Dagur - 11.09.1999, Blaðsíða 4
TV-LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999
MINNINGARGREINAR >
Vilborg Guðmimdsdóttir
Vilborg Kristín Guðmundsdótt-
ir fæddist á Akureyri 7. október
1922 og hún lést á hjúkrunar-
heimilinu Seli á Akureyri að-
faranótt fimmtudagsins 29.
apríl sl.
Foreldrar hennar voru hjónin
Guðmundur Halldórsson, mál-
ari á Akureyri, f. 27. maí 1889
í Hólagerði í Fáskrúðsfirði, d.
7. sept. 1977 á Akureyri, og
kona hans Sigurhanna Jóns-
dóttir, f. 12. janúar 1895, alin
upp í Miðgerði í Höfðahverfi,
d. 5. maí 1931 á Kristneshæli.
Bróðir Vilborgar var Svein-
björn Guðmundsson, f. 3. des.
1927 á Akureyri, d. 18. ágúst
1949.
Fósturforeldrar Vilborgar
voru Þorvarður G. Þormar
sóknarprestur í Laufási við
EyjaQörð, f. 1. febr. 1996, d.
22. ágúst 1970, og k.h. Ólína
Marta Jónsdóttir Þormar, f. 1.
mars 1898, d. 19. febr. 1991.
Uppeldisbræður hennar í
Laufási eru Guttormur, f. 7.
okt. 1925, Halldór, f. 9. mars
1929 og Hörður, f. 20. mars
1933.
Vilborg giftist í Laufási 6.
maí 1944 Guðmundi Jörunds-
syni, bifreiðarstjóra og slökkvi-
liðsmanni á Akureyri, f. 8. sept.
1918 á Akureyri, d. 20. mars
1984 á Borgarspítalanum í
Reykjavík. Foreldrar hans voru
Jörundur Guðmundsson og
Engilráð Sigurðardóttir, sem
bjuggu um skeið í Hrísey.
Börn Vilborgar og Guðmund-
ar eru: 1) Hanna Guðrún, f.
25. október 1944, d. 8. sept-
ember 1947. 2) Jörundur Arn-
ar, f. 4. júní 1947, eiginkona
hans er Guðrún Kolbeinsdóttir
og fyrrverandi eiginkona Am-
dfs Birgisdóttir, hann á 4 börn.
3) Sveinbjörn Þorvarður, f. 16.
febrúar 1952, eiginkona hans
er Þorgerður Halldórsdóttir og
eiga þau 3 dætur. 4) ÞórhaHa
Laufey, f. 17. nóverpber 1964,
eiginmaður hennar er Stefán
Stefánsson og fyrrverandi sam-
býlismaður Ólafur Harðarson,
börn hennar eru 3.
Vilborg ólst upp í Laufási frá
8 ára aldri og bjó síðan alla
sína ævi á Akureyri, lengst af
húsmóðir á Eyrarvegi 17.
Útför hennar fór fram frá Ak-
ureyrarkirkju þriðjudaginn 11.
maí sl.
Ég á enn í huga mínum eina
svipmynd frá vorinu 1931, þótt
flest annað sé gleymt frá þeim
tíma. Ókunnugur maður og dótt-
ir hans standa á hlaðinu í Lauf-
ási. Hún er í stuttum kjól með
tvær fléttur og heldur á lítilli
tösku í hendinni. Þetta er Guð-
mundur Halldórsson, málari frá
Akureyri, sem hingað er kominn
með dóttur s|na Vilborgu til þess
að koma henni í fóstur. Hún er
tæplega níu ára gömul og hafði
nýlega misst móður sína. Það er
hægt að ímynda sér hugarástand
hennar og Iíðan þessa fyrstu daga
í Laufási, þar sem hún var ein
með vandalausu fólki, þótt ég
gerði mér ekki fulla grein fyrir
því þá. Vilborg eða Vilía, eins og
hún var alltaf kölluð, varð þó
fljótlega eins og ein af fjölskyldu
okkar og hún var mér og bræðr-
um mínum eins og raunveruleg
systir.
Sveinbjörn bróðir hennar fór í
fóstur í Miðgerði í Höfðahverfi,
en þar hafði Sigurhanna móðir
þeirra alist upp hjá Vilborgu
Ivarsdóttur, húsmóður, og var
Villa látin heita í höfuðið á Vil-
borgu í Miðgerði. Það var bót í
máli fyrir systkinin að ekki var
nema um hálftíma gangur á milli
bæjanna Miðgerðis og Laufáss,
og á þessum árum var mikill
samgangur þar á milli. Miðgerð-
iskrakkarnir voru aðalleikfélagar
okkar krakkanna í Laufási, þótt
við værum á ýmsum aldri, og var
mikil vinátta á milli heimilanna.
Minningar frá æskuárunum í
Laufási eru margar. Villa hafði
verið á Grenjaðarstað eftir að
móðir hennar veiktist og þar
hafði hún numið margvíslegan
fróðleik af eldra fólkinu. Af þess-
um fróðleik miðlaði hún okkur
minni krökkunum óspart og
kunni ógrynni af sögum af álfum
og huldufólki, sem bjuggu í stór-
um steinum, og af hafgúum í
djúpu pyttunum, sem sumir voru
botnlausir og komu upp ein-
hversstaðar hinumegin á hnett-
inum. Villa hafði sérlega mikla
og lifandi frásagnarhæfileika og
við hlustuðum með óttabland-
inni athygli á frásögn hennar og
lifðum okkur inn í ævintýrin og
þjóðtrúna. Samkvæmt þessari
álfatrú mátti til dæmis aldrei tína
bláber hjá stóru steinunum, því
að þá reiddist huldufólkið og eitt-
hvað slæmt gat komið fyrir, en í
dældunum við stóru steinana var
einmitt mest af berjum.
Villa og við bræðurnir þrír ól-
umst upp saman í Laufási við
leik og störf. Byggt var bú uppi í
brekku og þar voru kjálkar, legg-
ir, horn og skeljar húsdýrin okk-
ar. Við vorum snemma látin
vinna alla almenna sveitavinnu
eins og hún tíðkaðist þá. Á sumr-
in var oft mikill gleðskapur í
Laufási, þegar þar var sumarfólk
við heyskap og kaupstaðarbörn
voru þar í sveit. Villa, sem var elst
okkar, tók mikinn þátt í þeim
gleðskap. Hún var mjög félags-
lynd og sótti skemmtanir unga
fólksins í sveitinni. A þessum
árum kynntist hún mörgum, sem
hún hélt síðan kunningsskap við
alla ævi.
Barnaskólanámíð fór að mestu
fram heima á vetrum, en Villa fór
síðan í barnaskólann á Sval-
barðseyri og tók þaðan fullnaðar-
próf. Eftir það lá leiðin í hús-
mæðraskólann á Laugum og þar
eigaðist hún margar af sínum
bestu vinkonum. Hún var þó
alltaf heima í Laufási á sumrin
við sveitastörfin.
Eftir veruna á Laugum réði
hún sig í vist á vetrum, en vetur-
inn 1943-1944 vann hún sem
gangastúlka á sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri. Þá hafði hún kynnst til-
vonandi eiginmanni sínum, Guð-
mundi Jörundssyni bifreiðar-
stjóra og síðar slökkviliðsmanni á
Akureyri, og opinberuðu þau trú-
lofun sína 4. des. 1943. Þau
komu svo út í Laufás vorið 1944,
þar sem fósturfaðir hennar gaf
þau saman þann 6. maí. Þau
stofnuðu heimili sitt á Akureyri,
og bjuggu þar alla tíð síðan,
Iengst af á Eyrarvegi 17. Heimili
Villu og Mumma, eins og við
alltaf kölluðum hann, bar allt
vott um gestrisni og einstaka
snyrtimennsku bæði inni og úti
og þau voru mjög samtaka í öllu
því, sem þau tóku sér fyrir hend-
ur. Það var mikil hamingja og
gleði þegar þeim fæddist dóttir
haustið 1944. Hún var skírð í
Laufási 22. júlí 1945 og hiaut
nafnið Hanna Guðrún. Sorgin
átti þó brátt eftir að knýja dyra
hjá ungu hjónunum, því Hanna
litla dó aðeins tæplega þriggja
ára gömul, en skömmu áður
hafði þeim fæðst sonurinn Jör-
undur. Sveinbjörn, bróðir Villu,
dó svo tveimur árum seinna.
Mummi var einstaklega um-
hyggjusamur og góður eiginmað-
ur og heimilisfaðir. Fósturfor-
eldrum Villu var hann sem besti
tengdasonur og var þeim mjög
hjálpsamur, þegar á þurfti að
halda. Guðmundur, faðir Villu,
bjó hjá þeim lengst af þangað til
hann lést haustið 1977.
Það var mikið áfall þegar
Mummi greindist með illvígan
sjúkdóm, sem leiddi hann til
dauða snemma árs 1984. ViIIa
var mikil draumamanneskja og
var það sem kallað er berdreym-
in. Draumar hennar voru ein-
staklega skýrir og lifandi. Mér er
sérstaklega minnisstæður
draumur, sem hún sagði okkur
frá og hana dreymdi skömmu
áður en Mummi greindist með
sjúkdóminn. Drauminn túlkaði
hún svo, að eiginmaður hennar
færi bráðlega til litlu dótturinnar,
sem þau höfðu misst.
Villa var mjög minnug og hafði
gaman af að segja frá. Hún hafði
góða Ieikhæfileika og átti auðvelt
með að líkja eftir fólki, þó alltaf á
græskulausan hátt. Eg man hana
sérstaklega sem léttlynda og
glaða, þótt hún gæti líka verið al-
varleg á stundum. Eg hafði í
gamla daga þótt nokkuð stríðinn,
en hún minntist þessarar stríðni
minnar samt alltaf með gaman-
semi, þegar við töluðum um fyrri
tíma. Henni þótti mjög vænt um
æskuheimili okkar í Laufási og
bar alltaf mjög mikla umhyggju
fyrir staðnum og allri umgengni
þar. Þegar ég heimsótti hana á
Akureyri bæði fyrr og síðar, var
umræðuefnið oft sveitin, og þá
sérstaklega Laufás. Þangað fór-
um við saman til að heimsækja
gamlar slóðir og rifja upp æsku-
árin. Þá fórum við í gamla bæ-
inn, þar sem við höfðum átt
heima, og þar þekkti Villa hvern
krók og kima.
Samband Villu við fósturfor-
eldra sína var mjög náið. Þegar
móðir okkar veiktist snemma árs
1991 og séð varð að hverju dró,
brá Villa skjótt við og kom hingað
suður til að vera hjá henni síð-
ustu þrjár vikurnar. Skömmu
seinna fór að bera á þeim óhugn-
anlega sjúkdómi, sem að lokum
leiddi hana til dauða og síðustu
árin urðu henni erfið. Hún, sem
alltaf hafði verið svo minnug og
fróð og sagði svo skemmtilega
frá, fór smámsaman að missa
minnið og að lokum gat hún ekki
tjáð sig með orðum. Nú hefur
hún verið leyst frá þrautum sín-
um og fengið hvíld. Eg þakka
henni fyrir allar góðu samveru-
stundirnar á Iífsleiðinni bæði fyrr
og síðar. Við Guðrún þökkum
henni fyrir margar góðar stundir
bæði fyrir norðan og hér í
Reykjavík og sendum börnum
hennar og fjölskyldum þeirra
innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Vilborgar
Guðmundsdóttur.
Guttormur Þormar.
Islendingaþættir birtast í Degi
alla laugardaga.
Skilafrestur vegna minningagreina er til þriðjudagskvölds.
Reynt er að birta allar greinar eins fljótt sem verða má, en
ákveðnum birtingardögum er ekki lofað.
Æskilegt er að minningargreinum sé
skilað á tölvutæku formi.