Dagur - 07.08.1999, Blaðsíða 19

Dagur - 07.08.1999, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 - 35 Ólafur farmst rænulítill í bílnum og andaðist 12 dögum sfðar. Fyrr um nóttina hafði hann verið barinn illilega og skilinn drjúga stund eftir í fiskþvottakeri, ber að ofan í kalsaveðri og rigningu. Meðfylgjandi mynd er sviðsett. Líkið í bflnum ___________________________ Skömmu fyrir há- degi fimmtudaginn 12. mars 1953 var lögreglunni í Keflavík gert að- vart um að maður nokkur virtist vera ósjálfbjarga inni í bifreið við Kirkju- veg. Á vettvangi sá lögreglu- maður að maður sat í stýris- sæti og hálfhallaði útaf til hægri. Var hann allur storkinn blóði. Maðurinn reyndist með örlítilli rænu og gat nefnt nafn sitt; Olafur Ottesen. Ólaf- ur var 61 árs utanbæjarmaður, átti heima í Reykjavík en var matsveinn á mb. Heimi frá Keflavík. Hann var fluttur á sjúkra- hús, þar sem hann í fyrstu hresstist nokk- uð, en var ruglaður og mundi ekkert hvað hefði gerst. En hann andaðist á Landspít- alanum 12 dögum eftir að hann fannst svona illa á sig kominn; örmagna eftir mikinn blóðmissi og kaldur, með sjö sentimetra langan og djúpan skurð neðan við vinstra kjálkabarð, sennilega eftir egg- verkfæri. Hægri ökkli var stokkbólginn, mikil eymsli undir hægra hné, marinn á báðum upphandleggjum, á hægra auga glóðarauga og stór kúla á háhnakka. Dán- arorsökin var heilahristingur með blæð- ingum inn á heila og lungnabólga. Hér hafði því sýnilega eitthvert of- beldi átt sér stað. Vettvangsrannsókn beindi athygli Iögreglumanna að til- teknu húsi við Kirkjuveg og er þangað kom reyndist húsráðandinn, Jóhanna að nafni, ofurölvi og ekki viðmælanleg. Leigubílstjóri vitnaði að hann hefði kvöldið áður ekið Bandaríkjamanni og íslendingi frá þessu húsi og uppá Kefla- víkurflugvöll og að í húsinu hefði orðið eftir maður að nafni Ólafur. Bandaríkja- maðurinn leigði í húsinu og í herbergi hans fundust þrjú teppi með blóðslett- um í. Þegar nokkuð hafði runnið af Jó- hönnu gat hún upplýst að kvöldið áður hefði Bandaríkjamaðurinn Bob verið á staðnum ásamt Islendingi að nafni Arn- ar. Leiddu þessar upplýsingar til hand- töku þeirra og manns að nafni Einar. „Að brúka kerlinguna“ Við yfirheyrslur kom atburðarrásin smám saman í Ijós. Arnar, 17 ára og Einar, 20 ára, höfðu áður leigt í húsinu en Banda- ríkjamaðurinn Robert síðan fengið her- bergið. Kvöldið 11. mars hafði drykkja átt sér stað í húsinu, fyrir utan að Einar var edrú. Ólafur Ottesen bættist í hópinn um kl. 9 að kveldi og var mjög drukkinn fyrir. Skömmu síðar fóru Robert og Arnar með Ieigubfl upp á Keflavíkurflugvöll, meðal annars til að sækja sígarettur og áfengi. Skömmu fyrir miðnætti var partíið komið í fullan gang, en Ólafur brá sér frá í heimsókn í hús skammt frá. Þaðan fór Ólafur um nóttina, ákaflega drukkinn og slagandi. Með öðrum orðum átti þegar hér var komið hefðbundið íslenskt fillerý sér stað. A meðan hafði fólkið í Kirkjuvegshús- inu drukkið í mesta bróðerni, utan í eitt skipti að Arnar reiddist og dró hníf úr slíðri, sem hann kastaði á oddinn í gólfið við stól Einars. Síðar um nóttina var svo barið eindregið á dyrnar og fóru allir hin- ir ákærðu til dyra. Var Ólafur kominn og vildi komast inn og tautaði eitthvað um að þeir væru allir „að brúka kerlinguna". Þetta var þýtt fyrir Robert, sem reiddist ummælunum og sló Ólaf högg á hökuna, þannig að hann féll við. Robert og Arnar fóru út og reistu Ólaf við, en hinir ákærðu voru ekki sammála um hvað gerðist næst. Arnar sagði að síðan hefði Robert rotað Ólaf með höfuðhöggi. Þeir fluttu síðan rotaðan manninn, settu í gamalt fiskþvottaker og skildu hann eftir, en fóru aftur inn í húsið. Uti var kalsaveður (9 vindstig vestsuð- vestan og þrjár gráður í plús) og rigning og ákváðu partígestirnir að fara seinna að hlúa að Ólafi. Ólafur lá í kerinu hrjót- andi, ber niður að beltisstað. Þeir breiddu yfir hann teppi og jakka, en ákváðu síðan að flytja hann í áðurnefnd- an bíl. Ólafur komst við það til nokkurrar rænu og reyndi að streitast á móti og virðist sem menn hafi sammælst um að „svæfa manninn“ á ný. Fékk Ólafur þá högg á vinstri kjálka og var Arnar æstur í að koma á hann fleiri höggum og tókst það. Svo virðist sem hann hafi verið með hnífinn í það skiptið í höndunum og tóku menn eftir því að Ólafi var farið að blæða, en Arnar harðneitaði að hafa not- að hnífinn og var það aldrei sannað. Ófyrirleitni og skeytingarleysi Ólafur var skilinn eftir í bflnum, en hin- ir ákærðu fóru aftur inn í húsið, þrifu sig og fóru að sofa um kl. 4.30. Einar vaknaði kl. 7.30 og fór til vinnu. Hann gekk framhjá bílnum en sá Ólaf ekki og taldi að hann væri farinn. Robert fór að heiman um 10.30 og spáði ekkert í Ólaf. Arnar fór síðastur skömmu fyrir hádegi, sá að Ólafur lá hreyfingarlaus í bílnum, en skipti sér ekki meira af hon- um. I dómsmálinu þótti sannað að Robert og Arnar hefðu orðið Ólafi að bana um nóttina með höggunum, en það þótti ekki sannað að um ásetning hafi verið að ræða, frekar en sjálfsvörn. Um gá- leysisverknað hafi þvf verið að ræða og svo brot á lögum fyrir að hafa yfirgefið Ólaf í bílnum bjargarlausan. Tekið var tillit til ófyrirleitinnar framkomu Ro- berts og Arnars gagnvart hinum aldurs- hnigna Ólafi og skeytingarleysis þeirra almennt og í héraði voru þeir báðir dæmdir í þriggja ára fangelsi. Einar var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fang- elsi fyrir að kanna ekki ástand Ólafs. Hæstiréttur taldi sannað að Robert hefði greitt Ólafi tvö högg og að við bif- reiðina hefði Arnar veitt honum höfuð- högg. „Lýsing á ákomum á Ólafi, eftir að bann fannst, sýnir að hann hefur hlotið fleiri áverka en raktir verða til framangreindra höfuðhögga." Ekki var þó talið að um ítrasta morð hefði verið að ræða, heldur manndráp af gáleysi. I Hæstarétti var dómur Roberts stað- festur, en dómur Arnars færður niður í tvö ár sökum ungs aldurs hans. Refsing Einars var aftur á móti hækkuð upp í þrjá mánuði, en einig skilorðsbundið. Jóhanna húsráðandi kom ekki við sögu sem ákærð, en hún dó úr krabbameini meðan á rannsókn málsins stóð. SÖI\II\I DOMSMflL Friðrik Þór Guðmundsson skrifar Þrjú á palli. Sá vinsæli söngflokkur þrjú á palli söng lög af ýmsum toga, en einna hæst ber nafn hans fyrir söng á lögunum úr leikritinu Þiö munið hann Jörund eftir Jónas Árnason. Hver skipuðu þennan söngflokk? Staðarfell. ( Dölum er Staðarfell höf- uðból bæði að fornu og nýju. Hvaða starfsemi er þar nú í stórhýsi sem hýsti hvaða starf áður? í Vopnafirði. Austur i Vopnafirði er einn reisulegasti torfbær landsins, byggður á átjándu öld og búið í allt fram til 1966. Þar er nú starfrækt byggðasafn. Hver er staðurinn? Virkjun vestra. Virkjunin sem hér sést á mynd er vestur við Arnarfjörð og framleiðir hún stærstan hluta þess raf- magns sem Vestfirðingar nota. Hver er virkjunin? Forsætisráðherrann. Ólafs Thors verður alla tíð minnst sem eins mesta stjórnmálagarps aldarinnar. (hve mörgum nkisstjórnum var hann for- sætisráðherra? LAND OG ÞJCÐ Sigurðir Bogi Sævarsson skrifar 1. Hverjar eru þær fjórar sýslur sem liggja að Rangárvallasýslu. 2. Hver er kappi sá sem keypti á dögun- um 28% hlut í Básafelli á ísafirði og hyggst þar á landvinninga? 3. Hver eru þau tvö byggðarlög í Aust- urlandskjördæmi sem í réttu lagi heita Höfn? 4. Við hvaða fjörð er Súðavík? 5. Hvert er mjólkursamlagið á lands- byggðinni sem Mjólkursamsalan í Reykjavík keypti á dögunum? 6. Hvað heitir leiðin úr Svínahrauni og niður í Ölfus, sem farin er þegar ekið er til Þorlákshafnar? 7. Hvað heitir leiðin milli Sauðárkróks og Skagastrandar, þar sem fram- kvæmdir hefjast á næstunni við lagn- ingu heilsársvegar? 8. í hvaða grein komst Gunnar Huseby í fremstu röð, meðal annars sem Evrópu- meistari? 9. Um hvaða bók var Kristján Alberts- son að skrifa þegar hann hóf ritdóm sinn á þessum frægu orðum: Loksins, loksins? 10. í einni íslendingasagnanna er sagt frá manni sem lét segja sér öll stórtíð- indi þrisvar. Hver var hann? !|0AnsjpcjBjag b ||b(n 'ot 'sauxBT J9P||bh jpp jilusbx bjj b|>hlu uubjbpa '6 '|djBAn|n>| | g '6sAS||B[jjgi8Acj Lun pnds J8 jpp 'L '!|s6u8Jc) '9 jsonpuoig b B6u|uiaAunH-Jnisnv s6b| -?jn|ps BB|Luesjn>(|of|Al |jdAa>| uB|BSLuesjn>||of|Al 'S pjpíjBijiy v ujqh |UJBU njpo jptaij jbc| pidjocj us 'pjofjB^Bg jb68asu|L| 6o ipjijbujoh | ujoh ujn pnd’s jb68asjbuub jb jph 'E 'Miojeseg j jn|L| %et'9E nu e UJ9S ‘|S8US||9jæus b ijig p uossubí -jsu» jnpunuipng js uin jjnds ja jpp uias jnpBUJ bs z 'Jn|SÁsjBpjBÍjB[Ag 6o -jbpjb[jb6b>is uepjou pB 6o UBjsnB ps B|sAs||9jBjjB>|s-JnjS8A 'ubjssa pB B|sAs9Ujy nj8 n|sAsB||BAJB6uBy ps b[66|| uiss jbjpb jn|sAs jæcj i, un[>jJ!Aje>||o[|A|, '||9JJejs -ng , '92611!) uibjj 6o LZ61 PJf Jnj>|æjpBjs jba jecj ui8s ‘uinuB|p>|sejpæuisnL| b|uib6 j Bsng ||j J8 uias ‘yys pojsjBpjajpaui nu J9 jnajjepBJS y , 'uossjnpisg jupp 6o uasjusg s|80Ji 'JiJjppsuuBjpcj eppg necj njOA ;ned b nbp npndi>|s uias nec|, :J0as

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.