Dagur - 02.09.1999, Page 6
6 -FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
-L>*fpur
ÞJÓÐMAL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjaid m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Netfang auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Simbréf auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.900 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
omar@dagur.is
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
460 6161
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Framtíð Austur-Tímor
í fyrsta lagi
Sameinuðu þjóðunum hefur tekist ótrúlega vel framkvæmd
þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Austur-Tímor, en þar greiddu
íbúarnir atkvæði um hvort þeir vilja að Iandið verði sjálfstætt
ríki eða njóti sjálfsstjórnar innan indónesíska ríkjasambands-
ins. Þátttakan í kosningunum var ótrúlega mikil. Fullyrt er að
98.6 prósent atkvæðisbærra manna - en þeir voru um 450
þúsund - hafi mætt á kjörstað. Talning stendur nú yfir og úr-
slit munu liggja fyrir innan nokkurra daga. Því er almennt
spáð að hin mikla þátttaka sé merki um sigur þeirra sem vilja
sjálfstæði.
í ððru lagi
Ástandið á Austur-Tímor hefur lengi verið óbærilegt, sérstak-
lega fyrir þann mikla meirihluta íbúanna sem er rómversk-kaþ-
ólskrar trúar. Þegar Portúgalar yfirgáfu þessa nýlendu sína árið
1975 gripu Indónesar tækifærið og hernámu landið. I kjölfar-
ið fylgdi kúgun og harðræði gagnvart öllum þeim sem ekki
vildu sætta sig við hernámið. Það er aðeins vegna aukins þrýst-
ings erlendis frá og brotthvarfs Suhartos einræðisherra úr
valdastóli í Indónesíu að íbúar Austur-Tímor sjá loksins fram á
betri tíma. Ef meirihlutinn hefur kosið sjálfstæði munu Sam-
einuðu þjóðirnar taka að sér stjórn landsins um hríð og reyna
að tryggja að stofnun hins nýja ríkis fari friðsamlega fram.
í Jiriðja lagi
Þótt Indónesísk stjórnvöld hafi heitið að virða úrslit atkvæða-
greiðslunnar, er öllum ljóst að þau eru mjög á móti sjálfstæði
Austur-Tímor. Vopnaðar sveitir stuðningsmanna áframhald-
andi ríkjasambands hafa síðustu daga staðið fyrir hermdarað-
gerðum og meðal annars drepið nokkra starfsmenn Samein-
uðu þjóðanna. Indónesíski herinn hefur ekki reynt að hindra
þetta ofbeldi. Margir óttast því að þegar niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar liggur fyrir muni þessi öfl grípa til enn frekari of-
beldisaðgerða. Þá mun mjög reyna á Sameinuðu þjóðirnar að
hvika hvergi frá því markmiði að vilji almennings fái að ráða
framtíð Austur-Tímor.
Elías Snæland Jónsson
Skaffarinn
Garri er búinn að sjá það út að
hlutskipti sumra er að vera
skáffarar. Það er alveg sama
hvað þeir taka sér fyrir hendur,
þeir lenda alltaf í því að skaffa.
Skaffarar eru oftast eftirsókn-
arverðar týpur, ekki síst dug-
Iegir skaffarar. Allir vilja þekk-
ja góðan skaffara og Ieiða má
líkum að því að þeir eigi meiri
séns í pólitík en t.d. slakir
skaffarar. Halldór Blöndal er
gott dæmi um skaffara. Hann
hefur um árabil verið í hlut-
verki skaffarans í Norðulandi
eystra. Stjórnmál
hans hafa nokkuð
miðast við þetta og
þau mætti hiklaust
kalla „sköffunarpóli-
tík“. Halldór fer í
kaupstaðarferð til
Reykjavíkur og tekur
sér stöðu á Alþingi
til að skaffa kjör-
dæmi sínu réttmæt-
an skerf af þjóðar-
kökunni. Hann
skaffar fé í framhaldsskóla og
háskóla. Og hann skaffar vegi
og jafnvel jarðgöng og pening í
hitt og pening í þetta.
Þingforseti sem
skaffar
Það er því e.t.v. ekki skrýtið
þótt þingheimur allur sjái að
þar fer maður sem gæti skaff-
að fyrir þingið. Og Halldór var
því auðvitað gerður að þingfor-
seta. Og nú er hann byrjaður
að skaffa á þeim vettvangi.
Þingið á að fá stærra hús og
fleiri bílastæði og betri aðbún-
að eins og allir vita og ekki
veitti nú af. Það er hins vegar
komið babb í bátinn því nú
ætla þeir Dabbo og Dóri að
fresta öllu heila klabbinu út af
þenslunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Þetta eru auðvitað gríðar-
lega vondar fréttir fyrir þingið
og ekki bætir nú úr skák að
búið er að grafa gríðarstóran
grunn fyrir nýbyggingunni og
setja ofan í hann einhverja þá
mestu steypu sem um getur á
einum stað á Islandi. Málið er
viðkvæmt og margir þingmenn
eru beinlínis á barmi taugaá-
falls, svo mjög höfðu þeir
hlakkað til að vinna í hinu nýja
húsi. Aðrir bregðast við af
kaldhæðni, eins og t.d. Guð-
mundur Árni Stefánsson sem
leggur til í Degi í gær að úr því
stöðva eigi málið sé best að
fara alla leið og
moka bara yfir stey-
puna stóru. Garra
sýnist að þannig
myndi hún væntan-
lega geymast eins
og hverjar aðrar
fornminjar - þar til
betur árar.
Halldór Blöndal. Milli ekka
sogaima
En þegar neyðin er stærst er
hjálpin næst. Milli ekkasoga
þingheims heyrist kunnugleg
rödd skaffarans, sem segir
hugreystandi: „Mér kemur í
hug staka!“ Það bráir af
mönnum og vonin lifnar í
brjóstum á ný. Halldór Blön-
dal hefur hjólað í ríkisstjórn-
ina og ætlar að skaffa það sem
þarf til að ldára að byggja þing-
hússaukann. Garri hefur enn
ekki fregnað hvern árangur
sköffunarpólitík Halldórs hef-
ur borið í ríkisstjórninni, en
víst er að þar eru hlutirnir ekki
teknir neinum vettlingatökum.
Það er því full ástæða til að
búast við efnahagsþenslu við
Austurvöll í vetur. GARRI
■ VjH W/ JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrifar
Misjafiiir menn í kerfi
Hin gríðarlega umfjöllun um
FBA málið, umræðan um plot og
baktjaldamakk í íslenskum fjár-
málaheimi og pólitík, sem náði
hámarki sínu með eftirminni-
legri grein Sigurðar G. Guðjóns-
sonar í Degi í vikunni, hafa dreg-
ið fram í dagsljósið þá staðreynd
að kerfi og hugmyndafræði mega
sín Iítils þegar manneskjan er
annarsvegar.
Menn hafa verið að búa til
hugmyndafræði og byggja upp
trúarbrögð í þúsundir ára, yfir-
leitt í góðum tilgangi. En hin
bestu áform músa og manna í
þessum efnum hafa oftar en ekki
strandað á því að mennirnir eru
misjafnir og hver er jafnan sjálf-
um sér og sínum næstur.
Hagsmimatrú
Þannig er kristni sennilega
mannúðlegustu trúarbrögð ver-
aldar, en það hefur ekki komið í
veg fyrir að mörg verstu illvirki
sögunnar hafa verið unnin í
nafni kristninnar. Kommúnism-
anum svipar í veigamiklum þátt-
um til kristni og hugsjónin um
algjöran jöfnuð
manna er göfug.
En það nægði ekki
til að koma á
sæluríki á jörð í
gamla Sovétinu.
Mennirnir eru
nefnilega jafn
misjafnir og þeir
eru margir og þeir
verða hreinlega
ekki hnepptir eins
og sauðir í trúar-
brögð eða kenn-
ingakerfi sem
ganga gegn hagsmunum þeirra.
Þessvegna virkaði kommúnism-
inn ekki i Sovétríkjunum, þar
sem valdamenn höguðu sér eins
og ótýndir kapítalistar og Iifðu í
vellystingum pragtuglega á með-
an að fjöldinn lap dauðann úr
skel. Og kristinni kirkju hefur
ekki tekist að hamla gegn því að
fylgismenn hennar fremdu ótelj-
andi ódæðisverk í nafni trúarinn-
ar, þegar það
þjónaði per-
sónulegum
hagsmunum
þeirra.
Saml jjrautur
Og af sömu
ástæðum þurfa
menn ekki að
undrast það þó
smurðir frjáls-
hyggjumenn
uppi á íslandi
gangi annað
veifið af trúnni og fari að tala
eins og ótýndir kommúnistar,
þegar kenningin gengur þvert á
hagsmuni þeirra, eins og brögð
hafa verið af í FBA málinu. Það
virðist sem sé ekki vera allur
munur á einkarekstri og ríkis-
rekstri þegar upp er staðið. Það
sem skiptir máli er hvaða menn
halda um stjórnvölinn hverju
sinni og hvernig þeir eru innrétt-
aðir. Fijálshyggjumaðurinn hag-
ar sér eins og sameignarsinni
þegar það hentar honum og
kommúnistinn gerist frjáls-
hyggjumaður þegar það þjónar
hans hagsmunum. Hentistefna,
kallast þetta víst og er sennilega
eina hugmyndafræðin sem hent-
ar mannskepnunnni fullkom-
lega.
Fyrst og síðast hugsar maður-
inn um eigin hag og vill sjá um
sig og sína. Og hugmyndafræð-
in, trúin og hin pólitíska sann-
færing fj'úka yfirleitt út í veður
og vind þegar þessi fyrirbæri
stangast á við persónulega hags-
muni viðkomandi.
Þetta hefur FBA málið kennt
okkur.
svarad
Ervál nýrrafulltrúa í
stjóm FBA til þessfaUið
aðskapa sáttum
bankann?
Sævar Helgason
jramkv.stj. Kaupþings Noiðurlands.
“Eg vona það
innilega.
Miðað við
þau orð sem
Jón Ingvars-
son Iét falla
á hluthafa-
fundi FBA í
fyrradag, þá
ætlar hann
að starfa með hag bankans að
leiðarljósi sem ég efast ekki um
að Kristján Þór Júlíusson muni
líka gera. Það er aftur á móti
spurning hvort sátt næst í þessu
máli, það ræðast sjálfsagt mikið
af því hvernig staðið verður að
sölunni á eignarhluta ríkisins í
bankanum. Þar held ég þó að
erfitt verði að tryggja dreifða
eignaraðild eða setja sérstök lög
þar um.“
Hreinn Loftsson
lögmaðurogform. einkav.nefndar.
„Því geri ég
mér ekki
grein fyrir.
Ágætir menn
voru í stjórn-
inni fyrir og
ágætir menn
koma inni í
hana, þannig
að ég get
ekki séð að þetta breyti neinu í
sjálfu sér.“
Pétur H. Blöndal
þ ingmaður Sjálfstæðisýlokhs.
“Það finnst
mér ekki
ólíklegt. Að
minsta kosti
er trúlegt að
meiri sátt
náist um
þessa skipan
í stjórnina
en ef einhver
fjórmenninga sem fara fyrir
Orca-hópnum hefði sest í stjórn-
inina. Hinsvegar finnst mér
þetta mál vera fullmikill stormur
í vatnsglasi, með hliðsjón af því
að FBA er aðeins einn af sex
bönkum í landinu og atvinnulíf-
ið er ekki bara bankar. Því er ver-
ið að gera fullmikið veður út af
eignarhaldi og stjómarskipan í
þessu eina fyrirtæki og einsog ég
hef áður bent á þá hafa bankar
enga sérstöðu umfram önnur
þjónustufyrirtæki.“
Jóhanna Sigurðardóttir
þ ingmaðurSamfylkingar.
“Almenning-
ur hefur nú
séð svart á
hvítu hina
pólítísku
samtrygg-
ingu íhalds-
aflanna með
peninga- og
valdaöflun-
um í þjóðfélaginu. Það verður
aldrei friður um þá valdasam-
þjöppun og fákeppni í atvinnulíf-
inu og á fjármálamarkaði sem
stjórnarflokkarnir hafa Ieynt og
Ijóst beitt sér fyrir í gegnum árin.
Val á fulltrúum Orca í stjórn
FBA breytir þar engu um.“
ftad rno2 nianijblfiíania T^ióg
.'mlgV/dfýíljniHýT á'ih. íb?. 6i
^jB^ávIe GTaVlíJdó
illIJ U«K9d I ,TI
.880fj ’íbíTlijjÍa
i gia i öiJ
itiíj' ugnóJ so iJvonuJörri
i T 11 h' 6'i) I ilrn' ri1|j)cj