Dagur - 02.09.1999, Qupperneq 1
Kjallari byggdur gO
- en síðan frestun I
Frá framkvæmdunum við Alþingishúsið. Talað er um að frestun
framkvæmda muni skilja eftir sig sár í miðbænum, en nú hefur verið
ákveðið að á grunninum verði steyptur upp bilakjallari til að loka „sárinu“.
- mynd: gva
Frestuu viðbyggingar
AlJjingishússins er
staðreynd. Bílakjall
ariim verður byggður
en síðan verður fram-
kvæmdum frestað.
Vegaframkvæmdum
smman fjalla frestað
á næsta ári.
Þrátt fyrir tilraunir þingforseta
til að fá breytt ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að fresta fram-
kvæmdum við Alþingishúsið hef-
ur nú verið ákveðið að ákvörð-
unin muni standa.
„Menn hafa verið að tala um
húsgrunninn sem sár í miðborg-
inni en það stendur ekki til að
skilja hann eftir opinn að því er
ég best veit. Það á að vera bíla-
geymslukjallari undir húsinu.
Hann á að byggja og þegar því er
lokið verður frekari framkvæmd-
8.400
milljomr
Fyrirtæki á hlutabréfamarkaði
skiluðu í heildina 8,4 milljarða
króna hagnaði á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Þetta er aukning
upp á um 40% frá sama tímabili
í fyrra. AIIs eru fyrirtækin 65, þar
af komu 52 út í hagnaði en 13
skiluðu tapi upp á 811 milljónir
króna. Heildarhagnaður fyrir-
tækjanna nemur því 9,2 millj-
örðum króna.
Afkoman er misjöfn eftir at-
vinnugreinum. Bankar, olíufé-
Iög, tæknifyrirtæki og flest sjáv-
arútvegsfyrirtæki skiluðu góðu
milliuppgjöri. Fyrirtæki í veiðum
og úrvinnslu á uppsjávarfiski
skiluðu uppgjörum almennt í
mínus. Eins vekur slök afkoma
fisksölufyrirtækjanna athygli. Að
mati verðbréfamiðlara horfir al-
mennt vel til ársloka með rekstur
fyrirtækja. Búist er við fjölgun
hlutafélaga á Verðbréfaþingi
fram að áramótum. — Rjn
Sjú núnar ú bls. 8-9.
um frestað í að minnsta kosti eitt
ár til að létta á framkvæmda-
hraða þar sem spennan er mest í
þjóðfélaginu, sem er hér á höf-
uðborgarsvæðinu. Bygging þessa
húss er veruleg framkvæmd og
hún er ekki samningsbundin og
því hafa menn það nokkuð í
hendi sér að fresta framkvæmd-
um,“ sagði Jón Kristjánsson al-
þingismaður og formaður fjár-
laganefndar í gær.
Frestim vegaframkvæmda
Vitað er að fyrirhugað er að
fresta mun fleiri framkvæmdum,
einkum hér sunnan fjalla. Jón
Kristjánsson var spurður hvaða
verkefni það væru sem menn
væru einkum að velta fyrir sér í
þessum efnum. Hann sagðist
ekki hafa lista yfir það á sínu
borði ennþá, því málið væri enn
til meðferðar hjá ríkisstjórn.
„Mér þykir það afar líklegt að
þar sé um vegaframkvæmdir að
ræða, sem til stendur að hægja á.
Eg get fullyrt að það er ekki ver-
ið að tala um að slá nein verkefni
af heldur bara fresta fram-
kvæmdum tímabundið þar sem
spennan er mest,“ sagði Jón
Kristjánsson.
Margir landsbyggðaþingmenn
segja það ekki koma til greina að
draga úr framkvæmdum úti á
Iandi, hvað þá vegaframkvæmd-
um. Þar sé engin þensla og þess
vegna engin ástæða til að fresta
framkvæmdum. — S.DÓR
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segir íslenska kúakynið nú í
eins konar umhverfismati.
íslenska
kýriri í ii m-
hverfismati
„Eg harma það ef Landssamband
kúabænda ætlar að ganga fram
með látum í þessu máli, því um-
ræðan um það þarf að vera fag-
leg,“ sagði Guðni Agústsson land-
búnaðarráðherra í samtali við
Dag í gær. Guðni var að svara
spurningu um óróleika og gagn-
rýni ýmissa fulltrúa á aðalfundi
Landssambands kúabænda vegna
seinagangs við ákvörðun um inn-
flutning á norskum fósturvísum
til landsins. Fram kom á fundin-
um hjá sumum fulltrúanna að
þeir teldu núverandi og fyrrver-
andi ráðherra hafa dregið kúa-
bændur á asnaeyrunum í málinu.
Pattstaða hafi ríkt í einangrunar-
stöðinni í Hrísey þar sem 30 kýr
bíði eftir norskum fósturvísum og
kostnaðurinn sem falli til vegna
þessa nemi hálfri milijón á mán-
uði.
Atkvæðagreiðslan skýr
„Eg minni á að kúabæncjur hafa
sjálfir Iátið reyna á þetta mál í al-
mennri atkvæðagreiðslu þar sem
innflutningur nýs kyns var kol-
felldur með 70% atkvæða á móti
30. Þetta hefur flækt málið mikið
og auk þess tengjast þessu margar
aðrar tilfinningar," segir ráðherra.
Hann segir málið hafa verið f
skoðun og hann hafi síður en svo
ýtt því frá sér. Hins vegar hafi ver-
ið formgalli á málatilbúnaði
þannig að málið sé í raun komið á
ný til kúabænda og yfirdýralækn-
is. Guðni segir að skýra megi
stöðuna með því að taka saman-
burð af öðrum málum sem eru
heit í umræðunni, þ.e.a.s. Eyja-
bakkamálinu, og það sem hann sé
nú að gera gagnvart íslenska land-
námskúakyninu sé að setja það í
umhverfismat. Málið þurfi tíma
og skoðun, kannski ekki síst Iíka í
Ijósi upplýsinga frá læknum um
hollustu mjólkurinnar, að í henni
sé einstæð vörn gegn sjúkdómum.
- BG
Það var mikið um að vera í ritfanga- og bókaverslunum landsins í gær og var Bókval á Akureyri þar engin undan-
tekning. Grunnskólarnir voru að byrja. Að sögn Ingþórs Ásgeirssonar, verslunarstjóra Bókvals, gekk þó allt greið-
lega fyrir sig. Það kostar á milli 1.100-2.500 kr. að kaupa það sem á innkaupalistum grunnskólanna er, en sú
upphæð er fljót að hækka, kaupi menn eitthvað umfram það. Sjá einnig Lífið I landinu bls. 19. - mynd: br/nk
... ........ ;;;; v:/ m \ . _ ;
Afgreiddir samdægurs
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524