Dagur - 03.09.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 03.09.1999, Blaðsíða 8
24- FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 Samstarf hönnuðar og listamanns Einars Þorsteins hönnuðar og Ólafs Elíassonar listamanns verður til sýnis frá og með morgundeginum í Gallerí Kambi en þangað má komast með því að taka annan afleggjarann til vinstri eftir Þjórsár- brúna við skiltið Gfstholt. Samvinnan felst í því að Einar útfærir hug- myndir listamannsins í verklegar einingar og verður í Kambi hægt að virða fyrir sér sam- vinnuferlið allt frá frumrissu til Ijós- mynda af fullunn- um verkum. Á sýningunni verða einnig ýmis verk eftir Einar. Sýning- in stendur til 3. okt. Listamaður septembermánaðar I Listfléttunni á Akureyri er listamað- ur seþtembermánaðar Erla Sigurð- ardóttir, myndlistarkona. Erla hefur haldið sýningar á Akranesi, (safirði, Reykjavík og Jönköping í Svíþjóð. Auk þess tekið þátt f samsýningum hér heima og erlendis. Frá 1991 hefur Erla myndskreitt barnabækur og hlotið viðurkenningar fyrir þær, bæði hér heima og erlendis. Auk þess að vinna við myndlist, kennir Erla við Myndlistarskóla Kóþavogs. Listfléttan er opin frá kl. 11-18 virka daga og á laugardögum frá kl. 11 - 14, en 11 -16 fyrsta laugardag hvers mánaðar. .Dagur Lífæðar koma suður Þá er hin viðförla farandsýning Líf- æðar komin suður en hún hefur verið flutt frá Seyðisfirði til Heil- brigðisstofnunarinnar á Selfossi, þar sem hún oþnar í dag og stendur til 3.okt. Einsog minnugir muna þá hófst ferðalag Lífæða iá Landsspítalanum í upphafi ársins en henni lýkur ekki fyrr en í lok þessa árs. Sýningin samanstend- ur sem fyrr af 34 myndverkum eft- ir 12 myndlistarmenn og 18 Ijóð- um eftir 12 Ijóðskáld en verkunum er ætlað að endurspegla helstu strauma og stefnur í myndlist og Ijóðagerð frá síðari heimsstyrjöld til dagsins í dag. ■ HVAÐ ER Á SEYÐI? ■ Á DAGSKRÁNNI HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLIST Blús á Punktinum Blues Express spilar á Punktinum, Laugavegi, helgina 3.-4. september. Þetta verður síðasta helgi Ingva Rafns Ingvasonar, trommara með Blues Ex- press í bili en hann er á leið erlendis í tónlistarnám. Stuðmenn loka hríngnum Síðustu yfirreið Stuðmanna á þessari öld lýkur nú um helgina í Reykjavík en hljómsveitin efnir til stórsamkomu í hinu glæsilega Valsheimili við Hlíðar- enda n.k. laugardagskvöld ásamt liði sínu öllu. Hér er um að ræða eins konar uppskeruhátíð því sama dag gerir Græni herinn umhverfisinnrás í höfuð- borgina að aflokinni vel heppnaðri hringferð um Iandið. Asamt Stuðmönn- um koma fram á Hlíðarenda umrætt kvöld hinn fjölhæfi skemmtari Ulfur EIdjárn,rokkkóngurinn frá Möðrudal Addi Rokk, gógómeyjarnar frá Reykja- nesi þær Abba og Dabba að ógleymdum breikdansaranum Bjarna Böðvarssyni sem hefur sérhæft sig í limaburði forn- manna. Forsala aðgöngumiða hefst á fimmtudag í Valsheimilinu,hjá útsölu- stöðum Olís, á sjávarútvegssýningunni í Smáranum og í verslunum Skífunnar að Laugavegi 26 og í Kringlunni. SÝNINGAR Sjónþing Þorvaldar Þorsteinssonar Sjónþing þorvaldar hefst í Menningar- miðstöðinni Gerðubergirlaugardaginn 4. september kl. 13.30. Spyrlar: Þórhildur Þorleifsdóttir og Jón Proppé. Gesta- stjórnandi: Sigmundur Ernir Rúnars- son.Umsjón: ART.IS / Hannes Sigurðs- son. Þorvaldur Þorsteinsson nam við Myndlistaskólann á Akureyxi, Háskóla Islands og Myndlista- og handíðaskóla Islands áður en hann hélt til framhalds- náms í myndlist við Jan van Eyck aka- demíuna í Hollandi, en þaðan Iauk hann prófí árið 1989. Sýningarferill Þor- valdar hefur verið Qölbreyttur þau tíu ár sem liðin eru frá því hann lauk námi og hann hefur haldið á þriðja tug einkasýn- inga á Islandi, í Hollandi, Þýskalandi og Erakklandi, auk þess sem hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga. Myndlist hans hefur vakið mikla athygli og aflað honum viðurkenningar, enda eru verk hans í senn frumleg og aðgengileg, gam- ansöm og íhugul. Lífæðar 1999 Islenska menningarsamsteypan ART.IS gengst íyrir myndlistar- ogljóðasýningu, sem hlotið hefur nafnið Lífæðar, á sjúkrahúsum víðsvegar um landið á ár- inu 1999. Sýningunni var hleypt af stokkum á Landspítalanum af heilbrigð- isráðherra og forstjóra Ríkisspítala í byrj- un janúar sl. en þaðan fór hún til sjúkrahúsanna á Akranesi, Isafirði, Sauðárkróki og Akureyri. Níundi við- komustaður sýningarinnar á hringferð hennar um landið er Heilbrigðisstofn- unin á Selfossi þar sem hún verður opn- uð föstudaginn 3. septembcr kl. 15. Sýningunni á Selfossi lýkur 3. október, en þaðan heldur hún til Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja. GóriIIur í Hlaðvarpanum Föstudagskvöldið 3. september kl. 21.00 verður górillursýning í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum og er það í fyrsta skipti sem slík spunasýning er sett upp hér á landi. Górilluleikhús er ein af spunaað- ferðunum sem teljast til leikhússports, aðferð sem Islendingum hefur ekki verið boðið uppá áður. Húsið og veitingasalan opna fyrir gesti kl. 20.30. Miðaverð er kr. 500. Míó í bíó Vetrardagskrá Norræna hússins er að hefjast og þar með reglulegar kvik- myndasýningar hússins fyrir börn. A sunnudaginn kl.14 verður kvikmyndin „Elsku Míó minn“ eftir sögu Astridar Lindgren sýnd í fundarsalnum. Myndin er valin fyrir þá sök að hún segir frá 9 ára dreng sem ferðast um töfraskóga, dularfulla hella og skuggalega ridd- arakastala en barnamyndir næstu vikna munu allar tengjast ævintýrum á ein- hvern hátt enda eru að hefjast svokallað- ir Prinsessudagar í Norræna húsinu. Myndin er með sænsku tali og aðgangur er ókeypis. Heimasíða Þorgerðar Þorgerður Sigurðardóttir, myndlistar- kona hefur opnað heimasíðu, þar sem getur að líta úrval verka hennar. Slóðin er http://vvww.artchive.com/. Eiríkur Smith Nú stendur yfir í Hafnarborg, menning- ar- og listastofnun HafnarQarðar sýning á vatnslita- og olíumálverkum Eiríks Smith, en verkin eru öll unnin á árun- um 1995-1999. Sýningin stendur til 27. september og er opin frá kl. 12-18 alla daga nema þriðjudaga. Rússnesk íkonaegg Þeir sem áhuga hafa á rússneskum íkonaeggjum geta tölt upp í safnaðar- heimili Kristskirkju Landakoti að Há- vallagötu 16 á sunnudaginn en þar kl. 10.30 heldur Sverrir Friðriksson fyr- irlestur um þetta fyrirbæri og á sama tíma opnar Orgelsjóður Kristskirkju þar sölusýningu á handmáluðum íkonaeggjum frá Rússlandi. FUNDIR OG MANNFAGNAÐIR Esparantistar hittast Esperantistafélagið Auroro heldur fund kl. 20.30 í kvöld að Skólavörðustíg 6b. Fjallað verður um námskeið í vetur, bornir saman verknaðarhættir sagna í esperanto og íslensku og rætt um AI- þjóðlega esperantosambandið. OG SVO HITT... Hlynimir í borginni I haust munu Skógræktarfélag Islands, Garðyrkjufélag Islands og Ferðafélag Is- lands standa fyrir göngum til kynningar á áhugaverðum tijátegundum á höfuð- borgarsvæðinu. I fyrstu göngunni verður skoðuð trjátegundin hlynur og síðan aðrar tijátegundir næstu 5 laugardaga. Vonandi verður hægt að finna hæsta hlyntré borgarinnar. I göngunni munu hljómlistarmenn frá FIH flytja tónlist undir laufþaki hlyntrjáa. Gangan hefst klukkan 10.00, laugardaginn 4. septem- ber við stóra hlyntréð á horni Vonar- strætis og Suðurgötu og tekur um tvo tíma. AJlt áhugafólk um ræktun er hvatt til að mæta. Þeir sem taka þátt í öllum göngunum geta átt von á óvæntum glaðningi í lokin. Nánari upplýsingar í s 551 8150 (Jón Geir eða Brynjólfur). Sumardagskráin í Viðey að enda Um helgina lýkur sumardagskránni í Viðey. A morgun laugardag verður að venju gönguferð um eyna. Farið verður frá kirkjunni kl. 14.15. Gjald er ekkert annað en ferjutollurinn sem er 400 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir börn. A sunnudag verður messað kl. 14. í eynni. Sr. Jakob Agúst Hjálmarson dómkirkjuprestur messar. Eftir messu verður staðarskoðun. Sérstök bátsferð með kirkjugesti verður kl. 13.30. Félag eldri borgara Asgarði, Glæsibæ Göngu-Hrólfar fara í létta gönguferð frá Glæsibæ á laugardag kl. 10.00. Félags- vist hefst aftur sunnudaginn 5. septem- ber kl. 13.30. Dansleikur í Asgarði á sunnudagskvöld kl. 20.00. Caprí Brids á mánudag ld. 13.00. Samkvæmisdansar Sigvalda á mánudag kl. 19.00 fyrir lengra komna og kl. 20.30 fyrir byijend- ur. Stærra og betra Baðhús Sunnudaginn 5. september heldur starfsfólk Baðhússins upp á miklar end- urbætur og stækkun húsnæði§ins. Heilli hæð hefur verið bætt við húsakostinn og um leíð miklu við starfsemina og þjón- ustuna. Af því tilefni er opið hús í Bað- húsinu að Brautarholti 20 sunnudaginn 5. September, frá kl. 13 til 17, og eru allar konur velkomnar. LANDIÐ TÓNLIST Land og synir á ferðinni Hljómsveitin Land og Synir verður í Höfðanum Vestmannaeyjum, föstu- dagskvöldið 3. september og í Uthlíð í Biskupstungum laugardagskvöldið 4. september. Gulli og Maggi á menningunni Það er alltaf eitthvað að gerast í Café Menningu á Dalvík. Föstudagskvöldið 3. septemher verða félagarnir Gulli og Maggi á efri hæðinni og halda uppi stuðinu. Aðgangur er kr. 500. A laugar- dagskvöld er svo frítt inn og þá veröur diskó-tek. SÝNINGAR Hana-nú Smellurinn lífíð er bland í poka Hana-nú leikhópur eldri borgara í Kópa- vogi er á leið um landið með sýningu á verkinu „Smellurinn ... Iífið er bland í poka.“ Þau verða í Sindrabæ, Höfn í Hornafirði í kvöld og í Valhöll Eskifirði annað kvöld. Báðar sýningamar heQast kl. 20.00. Sólveig Bima í Lónkoti Málverkasýning í Lónkoti. Þessa dag- ana sýnir Sólveig Birna Stefánsdóttir verk sín f Lónkoti í Skagafirði. Sýning- unni lýkur 15. september. Sólveig Birna er frá Kagaðarhóli en er búin að vera búsett í Noregi síðan 1993. Hún stundaði nám við Myndlista- og Hand- íðaskóla íslands 1990-1992 og í Kun- stakademíinu í Þrándheimi 1992 - 1994. Hún fæst bæði við málverk, teikningar og stuttmyndagerð. Sólveig hefur tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis og haldið nokkrar einkasýningar. STÖD 2 - FÖSTUDAGUR KL. 21.00 Stjóri fer í frí. Stöð 2 sýnir gaman- myndina Stjóri fer í frí, eða The Principal Takes a Holiday. Hér segir af uppivöðslusömum nemanda sem á á hættu að vera gerður arflaus komist hann ekki í gegnum skólaárið án þess að lenda upp á kant við yfirstjórn skólans. Þegar skólastjórinn lendir í slysi finnur nemandinn upp á því að fá flæking til að þykjast vera nýi skólastjórinn. Flækingn- um er ætlað að bijótast inn í tölvukerfi skólans og breyta umsögn nemandans. I helstu hlutverkum eru meðal annarra Kevin Nealon, Zachery Ty Bryan og Jessica Steen. Leikstjóri er Robert King. SÝN - FÖSTUDAGUR KL. 22.20: Leitin með Robert De Niro. Robert De Niro, Mickey Rourke og Lisa Bo- net leika aðalhlutverkin í spennu- myndinni Leitin, eða Angel Heart. Louis Cyphre er dularfullur náungi sem á óuppgerðar sakir við söngvara nokkurn vegna fjármála. Nú hefur söngvarinn hins vegar horfið sporlaust og Cyphre ræður einkaspæjara til að hafa uppi á honum. Þrátt fyrir að ým- islegt í fari Cyphre veki grunsemdir hjá einkaspæjaranum tekur hann að sér málið enda atvinnutilboðin af skornum skammti um þessar mundir. Leikstjóri myndarinnar, sem er frá árinu 1987 og er stranglega bönnuð börnum, er Alan Parker. STÖÐ 2 - LAUGARDAGUR KL. 21.15: Nútímafólk. Bíómyndin Nútímafólk, eða New Age, frá 1994 er á dagskrá Stöðvar 2. Myndin fjallar um Peter og Katherine Wither en þau eru uppar í Los Angeles sem lifa fremur innihalds- lausu lífi. Þegar þau missa bæði vinn- una fer virkilega að hrikta í stoðum hjónabandsins og til að flýja vandann taka þau upp á því að kaupa sér rán- dýra verslun. Verslunin verður þó ekki til að færa þau nær hvort öðru og það er ekki fyrr en þau leyta á náðir nýald- arsinna sem eitthvað fer að gerast í þeirra málum. I aðalhlutverkum eru Peter Weller, Judy Davis og Patrick Bauchau. Leikstjóri er Michael 'I’olkin. SÝN - LAUGARDAGUR KL. 22.45: Cher á tónleikum. Leik- og söngkonan Cher hélt tónleika á MGM-hótelinu í Las Vegast fyrir fáeinum dögum og í kvöld fá áhrofendur Sýnar að sjá upp- töku frá skemmtuninni. Cher, sem heitir fullu nafni Cherilyn Sarkasian LaPier, er fædd árið 1946 og hefur verið Iengi að í tónlistarbransanum. Sautján ára hitti hún Sonny Bono, sem síðar varð eiginmaður hennar, en saman mynduðu þau vinsælan dúett. Eftir 1980 sneri Cher sér að leiklist fyrir alvöru og á að baki nokkrar vinsælar myndir, meðal annars Moonstruck en frammistaðan í henni tryggði Cher Oskarinn. A tónleik- unum í Las Vegas fiutti Cher öíl þekkt- ustul lög sín, þar á meðal Believe sem kom hcnni aftur í efstu sæti vinsælda- listanna. SÝN - SUNNUDAGUR KL. 18.00: Meistarakeppni Evrópu á Sýn. Meistarakeppni Evrópu hefst um miðj- an september og fram undan eru margir skemmtilegir leikir. keppnin er nú með eiltíið öðru sniði en í fyrra og er stærsta breytingin sú að liðunum í lokakeppninni hefur fjölgað úr 24 í 32. Leikjunum fjölgar verulega og áhorf- endur Sýnar fara ekki varhluta af því. Samhliða beinum útsendingum verður vikulega sýndur sérstakur þáttur um keppnina og er sá fyrsti á dagskrá Sýn- ar í dag. Lið Manchester United hrós- aði sigri í Meistarakeppninni í fyrra en á erfitt verkefni fyrir höndum því allir vilja leggja meistarana að velli. STÖÐ 2 - SUNNUDAGUR KL. 20.35: Innrásarherinn - fyrri hluti. Fram- haldsmynd mánaðarins á Stöð 2 nefn- ist Innrásarherinn, eða The Invaders, og var gerð árið 1995. Þetta er hörku- spennandi mynd um tukthúsliminn Nolan Wood sem er sannfærður um að geimverur séu að leggja jörðina undir sig. Eins og gefur að skilja eiga menn bágt með að trúa þessu og af flestum er Nolan talinn hálfgeggjaður. En þeg- ar dularfullir atburðir gerast fer menn að renna grun í að maðurinn hafi nokkuð til síns máls. Síðari hluti myndarinnar er á dagskrá Stöðvar 2 annað kvöld. Með helstu hlutverk fara Scott Bakula, Elizabeth Pena og Ric- hard Thomas. Leikstjóri er Paul Shap- iro. STÖÐ 2 - MÁNUDAGUR KL. 20.55 Innrás utan úr geimnum. Seinni hluti framhaldskvikmyndarinnar Innrásarher- inn, eða The Invaders, er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Þetta er æsispennandi mynd sem fjallar um dularfulla atburði. Nolan Wood var af flestum talinn sturl- aður þegar hann hélt því fram að geim- verur væru að Ieggja undir sig jörðina. Skuggalegar uppákomur manna á meðal hafa hins vegar rennt styrkum stoðum undir þessar fullyrðingar Nolans og nú er hafin barátta mannkyns upp á líf og dauða fyrir tilverurétti sínum. I helstu hlutverkum eru Scott Bakula, Elizabeth Pena og Richard Thomas. Leikstjóri myndarinnar er Paul Shapiro. SÝN - MÁNUDAGUR KL. 22.45: Toyota-mótaröðin golfi. Toyota-mótá- röðinni í golfi lauk á Grafarholtsvelli í gærdag og í þætti kvöldsins fá golfá- hugamenn að sjá svipmyndir frá þessu síðasta stigamóti sumarsins. Mótin voru sex og samanlagður árangur efstu manna tryggir þeim landsliðssæti. Fyr- ir mótið í Grafarholti þóttu Islands- meistarinn Björgvin Sigurbergsson GK og Örn Ævar Hjartarson GS einna lík- legastir til afreka í karlaflokki en hjá konunum bar búist við að baráttan stæði á milli Islandsmeistarans Ólafar Maríu Jónsdóttur GK og Ragnhildar Sigurðardóttur GR. i ai, •• I - I •

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.