Dagur - 02.09.1999, Blaðsíða 4
4 - FIMMTUDAGVR 2. SEPTEMBER 1999
SUÐURLAND
Það eru JÁ-verktakar sem hafa haft veg og vanda við stækkun Sandvíkurskóla og á þessari mynd eru, frá vinstri
Davíð Ingi Baidursson, Óskar S. Jóhannsson og Hallgrímur Gunnarsson en þeir eru allir starfsmenn fyrirtækisins.
Þá Gunnþór Gíslason húsvörður skólans, Gísli Ágústsson verktaki og einn eiganda J.Á. Verktaka og lengst til hægri
er Páll Leó Jónsson, skólastjóri. mynd: sunnlenska.
Stækkaður Sand-
víkiirskóli i gagnið
Viðbygging við Sand-
víkurskóla á Selfossi í
gagnið. 600 fermetrar
og sex kemislustofur.
Skólar í Árborg irain
arlega í tölvumálum.
Rúmlega 600 fermetra viðbygging
við Sandvíkurskóla á Selfossi var
tekin í notkun í fyrradag. Þetta
breytir miklu fyrir skólann, en
húsnæði hans var fyrir löngu orð-
ið of lítið og var ekki í samræmi
við nýjar áherslur í skólastarfi. I
viðbyggingunni eru sex kennslu-
stofur og þar af eru tvær sér-
greinastofur, það er í handavinnu
og raungreinum. Samhliða hafa
svo farið fram miklar endurbætur
á eldri hluta hússins og þar hefur
meðal annars verið sett upp
tölvustofa, bókasafn skólans fær
gott pláss og sett hefur verið upp-
mötuneyti fyrir nemendur. AIls
kosta framkvæmdir í kringum
100 milljónir kr., að sögn Þorláks
Helgasonar, forstöðumanns
fræðslu- og menningarsviðs Ar-
borgar.
Tæplega 400 nemendur
í Sandvíkurskóla eru í vetur alls
378 nemendur, auk 11 nemenda
í sérdeild og koma þeir nemend-
ur víðsvegar að af Suðurlandi.
Viðbyggingin er afar kærkomin og
leysir úr brýnum vanda í húsnæð-
ismálum skólans. Þorlákur
Helgason nefnir sérstaklega að í
öllum kennslustofum Sandvíkur-
skóla verði settar upp tölvur með
nettengingu. Slíkt sé í samræmi
við kröfur nútímans og í raun hafi
skólar Árborgar verið mjög fram-
arlega í þessum efnum. - Barna-
skólinn á Eyarbakka og Stokks-
eyri er einn þriggja þróunarskóla í
landinu í upplýsingatækni. Er það
mat Þorláks að nú séu tölvumál í
skólunum í Arborg komin í góð-
an farveg.
Skóli í Suðiubyggð
Þó stórum áfanga sé í skólamál-
um á Selfossi sé náð nú með
stækkun Sandvíkurskóla segir
Þorlákur Helgason að fráleitt sé
neinu endamarki náð. A fyrstu
mánuðum nýrrar aldar fari
fyrstu húsin í nýju hverfi á Sel-
fossi að rísa, það er Suður-
byggð, sem er sunnan Engja- og
Rimahverfis. A áætlun . sé að
reisa nýjan grunnskóla og leik-
skóla í Suðurbyggð.
-SBS.
. SUÐURLANDSVIÐTALIÐ
Sparisjóðirr kaupir hús
Framkvæmdir standa yfir við byggingu hússins að Austurvegi 6. Þar
opnar Sparisjóður Vestmannaeyja, í félagi við tvær aðrar Ijármálastofn-
anir, útibú snemma á næsta ári.
Gengið hefur verið frá kaupum Sparisjóðs Vestmannaeyja á 150 fer-
metra húsnæði í nýbyggingu að Austurvegi 6 á Selfossi. Mun sjóðurinn
þar opna útibú snemma á næsta ári, einsog fram kom í Degi á dögun-
um, en jafnt munu SP-fjármögnun og Kaupþing koma að rekstrinum
og verða þar með útibú sín.
Að sögn Arnars Sigurmundssonar, formanns stjórnar Sparisjóðs Vest-
mannaeyja, hafa sparisjóðsmenn lengi haft hug á að setja á laggimar
sparisjóð á Suðurlandi, enda hefur enginn slíkur sjóður verið þar starf-
andi. Starfsemi fer af stað í mars á næsta ári og fer húnrólega af stað og
verður látin þróast f samræmi við þarfir markaðarins.
„Takist vel til með starfsemina getur þetta orðið upphafið að stofnun
sparisjóðs á Suðurlandi með þátttöku þessara aðila og fleiri sparisjóða,
auk stofnfjáreigenda á svæðinu,“ segir Arnar Sigurmundsson. -SBS.
Kjötmjöl vid Oddgeirshólaveg
Frágengið mál er að kjötmjölsverksmiðja sú sem til stendur að reisa á
Suðurlandi verði í Hraungerðishreppi, það er við Oddgéirshólaveg á
móts við Hraungerði, að því er fram kemur í Dagskránni. Hafin er
framleiðsla á vélum í verksmiðjuna og hönnun húsnæðis stendur nú
yfir, en það verður um 800 fermetrar að flatarmáli. Framkvæmdir verða
boðnar út í haust og er reiknað með að verksmiðjan verði gangsett
næsta vor. Áætlaður kostnaður við framkvæmdir er 160 millj. kr. -SBS.
Sýning í Miðgardi
Nú stendur yfir í Miðgarði á Selfossi mynd-
listarsýning listamannsins Cosimo. „Mynd-
irnar eru tjáning listamannsins á ímynduð-
um heimi blómanna á öðrum óspilltum
stjörnum og kallar listamaðurinn blómin sín
Astralblóm,“ segir í fréttatilkynningu og að
hugmyndin hafi kviknað undir Jökli og noti
listamaðurinn blandaða tækni til að ná fram
áhrifum fantasíunnar. - Listamaðurinn,
Cosimo Heimur Fucci Einarsson, er fæddur
í Torino á Ítalíu 1962. Hann hefur búið á ís-
landi frá 18 ára aldri og er nú íslenskur ríkisborgari. Hann hefur
starfað við margt, meðal annars grænmetissölu á útimarkaði á Ak-
ureyri og pizzagerð hér og þar. Sýningin stendur fram til 15. sept-
ember. -SBS.
Jón sækir um Hveragerði
Séra Jón Ragnarsson er eini umsækjandinn um Hveragerðis-
prestakall, en fjögurra ára köllun hans í embættið rennur út þann
1. október næstkomandi. Embættið ber að auglýsa lögum sam-
kvæmt og var Jón, sem áður segir, sá eini sem sótti um brauðið.
Köthigos alltaf hættuleg
Magnús Tumi
Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur.
Þróunin á Kötlusvæð-
inugæti leitt til eldgoss
og einsgætu hræríngar
verið búnar. Svæðið verður
áfram vaktað, enda vilja
menn vera við öllu búnir
þegar náttúruhamfarír
einsog Kötlugos dynja
yfir.
- Er Kötlugos eitthvaó sem
menn geta búist við alveg «
næstu mánuðum, einsog fram
hefur komið ífréttum?
„Það er ekki hægt að útiloka
að svo verði enda hafa orðið
óvanalegir atburðir að undan-
förnu. En þróunin gæti alveg
eins orðið sú að ekki verði af
frekari atburðum á næstunni.
Við jarðvísindamenn höfum
nokkra hugmynd um hvers kon-
ar atburðir eru líklegir, en litla
hugmynd um hvenær þeir verða.
En við höfum ritaðar heimildir
til að byggja á um aðdraganda
og hegðun Kötlugosa og þær eru
mjög greinargóðar. Þeir atburð-
ir sem gerðust í sumar eru vís-
bending um aukna'goshættu og
því verður að hafa allan varann
á, því gos í Kötlu eru hættuleg.
En í því sambandi er þó rétt að
nefna að hætta á manntjóni ætti
að vera hverfandi í byggðunum
kringum Kötlu ef einföldum var-
úðarráðstöfunum er fylgt.
Helsta hættan á slysum væri fyr-
ir ferðafólk á Mýrdalssandi,
einkum fyrir þá sem tjaida á
sandinum eins og stundum
kemur fyrir að sumarlagi."
- Hvað hefur nákvæmlega
verið að gerast í Kötlu að und-
anförnu?
„Sennilegasta skýringin er sú
að í júlímánuði hafi kvika skotist
upp í bergið innan Kötluöskj-
unnar. Kvikuinnskotin hafa
sumstaðar náð langleiðina upp á
bergbotninn undir jöklinum og
valdið snöggri aukningu í jarð-
hita og þar með mjög aukinni
bráðnun. Þetta hefur gerst á
mjög stóru svæði en fylgir þó að
miklu leyti jöðrum öskjunnar.
Svona atburður hefur ekki gerst
í marga áratugi, þó verið geti að
einhver smáinnskot hafi orðið
öðru hvoru. Atburðurinn í sum-
ar bendir til þess að kvikuþrýst-
ingur undir Kötlu fari vaxandi
og kvika safnist fyrir. Atburða-
rásin á næstunni getur orðið
með ýmsu móti en möguleikarn-
ir eru í meginatriðum tveir.
Annarsvegar að nú sé þessum
hræringum lokið í bili og ekkert
verði að gosi á næstunni. Hinn
möguleikinn er sá að kvikusöfn-
unin haldi áfram og endi með
Kötlugosi og því verða menn að
fylgjast mjög náið með því
hverju fram vindur. Onnur
hætta er sú að vatn taki að safn-
ast undir kötlunum í jöklinum
þó svo ekkert verði af gosi. Það
gæti leitt til jökulhlaupa svipuðu
því sem varð í sumar í Jökulsá á
Sólheimasandi. Ef þetta gerðist
gætu hlaup komið fram í Jök-
ulsá, í árnar á Mýrdalssandi eða
til norðurs í Syðri Emstruá.
Þessa dagana er verið að fara ýt-
arlega yfir þessi mál í samvinnu
við Almannavarnir og tillögur
verið Iagðar fram um hvernig
vöktun skuli háttað.“
- Hvemig myitduð þið helst
vakta svæðið?
„Vöktunin snýst annarsvegar
um að sjá vísbendingar um kviku-
söfnun undir eldstöðinni og hins
vegar um eftirlit með yfirborði
jökulsins og vatnsrennsli í jökul-
ánum. Könnun á hugsanlegri
kvikusöfnun yrði gerð með jarð-
skálftamælum og GPS Iandmæl-
ingum. Einnig er mögulegt að
svonefndar bylgjuvíxlmælingar á
gervitunglamyndum geti komið
að gagni. Eftirlit með breyting-
um á yfirborði jökulsins þarf að
gera úr flugvélum, með mynda-
töku en ekki síst með radarmæl-
ingum á breytingum á sigkötlun-
um. Efla þarf einnig rennslis-
mælingar í ám í nágrenni jökuls-
ins. Þessir möguleikar eru nú til
umræðu." -SBS.