Dagur - 25.06.1999, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 2S. JÚNÍ 1999 - 9
FRÉTTIR
reppu
i"" Æ 'í £já: t ** 1 £
i vfLfcj V' 1 WSÆ&' tW 1
hagsleg afkoma kirkjugarðanna, einkum þeirra stærstu, hríðversnandi. Kostnaðar-
m er reiknað með stóraukinni dánartíðni íslendinga. mynd: brink
Fleiri fara í brennsluofninn
Við uppbyggingu kirkjugarða á
komandi öld er ekki búist við eins
mildu rými og áður þar sem bálför-
um hefur fjölgað verulega í seinni
tíð. Nú er svo komið að rúm 12%
látinna Islendinga eru brennd og
hlutfallið er 17% hér á höfuðborg-
arsvæðinu, þar sem eini brennslu-
ofn landsins er til staðar í Foss-
vogi. Ef fram heldur sem horfir
>agði Þórsteinn Ragnarsson að
jálfarir komi til með að hafa áhrif
á fjárhag kirkjugarðanna á fyrstu
áratugum 21. aldarinnar. Aðspurð-
ur um kostnað sagði Þórsteinn að
dýrara væri að koma upp duftgarði
miðað við venjulegan ldrkjugarð
en duftreitur tæki sjö sinnum fleiri
í sama rými. Til lengri tíma litið
væri duftreitur því hagkvæmari
fyrir rekstur kirkjugarðanna.
-o Kw I •IfiíetH
;!|; v~?
y |íy |1
• rejax ■ lý>. “ Í k-m • • ■ • ri - -r -
Mýrarhúsaskóii á Seltjarnarnesi. Sumum þykir sem traustsyfirlýsing bæjarstjórnar tii skólastjórans sé aðeins
gálgafrestur á vanda sem þegar er til staðar í skólanum.
Framhaldið óljóst í
Mýrarhúsaskóla
Guðrún Þórsdóttir hjá
foreldrafélaginu segir
þaö vera ljóst að vaud-
inn í skólanum sé enn
til staðar.
Mismunandi skoðanir eru meðal
foreldra og kennara á niðurstöðu
bæjarstjórnar Seltjarnarness en á
miðvikudaginn ákvað bæjar-
stjórnin að treysta skólastjóra, að-
stoðarskólastjóra og öðrum starfs-
mönnum Mýrarhúsaskóla fyrir 12
mánaða uppbyggingarstarfí í skól-
anum.
Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri Seltjarnarness, segir að nú
verði ráðist á þann vanda sem er
innan skólans. Hvað varðar til-
mæli sín til skóiastjórans og að-
stoðarskólastjórans um að þeirra
viðveru væri ekki krafíst £ skólan-
um í þessar tvær vikur segist Sig-
urgeir líta á það sem launað frí en
alls ekki sem munnlega uppsögn.
Fríða Regína Höskuldsdóttir
skólastjóri segir að hennar næsta
skref sé að ræða við sitt fólk og
skoða ástandið. „Þetta er búið að
vera mikið álag á okkur öll,“ seg-
ir Fríða Regína og leggur áherslu
á að nú sé staðan í skólanum
óljós.
Guðjón Ingi Eiríksson, trúnað-
armaður kennara í Mýrarhúsa-
skóla, tekur undir það að staðan
sé óljós og bendir á það sé ekki
einu sinni vitað hvort þetta fólk
vilji koma aftur til starfa í skól-
ann. Að öðru leyti vildi Guðjón
ekki tjá sig um málið.
Jónmundur Guðmarsson, for-
maður skólanefndar, segir að nú
verði aðilar máls að setjast niður
og skoða málið í ró og næði.
Skólanefnd stefnir á að hittast á
næstu vikum til að ræða málið.
Gálgafrestur?
Menn hafa verið að benda á að
þessi niðurstaða bæjarstjórnar sé
einfaldlega gálgafrestur á vanda
sem er nú þegar til staðar í skól-
anum. „Ekkert hefur breyst,"
sagði einn viðmælanda Dags.
Sigurgeir bæjarstjóri er ekki
sammála þessu og segir að nú sé
búið að afhjúpa vandamálið og
því sé mun auðveldara að leysa
það. Að sögn Sigurgeirs ætlar
skólanefndin að hafa mjög gott
eftirlit með þessu í vetur en tak-
ist þetta ekhi þá sé það sem er
búið að gera núna ekki nema
hluti af því sem þarf að gera.
Guðrún Þórsdóttir hjá For-
eldrafélagi Mýrarhúsaskóla segir
það vera ljóst að það sé enn
vandi í skólanum sem þurfi að
taka á. „Astæðan fyrir því að ráð-
ist var í þessa skýrslu var hin gíf-
urlega óánægja sem var til staðar
innan skólans. Skýrslan bjó ekki
til trúnaðarbrestinn heldur var
hann til staðar fyrir skýrsluna.
En nú ber að leggja áherslu á að
gleyma fortíðinni og vera bjart-
sýn á framtíðina," segir Guðrún.
-ÁÁ
Utvarpskarl i dæmd-
ur jafnréttissigur
Jafnréttislög voru ekki brotin
þegar Pétur Halldórsson, dag-
skrárgerðarmaður Ríkisútvarps-
ins á Akureyri, var ráðinn árið
1998 að mati kærunefndar jafn-
réttismála.
I kjölfar ráðningar Péturs
óskaði kona, sem sótt hafði um
starfið ásamt honum, eftir því að
kærunefndin skoðaði hvort jafn-
réttislög hefðu verið brotin. I
auglýsingu þegar Pétur var ráð-
inn var m.a. óskað eftir fólki með
háskólapróf eða reynslu í blaða-
eða fréttamennsku, góðri rödd og
starfskrafti sem ætti auðvelt með
að vinna undir álagi. Arnar Páll
Hauksson deildarstjóri mælti
með Pétri til starfans í ljósi
RÍKISÚTVARPIÐ
Ráðning Péturs Halldórssonar til
RUVAK var ekki brot á jafnréttis-
lögum að mati kærunefndar jafn-
réttismála.
reynslu af störfum hans. Kær-
andinn, sem er kona, hafði Iokið
BA-prófi í íslensku með fjöl-
miðlafræði sem aukagrein, frá
HÍ, auk þess að hafa lokið hag-
nýtri fjölmiðlun og var með
kennsluréttindi. Hún hafði starf-
að í eitt ár sem dagskrárgerðar-
maður og sinnt kennslu en með-
al vegsemda Péturs má nefna að
hann hafði unnið sem prófarka-
lesari á Tímanum og stundað
magisternám í íslensku.
Kærandi vísaði til þess að hún
hefði meiri menntun og lengri
starfsreynslu við fjölmiðlun. Þá
gagnrýndi hún fleiri atriði, s.s. að
hún hefði ekki verið kölluð í við-
tal. Kærunefnd var ekki sammála
varðandi starfsreynslumat og
þótt kynjahlutall hjá Utvarpi
Norðurlands sé konum óhag-
stætt, telur nefndin eðlilegt að
ráðningin standi. - BÞ