Dagur - 11.09.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 11.09.1999, Blaðsíða 1
Laugardagur 11. september - 34. tölublað Viðbygg- ingar við viðbygg- ingar Landsbanki Islands tók til starfa 1. júlí 1886 í húsi Sigurðar Kristjánssonar bóksala við Bakarastíg; sem nú er Bankastræti. Þar hafði Isafoldarprent- smiðja bækistöðvar sínar. A fyrstu árum bankans var hann opinn tvisvar í viku, tvo tíma í senn. Fyrsti bankastjór- inn var Lárus E. Sveinbjörnsson. Hann var skipaður í stöðuna af landshöfð- ingjanum. Aður en Lárus tók við stöð- unni fór hann utan og kynnti sér banka- starfsemi í Danmörku. Gjaldkeri við hinn nýja banka var Halldór Jónsson cand. theol. og fyrsti bókarinn Sighvat- ur Bjarnason. Fljótlega var farið að huga að því að bankinn eignaðist sitt eigið húsnæði og var keypt lóð á horni Pósthússtrætis og Austurstrætis. A lóð- inni hafði áður verið athafnasvæði verslananna sem voru í Flensborgar- húsunum. Síðan var þar kálgarður, en þegar Landsbankinn eignaðist lóðina var hún notuð undir leikvöll fyrir barna- skólann sem var til húsa í nýja skóla- húsinu sem nú er pósthús. Austurstræti 11, hús Landsbankans, var byggt eftir teikningum Christin Tur- nes árið 1899. Hann var danskur arki- tekt sem teiknaði nokkur hús í Reykja- vík sem enn standa, og má af þeim nefna Islandsbankahúsið, sem síðar hýsti Útvegsbankann og sjúkrahúsið á Akureyri. Yfirsmiður á Landsbankahús- inu var Valdimar Bald timburmeistari, sá hinn sami og var yfirsmiður Laugar- nesspítala og Alþingishússins ásamt fleiri merkum byggingum. Bygging Landsbankans var hlaðin úr tilhöggnu grágrýti og múrhúðuð. Talsvert skraut var í kringum glugga og víðar á húsinu. I brunavirðingu frá árinu 1899 segir meðal annars að húsið sé allt byggt úr steini og jafnað að utan með steinlími, með járnþaki á plægðri súð og með pappa í milli. Niðri í húsinu eru sex herbergi auk inngangs, allt sléttað með steinlími. A gólfi í innganginum og í helmingi afgreiðslusalar er flísagólf, í hinum helmingnum er steinsteypugólf. I afgreiðslusalnum eru tvö stálaf- greiðsluborð, eitt mahoníborð þversum yfir afgreiðslusalinn og þrjú fóðruð sæti. I einu herbergi eru tveir innmúr- aðir skjalaskápar með tvöföldum járn- hurðum. Uppi eru þrjú herbergi, öll sléttuð að innan með steinlími og með múrloftum. Efsta loftið er allt þiljað og málað. Kjallari er undir rúmlega helm- ingi hússins; í honum eru fjögur her- bergi. Allir milliveggir eru úr stein- steypu. I einu herberginu er járnskápur, fyrir því herbergi er tvöföld járnhurð. Allir stigar eru úr steinsteypu með eik- arborðum ofan á tröppum. I kjallaran- um er vél sem hitar upp húsið, sem er með sautján ofnum. Sjá bls. 2 og 3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.