Dagur - 10.08.1999, Page 9
Xfe^UT'
ÞRIOJUDAG UR 10. ÁGÚST 1999 - 9
sammáLi
canna tala í málinu á áberandi ólíkum
er að tryggja dreifða eignaraðild.
Vandamálið er hvað þetta er erfitt
í framkvæmdinni,“ segir Finnur.
Jóhanna boðar lagafrnmvarp
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, hefur varað
við því allt frá því að farið var að
tala um söluna á ríkisbönkunum
og öðrum aflmildum ríkisfyrir-
tækjum að hættan sé á að fáir
fjársterkir aðilar komist yfir þau.
Hún segir þetta nú blasa við í
FBA.
„Það sem þar er að gerast stað-
festir þá kenningu mína að nauð-
syn beri til að setja lög um tak-
markanir á eignaraðild og þar vil
ég miða við að enginn einn aðili
geti átt meira en 3-5% hlut. Það
er alveg ljóst að framkvæmdin á
sölu FBA og kennitölufárið í
kringum hana hefur fyrst og
fremst styrkt einkavinavæðinguna
og flutt milljarða frá skattgreið-
endum til fáeinna sterkra fjár-
magnseigenda. Við í Samfylking-
unni héldum því fram að svona
myndi fara og það er nú að koma
f Ijós að við höfðum rétt fyrir okk-
ur. Otti okkar var ekki ástæðu-
laus,“ segir Jóhanna.
Samþjöppun valds
Hún segist telja að almennt þurfi
að setja slíkar reglur en ekki bara
um sölu á hlutum í fjármagnsfyr-
irtækjum. Það sem sé að gerast í
atvinnulífinu og hafi verið að ger-
ast þar á undanförnum árum, sé
að í stórum greinum eins og flutn-
ingastarfsemi, hjá tryggingafélög-
unum, hjá olíufélögunum, í fjöl-
miðlunum og nú í Ijármálakerfi
þjóðarinnar eigi sér stað sam-
þjöppun valds. Þarna séu völd og
Ijármagn að færast yfir á fáar
hendur.
„Það sem er að gerast nú í FBA
er bara það sem ég hélt alltaf fram
að örfáir peningamenn séu að ná
bankanum undir sig. Viðskipta-
ráðaherra og fleiri töldu að hér
væri um mjög dreifða eignaraðild
að ræða. Þeir sögðu þúsundir Is-
lendinga nú eiga orðið hlut í
bönkunum. Þetta er bara rangt,
hér var um kennitöluleik að ræða.
Eg tel nauðsynlegt að áður en sal-
an á 51% hlut ríkisins í FBA hefst
verði komin á löggjöf um dreifða
eignaraðild. Þess vegna ætla ég að
leggja lagafrumvarp um þetta efni
fram strax í upphafi þings í haust.
Samfylkingin hefur áður reynt að
beita sér fyrir því að settar yrðu
slíkar skorður en það hefur ekki
gengið fram. Nú hefur forsætis-
ráðherra aftur á móti Iýst yfir vilja
til þess setja lög um dreifða eign-
araðild. Þess vegna mun ég og við
í Samfylkingunni, þrýsta á að
frumvarp þar um komi fram starx
og Alþingi kemur saman," segir
Jóhanna Sigurðardóttir.
vEðlilegt en erfitt“
Arni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra fer ásamt Finni Ingólfs-
syni með 51% hlut ríkissjóðs í
FBA. I samtali við Dag segir hann
það ekki óeðlilegt að svipuð lög
gildi um íjárfestingabanka líkt og
viðskiptabanka að eignaraðildin
sé dreifð og að enginn einn eigi
meira en 8-10% hlut. Að því leyti
er hann sammála Davíð en tekur
undir með samflokksmönnum
sínum, Pétri og Vilhjálmi, að
framkvæmdin geti reynst erfið.
Margrét Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingarinnar, bendir
á að við umræðu um lagabreyt-
ingu á hlutafélagavæðingu bank-
anna hafi Samfylkingin varað við
því að ekkert væri í lögunum sem
tryggði dreifða eignaraðild, sem
þó hefði verið talað um og vilji
væri fyrir hjá forsætisráðherra.
„Við leggjum áherslu á að þetta
sé gert með einhveijum hætti,“
segir Margrét og er sammála t.d.
Vilhjálmi Egilssyni að erfitt geti
reynst að tryggja dreifða eignarað-
ild, séu bankarnir komnir á mark-
að. Hvort Samfylkingin sé komin
á sveif með forsætisráðherra í
málinu segir Margrét óljóst hvaða
leiðir Davíð vilji fara. Samfylking-
in muni ein og sér skoða hvaða
leiðir séu færar. Nauðsynlegt sé
að tryggja þessa dreifðu eignarað-
ild. Yfirlýsing liggi fyrir um að
hlutir í Búnaðarbanka og Lands-
banka verðir seldir en Margrét
auglýsir eftir tillögum ríkisstjórn-
ar um hvernig eigi nákvæmlega að
standa að þeirri einkavæðingu.
Atvinna
Óskum eftir að ráða starfskraft, ekki yngri en 20 ára.
Vinnutími frá kl. 14-18.30.
Áhugasamir hafi samband við Valgerði í síma
863-1664 eftir kl. 14 á daginn.
$SUZUKI
* ■ ■; ————
Komdu i
veynslu-
akstur!
IIIIIIIIIIIII lllil IIIIIIII lllllflllllll IIIIIIIIII i
GL 1.099.000 KR.
GL 4x4 1.299.000 KR.
Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Hefur þú séð svona verð á 4x4 bil?
• Mest seldi bíllinn í Japan(l), annaöárið í röö.
• Öruggur Suzuki fjölskyldu- og fjölnotabíll.
• Skemmtilequr bíll meomiklum staðalbúnaöi:
ABS hemlalæsivörn
rafdrifnu aflstýri,
samlæsingu, o.m.fl
Ódýrasti 4x4
billinn á Islandi
www.visir.is