Dagur - 07.08.1999, Page 6
LÍFIÐ í LANDINU
22 -
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999
,Ég hefalla tíð verið ípólitík til að hafa áhrif. Hefverið treysttii að vera í forystu, bæði í mírtum heimabæ Hafnarfirði ogsem varaformaður Alþýðuflokksins. Ég útiioka ekki að ég munigefa kostá mér. Við sjáum
hvað setur."
í viðtali raeð-
ir Guðmund-
ur Árni Stef-
ánsson á
hressilegan
hátt um
stöðu Sam-
fylkingar og ríksstjórnar
og afstöðuna til NATÓ
og Evrópusambandsins.
Hann útilokar ekki að
bjóða sig fram til for-
manns þegar Samfylk-
ingin verður formlega
gerð að stjórnmála-
flokki.
- Nú hefur þú löngum verið talin
í hópi vinstri krnta, telurðu þig
enn tilheyra þeim armi?
„Ég tilheyri engum armi innan
Samíylkingarinnar, enda engir
slíkir til staðar. Hinsvegar vil ég
sjá jöfnuð og réttlæti og er því
vinstri maður. Ég hef alla tíð
varað við því einkavæðingaræði
og þeirri blindu trú á allshetjar-
lausnir markaðarins sem menn
hneigjast til að líta á sem allra
meina bót. Ég útiloka ekki
breytingar á
þjónustuhlut-
verki ríkisins en
þær þarf að gera
með tilliti til
heildarhags-
muna en ekki
einungis í þeim
tilgangi að
bjarga íjárhags-
vanda ríkissjóðs
tímabundið eins
og þessi ríkis-
stjórn hefur haft
sterka tilhneig-
ingu til. Ríkis-
stjórnin hefur falið rekstrarhalla
ríkissjóðs með því að selja eignir
ríkisins en það gerir hún ekki
nema einu sinni.
Ég vil, upp á gamlan og góðan
klassískan kratisma, að markað-
urinn fái að njóta sín þar sem það
á við, einkum þar sem hægt er að
koma við virkri samkeppni, en á
öðrum sviðum ber að grípa til fé-
lagslegra lausna."
- Hvaða afstöðu hefurðu til að-
ildarinar að NATÓ?
„Eftir fall Berlínarmúrsins hef-
ur hlutverk NATO gjörbreyst.
NATO er að fínna sér framtíðar-
farveg og hefur gengið misjafn-
lega. Oryggis- og eftirlitshlutverk
með þróun lýð-
ræðis og mann-
réttinda hefur
aukist. Það eru
engar forsendur
til þess nú að Is-
land fari að huga
að breytingum
að aðild sinni að
NATÓ og væri í
engu samræmi
við þróun al-
þjóðamála, þegar
öll ríki álfunnar
sækjast eftir inn-
göngu. Ég á mér
þann draum að með eflingu Sam-
einuðu þjóðanna geti samtökin í
auknum mæli tekið við velflest-
um verkefnum NATÓ.“
- Viltu herinn úr landi?
„Bandaríkjamenn vilja herinn
úr landi. Þeir hafa sagt það bæði
opinberlega og í einkaviðræðum.
Þeir hafa verið að loka herstöðv-
um víðsvegar í Evrópu og í sfnu
heimalandi. Það er því óhjá-
kvæmilegt að breytingar verði
fljótlega á rekstri herstöðvarinnar
og íslendingar hljóta að
langstærstum hluta að taka við
þeirri starfsemi sem nauðsynleg
er. Við verðum að búa okkur und-
ir það og heija undirbúning fyrr
en síðar, meðal annars með tilliti
til atvinnumála á Suðurnesjum."
- Ertu fylgjandi inngöngu Is-
lands í Evrópusamhandið?
„Ég held að það sé óhjákvæmi-
legt að við verðum aðilar að Evr-
ópusambandinu og það kæmi
mér ekki á óvart að það yrði inn-
an fímm ára. Ef við ætlum að
vera virkir þátt-
takendur í sam-
félagi þjóðanna
þá er ekki verj-
andi að við tök-
um ekki virkan
þátt í samstarfi
innan Evrópu-
sambandsins,
nánast öll Iönd
Evrópu vilja
þangað inn. I
dag undirgöng-
umst við velflest-
ar skyldur ESB
samkvæmt EES
samningnum en við höfum engin
áhrif á gang mála í Brussel. Virk
pólitísk umræða um þessi efni
þarf að fara af stað.“
Gult spjald
á Samfylkingu
- Telurðu að það hafi verið mistök
hjá Álþýðuflokknum að fara í
stjóm með Sjálfstæðisflokknum
1991?
„Ég var andvígur þeirri stjórn
þegar hún var mynduð. Mér
fannst niðurstaða kosninganna
engan veginn kalla á slíka ríkis-
stjóm. Mistök eða ekki mistök,
það er erfítt að kveða upp stóra
dóma í því máli. Því er þó ekki að
leyna að þessi stjórn varð til þess
að þaulseta Dav-
íðs Oddssonar
hófst f stjómar-
ráðinu og það
sér ekki fyrir
endann á henni
ennþá.“
Hvemig
fannst þér að
vinna með Davíð
Oddssyni?
„Mér fannst
það mjög gott.
Ég hafði við
hann talsverð
samskipti þegar
ég var bæjarstjóri og hann borgar-
stjóri, þau voru hreinskiptin og
góð. Það sama var uppi í ríkis-
stjórninni. Hann er töffari og vill
„Þannig að mér
kæmi ekki á óvart að
það yrði formannsskipti
hjá Sjálfstæðisflokknum
snemma árs 2001 og
uppúr því held að ég
að ríkisstjórnin
flosni upp“
„Vinstri-grænir er
öfgafullur flokkur þótt
hann sé um leið að
mörgu leyti íhaldssam-
ur. Þetta er flokkur sem
sér draug í hverju
horni. Þetta er „fúll á
móti“ flokkur.“