Dagur - 11.09.1999, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 -JH
LandsbanMnn
urðsson Hafnarstræti 14 og reisti
þar Ingólfshvol. Asgeir Sigurðs-
son, breskur konsúll, keypti
Hafnarstræti 12 og 10 með þeim
húsum sem á lóðunum voru, þar
var íbúðarhús og verslun
Knudtzons. I þessum húsum var
verslunin Edinborg sem Ásgeir
rak í félagi við tvo skoska kaup-
menn. Árið 1905 var íbúðarhús-
ið rifið og lét Edinborgarverslun
byggja nýtt stórhýsi á þess tíma
mælikvarða. Húsið var tvílyft
timburhús með turni og svipuðu
byggingarlagi og Sturlubræður
höfðu á sínum húsum, nema þeir
byggðu sín hús úr steinsteypu.
Má af þeim nefna Galtafell við
Laufásveg. Á neðri hæð hússins
var sölubúð, en uppi voru skrif-
stofur fyrirtækisins. 1907 voru
gerðar umtalsverðar endurbætur
á eystra húsinu, gömlu sölubúð-
inni. Þessi hús urðu eldinum að
bráð 1915. Edinborg var mikið
verslunarveldi, t.d. var það
stærsti fiskkaupandinn á þessum
tíma og sagt var að allur fiskur
hafi verið borgaður með gulli. Á
fyrstu árum aldarinnar voru sjö-
tíu manns í vinnu hjá fyrirtæk-
inu.
Nýtt Edinborgarhús var byggt
1923 á sömu lóð og húsin sem
brunnu. Það var steinsteypt
þriggja hæða hús í einskonar ný-
klassískum stíl, með flatsúlum að
framan og öðru skrauti mótuðu í
steinsteypmttTar'^Eanásbmikímr
keypti Edinborgarhúsið 1964 og
hefur breytt því mikið. Gerð var
göngubrú úr steinsteypu frá
þriðju hæð á Landsbankahúsinu
yfir á þriðju hæð á Edinborgar-
húsinu. Skrifstofur Rafmagns-
veitu Reykjavíkur og Reykjavík-
urhafnar voru í Edinborgarhús-
inu og þar tók Ríkisútvarpið til
starfa.
Árið 1904 var fullgert hús
Guðjóns Sigurðssonar úrsmiðs,
Ingólfshvoll, að Hafnarstræti 14.
Það var þrílyft steinhús, horn-
sneitt með turni. Magnús Th. S.
Rlöndal gerði teikningar að hús-
inu. Knud Zimsen, verkfræðing-
ur sem síðar varð borgarstjóri,
var Magnúsi til traust og halds
við framkvæmdina. Nýlunda var
að allir útveggir hússins voru
steyptir tvöfaldir og var steypan
styrkt með járnneti.
Húsið var verslunar -, skrif-
stofu - og íbúðarhús. Fyrstu ráð-
herrahjónin, Ragnheiður og
Hannes Hafstein, bjuggu í þessu
húsi eða þar til þau fluttu í ráð-
herrabústaðinn við Tjarnargötu.
í þessu húsi var um árabil Odd-
fellowreglan með fundarsal og
skrifstofur. Islandsbanki hóf
starfsemi sína í Igólfshvoli. I
brunanum mikla skemmdist hús-
ið mikið en útveggir stóðu uppi.
Þá fórst eigandi hússins, Guðjón
Sigurðsson.
Eftir endurbygginguna voru
vcrslanir og skrifstofur í hÖSinu.
Þar var verslunin París og rit-
fangaverslunin Penninn. Lands-
bankinn lét rífa húsið 1969 og
byggja nýtt, samtengt byggingum
bankans. Það hús teiknaði Gunn-
Iaugur Halldórsson arkitekt.
Hagstofan var lengi til húsa í
byggingum Landsbankans og
einnig Seðlabankinn.
Á svo löngum tíma sem Lands-
bankinn hefur starfað hafa verið
nokkrir bankastjórar við hann.
Tryggvi Gunnarsson var þar
bankastjóri uppúr aldamótunum
síðustu. Magnús Sigurðsson var
bankastjóri Landsbankans frá
1917 til 1947 og sá maður sem
lengst hefur gegnt bankastjóra-
stöðu í Landsbankanum. Um
tíma voru þrír bankastjórar við
Landsbankann en núna er þar
einn bankastjóri.
Eldri hluti afgreiðslusalar
heldur sínu upprunalega útliti,
með brjóstþiljum og marmarasúl-
um og málverkunum sem sýna
atvinnuvegi þjóðarinnar. Stækk-
un salarins inn í Ingólfshvol er
nýtískulegri, en ekki eins virðu-
leg. Þungar gegnheilar viðar-
hurðir með miklu munstri og
gleri eru fyrir inngöngudyrum frá
forsal í afgreiðslusaí. I kjallara
eru rammgerðar verðmæta-
geymslur með öflugu þjófavarn-
arkerfi. Skrifstofur eru á annarri
og þriðju hæð en í risi er glæsi-
legur borðsalur og önnur aðstaða
fyrir starfsmenn bankans.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur sam-
úð og vináttu við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa okkar,
ADOLFS DAVÍÐSSONAR,
Hlíðargötu 10, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á B-gangi, Dvalarheimilinu
Hlíð fyrir góða umönnun.
Kristín Pétursdóttir,
Guðmundur Adolfsson,
Númi Adolfsson,
Helga Adolfsdóttir
og fjölskyldur.
Útfararstofa íslands - Suðurhlíð 35-105 Reykjavík.
Sími 581 3300 - allann sólarhringinn.
Markmið Útfararstofu íslands er að veita trausta og persónulega
þjónustu. Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenær sólarhrings
sem er. Utfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla
þá þætti er hafa ber í huga er dauðsfall ber að. Útfararstjórar
Útfararstofu íslands búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við
útfararþjónustu um árabil.
Útfararstofa Islands sér um:
Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í
samráði við prest og aðstandendur.
- Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús.
- Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
- Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef
með þarf.
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn í rúðum og speglum •
• styrktarbita f hurðum •
• samlitaða stuðara •
FUI1*=*
FRAMEl
SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Utfararstofa Islands útvegar:
- Prest.
- Dánarvottorð.
- Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.
- Legstað í kirkjugarði.
- Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara
og/eða annað listafólk.
- Kistuskreytingu og fána.
- Blóm og kransa.
- Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum.
- Líkbrennsluheimild.
- Duftker ef líkbrennsla á sér stað.
- Sal fyrir erfidrykkju.
- Kross og skilti á leiði.
- Legstein.
- Flutning kistu út á land eða utan af landi.
- Flutning kistu til landsins eða frá landinu.
TEGUND:
Beinskiptur 1.399.000 KR.
Sjálfskiptur 1.519.000 KR.
• JIMNY fékk gullverðlaunin '98 í Japan
fyrir útlit, gæði, eiginleika og möguleika!
• Ódýrasti ekta 4x4 jeppinn á (slandi
• Hátt og lágt drif - byggður á grind
• Sterkbyggður og öflugur sportjeppi
ALUR SUZUKI BfLAR ERU MEÐ:
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Sverrir Olsen,
útfararstjóri