Dagur - 02.09.1999, Page 1

Dagur - 02.09.1999, Page 1
FIMMTUDAGUR 2. september 1999 2. árgangur - 27. Tölublað Þrettán skípa sjávamtvegsrisi Frá Vestmannaeyjum. Miklar sviptingar eru þar nú í atvinnulífinu með sameiningu stærstu útgerðarfyrirtækjanna. Kvótinn helst á staðnum. Sj árvarút vegsrisi í Eyjimt verður til með samemmgu Vinnslu- stöðvariimar og ísfé- lagsius. Krossanes og Óslaud einnig með í pukkinu. Verkalýðs- leiðtoganum í Eyjum lýst vel á málið. „Ur því sem komið var gat ekki betri hlutur gerst. Mér líst vel á þessa sameiningu,“ segir Jón Kjartansson formaður Verkalýðs- félags Vestmannaeyja um fyrir- hugaða sameiningu Isfélags Vest- mannaeyja hf., Vinnslustöðvar- innar hf. í Eyjum, Krossaness hf. á Akureyri og Oslands ehf. á Höfn í Hornafirði. Viljayfirlýsing um sameiningu félaganna var undir- rituð fyrr í vikunni og miðast sam- einingin við 31. ágúst. Vinnu við formlegan samruna á að ljúka fyr- ir miðjan október. 20 þúsund þorsMgildistonn I tilkynningu félaganna fjögurra til Verðbréfaþings Islands segir að aðdraganda þessa megi rekja til viðræðna fulltrúa Vinnslustöðvar- innar við ýmis sjávarútvegsíyrir- tæki þar sem menn höfðu sam- starf eða sameiningu í huga. Starfshópur á vegum ijögurra áð- umefndra fyrirtækja fór yfir málin og útkoman varð sú viljayfirlýsing um málið sem fyrr er getið. End- anleg ákvörðun um sameiningu er svo í höndum stjóma félaganna íjögurra sem funda um málið á næstu dögum. - I tilkynningunni sem Verðbréfaþingi var send er undirstrikað að áfram sé í gildi fyrri samþykkt stjórnar Vinnslu- stöðvarinnar hf. um að leita skuli eftir álitlegustu kostum til sam- starfs eða samruna við önnur sjávarútvegsfyrirtæki í sjávarút- vegi. Ef samruni þessara fjögurra sjávarútvegsfyrirtækja verður að veruleika er orðið til eitt stærs- ta sjávarútvegsfyrirtæki lands- ins. Sameinað fyrirtæki ræður þá yfir aflaheimildum upp á tæpíega 20 þús. þorskígildis- tonn, fjórum fiskimjölsverk- smiðjum - þar af þremur sem geta framleitt hágæðamjöl, öfl- ugri saltfiskvinnslu og bolfisk- frystingu í Vestmannaeyjum auk góðrar aðstöðu til verkunar síldar, humars og fleira. Þá hef- ur sameinað fyrirtæki yfir að ráða þrettán fiskiskipum. Gert er ráð fyrir að höfuðstöðvar nýja fyrirtækisins verði í Vestmanna- eyjum og rekstur þess skiptist í tvö meginsvið: uppsjávar- og bolfiskssvið. MiMlsvert að halda í kvóta „Eg á ekki von á því að þetta komi við almennt verkafólk hjá fyrirtækjunum. Það má vera að toppunum fækki eitthvað, en þetta snertir ekki mitt fólk. Laun í fiskvinnslu hér í Vestmannaeyj- um hafa einnig verið betri en víð- ast hvar annarsstaðar, eða um 2% hærri, og ég á ekki von á öðru en því að það haldist. A þessi launakjör er komin hefð,“ segir Jón Kjartansson. Hann segir að í sínum huga sé mikilsvert að kvótinn haldist áfram í Eyjum, eins og fyrirsjáanlegt sé enda þó vinnuveitendur verði líka að gera sér grein fyrir að þeir nái engum árangri nema með góðu starfs- fólki. - Fréttir um fyrirhugaða sameiningu hafði strax mikil áhrif á verðbréfamarkaði. Tals- verð viðskipti voru með bréf í Vinnslustöðinni í fyrradag og hækkaði gengi þeirra um 10,5% og var það í lok dagsins 2,32. -SBS. 60 nýnemar íEyjiun Framhaldsskólinn í Vestmanna- eyjum var settur þriðjudaginn 24. ágúst að viðstöddum kennurum og nemendum næsta skólaárs. Að sögn Olafs H. Sigurjónssonar skólameistara verða um 260 nemendur í skólanum í vetur þar af 60 nýnemar sem er svipað og sl. vetur. Ólafur sagði að árgang- urinn nú væri frekar lítill, en um 90% nemenda sem luku grunn- skólaprófi x Vestmannaeyjum í fyrra setjast nú á skólabekk í Framhaldsskólanum. Einhverjir hafa farið í skóla upp á landi eða farið á vinnumarkaðinn. Engin skipstjómarbraut er nú við Framhaldsskólann, en að öðru leyti er skipting milli náms- brauta svipuð og verið hefur, en flestir eru þó skráðir á náttúru- fræðibraut og félagsfræðibraut. Allar kennarastöður hafa verið mannaðar og litlar breytingar í kennaraliðinu, nema hvað aðeins eru breytingar í hópi stundakenn- ara, þurfti þó ekki að fá kennara ofan af landi heldur var hægt að manna allar stundakennarastöð- ur heimamönnum - BEG. Tókumenn frá íslenska kvikmyndfyrirtækinu Pan Arctica unnu í síðustu viku við gerð auglýsingamyndar fyrir Voikswagen bilaverksm)ðjunar og meðal annars voru tekin glæfraatriði á sérsmíðaðri brú yfir Markarfljótsgljúfur, þar sem það er hvað hrikalegast. Fjöldi fólks vann að gerð myndarinnar, bæði tökumenn og einnig smiðir, en ærnar tilfæringar þurfti til að setja brúna yfir gljúfrið upp. Aðstæður þar voru þannig að mörgum myndi sundla, einsog vel sést á myndinni. Kuldaboli í Þorlákshöfn Nýtt ffysti- og kælivöruhús var tekið í notkun í Þorlákshöfn sl. laugardag og var því gefið nafnið Kuldaboli. Nýja húsið er 29 þús- und m3 að stærð og annast geymslu frysti- og kælivöru til lengri eða skemmri tíma. Þar er pláss fvrir 2000 bretti í frysti- geymslu og 800 bretti í kæli- geymslu. Ljóst er að nýja frysti- og kæli- vöruhúsið mun hafa mikil áhrif í Þorlákshöfn, jafnt á atvinnulífið sem bæjarmyndina. Húsið mun þjóna matvælaframleiðendum um allt land og jafnframt inn- lendum sem erlendum fiskiskip- um, sem safna frystum afurðum saman til flutnings á erlenda markaði. Isfélag Þorlákshafnar átti frumkvæðið að byggingu hússins, en stjómarformaður er Hafsteinn V. Asgeirsson. Húsið er sagt hið fullkomnasta sinnar tegundar í heiminum. Þar ráða mestu tækninýjungar, umhverfis- vænn kælimiðill og öflugt af- greiðslukerfi. gg Sláturfélagið stykirbændur Tveimur bændum á Suðurlandi vom sl. föstudag veittir styrkir frá Sláturfélagi Suðurlands til að stuðla að framförum f nautgripa- og sauðljárrækt. Einsog sagt var frá í Degi á dögunum var á vor- mánuðum auglýst eftir bændum sem hefðu áhuga á samstarfi við félagið í þriggja ára verkefni, þar sem útgangspunkturinn var að stuðla að hagræðingu í búrekstri og þar með þættum rekstrarskil- yrðum. Styrkþegarnir fá eina milljón kr. á ári frá Sláturfélagi Suðurlands næstu þjú árin gegn því að láta í té ákveðnar upplýs- ingar úr búskapnum, sem geta orðið öðrum bændum til leið- beiningar. SauðQárbóndinn sem styrk fékk var Isleifur Jónasson, bóndi í Kálfholti í Asahreppi. Hann býr með 565 fjár, en áætlanir hans ganga út á að fjölga kindunum í 700. Jörðin Kálfholt er 750 ha. að stærð og er allt landið vel gróið. - Nautgripabóndinn er Gísli Geirs- son í Byggðahorni í Flóa, en það er vel gróin jörð og er 307 ha. að flatarmáli. Gísli hætti mjólkur- framleiðslu fyrir fimm árum og breytti ljósinu þá í aðstöðu fyrir eldisgripi. Hann er nú með 32 kýr og innleggið er 45 til 50 naut, en stefnan er sú að innleggsljöldi verði kominn í 60 til 70 naut undir lok styrkstímans.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.