Dagur - 25.06.1999, Síða 11

Dagur - 25.06.1999, Síða 11
X^MT ERLENDAR FRÉTTIR Rauði krossinn spáir tímabili hamfara Árið 1998 urðu fleiri og manuskæðari ham- farir á jörðinni en nokkru sinni svo vit- að sé. Samkvæmt ársskýrslu alþjóða- samtaka Rauða krossins og Rauða hálfmánans um hamfarir í heiminum, sem kom út í gær, var síðasta ár það versta sem til eru skrár um. Alls er í skýrslunni greint frá 311 náttúruhamför- um, sem urðu árið 1998, og kostuðu þær um 60.000 manns lífið. Að mati höfunda skýrsl- unnar má enn búast við auknum hamförum næstu ár og má telja fullvíst að mannkynið eigi þar nokkra sök á. Fellibylurinn Mitch varð um 10.000 manns að bana f Mið- Ameríku, en flóð, þurrkar og eldsvoðar af völdum veðurfyrir- brigðisins EI Nino urðu þess valdandi að alls um 21.000 manns týndu lífi á síðasta ári. Þurrkarnir í Indónesíu voru þeir verstu í hálfa öld og gífurleg flóð í Kína röskuðu högum um 180 milljóna manna. Meira en 25 milljónir manna þurftu að flýja heimkynni sín vegna nátt- úruhamfara á síðasta ári, og er sá fjöldi mun meiri en þeir flóttamenn sem hröktust að heiman vegna stríðsreksturs á árinu. „Umhverfisflóttamenn- irnir“ eru um 58% allra flótta- manna ársins. Reiknað í fjármunum telst Rauða krossinum til að náttúru- legar hamfarir árið 1998 hafi kostað mannkynið meira en 90 milljarða bandarískra dala. í skýrslunni er reyndar varað við því að svo virðist sem nýtt tímabil stórra hamfara sé í upp- siglingu hér á jörð, sem sagt er stafa af því að saman fer hlýrra veðurfar, umhverfisspjöll og mannfjölgun. Maðurinn á því sjálfur nokkra sök á aukningu hamfara með róttækri röskun á náttúrunni, eldd síst eyðingu skóga. Um 96% allra dauðsfalla af völdum náttúruhamfara eiga sér stað í þróunarlöndunum sunnan til á jarðkringlunni, en um leið og náttúruhamförum fjölgar er verið að draga úr neyðaraðstoð til fátækra landa. Bent er á að um 1 milljarður manna, eða um sjötti hluti allra jarðarbúa, búi í fátækrahverfum þar sem bráðabirgðahúsnæði hefur verið hrófað upp og björg- unaraðgerðir þar af leiðandi erf- iðar ef náttúruhamfarir verða. 40 af þeim 50 borgum heims, sem stækka hraðast, eru á jarð- skjálftasvæðum. Þá er bent á að um helmingur jarðarbúa sé búsettur við sjávar- síðuna og 10 milljónir búa við stöðuga flóðahættu. — GB HEIMURINN S.Þ. hefja skipulegan heimflutnmg fLóttamanua KOSOVO - Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna skýrði frá því í gær að brátt hefjist skipulagður heimflutningur flóttamanna til Kosovo. Fyrst í stað verða flóttamenn fluttir frá búðum í Albaníu og Makedóníu til borganna Pristina, Prizren og Urosevc í Kosovo-hér- aði. Bæði Flóttamannastofnunin og friðargæslusveitir Nató hafa var- að flóttamenn við því að snúa aftur á eigin spýtur vegna hættu af völdum jarðsprengna og ósprunginna sprengjuhleðslna úr klasa- sprengjum Nató. Engu að síður eru meira en 200 þúsund flóttamenn farnir til baka og á hverjum degi streyma þúsundir manna yfir landa- Þýskir hiskupar koma hálfa leið til móts við páfa ÞYSKALAND - Biskupasamkoma kaþólsku kirkjunnar í Þýskalandi hefur ákveðið að kaþólskir prestar haldi áfram að veita þunguðum konum ráðgjöf og gefa þeim vottorð um að hafa þegið slíka ráðgjöf, þrátt fyrir að Jóhannes Páll páfi hafi sent þýsku biskupunum bréf og beðið þá um að hætta slíkri ráðgjöf þar sem þessi vottorð hafi verið notuð til þess að fá heimild hjá stjórnvöldum til fóstureyðingar. Bisk- uparnir ákváðu hins vegar að á vottorðin skyldi bætt útskýringu þess efnis, að vottorðin megi ekki notast sem réttlæting fyrir fóstureyðing- um. Þýsk stjórnvöld eru nú að kanna hvort þessi viðbótarklausa hafi eitthvert lagaleg gildi. Rússar vilja refsiaðgerðum aflétt RUSSLAND - Boris Jeltsín, forseti Rússlands, og Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, áttu í gær fund í Moskvu, og sagði Jeltsín að Rússar myndu taka virkan þátt í friðargæslustarfinu í Kosovo með um 3.600 hermenn. Talsmaður Jeltsín sagði að Rúss- ar leggi nú mesta áherslu á að refsiaðgerðum gegn Júgóslavíu verði aflétt hið fyrsta. FÖSTUDAGUR 2S. JÚNÍ 1999 - 11 VIÐGERÐIR OG VIÐHALD FASTEIGNA ER OKKAR FAG LEITIÐ TIL VIÐURKENNDRA FAGMANNA! SÍMATÍMIMILLIKL. 10.00-13.00 Sími 555 1947 • FAX 555 4277 • 894 0217 ’-,é í m * JB9I SUN DHÖLLIN Góð fvrir stökkvara - h\/í har or cf-hHzhrptFiÆ fia Opið Virka daga Helgar - því þar er stökkbrettið fjaðurmagnað Vetur Sumar 6:30-21:30* 8:00-19:00* 6:30-21:30* 8:00-19:00* * Sölu hætt r 1V Upplýsingasími sundstaða í Reykjavík er 570-7711 í5tixSl!vYliGltsítoC'AÍTOfAN íHf.7 5ÍA.I

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.