því að draga sig út úr meginstraumi íslenskra
stjórnmála. Þeir ætla sér greinilega ekki að höfða til hins
stærri fjölda og etja kappi við t.d. Samfylkinguna um fylgi. Þeir
kjósa að halda sig við þessa fáu eftirlegusósíalista og mótmæli
eins og „í gamla daga“. En þó það sé ekki klók ákvörðun hjá
þessum nýju stjórnmálasamtökum, þá er hitt alltaf jafn mikil-
vægt - að þeir fái að ástunda friðsamleg mótmæli sín án af-
skipta lögreglunnar. Birgix Guómundsson
Langlííir
drykkjumenn?
Á unglingsárum átti Garri það
til að detta í það eins og kallað
er. Og síðar henti það á hátið-
is- og tyllidögum að hann fékk
sér örlítið í tána, bjór, rauðvín,
ellegar áfengi af öðrum toga.
En það er löngu liðin tíð og
Garri hefur nú verið stækur
bindindismaður um langan
aldur, eða í allt að því þrjár vik-
ur eða svo. Hann hefur sem sé
verið á snúrunni ellegar „á
vagninum" eins og þeir segja
vestur í Ameríku um aftur-
batapíkur í alkó-
hólsmálum.
Þetta langvarandi
bindindisástand
Garra stafar fyrst og
fremst af því að
greinargóðir menn á
borð við þá Tyrf-
ingssyni, Halldór á
Drykkjubóli og Árna
Helgason í Stykkis-
hólmi, hafa um árabil talað af
sannfæringarkrafti gegn
áfengisbölinu. Lengi vel töl-
uðu þeir fyrir daufum eyrum
Garra, en dropinn holar stein-
inn og eftir miklar pælingar
tók Garri þá tímamótaákvörð-
un að leggjast i langvarandi
bindindi fyrir, eins og áður
sagði, tæpum þremur vikum
eða svo.
Tvöföld kven
drykkja
En nú eru á hann runnar tvær,
ef ekki fleiri grímur í þessum
efnum. Um allnokkurt skeið
hafa færustu vísindamenn og
læknar rauðvínsframleiðenda
haldið þvi fram að eitt glas af
rauðvíni á dag fyrir konur og
tvö fyrir karla komi heilsunni í
lag, bægi frá hjartasjúkdómum
og lengi langlífi. (Þarna var
líka komin skýringin á því
hvers vegna Garri hefur yfir-
leitt drukkið tvöfalda á mann-
fögnuðum en konan einfalda).
Garri lagði reyndar aungvan
trúnað á þennan hollustuáróð-
ur rauðvínsmafíunnar og hafði
raunar þveröfug áhrif, því
Garri aflagði með öllu rauð-
vínsdrykkju og hellti sér út í
neyslu á bjór og brennivíni af
tómri þvermóðsku.
Vínvísiiidi
En nú er fokið í
þau skjólin líka. Því
allra klárustu og
óvilhöllustu vís-
indamenn danskra
bjórframleiðenda
hafa nú komist að
því að drykkja á
bjór og snöfsum
hefur sömu heilla-
vænlegu áhrifin
fyrir hjartað og rauðvínssullið
og eykur á langlífi drykkju-
manna.
En hvað skal gjöra? Maður
hefur um árabil lagt sig í líma
við að fylgja fyrirmælum mat-
vælafræðinga um neyslu á
hollustufæðu hvurskonar, vit-
andi það að þeir vita meira og
meira um þessi mál en Garri,
meira í dag en í gær. Og ef
maður tekur mark á matvæla-
vísindamönnum, hvers vegna
ætti þá að efast um rannsókn-
arniðurstöður og ráðgjöf vín-
og tóbaksvísindamanna?
Það sér hugsanlega fyrir
endann á langvarandi bindindi
Garra á öllum sviðum. Langlífi
er jú allt sem þarf í baráttunni
við tímans tönn, þó vissulega
auki það ríkisútgjöldin og
dragi úr hagvexti.
GARRI
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Um sumarsólstöður þegar búið
var að loka öllum skólum vegna
sumarleyfa var enn allt á háalofti
í skólamálum. Skólastjórar rekn-
ir eða heimtað að þeir væru
reknir. Foreldrafélög farin á stúf-
ana að kvarta sáran yfir litlu og
lélegu húsnæði fyrir einsetnu
skólana. Nýlega var annað for-
eldrafélag að kvarta og kveina
yfir því að ríkið borgaði ekki að
fullu allan kostnað við menntun
úrvalsbarnanna þeirra, sem eiga
ekki leið með öðrum krökkum á
glæsilegri menntabraut sinni.
Nýlega voru miklar rokufréttir
um hörmulegar einkunnir í sam-
ræmdum prófum í heilu lands-
hlutunum en umræðu um slíkt
er ávallt haldið í skefjum og
skólastjórar og aðrir forystusauð-
ir menntamála kenna leiðbein-
endum um, en það eru eins og
allir vita kennarar sem ekki hafa
full réttindi. Er auðvelt að nota
það fólk sem blóraböggla þegar
stórir hópar unglinga komast
Allt í rasli og engiun
að keirna
ekki í langskólanám vegna þess
að þeir eru ekki tækir í fram-
haldsskóla vegna lélegrar undir-
stöðumenntunar.
Neikvæð umræða
Kennarar eiga í sífelldum deilum
við fjárveitingavaldið vegna
kjaramála og hóp-
uppsagnir og alls
kyns uppákomur
eru ekki síðra
fréttaefni en
keppni í boltaleikj-
um, sem fólk er
matað á í öllum
fréttatímum árið
út og árið inn.
Fréttir af skólum og mennta-
málum eru undarlega oft nei-
kvæðs eðlis. Hér vantar allt til
alls í skólakerfunum. Það vantar
kennara, mikið skortir á að þeir
búi við viðunandi launakjör og
samanburðarfræðin blómstrar.
Það vantar skólahús, þau eru of
lítil fyrir einsetna skóla, sem
lengi var helsta takmark í
menntamálum. Það vantar tölv-
ur og sérhæfða tölvukennara.
Nemendur eru alltof margir í
sumum skólum og bekkjadeild-
um. Annars staðar vantar nem-
endur í skólahúsin. Hið eina sem
enginn skortur virðist á eru leið-
beinendur. Þeir
kvarta ekki um
kaupið og una
glaðir við sitt.
Þeim skal útrýmt.
En það er hæg-
ara sagt en gert því
ekki er hægt að
taka við nema
rúmum þriðjungi þeirra sem
sækja um skólavist í Kennarahá-
skólanum.
Kvart og kveinstafir
Fróðlegt væri að frétta hvort all-
ur sá harmagrátur sem stöðugt
berst frá skólafólki og foreldrafé-
lögum á sér eðlilegar orsakir eða
hvort fréttir af skólastarfi eru
ýktar og rangtúlkaðar. Þeir sem
veljast til forystu kennarasam-
taka sýnast undantekningalítið
telja það hlutverk sitt að kvarta
og kveina og gera kröfur til fjár-
veitingarvaldanna, hafa í hótun-
um og jafnvel standa við þær.
Fjölmiðlarnir eru meira en
galopnir fyrir þeirri tegund um-
ræðna og standa þeir ríkisreknu
sig best þar sem á fleiri sviðum.
Eftir þessu fréttaflóði eru
menntakerfin dæmd. Hvaða
áhrif þetta hefur á nemendur
skal ekki dæmt um í fljótfærni
en telja má víst að þeir fylgist
með sífelldri gagnrýni á þær
stofnanir sem þeir eiga svo mik-
ið undir. Ef þeim er sagt að Ieið-
beinendur séu óhæfir kennarar,
er varla von að þeir læri mikið af
þeim. Og innbyrðis krytur innan
skólakerfanna eru lítið mennt-
andi, enda falla heilu landshlut-
arnir á samræmdum prófum og
enginn þorir að spyrja hvað veld-
ur.
-Oo^ur
spuria
svarao
Kemur til greinafyrir
íslendinga að ganga íAl-
þjóðahvalveiðiráðið?
Árni Finnsson
náttúruvemdarsinni
„Já. Sé það vilji
íslenskra stjórn-
valda að hafnar
verði hvalveiðar
að nýju þá ber Is-
lendingum að
taka þátt í al-
þjóðasamstarfi
eins og kveður á um í Hafréttar-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Islendingar hafa skuldbundið sig
til að vinna að verndun og stjórn-
un hvalastofna í samstarfi við að-
ildarþjóðir Hafréttarsáttmálans
innan vébanda viðeigandi al-
þjóðastofnunar sem í þessu til-
viki er Alþjóðahvalveiðiráðið.11
Guðjón Araar Kristinsson
formaðurFarmantm- ogfiskimanna-
sambands íslands
„Þarna er spurt
að stóru. En eins
og málið hefur
litið út frá hags-
munum Far-
manna- og fiski-
mannasam-
bandsins þá vor-
um við sammála því á sínum
tíma að ganga úr Alþjóðahval-
veiðiráðinu. Við höfum ekki enn
séð að Alþjóðahvalveiðiráðið hafi
breytt neinu í sínum vinnu-
brögðum sem upp voru tekin eft-
ir að alhliða friðunarstefna hvala
var látin ráða öllu þar á bæ. Okk-
ur finnst að það hafi ekki verið
litið á líffræðilegar tillögur um
að stofnar þyldu veiðar og finnst
mér að einhver stefnubreyting
þyrfti vera hjá ráðinu ef við ætl-
uðum að ganga í það á nýja leik.“
Guðjón Guðmundsson
alþingismaður
„Já, ég tel það
koma til greina
með ákveðnum
skilyrðum að við
færum inn með
þeim fyrirvörum
að við ætlum að
hefja veiðarnar.
Við eigum því alveg að skoða
vandlega þá möguleika að ganga
í Alþjóðahvalveiðiráðið. Ef við
teljum að innganga í ráðið verði
þeirri stefnu Alþingis að hefja
hvalveiðar í framtíðinni til fram-
dráttar þá eigum við auðvitað
ekki að útiloka fyrirfram þann
möguleika að ganga í ráðið. Að-
alatriðið er að Islendingar hefji
hvalveiðar sem fyrst.“
Kristján Loftsson
framkvæmdastjóri Hvals hf.
„Já, það kemur
alveg til greina en
það fer algjörlega
eftir því hvernig
það er gert. Það
hefur engan til-
gang að ganga í
Alþjóðahvalveiði-
ráðið ef ekkert breytist hjá ráð-
inu því þá værum við komin í ná-
kvæmlega sömu stöðu og við vor-
um í þegar við sögðum okkur úr
því á sínum tíma. Það verður að
vera gerður lyrirvari á samþykkt-
inni sem hefur verið kölluð hval-
veiðibannið annars höfum ekk-
ert þangað að gera.“
011 ö" uac,i
...Eoliahs&á go Teblrróög
-óöþcJÍB go limojlaablh ii\ 6i> r/cj
-ritúl go óiÓBTuþlTblIA .ilz'j/ go
uu í.i.au.-,.. .uj.j,.
hgoli'iajdö TBnbuud TBgTem
“*!.* «** 'jj****) '"“'l *
íÓtsb’I eýna/1 go uiqökjH li) nirn