Dagur - 03.09.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 03.09.1999, Blaðsíða 1
Pilns e ssuhvö tinni svalað Hvaða stúlku hefur ekki dreymt um að vera prinsessa? Klæða sig upp íflögrandi prinsessukjóla, skreyta sig meðgylltu skarti? Nú ætlarNorræna hús- ið að svala prinsessu- þörfstúlkna og setja vopn í hendur drengj- um á Prinsessudög- um... Það kann að hljóma und- urfurðulega að Norræna húsið standi fyrir sýningu rússneskra Iistamanna sem gengur út á að þjóna prinsessuhvöt stúlkna en svo er það nú samt og verða Prinsessudagar settir með pompi og prakt á morgun. Aleksander Reichstein og Vera Hlebnikova hafa breytt sýning- arsal Norræna hússins í ævin- týraheim með bleikum gervirós- um, aldintrjám er bera rauð hjörtu og gullepli, dreka, svana- vatni, smá afdrepi fyrir drengi er vilja skrýðast skikkju, vopn- um og brynjum og síðast en ekki síst rúmgóðu búningsherbergi með tugum prinsessukjóla, hár- skrauti, gullskóm og konungleg- um húsgögnum. Tekið verður á móti börnum milli kl. 14 og 17 á morgun en það verður nógur tíminn fyrir börn að komast inn í hallargarð- inn í Norræna húsinu því sýn- ingin stendur til 31. október. Sýningin verður opin almenn- ingi á miðvikudögum kl. 9-16 og um helgar kl. 12-16. Dagur „Við erum nú meiri rjómabollurnar, “ sagði önnur þernan áður en þær stigu fram á rósum skreytt sviðið ásamt hinum tígulegu prinsessum, Sigrúnu og Aldísi Evu. fékk hins vegar leyfi til að taka forskot á sæluna ásamt þeim Al- dísi Evu (9 ára), Tuma (8 ára), Sigrúnu (7 ára) og Steinþóri (6 ára). Vopnaskak og prinsessukjólar Þegar kemur inn í hallargarðinn í sýningarsalnum fara stúlkurn- ar til hægri og innum dimm göng inn í búningsherbergið en strákarnir til vinstri þar sem vopnakistan bíður. I fataher- bergi hennar hátignar tók þerna á móti Aldísi Evu og Sigrúnu. Stelpurnar Ijómuðu þegar þær sáu kjólaúrvalið, önnur val- hoppaði um meðan hin gekk varfærnislega meðfram kjólun- Steinþór og Tumi voru sann- færðir um að þeim tækist að drepa drekann, snarræði þeirra og leikni með vopnin sæi við eldspúandi drekan- um. myndir: eól. um og starði á dýrðina þar til hún fann sér einn skósíðan grænbleikan kjól. Komnar í kjól- ana aðstoðaði þernan þær við að finna nógu glitrandi skó við her- legheitin, tyllti kórónu á höfuð Aldísar en blómstrandi spennu í hár Sigrúnar. Eftir drykklanga stund yfir hálsfestum, eyrnalokk- um og öðru skarti (og aðdáunar- úttekt í hinum konunglega spegli) stigu stúlkurnar ásamt þernunum sínum fram á bleika sviðið með bleiku rósunum og bleiku leiktjöldunum. Meðan á þessu stóð höfðu strákarnir stokkið fram og aftur um hallar- garðinn og sveiflað sverðum af slíkum hamingjuæsingi að nær- staddir urðu að forða sér undan skakinu. Aður en stelpurnar stigu á svið hafði sá yngri hrópað: „Komdu að skylmast!" og þeir hurfu með því sama til drekans sem þeir uppástóðu báðir að héti Katla. I Ijós kom að Kötlunafnið var engin tilviljun þvf samnefnd- ur dreki kemur fyrir í Bróður mínum Ljónshjarta. Þeir höfðu hins vegar lítinn áhuga á að bjarga einhveijum prinsessum (sem er jú oftast hlutverk prinsa í ævin- týrum), sá eldri benti raunsæis- lega á að það amaði ekkert að prinsessunum þarna inní her- bergi... Prinsessuhvötm eðlislæg I hallargarðinum verður líka hægt að teikna ævintýramyndir, spinna ævintýrasögur, horfa á ævintýramynd auk þess sem húsið stendur fyrir dagskrá er tengist Prinsessudögum á næstu vikum. Þetta er í fjórða sinni sem Aleksander og Vera halda prinsessusýningu en sú fyrsta var pöntuð af listamið- stöð í Finnlandi þar sem Aleksander býr. „Frumhug- myndin var sú að búa ekki til sýningu um prinsessur heldur að lejTa stelpunum að verða prinssessur því ég trúi því að inní hverri stúlku og hverri konu leynist lítil prinsessa og í þessari sýningu Iátum við prinsessudrauminn rætast," segir Aleksander. „Stelpurnar gjörbreytast þegar þær fara í kjólana. Þær ganga og hreyfa sig með öðrum hætti, þeir taka varla eft- ir mér því ég er bara hóg- vær verkamaður að hjál- pa hennar hátign. Þær virkilega vita hvernig þær eiga að hegða sér þegar þær eru komnar í prinsessukjól þó enginn hafi sagt þeim það. Hún virðist búa f kvensálinni þessi hugmynd að vera dama eða prinsessa..." LÓA ctar. áður 59.900 Lavamat W 80 | Taumagn: 5 kg Vindingarhraði: 800/400 sn/mín Ryðfrír belgur og tromla „Fuzzy- Logic" Sjálfvirkt ý magnskynjunarkerfi „ÖKO" kerfi (sparar sápu) Öll þvottakerfi • Ullarvagga Sími 530 2800 Geislagötu 14 • Sími 462 1300 lcr ctar áður 76.900 Lavamat 868201 Tölvustýrð Taumagn: 5 kg Vindingarhraði: 1600,1200,1000,800,600 eða 400 sn/mín með hægum byrjunarhraða Mjög hljóðlát: Ytra byrði hljóðeinangrað. Ryðfrír belgur og tromla UKS kerfi: Jafna tau í tromlu fyrir vindingu Aqua-alarm: Fjórfalt öryggiskerfi gegn leka. „Fuzzy- Logic“ Sjálfvirk vatnsskömmtun eftir taumagni, notar aldrei meira vatn en þörf er á. Aukaskolun: Sér stilling fyrir kælingu og aukaskolun • „ÖK0“ kerfi (sparar sápu) Öll þvottakerfi • Ullarvagga r~TrTTTTTTTTTT*fc Vesturtand: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Helllssandl. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal. Vestflrðlr: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Pokahornið, Tálknafiröi. Norðurland: Radionaust, Akureyri. Kf. Steingrlmsfjaröar, Hólmavík. Kf. V-Hún„ Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúösfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðurtand: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Porlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Klakkur. Vík. Reykjanes: Ljósbogin Keflavík. Rafborg. Grindavík. Lavamat 623101 Taumagn: 5 kg Vindingarhraði: 1200,800 eða 400 sn/mín með hægum byrjunarhraða UKS kerfi: Jafna tau í tromlu fyrlr vindingu • Ryðfrír belgur og tromla Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi „Fuzzy- Logic“ Sjálfvirk vatnsskömmtun eftir taumagni, notar aldrei meira vatn en þörf er á. Aukaskolun: Sér hnappur fyrir kælingu og aukaskolun „ÖK0“ kerfi (sparar sápu) Öll þvottakerfi • Ullarvagga áður 119.900

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.