Dagur - 02.09.1999, Side 8
8- FIMMTUDAGVR 2. SEPTEMBER 1999
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 - 9
Thyptr.
FRETTASKYRING
BJORN
JOJJANN
BJORNSSON
SKRIFAR
í samantekt Dags á
milliuppgjönun 65
fyrirtækj'aíí hluta-
bréfamarkaðnum kem-
ur í ljós að alls högn-
uðustþauum 8,4
milljarða króua fyrstu
sex máuuði ársius.
Þetta er veruleg aukn-
iug frá síðasta ári, eða
hátt í 40%. Af þessum
65 fyrirtækjum skil-
uðu 52 hagnaði en 13
komu út með tapi.
Skráð fyrirtæki á svokölluðum að-
allista og vaxtarlista Verðbréfa-
þings eru 74 í dag, það nýjasta
bættist reyndar við í fyrradag, þ.e.
Islenski hugbúnaðarsjóðurinn.
Þar af eru 50 hlutafélög á aðal-
lista en skilyrðið til að komast í
þann hóp er að vera að lágmarki
með 600 milljóna króna mark-
aðsvirði. Fyrirtækin sem miða
rekstur sinn við almanaksárið eru
65 talsins og þeirra frestur til að
skila milliuppgjöri rann út nú um
mánaðamótin. Öll skiluðu þau á
réttum tíma. Til marks um bætta
afkomu þeirra hefur úrvalsvísital-
an hækkað töluvert á árinu. Hún
náði sögulegu hámarki seint í
ágúst og hefur nú hækkað um
rúm 18% frá áramótum.
Fyrirtæki á hlutabréfamarkaði
eru ekki ein um það að skila góðri
afkomu. Nokkur fyrirtæki utan
þingsins hafa séð ástæðu til að
tilkynna um góða afkomu sína.
Hæst ber að sjálfsögðu Lands-
síminn, sem hagnaðist um rúman
milljarð króna. Eins hafa nokkrir
sparisjóðir verið að tilkynna góða
afkomu, t.d. SPRON með 60
milljóna hagnað og Sparisjóður
Hafnarfjarðar með 76 milljónir í
afgang.
Þegar einstakar atvinnugreinar
eru skoðaðar kemur í ljós að
bankarnir voru að gera það sér-
lega gott á fjTri helmingi ársins.
Samtals voru þeir að ná svipuð-
um afkomutölum og allt árið í
fyrra. Alls högnuðust Lands-
banki, Búnaðarbanki, Islands-
banki og FBA um 2,7 milljarða
króna, miðað við 1,7 milljarða á
sama tímabili í fyrra. Ef spari-
sjóðir og aðrar Qármálastofnanir
eru teknar með í reikninginn má
ætla að gróðinn sé vel á fjórða
milljarð króna. Tölulega séð náði
FBA bestum árangri fyrirtækja á
Verðbréfaþinginu, eða hagnaði
upp á 734 milljónir króna, sem er
27,9% af veltu.
Oliufélðgm í góðiun málum
Olíufélögin voru sömuleiðis að
gera það gott. Alis högnuðust þau
um 608 milljónir króna sem er
mun betri árangur en á síðasta
ári. Hlutfallslega var árangur
þeirra svipaður, eða hagnaður
upp á rúm 4% af veltu. Bestum
árangri náði þó Skeljungur með
4,8% hagnað af veltu.
Sjávarútvegsfyrirtæki hófu
rekstrarárið almennt mjög vel.
Samanlögð afkoma þeirra er
hagnaður upp á 1,4 milljarða
króna. Af 13 fyrirtækjum sem
komu út í tapi voru 5 þeirra úr
sjávarútveginum. Bestum árangri
sjávarútvegsfyrirtækjanna hlut-
fallslega náði Guðmundur Run-
ólfsson hf. í Grundarfirði með
hagnað upp á 103 milljónir sem
er þriðjungur veltunnar. Utgerð-
arfyrirtæki eins og Grandi, Har-
aldur Böðvarsson, Þorbjörn f
Grindavík og Skagstrendingur
voru sömuleiðis að gera það gott,
með hagnað upp á 12-17% af
veltu. Nokkur voru síðan í kring-
um 10 prósentin. A hinum kant-
inum var Jökull á Raufarhöfn að
skila hlutfallslega slökustu af-
komunni af sjávarútvegsfyrirtækj-
unum, eða tapi upp á rúm 36% af
veltunni. Fyrri helmingur ársins
var sömuleiðis erfiður fyrir fiski-
mjölsverksmiðjur eins og Krossa-
nes, Loðnuvinnsluna og SR-mjöl,
sem öll komu út í tapi eins og sjá
má á meðfylgjandi listum.
Slakt hjá fisksölufyrirtækj-
imuni
Eignarhalds- og fjárfestingafélög
og hlutabréfasjóðir skiluðu alls
hagnaði upp á 876 milljónir
króna á fyrri helmingi ársins. Að-
eins tveir sjóðir komu út í tapi,
þ.e. Vaxtarsjóðurinn og Hluta-
bréfasjóðurinn íshaf. Tölur um
afkomu sem hlutfall af veltu eru
eðlilega ekki samanburðarhæfar
við hefðbundin fyrirtæki á verð-
bréfamarkaðnum. Því fylgja þær
tölur ekki meðfylgjandi listum.
Þótt fisksölufyrirtækin hafi ver-
ið að bæta afkomu sína frá sama
tíma í fyrra þá verður ekki sagt að
árangur þeirra sé mjög góður eft-
ir fyrstu sex mánuðina. Alls nem-
ur hagnaður þeirra þriggja 161
milljón króna. Hlutfallslega eru
þau að skila minnstum hagnaði af
fyrirtækjum á Verðbréfaþingi, eða
á bilinu 0,3 til 0,5% af veltu.
Árangur lunfram væntingar
Kjartan Guðmundsson hjá verð-
bréfamiðlun Landsbréfa sagði í
samtali við Dag að afkoma fjár-
málafyrirtækjanna, og afkoma
tryggingafélaga um leið, væri eitt
af því sem upp úr stæði. Ekki síst
þar sem þau væru tæpur þriðj-
ungur af markaðsvirði allra fyrir-
tækja á þinginu.
„Afkoma þessara fyrirtækja var
töluvert umfram væntingar og t.d.
var meðalspá verðbréfafyrirtækj-
anna rúmlega 2,3 milljarðar í
hagnað. Helstu skýringar á bættri
afkomu má rekja helst til tveggja
þátta. 1 fyrsta lagi má nefna að
hagræðing f rekstri bankanna er
farin að skila sér, einkum þó hjá
Búnaðarbanka og Landsbanka. I
öðru lagi voru markaðsaðstæður
hagstæðar, vextir Iækkuðu og
ásamt því sem nokkrir bankanna
högnuðust verulega á stöðutök-
um,“ sagði Kjartan.
Eins sagði Kjartan afkomu
olíufélaganna standa upp úr.
Samanlögð afkoma þeirra hefði
aukist um 57% miðað við sama
tímabil í fyrra. „Ahættustýring fé-
laganna hefur verið að skila ár-
angri. Auk þess má nefna aukn-
jjOP
| Jt ifffg! Si gl
P B M • i
Olíufélögin voru að hækka bensínverðið í gær um fimm krónur lítrann. Félögin eru ekki á heljarþröm rekstrarlega séð ef marka má milliuppgjörin. Alls högnuðust Olís, Olíufélagið og Skeljungur um 608 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins.
Ælta mætti að sú upphæð verði vænni eftir árið í heild sinni. - mynd: gva
ingu í sölu annarra vara en olíu-
afurða," sagði Kjartan.
Misjafnf í sjávarútvegi
Um afkomu sjávarútvegsfyrir-
tækjanna sagði Kjartan hana vera
afar misjafna. Fyrirtæki f bolfiski
hefðu flest skilað mjög góðum
uppgjörum á meðan fyrirtæki í
uppsjávarfiski væru að skila slök-
um uppgjörum. „Verð á mjöli og
lýsi var mjög lágt á tímabilinu
sem er ein meginskýring á Iakari
uppgjörum uppsjávarfisksfyrir-
tækja,“ sagði Kjartan.
Aðspurður um árangur ein-
stakra fyrirtækja á markaði nefn-
di Kjartan Marel sem dæmi.
Meðaltals afkomuspá verðbréfa-
fyrirtækjanna hefði verið 88
milljónir en reyndin orðið 225
milljóna hagnaður. A sama tíma-
bili í fyrra skilaði Marel 77 millj-
óna króna tapi. Kjartan sagði hel-
stu skýringu á stórbættri afkomu
vera mikla veltuaukningu, en hún
nam tæpum 60%.
Góðæriö að sMla sér
Þórður Pálsson hjá verðbréfa-
greiningu Kaupþings sagði það
ljóst að góðærið væri loks að skila
sér í afkomu fyrirtækjanna. Helst
kom honum á óvart góð afkoma
bankanna.
„Mér finnst Landsbankinn
koma þægilega á óvart, markað-
urinn hefur brugðist einna verst
við uppgjöri Islandsbanka en mér
fannst uppgjörið gott og sýna það
og sanna að bankinn er vel rekinn
og skilar góðri afkomu ár eftir ár,“
sagði Þórður.
Annar viðsnúningur sem vakti
athygli Þórðar er Islenskar sjávar-
afurðir. Eftir mikið vaxtarskeið
hefði félagið verið í hættu statt.
„Þó má almennt segja um fisk-
sölufyrirtækin á Verðbréfaþingi
að þau skila öll óviðunandi af-
komu og veldur afkoma SÍF sér-
staklega vonbrigðum," sagði
Þórður.
Aðspurður um sjávarútveginn
sagði Þórður góða afkomu UA
hafa vakið mesta athygli sem og
verri afkoma Samheija en reikn-
að hafði verið með. „Annars hef-
ur verið mikið rót í sjávarútvegi
að undanförnu og verðlagning fé-
laga virðist taka mið af töluverð-
um væntingum um hagræðingu
og samruna félaga og má raunar
segja það sama um fjármálafyrir-
tækin,“ sagði Þórður.
Takmarkaöar vaxtarhorfur
Almennt séð sagði Þórður horfur
fyrirtækja á Verðbréfaþingi vera
góðar. Þau ættu mikla hagræð-
ingu inni. „Það sem helst skyggir
á eru takmarkaðar vaxtarhorfur
vegna þess að fyrirtækin starfa
mörg hver á Iitlu markaðssvæði
eða að þau eru að vinna takmark-
aða en endurnýjanlega auðlind,“
sagði Þórður Pálsson hjá Kaup-
þingi.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri VSI, sagði
þessa bættu afkomu markast af
mikilli veltuaukningu í þjóðfélag-
inu og mikilli útlánaþenslu í
bankakerfinu. „Hátæknigreinar
eru í örum vexti en þær greinar
sem eru næmari fyrir innlendri
kostnaðarþróun eru að sýna lakari
niðurstöðu en í fyrra,“ sagði
Hannes.
Góðar heimtur
Verðbréfaþing Islands fylgir þeirri
lágmarkskröfu í tilskipun Evrópu-
sambandsins að fyrirtæki á hluta-
bréfamarkaði skili uppgjörum á
sex mánaða fresti. Stefán Hall-
dórsson, forstöðumaður Verð-
bréfaþings, sagði við Dag að víða
væri gerð krafa um uppgjör á
þriggja mánaða fresti. Reyndar
væru sum íslensk fyrirtæki þegar
farin að vinna eftir þeirri reglu.
Stefán sagðist ekki reikna með að
krafa um þriggja mánaða uppgjör
kæmi upp hér á næstunni. Þó
væri aldrei hægt að útiloka slíkt.
Ef fyrirtæki almennt byrjuðu á
þessu gæti boltinn farið að rúlla.
Aðspurður um heimtur á upp-
gjörum sagði Stefán þær hafa ver-
ið góðar. OII félög hefðu skilað á
tilætluðum tíma, þ.e. í síðasta lagi
tveimur mánuðum frá því að
hálfu ári lýkur. Þannig var þetta
einnig í fyrra en þar áður var
fresturinn þrfr mánuðir. A þeim
tíma voru dæmi um að fyrirtæki
skiluðu uppgjörum ekki inn á
réttum tfma. „Þá vöktum við strax
athygli á því morguninn eftir að
tíminn rann út. Til slíkra úrræða
hefur ekki þurft að grípa núna,“
sagði Stefán.
Fjölgun á móti faekkun
Nú eru fyrirtæki á Verðbréfaþingi
orðin 74 eins og áður sagði. Að-
spurður hvort þeim ætti eftir að
fjölga á árinu sagðist Stefán
reikna með að þau yrðu 80 áður
en árið rynni á enda. Það er tals-
verð fjölgun frá síðustu áramótum
þegar þau voru alls 67. Fram kom
nýlega í Viðskiptablaðinu að 30-
40 félög væru að íhuga skráningu
á Verðbréfaþingi og því má vænta
verulegrar fjölgunar á næsta ári.
Stefán sagði að undirbúningsferl-
ið gæti tekið 1-2 ár.
móti má allt eins búast við
fækkun á þinginu. Það er í sam-
ræmi við það sem tíðkast á er-
Iendum mörkuðum. Ástæðan er
einkum samruni fyrirtækja og yf-
irtökur," sagði Stefán og benti á
fyrirhugaða sameiningu UA og
Jökuls síðar á árinu. Þá hefði
Hlutabréfasjóðurinn íshaf boðað
að hann ætlaði að skrá sig af þingi
og hætta störfum. Eins mætti
nefna nýja sameinaða fyrirtæki
Vinnslustöðvarinnar, íshúsfélags
Vestmannaeyja, Krossaness og
Oslands en tvö af þeim eru á
ntarkaði í dag.
„Þetta hefur aðeins gerst einu
sinni áður, þegar tveir hlutabréfa-
sjóðir sameinuðust. Því stefnir í
fyrstu sameiningu fyrirtækja á
hlutabréfamarkaði," sagði Stefán
Halldórsson.
Gr ó ð afyrirt ækiu
Fyrirtæki Hagnaður í milljónum % af veltu
Alm. hlutabréfasjóðurinn 12,3
Baugur 205,0 1,9%
Búnaðarbanki Islands 590,3 18,8%
Eignarhaldsf. Alþýðubankinn 132,6 37,3%
Eimskip 635,4 7,9%
Fiskmarkaður Breiðaljarðar 10,8 9,8%
FBA 734,4 27,9%
Flugleiðir 595,0 4,5%
Fóðurblandan 46,6 5,0%*
Frumherji 16,6 8,3%
Grandi 361,1 14,0%
Guðmundur Runólfsson hf. 103,4 31,3%
Hampiðjan 87,2 9,5%
Hans Petersen hf. 14,9 3,1%
Haraldur Böðvarsson hf. 360,9 17,7%
Héðinn 33,0 6,0%
Hlutabréfamarkaðurinn 25,1
Hlutabréfasjóður Norðurlands 23,5
Hlutabréfasjóðurinn 324,1
Hraðfrystihús Eskiljarðar 143,0 10,0%
Hraðfiy'stihúsið hf. í Hnífsdal 43,6 4,8%
íslandsbanki 693,0 9,6%
fslenskar sjávarafurðir 38,6 0,3%
íslenskir aðalverktakar 41,0 1,9%
Jarðboranir 48,0 9,5%
Kaupfélag Eyfirðinga 48,3 0,9%
Landsbankinn 721,8 10,3%
Lyfjaverslun íslands 36,9 4,5%
Marel 225,3 8,1%
Nýheiji 130,9 7,7%
Olíufélagið (Esso) 234,2 4,5%
Olís 163,0 4,3%
Opin kerfi 40,0 2,3%
Pharmaco 201,0 12,2%
Samherji 200,0 4,4%
Samvinnusjóður fslands 76,4
Síldarvinnslan 83,4 5,0%
Sjávarútvegssjóður íslands 3,0
Skagstrendingur 130,2 12,4%
Skeljungur 211,1 4,8%
Skýrr 31,4 5,0%
Sláturfélag Suðurlands 36,1 2,5%
Sæplast 21,0 5,9%
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna (SH) 71,7 0,4%
Sölusamband ísl. fískframl. (SÍF) 51,0 0,5%
Tangi 83,3 10,6%
Tryggingamiðstöðin 162,0 5,4%
Vaki - fiskeldiskerfí 1,4 1,5%
Utgerðarféiag Akureyringa 180,0 9,4%
Þorbjörn 187,6 16,3%
Þormóður rammi-Sæberg 182,8 9,6%
Þróunarfélag íslands 349,4 58,0%
* = miðað við veltu 1998.
Tapfyrirtækiii
Fyrirtæki Tap í millj. króna % af veltu
Delta 25,2 4,2%
Hlutabréfasj. íshaf 64,6
Hraðfrystistöð Þórshafnar 12,8 1,9%
íslenska járnblendifélagið 169,0 15,0%
Jökull 122,0 36,4%
Krossanes 45,0 20,1%
Loðnuvinnslan 53,9 11,2%
Plastprent 52,9 10,4%
Samvinnuferðir-Landsýn 34,3 4,0%
SR-mjöl 59,8 2,7%
Stálsmiðjan 22,1 5,6%
Tæknival 144,0 6,6%
Vaxtarsjóðurinn 5,9